Réttur - 01.04.1975, Blaðsíða 27
Hér gefur að líta mynd af átta af þeim þúsundum pólitískra fanga, sem dvelja nú í dýflissum fasista-
stjórnarinnar I Suður-Afríku. Þessir forustumenn eru: (Efri röð): Abram Fischer, nú látinn, — Dorothy
Nyemi, dæmd I 15 ára fangelsi, — Nelson Mandela, dæmdur í ævilangt fangelsi. einn höfuðleiðtogi og
löngum formaður ANC (afríska þjóðþingsflokksins) hefur oft áður verið um hann ritað I ,,Rétti",2) —
Billy Nair, dæmdur til 20 ára fangelsisvistar. — I neðri röð: Walter Sisulu, einn aðalleiðtogi A.N.C.,
dæmdur í ævilangt fangelsi, — Denis Goldberg, dæmdur í ævilangt fangelsi, — Ahmed Kathrada,
dæmdur i ævilangt fangelsi, — Govan Mbeki, dæmdur I ævilangt fangelsi. (Mynd þessi er tekin úr
þvi ágæta tímariti, African Communist, sem oft hefur verið minnst á hér).
námugreftri og námu- og vatnsréttindum.
Hann fjallaði einnig um mörg meiðyrðamál.
Og frá upphafi starfsvega sinna var hann
jafnan fús að taka að sér mál svertingja, sem
lent höfðu í forboða- og vegabréfaneti lög-
reglunnar, og sá þá ekki til launa. Skömmu
fyrir handtökuna hafði hann verið starfandi
í félagi hæstaréttarlögmanna lengur en nokk-
ur annar, og um skeið var hann forseti þess.
✓
A fjórða áratugnum, er hann var að fram-
ast í málflutningi við hæstarétt, gekk hann í
Kommúnistaflokk S.-Afríku; en hann var þá
löglegur flokkur. Mörgum aðdáendum hans
þarlendis og erlendis hefur þótt þetta súrt í
brotið. En það er samt efalaust vitnisburður
um algeran heiðarleik hans í stjórnmálum,
að hann fyllti þann eina flokk, sem var á
móti yfirdrottnun hins hvíta minnihluta. Og
hann dró heldur aldrei dul á þá staðreynd.
Árið 1946, eftir verkfall 100.000 námu-
107