Réttur - 01.04.1975, Side 30
haldiÖ áfram að bjóða Verwoerd-stjórninni
birginn í dómsölum. Þegar valdhafar hafa
gert löggjöfina að skækju sinni, er erfitt að
þjóna réttvísinni. Bram tók því hinn sama
kost og þúsund'r andfasista, sem risu gegn
nazismanum í Evrópu, — kaus að fara
huldu höfði til þess að klekkja á harðstjórn,
sem ekki var hótinu frýnilegri en blóðveldi
nasista. Með því kveikti hann von í brjóstum
8.500 stjórnmálafanga í S.-Afríku og fjöl-
skyldna þeirra, og hörundsdökkra olboga-
barna landsins miljónum saman. I augum
þeirra, sem enn berjast gegn Apartheid, er
hann tákn hugrekkis og hugsjónatryggðar.
Hann sat dæmdur í lífstíðarfangelsi í
Pretoríu. Fyrir fangaklefa hefur hann fórn-
að auði, hróðri, þægindum, tignarstöðu, —
forréttindalífi í sjálfu forréttindaþjóðfélagi
hvítra manna.
En anda hans verður ekki blótað á bak
við fangelsismúra. Hann er einn þeirra fáu
hvítu S.-Afríkumanna, sem kunna að hafa
hin fjölbreytilegustu lífsviðhorf og skoðanir
í stjórnmálum og trúarefnum, en eiga sam-
merkt í því að sætta sig ekki þegjandi við
þjóðfélag, sem grundvallað er á mannvonsku,
og láta ekki gróm þess á sér festa. En eins
og þeim er misboðið er gjörvöllu mannkyni
misboðið ásamt þeim af ómennsku stjórn-
kerfi, sem afsiðar hvíta og svarta og hefur
öll æðri gildi mannlegs félags að háði og
spotti. Líf Abrams Fischers er eldskírsla
MANNS, — þess lifandi anda sem engin
harðstjórn fær grandað.
Þorsteinn Valdimarsson
þýddi lauslega.
SKÝRINGAR:
..Réttur" hefur áður b:rt grein um Bram Fischer
1966, b.'s. 207—215, og er þar og hluti úr varnar-
ræðu hans 1966, en hún var gefin út undir he'.tinu
,,What I did was right" (Það sem ég gerði var rétt)
1966, norsk þýðing 1967.
2) Um Nelson Mandela má lesa í „Rétti", 1966,
þls. 100—104 og var þar stuðst við bók hans ,,No
easy walk to freedom" (Engin auðveld leið til frels-
is), er út kom i London 1965 með formála eftir
þáverandi forseta Algier, Ben Bella. — Nelson
Mandela var eins og Sisulu, Mbeki, Kathreda og
Goldberg í Rivonia-réttarhöldunum 1964. Walter
Sisulu átti ásamt Mandela höfuðþátt í að gera
A.N.C. að þeim róttæka, vigreifa þaráttuflokki, sem
hann nú er. Sisulu er fæddur 1912, Mandela 1918.
110