Réttur


Réttur - 01.04.1988, Qupperneq 8

Réttur - 01.04.1988, Qupperneq 8
Kvennaárið En svo ég snúi mér aftur að löggjöfinni þá voru Almenn jafnréttislög samþykkt með lögum nr. 78/1976. F»á fyrst erum við komin með svipaða löggjöf og Hannibal setti fram 1949 — nema að frumvarp Hannibals var mun róttækara. í lögunum frá 1976 er komið inn á mun fleiri svið en Jafnlaunaráð Svövu Jakobsdóttur náði yfir — í þeim var ekki bara talað um laun, heldur um menntun, jafnréttisfræðslu, aukna ábyrgð kvenna og fjölskyldupólitík o.s.frv. Eg held að engum dyljist hvaða áhrif kvennaárið eða kvennafrídagurinn hafði á þessa lagasetningu. Jafnréttisráð var sett á laggirnar og því ætlað fjármagn til reksturs skrifstofu og var hlutverk þess að fylgjast með að farið væri eftir þessum nýju lögum. Jafnréttisráð hefur sem sagt starfað í rétt rúm tíu ár. Nú voru komin lög sem bönnuðu allan mismun eftir kyn- ferði, við vorum komin með opinbera stofnun sem átti að fylgja eftir þessum lögum — þurfti eitthvað meira?? Gátu ekki konur slappað af og farið að njóta sín? Jafnréttið var tryggt með lögum — þurfti eitthvað meira til? Já — því miður þá var þetta ekki nóg. Lög ein virðast ekki nægja til að tryggja konum sama rétt og sömu stöðu og karlar hafa. Og kemur þar margt til, m.a. áhugaleysi stjórnvalda og aldagömul viöhorf. Eru það einu skýringarnar? Geta sósíalistar, jafnt kon- ur sem karlar, fallist á þetta sem skýr- ingu? Hljótum við ekki að taka undir slagorð Klöru Zetkin og Rauðsokkanna „engin kvennabarátta án stéttabaráttu og engin stéttabarátta án kvennabaráttu“? 56

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.