Réttur - 01.04.1988, Side 18
Voðinn yfir Islandi
Nú ríkir á íslandi auðugasta yfirstétt,
sem nokkru sinni hefur drottnað hér.
Hún er í beinni þjónustu erlends valds og
fær gróða sinn beint frá þessu valdi, sem
hernumið hefur land vort og hersetið
ólöglega í 47 ár.
Og hér er komin upp efnuð millistétt,
sem hirðir lítt um sjálfstæði lands og
þjóðar.
En verkalýður lands vors er þrælkaður
með lengri vinnutíma en nokkur önnur
Evrópuþjóð.
Og nú hyggur yfirstétt landsins og
þjónar hennar í ríkisstjórn á að fá meira
útlent auðvald inn í landið. — Það er tal-
að um 3 álverksmiðjur!
Hvað þýðir það?
Það á að fleygja því rafmagni, sem
þjóð vor þarf að nota í framtíðinni til
góðrar framleiðslu, í greipar erlendra
kúgara, sem ætla að eyðileggja andrúms-
loftið hér, — besta loft Evrópu, — af því
þjóðir þeirra þola þeim ekki slík skemmd-
arverk lengur. Og þeir vilja fá þetta dýr-
mæta afl fyrir lítið fé og treysta á ræfil-
dóm íslenskra ráðherra.
Það er stórhætta á ferðum, íslending-
ar.
Hingað til höfum við getað verið stoltir
af loftinu og lækjavatninu. Nú á að
óhreinka þetta allt — erlendu auðvaldi til
gróða.
Vér höfum einnig búið við hættuna af
vígvélum á íslandi í 46 ár. Pétur Péturs-
son þulur auglýsir 30. júlí í Morgunblað-
inu að 1946 hafi Gylfí Gíslason sagt að
Kaninn hafi fjárfest í vígvélum fyrir 80
milljónir króna í landinu eða andvirði 600
íbúða — og bent á hættuna. En nú ætlar
bandaríska hervaldið að fjárfesta fyrir alls
46000 milljónir króna, (46 milljarða) eða
andvirði 9200 íbúða. — ísland á auðsjá-
anlega að verða ein voldugasta vígstöð
Kanans — meðan hann talar um frið og
„afvopnun“.
En meðan Kaninn af ótta við Sovét
ekki leggur í stríð, sem dræpi íslendinga,
þá á mengun stóriðjunnar að sjá um að
eitra okkur.
Það er hægt að skapa næga heilbrigða
atvinnu á íslandi, ef áhugi er fyrir því hjá
þeim, sem völdin hafa. Það þarf ekki að
eitra lungu verkamanna í álbræðslum eins
og nú er gert eða koma á annarri eitrun.
En til þess að afstýra ógæfu, bæði af
drápstækjum og stóriðju, þarf alþýðan
sjálf, sem er meirihluti þjóðarinnar, að
standa saman um að taka völdin og af-
stýra ógæfunni.
Landráðalýðurinn í ráðherrastólunum
veit hins vegar hvernig kúga skal alþýð-
una. Hann ætlar að skipuleggja atvinnu-
leysi í stórum stíl. — Það dynja yfir upp-
sagnir hundruða verkamanna- og kvenna
þessa dagana. Það á að svelta þá til undir-
gefni við þá háu herra.
Hér duga engin vettlingatök. Verka-
lýðurinn og launafólkið allt verður að rísa
upp saman og reka kúgarana frá völduin.
Þeir neyðast hvort sem er til að fara út í
kosningar og þá verður alþýðan öll að
vera reiðubúin til að reka núverandi
óstjórnarflokka frá völdum.
66