Réttur - 01.04.1988, Qupperneq 38
JÓN KJARTANSSON:
Magnús Jóhannsson
frá Hafnarnesi
f. 28. des. 1921, d. 26. júní 1987
Þótt nokkuð sé um liðið síðan Magnús
frá Hafnarnesi lést þykir mér rétt að rita
fáein orð í minningu hans sem lítinn þakk-
lætisvott fyrir störf hans í þágu Verka-
lýðsfélags Vestmannaeyja.
Magnús var fæddur í Hafnarnesi við
Fáskrúðsfjörð 12. desember 1921, sonur
hjónanna Guðríðar Lúðvíksdóttur og
Jóhanns Magnússonar.
Hann byrjaði snemma að stunda sjó og
fjórtán ára gamall var hann farinn að
stunda sjóinn frá Vestmannaeyjum. Þeg-
ar kraftar og þrek fóru að þverra með
aldrinum lá það fyrir honum eins og flest-
um sjómönnum að þurfa að fara í land og
stundaði hann ýmis verkamannastörf þar
til heilsa hans bilaði.
Magnús dró engan dul á róttækar
skoðanir sínar og hafði áhuga á starfi
þeirra stéttarfélaga, sem hann átti aðild
að. Árið 1971 gengur hann í Verkalýðs-
félag Vestmannaeyja og sama ár er hann
kosinn ritari félagsins á aðalfundi þess og
gegndi því starfi í tvö ár.
Árið 1962 kvæntist Magnús eftirlifandi
konu sinni Guðlaugu Þorbergsdóttur.
Þeim var ekki barna auðið, en ólu upp
kjördóttur, Dagnýu Björt Magnúsdóttur.
Það lá fyrir þeim hjónum, eins og
mörgum Eyjamanninum að missa eigur
sínar undir hraun í eldgosinu á Heimaey
1973 og hefur það eflaust átt sinn þátt í að
heilsu Magnúsar fór hrakandi upp úr því.
En það sem átti hug Magnúsar allan
voru þó ritstörfin og liggur margt eftir
hann af skáldsögum, smásögum, frásögn-
um og ljóðum.
Alls komu út eftir Magnús 11 bækur:
1955 Vegamót (smásögur)
1966 Heimur í fingurbjörg (skáldsaga)
1970 Svikinn draumur (skáldsaga)
1978 Silungurinn í lindinni (Ijóð)
1978 Blómið í brjósti mér (Ijóð)
1979 Ferðin til stjörnulandsins (skáld-
saga)
1980 Augu borgarinnar (skáldsaga)
1981 Jónsmessunæturdraumur (skáld-
saga)
1982 Nokkur ljóð (Ijóð)
1984 Ferðalok (skáldsaga)
1985 Svona er lífið (smásögur og
frásagnir)
Ekki ætla ég mér þá dul að gerast rit-
dómari yfir verkum Magnúsar að honum
gengnum. En verk Magnúsar eru merki-
leg í sjálfu sér þegar tekið er tillit til þess
að þau eru rituö af fátækum erfiðismanni,
á einföldu alþýðumáli og af manni sem
studdist við barnaskólamenntunina eina.
Vestmannaeyjum 27. júní 1988
86