Réttur


Réttur - 01.01.1989, Side 18

Réttur - 01.01.1989, Side 18
GYLFI PÁLL HERSIR: Af kynningarfundi bókarinnar: Thomas Sankara talar: Byltingin í Burkina Faso 1983-1987 Hinn 5. aprfl síðastliðinn var haldinn opinber fundur þar sem forlagið Path- finder kynnti bókina, Thomas Sankara Speaks: The Burkina Faso Revolution 1983-1987 (Thomas Sankara talar: Byltingin í Burkina Faso 1983-1987). Þar fluttu ávörp Svavar Gestsson menntamálaráðherra, Sigþrúður Gunnarsdóttir formaður Suður-Afríkusamtakanna gegn apartheid, Nestor Bidadanure frá Afr- íkuríkinu Burundi og jafnframt einn ritstjóra tímaritsins Coumbite, sem ungir Afríkumenn gefa út í París og Doug Cooper er ritaði inngang að bókinni. í þessu tölublaði Réttar eru birt þrjú ávarpanna, þeirra Svavars, Sigþrúðar og Doug Cooper. Thomas Sankara var forseti Vestur- Afríkuríksins Burkina Faso, sem áður hét Efri-Volta, á árunum 1983-1987. Hann var myrtur í valdaráni 15. október 1987. í bókinni eru þýðingar á tuttugu og fimm ræðum og viðtölum við hann frá ág- úst 1983, er aiþýðubyltingin átti sér stað, til október 1987, aðeins viku fyrir gagn- byltinguna. Hún tjáir með orðum Sank- ara sögu byltingar í einu fátækasta landi heims. Bókin ber einnig vitni persónuleg- um eiginleikum Sankara og vinsældum hans um alla Afríku. Á fundinum kvað Nestor Bidadanure Thomas Sankara vera sprottinn úr þeim raunveruleika sem við blasir í Afríku, þar sem 25% allra barna ná ekki 5 ára aldri. í Burkina Faso og um alla Afríku vildi hann leysa grundvallar vandamál sem hafa í för með sér dauða og eyðileggingu. Þá lagði Bidadanure sérstaka áherslu á baráttuna fyrir sjálfstæði Namibíu og sagði nýja Sankara koma fram meðal þeirra sem standa andspænis apartheid og berjast fyrir að halda reisn sinni. Ricardo Pasos Marciacq sendiherra Nicaragua á íslandi með aðsetur í Sví- þjóð sendi fundinum kveðju þar sem m.a. 18 trá kynningu bókarinnar, Thomas Sankara talar. Fremst má sjá frummælendurna Sigþrúði, Doug Cooper og Nestor Bidadanure ásamt túlkum. (Ijósm. Högni Eyjólfs.) segir: „Þessi bók sýnir skýrt að þótt hægt sé að deyða menn er ekki hægt að deyða hugsjónir þeirra. Þvert á móti er það svo að dauði hugsjónamanna ber með sér frækorn nýrra hugsjónamanna.“ Garcia Vaz Contreiras, sendiherra Angólu á íslandi með aðsetur í Svíþjóð, lagði áherslu á mikilvægi Sankara sem al- þjóðlegs byltingarleiðtoga í kveðju sinni til fundarins með þessum orðum: „Við skulum vona að hugsanir Thomas Sank- ara verði skildar um gervalla Afríku, í Evrópu og öðrum hlutum heims og haldi áfram að vera skerfur til vináttu, sam- stöðu og gagnkvæms skilnings þjóða í milli gegn kúgun, tilraunum til síðnýlendu- stefnu og sérstaklega gegn hinu skelfilega apartheid.“ Eugene Makhlouf fulltrúi PLO í Sví- þjóð og Aaron Mnisi fulltrúi Afríska þjóðarráðsins í Suður-Afríku (ANC) í Kaupmannahöfn sendu fundinum kveðju og sömu sögu er að segja um Mið-Amer- íkunefndina og Iðnnemasamband íslands. Þá barst fundinum kveðja frá samstöðu- félögum á Seyðisfirði, þar sem minnst er orða Thomas Sankara „... þegar fólkið rís upp skelfur heimsvaldastefnan.“ 19

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.