Réttur - 01.01.1989, Blaðsíða 20
SVAVAR GESTSSON:
íslensk alþýða á margt
sameiginlegt með
kúguðum í Afríku og
öðrum löndum
Góðir fundarmenn
Ég vil byrja á því að þakka aðstandendum þessarar samkomu fyrir það að
kalla í mig hingað.
Ég hef tekið eftir því starfi sem þau
hafa verið að vinna á undanförnum árum
og í raun og veru er það þannig að þeir
eru færri og færri sem í þessu hraðfleyga
neyslukapphlaupi nútímans gefa sig að
hugsjónamálum eins og þeim að fylgjast
með því sem er að gerast í kringum
okkur, fylgjast með því sem er að gerast í
Afríku, Suður-Ameríku, Asíu, í baráttu
alþýðunnar þar fyrir því að fá að ganga
upprétt, fyrir skárri lífskjörum en hún
hefur. Og ég tel að starfsemi þess hóps,
sem fyrir þessum fundi stendur hér í
kvöld, hún sé okkur í raun og veru mjög
dýrmæt í þessu landi. Hún heldur okkur
við efnið, sem erum partur af þessu
hraðfleyga kapphlaupi augnabliksins í
okkar samfélagi. Það er sérstaklega
ánægjulegt að taka eftir því að það er
jafnan svo þó að samkomur okkar séu
stundum ekki ákaflega fjölmennar að það
er jafnan eitthvað af ungu fólki sem er að
gefa sig að þeim málefnum sem við erum
að fjalla um og rædd eru á þessum sam-
komum.
Mér finnst, þegar ég hugsa um það
stundum, að ég hafi bara einu sinni á æv-
inni komið til útlanda. í rauninni þá hafi
öll lönd sem ég hafi heimsótt verið í meg-
inatriðum eins. Við höfum komið til
Bandaríkjanna og Danmerkur og Vestur-
Þýskalands og Frakklands, jafnvel Moskvu
og Austur-Þýskalands. I raun og veru er
það þannig að þegar maður horfir á lífs-
kjör fólksins í þessum löndum og virðir
þau fyrir sér þá eru þau í grundvallar-
atriðum fjarska lík. Kröfurnar sem verið
er að gera í þessum löndum eru oft
fjarska líkar til daglegra lífsgæða.
Ég var liins vegar svo heppinn einu
sinni að fá tækifæri til þess að heimsækja
land sem liggur að Burkina Faso fyrir
nokkrum árum og dvaldist þar í tvær
vikur, bjó þar á auðkýfingahóteli innan
20