Réttur - 01.01.1989, Blaðsíða 31
HELGI GUÐMUNDSSON:
Skref fyrir skref
í minningu um failinn félaga
Þegar skipulagi Alþýðusambandsins var breytt haustið 1940 og skilið á milli
Alþýðuflokks og sambands verkalýðsfélaga, starfaði Menningar- og fræðslusam-
band alþýðu undir hatti Alþýðusambandsins. Helsti hugsuður þess og forystu-
maður var Finnbogi Rútur Valdimarsson. Við skipulagsbreytinguna varð MFA
líkt og úti, það starfaði að sönnu í nokkur ár sem bókaforlag og kom ýmsum
verkum á framfæri við þjóðina, en starfsemin lagðist að lokum niður, enda naut
það takmarkaðs styrks af hinni breyttu verkalýðshreyfingu.
Það leið meira en aldarfjórðungur frá
skipulagsbreytingunni 1940 þar til
þráðurinn var tekinn upp að nýju og
Menningar- og fræðslusamband alþýðu
hið síðara varð til. Ekki svo að skilja að
ekkert hafi verið gert í fræðslumálum
samtakanna í millitíðinni en allt var það
tilviljanakennt og án heildarskipulags. Á
sama tíma og undirbúningur að stofnun
MFA stóð yfir áttu sér stað miklar breyt-
•ngar á vinstri vængnum í pólitík, Sósíal-
istaflokkurinn var lagður niður og Alþýðu-
bandalagið stofnað.
Stefán Ögmundsson var í hópi þeirra
manna innan Sósíalistaflokksins sem var
andvígur því að flokkurinn yrði lagður
niður en flestir aðrir (lokksmenn í forystu-
sveit verkalýðshreyfingarinnar voru á
annarri skoðun. Þetta hefði auðveldlega
geta leitt til þess að Stefán einangraðist í
hreyfingunni, þar sem ieiðir skildu með
honum og eldri félögum í svo mikilsverðu
máli. Stofnun MFA var samþykkt átaka-
laust á þingi Alþýðusambandsins árið
1968 en forystusveitin kom ekki úr því
liði frægra þungaviktarmanna sem þá
setti svip sinn á samtökin. Stefán leiddi
þetta starf og honum veittist undra auð-
velt að ná góðu samstarfi við nýja kynslóð
manna sem sumir hverjir voru að hasla
sér völl innan hreyfingarinnar, en aðrir
áttu lengri starfsferil að baki. í fyrstu
stjórn MFA voru auk Stefáns, sá er þetta
ritar, Sigurður E. Guðmundsson núver-
andi framkvæmdastjóri Húsnæðisstofn-
unar og borgarfulltrúi Alþýðuflokksins,
Óðinn Rögnvaldsson prentari, um tíma í
forystusveit framsóknarmanna í Reykja-
vík og Magnús L. Sveinsson sem nú er
forseti borgarstjórnar í höfuðstaðnum.
Hverjum hefði að óreyndu dottið í hug,
að gamall baráttumaður úr Kommúnista-
flokknum og síðar Sósíalistaflokknum,
sem hafði starfað í verkalýðssamtökunum
á pólitískasta skeiði þeirra og jafnan í liði
hinna róttækustu, myndi geta leitt starf
stjórnar er skipuð var mönnum úr svo
ólíkum áttum. En honum tókst það og
31