Réttur


Réttur - 01.01.1989, Side 32

Réttur - 01.01.1989, Side 32
þaö sem meira var: Á þeim tólf árum sem við vorum saman í stjórn MFA man ég aðeins eftir einu tilviki þar sem við vorum bornir atkvæðum, samþykktir stjórnar- innar voru í flestum tilfellum gerðar sam- hljóða. Enda þótt skoðanir Stefáns á þjóðfé- laginu mótuðust af sósíalistískum skiln- ingi á stéttaþjóðfélaginu og þeirri sann- færingu að þjóðfélaginu yrði ekki breytt nema með tilstyrk öflugra verkalýðssam- taka, skildi hann vel þær breytingar sem orðið höfðu í þjóðfélaginu, og á sam- tökunum er hann sjálfur hafði tekið þátt í að móta. Verkefni MFA áttu að hans mati að beinast að tvennu: Veita leið- beiningar um réttindi og skyldur verka- fólks og því að koma á framfæri nýjum skilningi á menningarstarfi þar sem vinn- an og vinnustaðurinn skipaði sérstakan sess. Á þessum árum réðst MFA í nokkur stór viðfangsefni á sviði menningarmála. Má í því efni nefna verkefnið Maðurinn og hafið menningardaga fiskvinnslufólks og sjómanna í Vestmannaeyjum, lista- og menningarhátíð með þátttöku margra félaga, stofnana og einstaklinga þar sem allur bærinn var meira og minna undir- lagður, Vinna, umhverfi og frístundir ráðstefna um vinnuumhverfi, vinnutíma og gildi frístunda í samvinnu við verka- lýðsfélögin og Slippstöðina á Akureyri. Jafnframt var komið upp sýningu er sýndi fjölþætt frístundastarf starfsmanna stöðv- arinnar. Sú sýning sló öll aðsóknarmet en hana sáu nokkuð á fjórða þúsund manns. Og síðast en ekki síst kom leikþátturinn Vals eftir Jón Hjartarson sem sýndur var á fjölda vinnustaða með nokkur þúsund áhorfendum. Fleira mætti nefna. Menn geta deilt um þaö hvort starf af þessu tagi leiðir til einhvers sem skiptir máli. Sjálfur er ég sannfærður um að eftir því sem fólk veit meira um rétt sinn, eða eftir atvikum réttleysi, og á fleiri og betri kosti til að velja um í frístundum sínum, þeim mun meiri líkur eru á að það vilji leggja breytingum til batnaðar lið. Það hefur eitthvað að sækja, eitthvað að verja. Undir forystu Stefáns tók starfsemi MFA stöðugum breytingum, ekki í stór- fenglegum stökkum, heldur skref fyrir skref. Hann skildi nauðsyn þess að tryggja starfinu stuðning og skilning hins almenna félaga í verkalýðsfélögunum, áhugafólksins sem haldið hefur starfi þeirra uppi, gefur því félagslegt gildi. MFA eignaðist stóran hóp stuðnings- manna um allt land. Þetta fólk hefur ver- ið ómetanlegur styrkur í starfi sambands- ins, því það er ekki síst fyrir tilstuðlan þess sem áhugi á fræðslustarfi hefur farið vaxandi í stjórnum verkalýðsfélaganna. Enda þótt við Stefán værum í flestum efnum sammála um starf MFA vorum við það ekki um stofnun og starf Alþýðu- bandalagsins. Hann taldi hreyfingu okkar sósíalista betur borgið með því að Sósíal- istaflokkurinn héldi áfram starfi sínu, en ég var meðal stofnenda Alþýðubanda- lagsins 1968. Við áttum til að kýta um starf Alþýðubandalagsins og höfðum gaman af. Hann nefndi stundum við mig á sinn skondna máta að ekki væri allt eins og það ætti að vera í fari hins nýja flokks, eða gerðir forystumanna hans hafnar yfir gagnrýni. En við deildum aldrei alvar- lega, einfaldlega vegna þess að samstarf um önnur málefni var mikilvægara. Eitt mun sitja lengi í minni mínu. Um það leyti sem MFA var að hefja starfsemi höfðum við talsvert samband við forystu- menn sambærilegra samtaka á Norður- löndum. Meðal annars kom Bjartmar Gjerde þáverandi framkvæmdastjóri 32

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.