Réttur - 01.01.1989, Page 42
SIGURJÓN PÉTURSSON
B ORGARFULLTRÚI:
Einn vinstri listi
í Reykjavík?
Nauðsynlegt að reyna til
þrautar að ná samstöðu sem
dugir til þess að fella íhaldið.
o
Sameiginlegt framboð andstæðingaflokka íhaldsins í borgarstjórn Reykjavík-
ur, hefur verið lengi til umræðu.
Mjög lengi hafa þessir flokkar haft nokkuð samstarf.
Þeir hafa staðið sameiginlega að tillögugerð við afgreiðslu fjárhagsáætlunar og
oft haft mjög náið samstarf um málatilbúnað.
A yíirstandandi kjörtímabili hefur minnihluti borgarstjórnar staðið sameigin-
lega að tillögugerð við afgreiðslu fjárhagsáætlunar, og reglulegir fundir hafa ver-
ið með borgarfulltrúum þessara flokka til að ræða málefni borgarinnar.
Það er því í eðlilegu framhaldi af þessu að nú síðustu mánuðina, hefur verið
rætt af meiri alvöru en nokkru sinni fyrr um möguleika þessara flokka á sameig-
inlegu framboði.
Rökin fyrir því að sameiginlegt fram-
boð geti verið vænlegur kostur eru marg-
vísleg.
1. Þegar einn stjórnmálaflokkur er jafn
afgerandi stór og Sjálfstæðisflokkur-
inn er og atkvæði hinna flokkanna
dreifast á fjóra lista, þá er mögulegt
fyrir stóra flokkinn að fá meirihluta
fulltrúa þótt hann hafi aðeins rúm
42% atkvæðanna.
Þetta getur gerst ef atkvæðadreifing
minni flokkanna verður með óhag-
stæðasta móti.
Við skulum búa til dæmi þar sem til
skipta kæmu 60.500 atkvæði. Einn flokk-
ur er lang stærstur og fengi 25.500 at-
kvæði. Fjórir aðrir flokkar eru í kjöri.
Þrír þeirra jafn stórir, hver með 9.558
atkvæði en sá fjórði fengi 6.226 atkvæði.
Samtals eru þetta 60.500 atkvæði.
Borgarfulltrúar eru 15 og hlutfallstaln-
ing er viðhöfð. Áttundi maður stóra
flokksins hefði að baki sér 3.187,5 at-
kvæði. Þriðji maður hjá jöfnu flokk-
unum þrem væri með 3.186 atkvæði og
kæmist því ekki að. Annar maður hjá
42