Morgunblaðið - 19.01.2006, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.01.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2006 17 ERLENT Jerúsalem. AFP. | Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra Ísraels, skipaði í gær Tzipi Livni í embætti utanríkisráðherra. Verður hún önnur konan til að gegna því emb- ætti frá stofnun ríkisins en hún hef- ur verið náinn bandamaður Ariels Sharons forsætisráðherra. Studdi hún hann með ráðum og dáð í brott- flutningnum frá Gaza og var með þeim fyrstu til að fylgja honum er hann sagði sig úr Likudflokknum. Livni er 47 ára að aldri, lögfræð- ingur að mennt og mun fara áfram með dómsmálin auk utanríkismál- anna. Faðir hennar, Eitan Livni, var á sínum tíma háttsettur í Irgun, harðlínusamtökum, sem börðust gegn yfirráðum Breta í Palestínu á dögum síðari heimsstyrjaldar, en þau voru meðal stofnenda Likud- flokksins. Livni ólst upp í fjölskyldu þar sem hamrað var á hugmyndinni um „Stór-Ísrael“, sem ná ætti til allra landsvæða Palestínumanna. Samt sem áður sannfærðist hún um, að Sharon hefði rétt fyrir sér í því, að eina leiðin til að standa vörð um Ísr- ael sem ríki gyðinga væri að láta af hendi eitthvað af því landi, sem Ísr- aelar hernámu 1967. Margir spá Livni miklu gengi í stjórnmálunum og hún hefur nú fetað í fótspor Goldu Meir, sem var utanríkisráðherra frá 1956 til 1969 og síðan forsætisráðherra frá 1969 til 1974. Vonast stuðningsmenn Livni til, að sagan endurtaki sig að þessu leyti en aðrir benda á, að hún hafi ekki nógu breiðan hóp á bak við sig til að svo geti orðið. Vill innlima Jerúsalem og gyðingabyggðir Þótt Livni hafi stutt brottflutn- inginn frá Gaza, er hún samt engin dúfa. Eins og Sharon telur hún, að Ísraelar eigi sjálfir að ákveða landamæri ríkisins og innan þeirra eigi að vera öll Jerúsalem og helstu gyðingabyggðirnar á Vesturbakk- anum. Vegna þess hefur hún stutt lagningu aðskilnaðarmúrsins en viðurkennir þó, að hann geti orðið erfitt vandamál þegar að því kemur að draga endanlega landamæri milli Ísraels og Palestínu. Livni beitti sér mjög gegn þátt- töku Hamas í þingkosningunum í Palestínu síðar í þessum mánuði og þá með þeim rökum, að þar sem Hamas viðurkenndi ekki tilverurétt Ísraels, bryti þátttaka hreyfingar- innar í kosningunum gegn Óslóar- samkomulaginu frá 1993. Lét hún þó af andstöðu sinni vegna mikils þrýstings frá Bandaríkjunum. Frami Livni í ísraelskum stjórn- málum hefur verið skjótur. Hún var fyrst kjörin á þing 1999 og varð ráð- herra 2001. Fór hún þá með sam- starfsmál héraðanna en í febrúar 2003 varð hún innflytjendaráð- herra og dómsmálaráðherra í des- ember 2004. Áður en hún hóf af- skipti af stjórnmálum vann hún á lögfræðistofu og þar áður í laga- deild Mossads, þeirri deild ísr- aelsku leyniþjónustunnar, sem fæst við njósnir og aðra starfsemi er- lendis. Engin dúfa en vill láta land af hendi Tzipi Livni er önnur konan til að gegna embætti utan- ríkisráðherra Ísraels og sumir spá henni miklum frama AP Tzipi Livni, nýr utanríkisráðherra Ísraels. Tekur hún við embættinu af Likudmanninum Silvan Shalom. þess var tveggja erlendra verkfræð- inga saknað, er talið að mannræn- ingjar hafi hneppt þá í gíslingu. Voru mennirnir frá Malawi og Madagasc- ar en þeir unnu fyrir Iraqna, rétt eins og Írakarnir sem felldir voru í fyrirsát í Jamia. Í fyrrakvöld hafði Al-Jazeera- sjónvarpsstöðin birt myndband af bandarísku blaðakonunni Jill Carr- oll, en henni var rænt í Bagdad 7. janúar sl. Hafa ræningjar hennar hótað að drepa hana ef Bandaríkja- menn sleppa ekki öllum íröskum kvenföngum úr haldi sínu innan tveggja sólarhringa. Bagdad. AFP. | Að minnsta kosti tíu Írakar týndu lífi þegar uppreisnar- menn sátu fyrir bílalest þeirra í Jamia-hverfi í Bag- dad í gær. Mennirn- ir voru starfsmenn egypska farsíma- fyrirtækisins Iraqna, annaðhvort líf- verðir eða bílstjórar, en auk þeirra féllu átta Írakar í árásum annars staðar í landinu. Alls féllu því átján manns í árásum uppreisnarmanna í Írak í gær en auk Mannrán og morð í Írak Jill Carroll HAMSTURINN Gohan (t.h.) og snákurinn Aochan búa saman í pappakassa í Mutsugoro Okoku- dýragarðinum í útjaðri Tókýó. Sambúðin þykir heldur óvenjuleg: Gohan er níu sentimetra dverg- hamstur, Aochan er hins vegar 120 cm langur snákur. Starfsmenn dýragarðsins munu í október hafa ætlað Aochan að borða Gohan, en nafn hans merkir einmitt „málsverður“ á japönsku; Aochan hafði þá gefist upp á því að borða frosnar mýs. En í stað þess að háma hamsturinn í sig, eins og reiknað hafði verið með að hann gerði, vingaðist Aochan við nagdýr- ið litla. Hefur farið svo vel á með þeim vinum að þeir hafa deilt vist- arverum æ síðan. AP Óvenjuleg sambúð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.