Morgunblaðið - 19.01.2006, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2006 47
HESTAR
H
vítárhestar ehf. er
heitið á hestamiðstöð
Erlings Erlingssonar
og Viðju Hrundar
Hreggviðsdóttur í
Langholti 1 í Hraungerðishreppi í
Árnessýslu. Það er mikið um að
vera hjá þeim þessa dagana því nú
þegar eru þau með 51 hross á járn-
um og er stefnt með öll hross sem
þau fá eftir áramót í dóm í vor. 15
þessara hrossa hafa nú þegar ein-
kunn inn á landsmót og rúmlega
það og þau segjast hafa feiknamikið
af ungum hrossum á sínum snærum
sem ættu að komast léttilega inn á
það. Jafnvel gætu einhver þeirra
orðið „stjörnur“ en þau verði að
sjálfsögðu að klára veturinn fyrst.
Fyrirtækið vex sífellt og þau
segjast aldrei hafa verið betur
mönnuð en í ár, þau hafi mjög gott
fólk hjá sér í vinnu. Fimm starfa á
tamningastöðinni, auk þeirra eru
það Elín Magnúsdóttir í Oddgeirs-
hólum, Þórdís Erla Gunnarsdóttir
frá Auðsholtshjáleigu, sem er Hóla-
nemi, og Bernhard Podlech frá
Þýskalandi sem er nýkominn. Hann
er sonur Brunos Podlechs, hins
kunna hrossaræktanda í Schwarz-
wald.
Þruma, Sefja og
Hátíð toppurinn
Lífið hjá þeim skötuhjúum geng-
ur út á það að fara með hross í
dóm, mestöll þeirra vinna miðast
við það. Þau hafa sannað sig við
sýningu kynbótahrossa, svo vægt sé
til orða tekið, en til þeirra leitar
fastur viðskiptamannahópur ár eftir
ár og þess vegna ekki svo mikil
breyting á honum. „Í fyrra unnum
við með um 300 hross og við kom-
um 95 hrossum í gegnum kynbóta-
sýningu, af þeim fóru tæplega 40 í
1. verðlaun,“ segir Erlingur. Enn
var nóg að gera hjá þeim síðsumars
og þau ákváðu að sleppa heims-
meistaramótinu í Svíþjóð því of
stutt var í að þau þyrftu að sýna 30
hesta. Erlingur segir að mikil sam-
staða ríki á meðal Íslendinganna á
heimsmeistaramótunum og önnur
keppnislið öfundi þá af því. Sig-
urður Sæmundsson lands-
liðseinvaldur eigi heiður skilinn fyr-
ir að þjappa fólki saman og hann
ásamt Einari Öder Magnússyni sé
ómissandi föðurímynd og stuðpúði
ef eitthvað bjáti á. Hann segir
þennan anda til marks um það
ágætissamstarf sem sé á milli
tamningamanna, á meðal þeirra sé
ekki rígur eins og margir haldi.
Þeir hiki ekki við að ráðfæra sig
hver við annan. „Við búum t.a.m.
vel að nágranna okkar, hinum fyrr-
nefnda Einari Öder í Halakoti, sem
er alfræðiorðabók um hesta og einn
besti reiðkennari landsins. Auðvitað
er samkeppni í þessum geira eins
og öðrum en einhverra hluta vegna
eru dýrin í skóginum vinir þegar
upp er staðið.“
Frumtamningatörnin er á haust-
in, enda segja þau það langbesta
tímann til að temja, þá hlusti hross-
in mest á tamningamanninn og séu
róleg, en þau temja 50–60 hross á
þessum tíma. Þau segja mun meira
lagt í tamningar en áður. Hjá þeim
eru hrossin tamin inni í húsi fyrstu
þrjár vikurnar eða þar til að þau
kunna allt sem þarf til að hestur
geti talist taminn. „Þú ríður út á
tömdum og traustum hesti og það
kemur ekkert upp á eins og áður
vildi brenna við, allt í rokum
kannski,“ segir Viðja. Þau segja
það mjög mikilvægt að það verði
aldrei árekstur í tamningunni og
maður tapi aldrei fyrir hestinum, öll
atriði verði að takast því að öll mis-
tök fái maður í hausinn aftur og
þurfi að laga síðar.
Eftir jól kemur ekkert ótamið
hross til Viðju og Erlings og þau
vinna þá einungis með kynbóta-
hross og líkar það vel. „Mér finnst
miklu meira gefandi að vinna með
hryssur og stóðhesta heldur en
geldinga því þeir verða einhvern
veginn persónulausir, tapa svo
miklu við geldinguna,“ segir Erling-
ur. Þau hafa mikið unnið með ung
hross, meira en margur, og í fyrra
voru flest hrossin á þeirra vegum 4
vetra, næststærsti hópurinn 5
vetra. Þau eru ánægð með árang-
urinn og efst í huga þeirra eru
þrjár hryssur, Hátíð frá Úlfs-
stöðum, sem fékk 9,5 fyrir tölt 4
vetra, Sefja frá Úlfljótsvatni, sem
þau segja alveg ævintýralegt hross,
enda hæst dæmda 5 vetra hryssan í
fyrra, og Þruma frá Hólshúsum,
6.–7. hæst dæmda klárhryssa í
heimi, en þau hafa eignast 1⁄3 hlut í
henni og segja það standa upp úr.
Hún hélt ekki í fyrra og er því
komin á ný á hús. Síðan megi nefna
fyrstu trippin undan Hágangi frá
Narfastöðum. „Þessar þrjár
Hágangsdætur [Frá, Hekla og
Nánd frá Miðsitju] sitja í manni,
þær eru eftirminnilegar fyrir feg-
urð og mikinn næmleika, eru
skemmtileg hross. Þær eru allar
komnar aftur og ein ný 4 vetra,“
segir Erlingur.
Spurð um eigin hrossaeign segj-
ast þau halda 1–2 hryssum undir
hest á ári og hafa þau fengið lán-
aðar hryssur. „Það hefur verið
mottó hjá mér að eignast ekki of
mikið af hrossum,“ segir Erlingur
en þau eiga einn taminn hest, eina
tamda folaldsmeri og nokkur trippi.
Reyndar sé stefnt að því að koma
sér upp 1–2 góðum hryssum eins og
dæmið um Þrumu sannar.
Fá rjómann úr
íslenskri hrossarækt
Þegar talið berst að hestgerðum
segist Erlingur helst vilja klárhest
með skeiði, sem hljómar undarlega
í eyrum. „Öll þessi bestu hross eru
þannig, t.d. með 9 fyrir tölt og
brokk og 8,5 fyrir skeið eða öfugt.
Þetta eru náttúrlega klárhross með
skeiði – ofboðslega flink. Ef um
klárhest er að ræða er ekki nóg að
hann sé meðalgóður, hann þarf að
vera úrvalstöltari með a.m.k. 9 fyrir
tölt, ef ekki 9,5. En það er auðvitað
svo erfitt að rækta þessa tegund
sem er markmið allra,“ segir Er-
lingur. „Maður vill úrvalstöltara
með fimmta gírinn,“ tekur Viðja
undir. Þau segja klárhestavinsældir
hafa verið miklar og að við þurfum
að fara að hugsa meira um íslenska
alhliðahestinn þar sem kannski
skeiðið er ríkjandi, reyndar séu
mjög klárgeng hross á undanhaldi.
„En auðvitað má segja eins og er
að hrossin sem koma inn á stærri
tamningastöðvar eru rjóminn úr ís-
lenskri hrossarækt, þannig að við
erum kannski orðin fullgóðu von.
Ég held það þyrfti hugarfarsbreyt-
ingu hjá mér til að fara að ríða út á
miðlungsgóðum geldingi bara mér
til ánægju, maður þarf meira en
það,“ segir Erlingur.
„Við höfum náttúrlega kynnst svo
ofsalegum hrossum,“ segir Viðja og
segir að ef hún ætti að nefna eitt
eftirlætishross væri það Hending
frá Úlfsstöðum en hún var alfarið
með hana og þjálfaði veturinn fyrir
landsmótið á Hellu 2004. „Á bak við
hana er mikil vinna, enda mjög vilj-
ug og ör, og vinnan skilaði sér líka
svona vel. Málið er að maður á svo
mikið í þessum hrossum að þau
verða nánast eins og börnin manns,
verður eigingjarn á þau, og ég verð
hálffúl þegar þau fara. Folaldið sem
Hending átti í fyrra heitir m.a.s.
Hrund í höfuðið á mér, seinna nafn-
inu, ég er ægilega montin með þá
Orradóttur,“ segir Viðja.
Miðsitjuhrossin og Ófeigur
„betri“ frá Hvanneyri
Í pólitíkinni alræmdu um ættir
hrossa segist Erlingur vera alveg
sama hvaðan gott kemur og skoðun
þeirra Viðju um að alls staðar megi
finna gott hross og vont gefur
mörgum hestamanninum von, því
öll vonumst við jú til að detta í
lukkupottinn. Erlingur segist þó
alltaf veikur fyrir Miðsitjuhross-
unum, ættboganum út af Kröflu frá
Sauðárkróki. „Reyndar er ég mikill
aðdáandi Ófeigs frá Hvanneyri og
margir skilja það ekki, ég kalla
hann Ófeig betri [í samanburði við
Ófeig frá Flugumýri]. Undan hon-
um eru óskapleg vilja- og getuhross
en inni á milli auðvitað verri. Þegar
þau eru góð eru eiginlega engin
hross afkastameiri, krafturinn og
einbeitingin alveg með ólíkindum,“
segir Erlingur og nefnir í því sam-
bandi Frumu frá Efri-Þverá sem
þau voru með. Óþolinmæði hafi hins
vegar gætt með Ófeigsafkvæmin
því þau hafi ekki verið bráðþroska
en þegar viljinn kom hafi verið eins
gott að halda sér! Í þessu samhengi
minnir Viðja á nauðsyn þolinmæð-
innar í hestamennsku: „Það kemur
fyrir að maður haldi í tamningunni
að trippi sé truflað en svo lagast
allt á næsta ári, þau eru sum ekki
nægjanlega þroskuð mjög ung og
ráða ekki við þetta allt andlega.“
Í þessum umræðum um vilja-
hross ber hryssuna Björk frá Litlu-
Tungu á góma. Um hana hefur Er-
lingur að segja: „Hún hafði svo
mikinn kraft og ákveðni, var svo
gaman hjá henni, að við tömdum
hana fyrstu tvo mánuðina inni.
Ekki vegna vandamála heldur fór
hún bæði fram úr sér og knapanum
og því varð hún að kunna allt áður
en hún fór út. Og þá var ekki til í
að hún væri reikul í spori eins og
flest tamningatrippi í fyrstu, hún
brokkaði stefnuföst beint áfram.“
Sá hana í áhorfendabrekkunni
En hvernig skyldi þetta sam-
henta par hafa kynnst? Svarið ligg-
ur í augum uppi; á kynbótasýningu
á Hellu. Erlingur verður fyrir svör-
um: „Ég var að sýna hryssu sem
Jónas bróðir Viðju átti í verðlauna-
afhendingu fyrir Þórð Þorgeirsson,
sá hana í brekkunni og ákvað fram-
haldið – framtíðin var ráðin á tíu
dögum eða svo.“
Bæði hafa þau haft hesta-
mennsku að atvinnu síðustu tíu ár-
in. Viðja er fædd og uppalin í Lang-
holti og kynntist þar hrossum
föðurbróður síns, tamdi þar ásamt
bróður sínum og víðar í Flóanum.
Hún lauk prófi frá Hólum og hlaut
þar ásetuverðlaun FT. Erlingur er
úr Mosfellsdalnum og byrjaði í
hestamennsku í gegnum Sigurbjörn
Bárðarson sem vantaði einhvern til
að hleypa kappreiðarhrossum en
Erlingur segist hafa verið tilvalinn í
slíkt, léttur og lítill unglingur og
ekki hræddur við neitt. Hann
stundaði hjólakúnstir og Sigurbjörn
veitti því athygli hve hann var lið-
ugur á reiðhjólinu og með gott jafn-
vægi. Hjá Sigurbirni kynntist Er-
lingur öllum hliðum á þjálfun á
topphrossum og einnig kenndi Ei-
ríkur heitinn Guðmundsson honum
mikið, enda miklir vinir. Áður en
hann flutti að Langholti var hann í
sjö ár hjá Brynjari Vilmundarsyni á
Feti og sem kunnugt er með góðum
árangri.
Í Langholti býr stór fjölskylda og
segja Viðja og Erlingur að þau eigi
þar góða að, árangur þeirra byggist
á því. Þannig sé hægt að leita til
foreldra Viðju – galdramanns með
hamar og góðrar ömmu fyrir Hjör-
dísi Björgu, dóttur Viðju.
Að síðustu leikur blaðamanni for-
vitni á að vita hvort atvinnumenn í
hestamennsku fái aldrei leið á
vinnunni og missi jafnvel áhugann á
hrossum. „Þetta er eins og með alla
aðra vinnu, maður getur fengið
nóg,“ segir Viðja. Erlingur segist
ekki hafa farið varhluta af því í
fyrra en árið hafi verið frekar
strembið, enda mörg hross komið
við sögu hjá þeim. Viðja og Elín sáu
einar um tamningarnar í haust eftir
fyrsta mánuðinn en þá fór Erlingur
út til Bandaríkjanna og síðan
Þýskalands til að kenna og sýna
fleiri hross! „Þegar ég kom heim
datt mér ekki í hug að líta á hrossin
í stíunum heldur fór að smíða hérna
í hesthúsinu. Hins vegar er maður
ekki marga daga í fríi frá hestunum
áður en mann fer að klæja aftur.“
Þeim finnst þetta skemmtilegt starf
og gefandi því alltaf sé að koma
eitthvað nýtt og betra fram í grein-
inni og það haldi þeim gangandi.
Hrossaræktin skili miklu og hrossin
verði sífellt betri, geðslagið betra,
þau séu auðtamdari, betur upp alin
og sterkari. „Það spillir heldur ekki
fyrir að vera e.k. áskrifandi að
hrossum undan ákveðnum hryssum,
t.d. Sömbu frá Miðsitju, maður get-
ur hreinlega ekki beðið eftir fyrstu
afkvæmum hennar.“ Slíkar eru
taugarnar til margra góðra hryssna
hjá Erlingi. Mikil og góð samskipti
við eigendur séu líka mikilvæg í
þessu samhengi.
Þau hlakka greinilega til kom-
andi verka: „Mér finnst þetta mjög
skemmtilegur tími þegar hrossin
koma núna aftur eftir síðasta vetur
og efnileg trippi frá því í haust, að
koma þessu öllu heim og saman og
hefjast handa. Stundum hefur
hvíldin gert þau betri enda hafa
þau fengið að hugsa um fyrri lær-
dóm,“ segir Viðja að lokum.
Sama hvaðan gott kemur
Hvers konar vinna fer
fram á stórri tamn-
ingamiðstöð þar sem á
sjötta tug hrossa bíð-
ur manns? Þuríður M.
Björnsdóttir óð snjó-
inn austur í Flóa til
hinna kunnu tamn-
ingamanna Erlings
Erlingssonar og Viðju
Hrundar Hreggviðs-
dóttur í Langholti og
kannaði málið.
Morgunblaðið/Þuríður M. Björnsdóttir
Í hesthúsinu í Langholti: Viðja Hrund Hreggviðsdóttir, sem heldur í Þrumu frá Hólshúsum, aðstoðarmaðurinn Bern-
hard Podlech og Erlingur Erlingsson, en hann heldur í Kvistu frá Syðri-Gegnishólum, sem er á fjórða vetri. Hryss-
urnar eru báðar undan Bliku frá Hólshúsum, en Þruma er undan Þorra frá Þúfu og Kvista undan Nagla frá Þúfu.
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
VEGNA MIKILLAR SÖLU Í ÞESSARI VIKU
BRÁÐVANTAR RAÐHÚS Í
ÁSGARÐI/TUNGUVEGI
Við höfum selt þegar í þessari viku tvö raðhús við
Ásgarð og okkur bráðvantar fleiri hús, þar sem við
höfum nú þegar fjölda kaupenda að slíku húsnæði, sem
misstu af þeim tveimur húsum sem við höfðum í boði.
Vinsamlegast hafið samband og við munum veita
nánari upplýsingar.
Hákon Svavarsson, lögg.
fasteignasali, sími 898 9396.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli