Morgunblaðið - 19.01.2006, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 19.01.2006, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN EF ÉG bæri upp á einhvern að taka þátt í samsæri yrði neitun örugglega svarið þótt viðkomandi væri þátttakandi og þá jafnvel ómeðvitað, þá meðvirkur með því að leiða það hjá sér. Þolandinn í vanda, samsæri venjulega leynd og erfitt að skilja á milli nauð- hyggju og veru- leikans, heilbrigðast að vita ekki af því ef ekkert er hægt að gera, „paranoja“ eða „ofsóknarbrjálæði“ sú nauðhyggja sem flest- ir þurfa að ýta frá sér einhvern tímann á lífsleiðinni. Í áraraðir sá ég samsæri í íslensku þjóðfélagi gegn fjölskyldu minni sem mótaði af- stöðu mína til lífsins. Þegar ég byrjaði baráttu mína í erfðamáli afa míns breyttist þessi skoðun og ég þykist vita í dag að Íslendingar vilji að börn erfi foreldra sína, vilji að rétt sé rétt og rangt sagt rangt. Eingöngu valdið og hækjur þess sem er sama um slíka smámuni, fyrir því aðrir og „stærri“ hags- munir í húfi. 9. janúar síðastliðinn var frávís- unarkröfu Reykjavíkurborgar í málsókn erfingja Jóhannesar Kjarval listmálara á hendur borg- inni hafnað í Héraðsdómi Reykja- víkur og þar með eiga réttarhöld að byrja núna seinni part vetrar. Fréttir um það í fjölmiðlum en ekki Morgunblaðinu sem ég þóttist vita fyrir, nauðhyggja eða ekki. Ég sannfærður um að Morg- unblaðið eða þeir sem þar ráða séu höfuðpaurar í samsæri sem teygi sig áratugi aftur í síðustu öld. Ég á því að áætlun hafi verið í gangi löngu fyrir lát afa míns að ná af honum eignum hans og þá sérstaklega listinni, hún talin eign þjóðarinnar vegna þess að Kjarval væri hennar og einu erfingjarnir tvö börn hans fædd og uppalin í Danmörku. Að faðir minn var ís- lenskur ríkisborgari, giftur ís- lenskri konu með íslensk börn, eyddi mestum hluta ævi sinnar heima og grafinn í Fossvoginum aukaatriði, margir héldu að pabbi væri óskilgetinn, vissu ekki að Kjarval var giftur sem fór lágt á Íslandi. Í mínum huga nær þetta sam- særi hámarki haustið 1975 þegar faðir minn hélt blaðamannafund á veitingastaðnum Naustinu (sem hann hannaði) og leitaði hjálpar fjölmiðla í málum föð- ur síns en afi lést vor- ið 1972 eftir vist á geðdeild Borgarspít- alans frá því í janúar 1969. Vinnustofa hans var tæmd í nóvember þann vetur. Lítið sem ekkert var birt næstu daga þótt allir fjöl- miðlar mættu nema sem afskræming, pabbi rændur æru sinni að mínu mati. Ég alla tíð síðan talið að þeirri aðför hafi verið stjórnað frá ritstjórn- arskrifstofu Morgunblaðsins af Styrmi Gunnarssyni og Matthíasi Johannessen, þá ritstjórum blaðs- ins, og aðrir fjölmiðlar farið að óskum þeirra um enga umfjöllun, enda segir Styrmir í nýlegu viðtali að samstarf ritstjóra hinna ýmsu fjölmiðla hafi verið gott þessi ár. Jónas Kristjánsson var þá ritstjóri Dagblaðsins og eins og í dag barð- ist hann við sannleikann, ákvað að lóga honum þá fyrir valdið. Indriði G. Þorsteinsson var ritstjóri Tím- ans frá 1961 til 1972 og aftur 1982 til 1992. Indriði var skipaður fram- kvæmdastjóri þjóðhátíðarnefndar 1974 og Matthías Johannessen segir í grein um Indriða árið 2000 (árið sem Indriði lést) að samstarf þeirra hefði verið framúrskarandi þar. Árið 1976 semur Davíð Odds- son (Davíð þá í hússtjórn Kjar- valsstaða) við Indriða um að skrifa ævisögu Kjarvals. Ég sjálfur heyrði úr innsta hring Sjálfstæð- isflokksins í kringum 1973 í boði á Kjarvalsstöðum að hörð barátta stæði um hvor ætti að fá þann „bitling“, Matthías eða Indriði, auðséð að síðan var samið um það á æðstu stöðum. Indriði var síðan á launum við það verk í áraraðir en kom aldrei í verk að ræða við börn Kjarvals. Ævisagan kom út nærri tíu ár- um síðar á hundrað ára afmæli afa. Bæði Matthías og Indriði voru síðan settir á heiðurslista- mannalaun, í mínum huga pólitísk ákvörðun þegar ritstjórar eru sett- ir á þá jötu. Í þessum pælingum er ég auðvitað að rýna í myrkrið, aldrei á skrifstofur Morgunblaðs- ins komið né verið fluga á þeim veggjum. Svo þegar Morgunblaðið ákveður að hafa ekkert um höfnun Héraðsdóms tek ég því sem stað- festingu, staðfestingu á að Morg- unblaðið og Sjálfstæðisflokkurinn séu í einni sæng, staðfestingu á að aðrir vegvísar en góður frétta- flutningur, réttlætið og sannleik- urinn leiðbeini ritstjórn Morg- unblaðsins. Ég veit að blaðið getur ekki bor- ið fyrir sig áhugaleysi, ef nafn afa er slegið inn á netið kemur upp óteljandi aragrúi greina, Morg- unblaðið alltaf talið sig eiga sér- stök ítök í Kjarval; Geir Hall- grímsson heitinn, fyrrverandi forsætisráðherra og einn eigenda blaðsins, borgarstjóri þegar vinnu- stofa afa var tæmd af borginni undir umsjá borgarstjóra. Í mín- um huga var valdið þessi ár ein „garnaflækja“ og erfitt að sjá hver var tengdur hvar og í hvorn end- ann. Eitt víst þó, allir tengdir í báða og fjölskylda mín máttvana gegn þeirri subbu. Ég veit að Sjálfstæðisflokkurinn er stór og mörg herbergi í því húsi, ég veit að þar vita flestir lítið um þetta mál. En ég þykist einnig vita að þröng valdaklíka haldi þeim flokki í gíslingu og þeirri klíku mest málið að réttlætið nái aldrei fram að ganga í erfðamálum Jóhannesar Kjarval listmálara. En það er annarra að dæma hvort þessi sýn mín er órar eða ekki. Samsæri hér og samsæri þar Ingimundur Kjarval skrifar um samsæri ’Ég alla tíð síðan taliðað þeirri aðför hafi verið stjórnað frá ritstjórnar- skrifstofu Morgunblaðs- ins af Styrmi Gunnars- syni og Matthíasi Johannessen, þá rit- stjórum blaðsins, og aðrir fjölmiðlar farið að óskum þeirra um enga umfjöllun …‘ Ingimundur Kjarval Höfundur er sonarsonur Jóhannesar Kjarval listmálara. TENGLAR .............................................. Kjarval.blogspot.com EG ÓSKA lesendum árs og frið- ar. Mikið hefur undanfarið verið rætt um ofurlaun og hermt að þessi ríkjandi launasmismunur, sem fer vaxandi, eigi máske eftir að leiða þjóðina í ógöngur. Má vera að svo verði. En það er annað sem engu síður getur leitt þjóðina í ógöngur ef svo verður málum hagað sem hingað til hefur verið gjört og þar á eg við stefnuna í áfengis- og vímuefnamálum. Eg eygi ekki annað en áframhaldandi und- anlátsstefna stjórn- valda í þessum málum leiði þjóðina í hinar verstu ógöngur. Það eru margar blikur á lofti og margir sem vara við og vilja spyrna við fótum. Þess vegna var athyglisvert að lesa Morgunblaðið 2. og 3. jan. sl. þar sem komið var inn á þessi mál, allt var það staðfesting þess sem við bindindismenn höfum haldið fram. Í samtali við Kristínu Sigurð- ardóttur lækni nefnir hún það, að á bráðadeild Landspítalans í Foss- vogi verði starfsfólkið í vaxandi mæli fyrir ógnunum af þeirra hálfu sem þangað leita og einkum þá af þeim sem koma um helgar. Hún telur lengri afgreiðslutíma vínveit- ingastaða ýta undir fíkniefna- neyzlu og segir orðrétt: „Með því að framlengja afgreiðslutímann sendu borgaryfirvöld út þau skila- boð að það væri bara allt í lagi að drekka lengur og þ.a.l. meira.“ Ennfremur segir hún: „að lengingin hafi þó enn alvarlegri afleið- ingar, því fólk undir miklum áhrifum áfengis sé líklegra en ella til þess að prófa örvandi fíkniefni. Fólk freistast þreytt eftir langvarandi drykkju til þess að geta haldið sér gangandi lengur“. Hlynur Þorsteinsson sérfræðilæknir á slysadeild í nær 20 ár staðfestir, að starfsfólk á slysa- deild hafi orðið illþyrmilega vart við aukna fíkniefnaneyzlu og segir: „Menn vaka lengur, þeir verða þreyttir og skapillir, uppstökkir og laus höndin af litlu eða engu til- efni. Nú streymi sjúklingar alla nóttina og langt fram á morgun. Eftir því sem menn koma seinna, því viðskotaverri verða þeir.“ Ás- geir Karlsson, yfirmaður fíkniefna- deildar lögreglunnar, kveðst sann- færður um að fíkniefnaneyzla hafi aukizt á síðustu árum og segir: „Í dag finnst fólki ekkert tiltökumál að fá sér örvandi efni af og til. Það lítur ekki á þetta sem fíkn heldur sem hluta af skemmtanamynstr- inu.“ Þá telur hann að harkan í of- beldinu hafi aukizt, ekki væri hætt þó menn hefðu fallið í götuna eða í gólfið. Jafnvel væri ráðist fyrir- varalaust á fólk af engu tilefni. Eg tek undir með ritstjóra Morgunblaðsins sem í leiðara 3. jan. segir um þessi tilvitnuðu um- mæli: „… kemur fram að margir séu farnir að líta á fíkniefni sem eðli- legan hluta af skemmtanalífinu. Það er að sjálfsögðu alveg full- komlega skelfilegt.“ Ekki væri vanþörf á því að fara vel ofan í saumana á þeim augljósu tengslum sem eru á milli áfengisneyzlu og neyzlu annarra fíkniefna, þar sem allar rannsóknir benda til að upp- haf fíkniefnaneyzlunnar sé í áfeng- inu og neyzlu þess. Hér má heldur ekki gleyma áfengisauglýsingunum sem vaða uppi og ekkert er við gjört þó kolólöglegar séu. Í útvarp- inu var fjallað í fregn um áhrif áfengisauglýsinga. Samkvæmt rannsókn þ.a.l. kom í ljós að slíkar auglýsingar höfðu þau áhrif á ung- linga að þeir leiddust fremur þeirra vegna til að byrja neyzlu áfengis og juku neyzlu þess að sjálfsögðu. Og er það ekki einmitt ætlan áfengisauðvaldsins að auka neyzluna – hámarka gróðann? Eg tek fullkomlega undir með leiðarahöfundi Morgunblaðsins og við bindindismenn og eg ætla hugsandi fólk yfirleitt gjörir, en hann segir 3. jan.: „Það má hvergi slaka á í baráttunni við fíkniefna- djöfulinn.“ Nei, það verður að ráð- ast að rótum vandans og sann- arlega hvergi slaka á í baráttunni við fíkiniefnadjöfulinn – eða djöfl- ana. Á ári nýju – Áfram enn Björn G. Eiríksson fjallar um vímuefnavandann ’Ekki væri vanþörf áþví að fara vel ofan í saumana á þeim aug- ljósu tengslum sem eru á milli áfengisneyzlu og neyzlu annarra fíkni- efna …‘ Björn G. Eiríksson Höfundur er sérkennari í fjölmiðlanefnd IOGT. KARLAR eru frá Mars og konur eru frá Venus. Ég veit ekki hvort ég kaupi þessa einföldu skilgrein- ingu á muninum á körlum og konum. Í gegnum árin hef ég betur og betur gert mér grein fyrir að eig- inleikar fólks þ.e. fag- leg hæfni, hæfni í stjórnmálum, hæfni í stjórnun, hæfni til að leysa mál og hæfni til hvers konar hluta er algjörlega óháð kyni. Það er rétt að við kon- ur eigum þegar á heildina er litið erf- iðara með suma erf- iðisvinnu, en hvað toppstykkið varðar eru kynin jafnhæf. Sem frambjóðandi í prófkjöri sjálfstæðim- anna í Kópavogi stíg ég fram sem ein- staklingur með hæfni og reynslu óháð kyni. Mikið hefur verið rætt um niðurstöðu próf- kjörsins í Garðabæ. Ég tel að við verðum að skoða allar breytur í því máli áður en við drögum þá ályktun að konum hafi verið hafn- að í Garðabæ. Hægt er að spyrja sig: Hvernig er samsetn- ing flokksbundinna einstaklinga í Garðabæ með tilliti til kyns og ald- urs? Getur verið að nýliðun hafi verið lítil og karlarnir hafi verið betur kynntir meðal flokksbund- inna sjálfstæðimanna í Garðabæ? Voru konurnar sambærilegar hvað varðar hæfni? Jú þær voru það klárlega. Með þessari síðustu spurningu er ég ekki að efast um það, ég veit að þær voru jafnhæfar, heldur tel ég nauðsynlegt að velta þessari spurningu upp. Varð nið- urstaðan kannski óháð kyni? – Við getum ekki horft fram hjá því að um var að ræða niðurstöðu úr lýð- ræðislegri kosningu í lokuðu próf- kjöri. Spurningin er hins vegar hvort niðurstaðan endurspegli vilja Garðbæinga eða hæfni frambjóð- enda. Mín skoðun er sú að opið prófkjör endurspegli betur þessa þætti. Það er staðreynd að það er þröskuldur fyrir marga að þurfa að skrá sig í stjórnmálaflokk. Það eru ekki allir sem kæra sig um að vera flokksbundnir en vilja samt sem áð- ur taka afstöðu í próf- kjöri í sveitarstjórn- um. Á hinn bóginn gekk konum vel í prófkjör- inu í Reykjavík. Þar kusu um 20.000 manns. Er samsetning flokksbundinna í Reykjavík önnur en í Garðabæ? – Gefa 20.000 atkvæði réttari mynd af vilja kjósenda en rúmlega 1.700 at- kvæði í Garðabæ? Samkvæmt reglum tölfræðinnar á ekki að vera munur á. Við skulum minnast þess að í prófkjöri fyr- ir síðustu Alþingis- kosningar biðu konur í Reykjavík afhroð og lengi vel var ein kona fyrir bæði Reykjavík suður og Reykjavík norður af níu þing- mönnum beggja kjör- dæma, Sólveig Pét- ursdóttir sem lenti í 5. sæti í Reykjavík suð- ur. Ein kona af níu! Ásta Möller var inni sem varamaður en fór í fast sæti eftir að Davíð Oddsson hætti. Konurnar í Reykjavík eru sem sagt tvær af níu þingmönnum. Sjálf- stæðismenn í Reykjavík hafa því væntanlega verið meðvitaðir í próf- kjörinu í haust um að tryggja jafna skiptingu kynja á lista fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Garðbæ- ingar hafa á hinn bóginn ekki kosið í prófkjöri í 28 ár og sofnuðu á verðinum. Fyrir síðustu kosningar var stillt upp í Garðabæ og núna áttuðu menn sig ekki á mikilvægi þess að byggja upp lista með breidd í aldri, þekkingu og reynslu og síðast en ekki síst lista beggja kynja. Sá þáttur sem oft er spurt um: Voru konurnar nógu harðar í bar- áttunni, eða við smölun nýrra skráninga í flokkinn? Það væri fróðlegt að vita hvaða frambjóðandi smalaði mest. Ég veit að þær lögðu jafnhart að sér, en voru konurnar nægilega ýtnar og harðar í að nýta sér tengslanetið? Karlar eru jú frekar í hinum ýmsu klúbbum og hafa oft öflugt tengslanet og má vera að það hafi vegið mikið hjá sumum karlframbjóðendum. Við konur þurfum að beita sömu leikaðferðum og karlar til að eiga möguleika á að vinna leikinn. Það er ljóst að það eru margar konur sem það gera, en þær þurfa að vera fleiri. Hitt er svo annað mál að við kon- ur verðum að átta okkur á að við þurfum ekki að vera betri en karl- arnir til að standast samanburð, að- eins jafngóðar. Ég ber þá von í brjósti að þeir sem kjósa fólk til að vinna að mál- efnum í sveitarstjórnum velji það fólk sem þeir telja best til þess fall- ið að sinna verkefnum og best til að ná árangri í kosningum í vor þar sem valið stendur á milli hópa fólks sem aðgreinir sig eftir stjórn- málaflokkum. Ég hvet alla sem rétt hafa til þátttöku í prófkjörinu í Kópavogi á laugardaginn til að taka afstöðu, kynna sér frambjóðendur vel og velja með opnum huga þá að- ila sem þeir telja líklegasta til að leiða flokkinn til sigurs í komandi kosningum. Stelpur og strákar í stjórnmálum Eftir Ragnheiði Kristínu Guðmundsdóttur ’Ég hvet allasem rétt hafa til þátttöku í próf- kjörinu í Kópa- vogi á laugar- daginn til að taka afstöðu, kynna sér fram- bjóðendur vel og velja með opn- um huga …‘ Ragnheiður Kristín Guðmundsdóttir Höfundur býður sig fram í 4.–5. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Kópavogi nk. laugardag. Prófkjör Kópavogur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.