Morgunblaðið - 19.01.2006, Qupperneq 48
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
SÆL ELLA, ÉG ER BÚINN AÐ
SKIPULEGGJA HIÐ FULLKOMNA KVÖLD
ÞURFUM
VIÐ HVAÐ?
JÁ ELLA, VIÐ ÞURFUM AÐ VERA
SAMAN SVO ÞETTA VIRKI
ÞAR FÓR ÞAÐ
BYRJAR
SKÓLINN Á
MORGUN?
NEI,
EFTIR
VIKU
ÚFF, ÞAÐ VAR EINS GOTT.
ÉG ER EKKI ALVEG TILBÚIN...
ÉG VEIT EKKI HVAR NESTIS-
BOXIÐ MITT ER...HVORT
SKÓRNIR MÍNIR ERU
HREINIR...
NÆSTI ÞRIÐJUDAGUR
VERÐUR ROSALEGUR
BANG! ÚFFF! NÚ NÆ ÉG
ÞÉR,
KALLINN
ÉG SKIL EKKI AF HVERJU LÆKNIRINN
ER SVONA HRÆDDUR VIÐ ÞIG,
KRÚTTIÐ MITT
VERTU NÚ ALVEG
RÓLEGUR Á MEÐAN ÉG NÆ
Í TANNBURSTANN ÞINN
HVAÐ MÁ BJÓÐA
ÞÉR HERRA MINN?
ÉG ÆTLA AÐ FÁ HJÁ ÞÉR SEX
SKAMMTA AF KJÚKLINGI, TVO SKAMTA
AF LAMBAKJÖTI, EINA NAUTASTEIK OG
STÓRAN SKAMMT AF KARTÖFLUM
FLOTT ER. MÁ
NOKKUÐ BJÓÐA
ÞÉR FORRÉTT?
ÞETTA VAR
FORRÉTTURINN
Í
AÐALRÉTT
ÆTLA ÉG SVO
AÐ FÁ...
Í SÍÐASTA SKIPTI...
HVAR ER MAÐURINN
ÞINN?
ÉG ÞORI
EKKI AÐ SEGJA
HENNI...
... HÚN GÆTI KOMIST AÐ ÞVÍ AÐ HANN ER KÓNGULÓARMAÐURINN
ÉF MIG HEFÐI LANGAÐ Í RAKSTUR
ÞÁ HEFÐI ÉG FARIÐ TIL RAKARA
100 KERRY
FYLGISMENN Í
MÍNU HÚSI! HELD
NÚ SÍÐUR!
HVAÐ MEÐ AÐ PABBI FÁI AÐ
HALDA VEISLU TIL STUÐNINGS
BUSH, SVONA TIL AÐ
JAFNA ÞETTA ÚT
ÉG SPURÐI
HANN OG HANN
VILL ÞAÐ EKKI
HÚN VEIT AÐ ÉG ÞOLI
EKKI VEISLUR
PABBI ÞINN ER BARA
REIÐUR AF ÞVÍ AÐ ÉG
ÆTLA AÐ HALDA VEISLU
TIL STUÐNINGS KERRY MJÖG PÓLITÍSKT
MAMMA!
Dagbók
Í dag er fimmtudagur 19. janúar, 19. dagur ársins 2006
Það er eins og margtharðfullorðið fólk
hafi aldrei séð snjó
fyrr miðað við hvernig
ökutækjum er beitt í
fannferginu og hálk-
unni um þessar mund-
ir. Víkverji staðnæm-
ist aðallega við
aðferðir fólks við að ná
fólksbílum út úr snjó-
ugum bílastæðum.
Það er ekki nema von
að annar hver maður
sitji kolfastur þegar
skoðað er hvernig fólk
hagar sér undir stýr-
inu. Hvað eftir annað
verða á vegi Víkverja harðákveðnir
ökumenn sem halda að bensínið í
botni leysi vandann. Nú virðast
þetta ekki vera nein unglömb, svona
þegar hinn gangandi Víkverji reynir
að njósna inn um bílgluggana. Vík-
verji spyr sig hvort þessir ökumenn
haldi að spólaðferðin dugi eitthvað
betur nú en annað, leiðandi hugann
að þeirri staðreynd að þetta fólk
hlýtur að hafa tekist á við vetr-
arfærð um sína daga. Þetta er ein-
kennilegt. Skilur fólk ekki að það á
að koma bílnum upp í rugg og forð-
ast allt spól? Jugga bílnum fram og
til baka án þess að spóla og fyrr en
varir er hann kominn út á breiðu
brautina. Varið ykkur
líka þar, ökumenn.
Góða ferð.
x x x
Víkverji ætlar svosannarlega að
fylgjast með karldúkk-
unum í sjónvarpsþætt-
inum Kallarnir á sjón-
varpsstöðinni Sirkus.
Gaman er að geta þess
í framhjáhlaupi að um
þessar mundir eru níu
ár síðan Víkverji fór í
sinn síðasta ljósatíma
enda var hann orðinn
hundleiður á því að
vera alltaf eins og gamla brúna
frænkan í myndinni There is Somet-
hing About Mary. Ógleymanleg
mynd að mati Víkverja. En kallarnir
fíla brúnkuna í botn og verði þeim að
góðu. Eitt af því sem Víkverja líst
sérstaklega vel á er að Geir Ólafs-
son, söngvari og lífskúnstner, ætlar
að kenna köllunum kurteisi og róm-
antík. Spurning hvort þeir verði þá
búnir að venja sig af því að kalla
konur mellur fyrir vorið! Hvað hefur
eiginlega gengið á hjá köllum sem
kalla konur mellur og búa til sitt eig-
ið tungumál? Ef þetta er ekki óska-
verkefni fyrir barnasálfræðinga veit
Víkverji ekki hvað.
Víkverji skrifar...
Hallgrímskirkja | Hádegistónleikar verða í Hallgrímskirkju kl. 12 á hádegi á
laugardag. Þar leikur Guðmundur Sigurðsson, organisti Bústaðakirkju og
formaður Félags íslenskra organleikara, orgeltónlist eftir Pachelbel, Charles
Ives og útsetningar á sálmalögum eftir djassleikarann George Shearing.
Ókeypis er fyrir börn og skólafólk undir 26 ára aldri. Að tónleikunum loknum
verða nýbakaðar vöfflur og kaffihressing seld í suðursal kirkjunnar.
Morgunblaðið/Þorkell
Klais-orgelið hljómar
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100.
Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Orð viturra manna, sem hlustað er á í ró, eru betri en óp
valdhafans meðal heimskingjanna. (Préd. 9, 17.)