Morgunblaðið - 19.01.2006, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2006 31
TVÆR nýjar heilsugæslustöðvar
hafa verið teknar í notkun á höf-
uðborgarsvæðinu í mánuðinum,
fyrst Fjörður, hin glæsilega stöð í
miðbæ Hafnarfjarðar, og nú í dag
heilsugæslustöðin Glæsibæ, sem
þjónar Heima- og Vogahverfunum.
Þjónusta stöðvanna
tveggja er mikið
ánægjuefni fyrir þann
sem þetta ritar, enda
heilsugæslan önnur
meginstoðin í heil-
brigðisþjónustu við al-
menning. Á síðustu
árum hafa fjórar
stöðvar verið teknar í
notkun á höfuðborg-
arsvæðinu, Salastöðin,
Fjörður og Glæsibær,
og bylting hefur orðið
í aðstöðu heilsugæsl-
unnar yfir Gjánni í
Kópavogi með nýju húsnæði, þar
sem heilsugæslan tók til starfa í
desember sl. Allt er þetta gert til að
skjóta styrkari stoðum undir heilsu-
gæsluna ásamt því að halda komu-
gjöldum óbreyttum um langa hríð
til að tryggja öllum jafnt aðgengi og
gera þessa þjónustu enn fýsilegri
fyrir almenning.
Framlögin tvöfölduð
Fjárveitingar til heilsugæslunnar
á höfuðborgarsvæðinu hafa rúm-
lega tvöfaldast í krónum og aurum
frá árinu 2000. Það ár runnu rúmar
1.900 milljónir til heilsugæslunnar
og í ár verjum við 4,2 milljörðum til
grunnþjónustu heilsugæslunnar á
höfuðborgarsvæðinu á verðlagi
hvers árs. Mælt sem framlag á
hvern íbúa á höfuðborgarsvæðinu
þá var framlagið á íbúa um 13.400
krónur á árinu 2000, en verður tæp-
lega 23.000 krónur á árinu sem nú
er hafið og er þá miðað við verðlag
ársins 2005.
Í þessum staðreyndum kemur
fram áherslan sem lögð hefur verið
á þennan þátt í samfélagsþjónust-
unni og í nærþjónustunni við íbúa
höfuðborgarsvæðisins á sviði heil-
brigðismála. Í þessu felst einnig að
Grettistaki hefur verið lyft í upp-
byggingu heilsugæslunnar á höf-
uðborgarsvæðinu á síðustu tíu ár-
um, enda var þörfin brýn.
Auk uppbyggingar sjálfra heilsu-
gæslustöðvanna hefur þjónusta
þeirra við íbúa á svæðinu breyst
mjög til hins betra á undanförnum
árum. Þjónustan hefur verið góð en
það sem hefur batnað og tekið
stakkaskiptum er aðgengið og þar
með þjónustan við borgarana.
Það er nánast óþekkt aðgengið
og möguleikarnir sem almenningur
hér á landi hefur á að
komast strax að í
heilsugæslunni. Full-
yrða má að sá sem
þarf að leita til heilsu-
gæslunnar kemst að
samdægurs þurfi hann
á því að halda. Ann-
aðhvort á dagtíma, á
síðdegisvaktinni eða
leita til Læknavakt-
arinnar. Síðdegisvakt
er rekin á flestum
stöðvunum á höf-
uðborgarsvæðinu, sem
er mikil og góð breyt-
ing og Læknavaktin býður upp á
þjónustu sem er mjög vinsæl eftir
klukkan fimm á daginn. Þannig eru
það ekki eingöngu framlögin sem
lýsa hinni miklu breytingu sem orð-
ið hefur á þjónustu heilsugæslunnar
heldur líka sá sveigjanleiki sem tek-
inn hefur verið upp í heilsugæslunni
með hagmuni almennings að leið-
arljósi.
Framsókn í heilsugæslunni
Góð þjónusta og gott aðgengi er
aðalsmerki góðrar heilsugæslu.
Uppbyggingin sem orðin er á höf-
uðborgarsvæðinu, sameining
stjórnsýslunnar og öll ytri skilyrði
eru til þess að heilsugæslan eflist
enn frekar á næstu misserum. Hún
á að vera framsækin faglega og ég
sé alls ekki að sameining stjórn-
sýsluþáttarins hamli, eða dragi úr
því að menn bryddi upp á nýj-
ungum í þjónustu við almenning á
starfssvæðum heilsugæslunnar.
Menn eiga áfram að þróa þá
hugsun sem felst í nærþjónustu
heilsugæslunnar og hún getur látið
meira til sín taka á ýmsum sviðum
en almennt hefur verið. Ég sé til
dæmis ekkert sem mælir gegn því
að heilsugæslan leggi enn frekari
áherslu á það að fylgjast með háum
blóðþrýstingi skjólstæðinga sinna,
fylgist með og taki hjartalínurit
meðal áhættuhópa í auknum mæli,
eða beiti sér enn frekar á sviðum
sem samkvæmt hefðbundnum
skilningi teljast til lýðheilsu og for-
varna.
Það eru ýmsir möguleikar af
þessu tagi sem ég sé fyrir að gætu
blómstrað innan vébanda Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins. Sam-
eining stjórnsýslunnar þarf ekki og
á ekki að vera letjandi fyrir þá sem
sinna lækningum og hjúkrun á
stöðvunum. Ef það yrði nið-
urstaðan, ef sameiningin skilar sér
ekki í betri og hagkvæmari þjón-
ustu fyrir einstaklingana og fyrir
samfélagið allt, nú þá verður að
hugsa dæmið upp á nýtt. Svo einfalt
er það.
Fjölbreyttari þjónusta –
hagkvæmur kostur
Heilsugæslan á höfuðborg-
arsvæðinu hefur að undanförnu lát-
ið meira að sér kveða á sviði geð-
heilbrigðismála svo dæmi sé tekið.
Á hennar vegum hefur verið boðið
upp á aukna geðheilbrigðisþjón-
ustu, meðferðateymi er starfrækt í
Grafarvogi til að koma til móts við
ungmenni með geðraskanir og fyrir
skemmstu var hleypt af stokkunum
þjónustu í Bolholti á vegum heilsu-
gæslunnar og Hugarafls á vettvangi
geðheilbrigðisþjónustu sem ástæða
er til að binda miklar vonir við.
Hlutverk heilsugæslunnar í heima-
hjúkrun er ört vaxandi og verður
það á næstu árum og þannig mætti
lengi telja.
Sú uppbygging heilsugæslunnar
sem við blasir er skynsamleg fyrir
okkur sem skattgreiðendur vegna
þess að þjónusta heilsugæslunnar
er í mjög mörgum tilvikum ódýrasti
kosturinn fyrir einstaklinginn og
samfélagið, þegar öllu er til skila
haldið. Í heilsugæslunni, eins og við
höfum skipulagt hana, felst sú mik-
ilvæga hugsun og stefna, að byggja
upp þjónustuna í grennd við þá sem
þurfa á henni að halda úti í hverfum
borgar og bæja.
Heilsugæslan sinnir afar mik-
ilvægum þremur grundvallarmark-
miðum:
að veita íbúunum góða og
persónulega læknisþjónustu
að vera fyrsti valkostur
þeirra sem þurfa á almennri
heilbrigðisþjónustu að halda og
að stuðla að bættu heilbrigði
almennings með forvörnum og
fræðslu.
Í sjálfu hugtakinu heilsugæsla
felst, að hagsmunir sjúklinganna
eru settir í öndvegi og þannig á það
að vera. Þetta á að vera rauði þráð-
urinn í starfseminni þar sem öll
heilbrigðisþjónusta ætti að byggjast
á grunnþjónustu heilsugæslunnar.
Heilsugæsla – meginstoð
heilbrigðisþjónustunnar
Eftir Jón Kristjánsson
’Í sjálfu hugtakinuheilsugæsla felst, að
hagsmunir sjúkling-
anna eru settir í önd-
vegi og þannig á það að
vera. Þetta á að vera
rauði þráðurinn í starf-
seminni þar sem öll
heilbrigðisþjónusta ætti
að byggjast á grunn-
þjónustu heilsugæsl-
unnar.‘
Jón Kristjánsson
Höfundur er heilbrigðisráðherra.
Fjárveitingar til heilsugæslustöðva á
höfuðborgarsvæðinu á fjárlögum frá árinu 2000
Verðlag 2005 Íbúafjöldi Framlag
Framlög Vísitala pr íbúa
á fjárlögum neysluverðs m.kr. í kr.
Fjárlög 2000 1.926,6 199,1 2.357,5 175 13.472
Fjárlög 2001 2.169,9 212,4 2.489,0 178.03 13.981
Fjárlög 2002 2.441,8 222,6 2.672,5 179.781 14.865
Fjárlög 2003 2.797,2 227,3 2.998,2 181.888 16.484
Fjárlög 2004 3.425,8 234,6 3.557,7 183.99 19.336
Fjárlög 2005 3.741,3 243,6 3.741,3 187.105 19.996
Fjárlög 2006 4.278,4 22.866
NÚ ER rétt í þann mund að
hefjast á Alþingi umræða um
breytt rekstrarform Rík-
isútvarpsins á grundvelli frum-
varps menntamálaráðherra þar
að lútandi. Ein-
hverjum kann í
fljótu bragði að
þykja sem þetta
skipti ekki miklu
máli, – formið sé
aukaatriði en inni-
haldið aðalatriði.
Ekkert er fjær
lagi. Þvert á móti
má færa fyrir því
gild rök að óbreytt
rekstrarfyr-
irkomulag beri í
sér dauðann sjálfan
fyrir þessa merku
stofnun. Og það sem helst geld-
ur þessa úrelta fyrirkomulags
er einmitt innihaldið – sjálf
dagskrá Ríkisútvarpsins – sem
er jú þegar allt kemur til alls
eini lífstilgangur stofnunar-
innar.
Núverandi rekstrarform kem-
ur beinlínis í veg fyrir að Rík-
isútvarpið verði rekið með skil-
virkum og árangursríkum hætti.
Það leiðir til verri nýtingar á
fjármunum en ella væri, sem aft-
ur þýðir að minna fé verður til
ráðstöfunar í sjálfa dagskrána –
útvarp og sjónvarp. Gagnvart
notendum og eigendum – þjóð-
inni – er þetta helsta
meinsemdin í núver-
andi fyrirkomulagi
og sú afdrifaríkasta
þegar til lengri tíma
er litið: minni og
verri dagskrá fyrir
sama eða meiri pen-
ing. Aðrar birting-
armyndir þessa úr-
elta forms lúta svo
að stjórnskipulaginu,
– t.d. sérkennilegu
ferli þegar kemur að
ráðningum í ýmsar
lykilstöður. Man ein-
hver eftir „fréttastjóramálinu“?
Því ber að fagna fyrirhuguðum
breytingum á rekstrarformi Rík-
isútvarpsins – og ég tel mig tala
þar fyrir munn alls þorra starfs-
manna og stjórnenda stofnunar-
innar. Í því sambandi má minna á
bréf sem stjórn Starfsmanna-
samtaka RÚV sendi öllum þing-
mönnum fyrir skemmstu, þar
sem skorað var á þá að breyta
rekstrarforminu.
Sumir hafa lagst gegn hluta-
félagsforminu, sem gert er ráð
fyrir í frumvarpinu, og jafnvel
talið það vera fyrsta skrefið í átt
að einkavæðingu eða sölu RÚV.
Það er ekkert samhengi þarna á
milli. Ekki verður betur séð en
að það sé fullkomin og þver-
pólitísk samstaða allra flokka um
að Ríkisútvarpið skuli áfram vera
til. Það kann að vera hægt að
finna einn eða tvo þingmenn sem
eru annarrar skoðunar, en það
breytir ekki ríkjandi viðhorfum –
innan þings og utan. Ef að því
kæmi að það skapaðist pólitískur
meirihluti fyrir því að selja RÚV,
eða leggja það niður, yrði það
gert hvort sem RÚV væri á
þeirri stundu sjálfseignarstofnun,
sameignarfélag, ríkisstofnun eða
hlutafélag. Rekstrarformið hefur
einfaldlega ekkert með þá ákvörð-
un að gera.
Norðmenn breyttu sínu rík-
isútvarpi – NRK – í hlutafélag
fyrir tæpum áratug. Þá hvarflaði
ekki að neinum að það væri fyrsta
skrefið í átt að sölu, enda hefur
ekkert slíkt komið á daginn. Þar –
eins og hér – er yfirgnæfandi póli-
tískur og almennur vilji til að við-
halda þessari starfsemi í almanna-
þágu. Breytingin úr stofnun yfir í
hlutafélag varð hins vegar til þess
að NRK reis hreinlega úr ösku-
stónni, – beygði af vegi stöðnunar
og hrörnunar á lítt slitna sig-
urgöngu sem stendur enn. Þar –
eins og hér – var formið að bera
innihaldið ofurliði.
Utan við efni frumvarpsins – en
engu að síður óaðskiljanlegur hluti
af formbreytingu Ríkisútvarpsins
– er lausn á fjárhagsvanda þess.
Stofnunin hefur verið rekin með
miklu tapi mörg undanfarin ár og
er nú svo komið að allt eigið fé
hennar er upp urið og eiginfjár-
staðan orðin neikvæð. Við eðlileg-
ar aðstæður ætti eiginfjárhlutfallið
að vera 20–40%. Til samanburðar
má geta þess að eiginfjárhlutfall
NRK er um 50%. Það verður að
treysta því að ríkisstjórn – og Al-
þingi – búi þannig um hnútana við
formbreytinguna að hinu nýja fé-
lagi verði gert kleift að sinna þeim
skyldum og gegna því mikilvæga
hlutverki sem því er ætlað.
Ríkisútvarpið: Form-
breyting til framfara
Eftir Pál Magnússon ’Núverandi rekstr-arform kemur beinlínis
í veg fyrir að Rík-
isútvarpið verði rekið
með skilvirkum og ár-
angursríkum hætti.‘
Höfundur er útvarpsstjóri.
Páll Magnússon
ingur hefði gríðarmikla þýðingu
fyrir félagið: „Þarna er verið að
gera rannsókn sem er sú fyrsta
sinnar tegundar og vonumst við til
þess að þessi rannsókn muni leiða
ýmislegt nýtt í ljós hvað varðar
okkar hagi. Einnig er það viss við-
urkenning fyrir okkar starf að
Sparisjóðirnir hafi lagt fram þessa
fjárhæð til rannsóknarinnar. Við
bindum miklar vonir við að nýjar
upplýsingar komi fram í þessari
rannsókn.“
Aðspurð hvort hún vonaðist til
að þessi rannsókn myndi breyta
umræðunni um eldri borgara
sagði Margrét að hún teldi það
mjög líklegt: „Einnig tel ég líklegt
að það verði farið að líta allt öðru-
vísi á þeirra stöðu í samfélaginu og
þeirra hlutverk. Það er sannarlega
tími til kominn að það verði gert,
en umræðan hingað til hefur
markast af baráttumálum okkar
eldri borgara því að staða okkar er
ekki nógu góð hvað varðar fjárhag
og ekki síst þjónustu við eldri
borgara sem má vera meiri. Hún
er mikið notuð og við höfum bent á
að öldrunarheimili eru miklu fleiri
hér en á Norðurlöndunum. Við
teljum að betra sé að veita góða
þjónustu heima fyrir en að vista
fólk á stofnunum. Mörgum finnst
eins og þeim sé ýtt út á jaðar sam-
félagsins og settir í geymslu.“
Margrét sagði jafnframt að fólk
sem væri hætt að vinna fyndi oft
fyrir því að það ætti að láta lítið
fyrir sér fara.
Þrátt fyrir þetta sagði Margrét
að þátttaka eldri borgara í sam-
félaginu væri mikil og virk og
rannsóknin væri liður í að koma
almenningi í skilning um að svo
væri. Hún benti á að hugtakið „að
setjast í helgan stein“ þýddi ekki
að draga sig úr samfélaginu.
Möguleg útflutningsvara
Fram kom við undirskriftina að
rannsókn sem þessi hefði ekki ver-
ið framkvæmd áður svo vitað væri.
Aðspurð hvort rannsóknin gæti
mögulega orðið útflutningsvara
sagði Ingibjörg Harðardóttir að
svo væri:„Niðurstöður úr rann-
sókn sem þessari geta nýst í lönd-
um sem eru með svipaðan laga-
ramma og menningarheim og við.
Og ef við sjáum til dæmis á nið-
urstöðunum að eldra fólk leggi
meira til samfélagsins en búist var
við, þá er full ástæða til þess að
kynna rannsóknina og niðurstöður
hennar annarsstaðar en á Ís-
landi.“
gara
fn-
kið að
verk-
a
kn
ll á
töðu
n 67
inni
nan
n-
ur.
t á
em
borg-
i verið
hluti
taldi
á mál
-
lína á
or-
í
mn-
m vera neikvætt
ekki
laginu
Morgunblaðið/Þorkell
ðmundsson, framkvæmdastjóri Sambands
gs eldri borgara í Reykjavík.
ið/Ómar
dri
a
með
erið