Morgunblaðið - 19.01.2006, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 19.01.2006, Qupperneq 30
30 FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. U ndirritaður var í gær samstarfssamn- ingur um fram- kvæmd viðamikillar rannsóknar á fram- lagi eldri borgara til samfélagsins en þessi rannsókn mun verða framkvæmd af Rannsóknarstofu Kennaraháskóla Íslands fyrir Fé- lag eldri borgara í Reykjavík. Kostunaraðili rannsóknarinnar er Samband íslenskra sparisjóða en það hefur veitt 5 milljónir króna til rannsóknarinnar. Tilefni rannsóknarinnar er við- horf fjölmiðla og almennings til eldri borgara en athygli þeirra hefur einkum beinst að hlutskipti þeirra eldri borgara sem eru sjúk- ir og búa við þröngan kost. Mark- miðið með rannsókninni er að varpa nýju ljósi á þá mynd sem dregin hefur verið upp af eldra fólki og undirstrika þá staðreynd að eldra fólk er ekki bara baggi á samfélaginu. Góð heilsa og góð kjör Í ávarpi Bryndísar Víglunds- dóttur, sem á sæti í undirbúnings- hópi Félags eldri borgara í Reykjavík, kom fram að þónokkuð væri til af upplýsingum um aðbún- að og aðstöðu eldri borgara sem gerði það að verkum að oft á tíðum horfði fólk á eldra fólk sem hóp veikra og ósjálfbjarga ein- staklinga. Af því mætti þá jafnvel draga þá ályktun að allir Íslend- ingar 67 ára og eldri væru bundnir á klafa veikinda og fátæktar en sem betur fer væri svo ekki í raun. Hún benti á að gott væri til þess að vita að stór hópur fullorðinna Íslendinga væri svo gæfusamur að búa við góða heilsu, góð kjör og taka þátt í hinu daglega lífi. Hún taldi þessar staðreyndir hafa gleymst og það ætti ekki að gleyma því að eldra fólk væri jafn fjölskrúðugt og fólk á tvítugsaldri. Það hefði því verið tímabært þegar stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík ályktaði um að athuga á faglegan hátt hvernig þessi hóp- ur hefði það og hvað hann væri að gera. Áhugaverð rannsókn Ingibjörg Harðardóttir, lektor í sálfræði við KHÍ og umsjón- armaður könnunarinnar, segir að Ingibjörg að Félag eldri borg hafi leitað til Rannsóknarstof unar KHÍ og þar hafi hún tek sér að vera umsjónarmaður v efnisins. Henni hafi þótt þetta vera mjög áhugaverð rannsók þar sem þetta sé annar vinkil viðhorfi til eldri borgara og st þeirra sem eru orðnir eldri en ára. Hún segir að í rannsókni verði horft allt öðruvísi á þen hóp en gert hefur verið í rann sóknum á eldri borgurum áðu Þar hafi fremur verið einblínt vankanta í þjónustu og það se lýtur að úrræðum fyrir eldri b ara. Hún telur að vöntun hafi á rannsóknum um jákvæðari er tengist eldri borgurum og ennfremur mikilvægt að líta á þessa hóps frá mörgum sjón- arhornum fremur en að einbl einn þátt. Margrét Margeirsdóttir, fo maður Félags eldri borgara í Reykjavík, sagði að þessi sam rannsóknin muni fara þannig fram að viðtöl verði tekin við 20 eldri borgara og gögnum safnað ásamt því að opinber gögn er varða fram- lag eldri borgara til samfélagsins verða greind. „Við munum síðan taka gögnin úr viðtölunum ásamt þessum opinberu gögnum og setja saman spurningalista sem við munum bera undir fólk á aldrinum 18 ára og eldra. Könnunin sjálf miðast ekki einungis við eldri borgara þótt við séum að fræðast um þeirra framlag,“ segir Ingi- björg og bætti því við að framlag Sparisjóðanna hefði verið mik- ilvægt enda sé þetta viðamikil könnun: „Samstarfið við Spari- sjóðina gerir okkur kleift að vinna rannsóknina á mun faglegri hátt. Til dæmis getum við fengið fag- aðila til að sjá um símakönnunina sem tryggir okkur áreiðanlegar upplýsingar.“ Aðspurð hver hafi haft frum- kvæðið að þessari rannsókn segir Viðhorf almennings til eldri borgara virðist oft á tíðum Eldra fólk er e baggi á samfél Í undirbúningi er rannsókn á vegum Félags eldri borgara í Reykjavík um fram- lag eldri borgara til samfélagsins. Vonast er til að niðurstöður rannsóknarinnar breyti viðhorfi al- mennings til þessa hóps en upp á síð- kastið hefur umræð- an beinst að þeim sem sjúkir eru og búa við þröngan kost. Sigurður Pálmi Sig- urbjörnsson ræddi við aðstandendur rannsóknarinnar. Ingibjörg Harðardóttir, umsjónarmaður verkefnisins, Guðjón Guð íslenskra Sparisjóða, og Margrét Margeirsdóttir, formaður Félag Morgunblaði Tilefni rannsóknarinnar er viðhorf fjölmiðla og almennings til eld borgara en athygli þeirra hefur einkum beinst að hlutskipti þeirra eldri borgara sem eru sjúkir og búa við þröngan kost. Markmiðið rannsókninni er að varpa nýju ljósi á þá mynd sem dregin hefur ve upp af eldra fólki. Varpa nýju ljósi á eldri borgara NORÐLINGAÖLDUVEITA ÚR SÖGUNNI? Eftir atburði síðastliðins þriðju-dags er vandséð að nokkuð getiorðið úr áformum um Norðlinga- ölduveitu, þótt ekki hafi hún enn verið formlega tekin út af borðinu. Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti með atkvæðum Reykjavíkurlistans og Frjálslynda flokksins að leggjast gegn öllum frekari virkjunarframkvæmdum í Þjórsárverum og að fallið verði frá gerð Norðlingaölduveitu. Þess í stað vill borg- arstjórn að Landsvirkjun skoði mögu- leika á uppbyggingu gufuaflsvirkjana, sem séu umhverfisvænni kostur en vatnsaflsvirkjanir. Stjórn Landsvirkjunar á eftir að fjalla um þessa samþykkt borgarstjórnar. En þegar af þeirri ástæðu að eigandi 45% hlutar í Landsvirkjun leggst svo ein- dregið gegn framkvæmdinni, verður að teljast nánast útilokað að í hana verði ráðizt. Auðvitað kunna menn að spyrja, hvort nýr meirihluti í borgarstjórn eftir næstu kosningar gæti breytt þeirri stöðu. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgar- stjórn sátu hjá við afgreiðslu tillögu Ólafs F. Magnússonar um Þjórsárverin og útiloka út af fyrir sig ekki að til gerð- ar Norðlingaölduveitu geti komið í fram- tíðinni, þótt þeir hvetji til að áform um hana verði lögð til hliðar og annarra virkjunarkosta leitað. Sjálfstæðismenn virðast engu að síður átta sig á hinu breytta andrúmslofti í samfélaginu gagnvart framkvæmdum á hálendinu og segja í bókun sinni í borg- arstjórn: „Raunar hníga rök að því að frá því verði horfið að ráðast í veituna í nú- verandi mynd, auk þess sem áform eru uppi um að stækka friðland Þjórsárvera enn frekar.“ Með öðrum orðum er ekki líklegt, fari svo að Sjálfstæðisflokkurinn nái meirihluta í borgarstjórn Reykjavík- ur í vor, að hann muni breyta afstöðu borgarstjórnar til Norðlingaölduveitu. Segja má að það hafi verið vanhugsað hjá borgarstjóra, Steinunni Valdísi Ósk- arsdóttur, að leggja til að bætt yrði við tillögu Ólafs F. Magnússonar að borg- arstjórn beindi því til Landsvirkjunar að skoða möguleika á gufuaflsvirkjunum. Það er engin ástæða til að efast um að samþykkt borgarstjórnarmeirihlutans byggist á náttúruverndarsjónarmiðum fyrst og fremst, en þessi viðaukatillaga hefur orðið til að beina athyglinni að þeim hagsmunaárekstri, sem Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, gerir að umtalsefni í Morgunblaðinu í gær. Landsvirkjun á ekki kost á jarð- varmavirkjunum sunnanlands; það á hins vegar Orkuveita Reykjavíkur. Eftir að samkeppni var innleidd á raforku- markaðnum er það auðvitað ómöguleg staða fyrir Reykjavíkurborg að eiga stóran hlut í tveimur orkufyrirtækjum til langframa. Eftir fund Landsvirkjunar með heimamönnum við Þjórsá í fyrradag er ljóst að fyrirtækið leggur enga áherzlu á Norðlingaölduveitu næstu árin, heldur að aðrir virkjanakostir á Þjórsársvæð- inu verði nýttir. Ennfremur er ljóst hvert hugur um- hverfisráðherra, Sigríðar Önnu Þórðar- dóttur, stefnir. Hún orðaði það svo á Al- þingi í fyrradag að í raun og veru hefði Norðlingaölduveita þegar verið „sett á ís“, enda væri engin sérstök þörf fyrir framkvæmdina nú. Ráðherra sagði vel koma til greina að stækka friðlandið í Þjórsárverum. Það þýddi að skoða yrði hvort taka ætti Norðlingaölduveitu af dagskrá. Það er sú leið, sem á að fara og rík- isstjórnin er augljóslega að byrja að fikra sig inn á. BARÁTTAN VIÐ RISTILKRABBAMEIN Skimun fyrir ristilkrabbameini vartil umræðu á Læknadögum, sem nú standa yfir. Þar kom fram að krabbamein í ristli væri önnur al- gengasta dánarorsökin af völdum krabbameins hér á landi og árlega dæju milli 50 og 55 sjúklingar af rist- ilkrabbameini. Eins og fram kom í fréttaskýringu Silju Bjarkar Huldu- dóttur í Morgunblaðinu í gær sýnir reynslan að helmingur þeirra, sem eru nýgreindir, er með langt gengið krabbamein og mun deyja af völdum þess. Þrátt fyrir mikla þekkingu hef- ur ekki tekist að greina sjúkdóminn á fyrri stigum, en rannsóknir sýna hins vegar að með því að skoða ristilinn og fjarlægja sepa megi minnka líkur á krabbameini um allt að 90%. Þegar hefur verið hafist handa við skipulega skimun eftir ristilkrabba- meini í Finnlandi og hefur reynslan verið góð. Nú liggur þingsályktun- artillaga fyrir Alþingi um að hefja skipulega leit hér á landi. Samkvæmt útreikningum Ásgeirs Theodórs, sér- fræðings í meltingarsjúkdómum, mætti bjarga allt að 12 mannslífum á ári með skipulegri skimun. Yrði leitað meðal þeirra, sem eru á aldrinum 55 til 70 ára, á tveggja ára fresti eins og vinnuhópur á vegum landlæknis hefur lagt til yrði árlegur kostnaður 30 milljónir króna. Það er ekki mikið fé, sérstaklega ekki þegar það er sett í samhengi við þann kostnað, sem krabbameinið leggur á samfélagið. Á Læknadögum talaði Nick Car- iglia, sérfræðingur í lyflækningum og meltingarsjúkdómum, og sagði að bjóða ætti upp á leit fyrir alla eldri en 50 ára því að rannsóknir sýndu að hægt væri að draga verulega úr dán- artíðni með því einu að til dæmis leita eftir blóði í saur. Að hans sögn er við lækna að sakast að ekki skuli þegar hafa verið hafist handa við að skima eftir ristilkrabbameini því að þeir byggju yfir þekkingunni og ættu að tala máli skimunar. Óskar Reykdals- son, sérfræðingur í heimilislækning- um, ræddi árvekni lækna og sagði lykilatriði að læknar í klínísku starfi hlustuðu á sjúklinga sína og veittu einkennum ristil- og endaþarms- krabbameins athygli. Mestu skiptir þó að hefja skipulega skimun sem fyrst. Ásgeir Theodórs kallaði erindi sitt á Læknadögum „Krabbamein í ristli: „Hinn þögli morðingi“.“ Í langflestum tilvikum á ristilkrabbamein upptök í góðkynja kirtilæxli, sem fjórðungur Íslendinga yfir fimmtugu gengur með í ristlinum. Sex til sjö af hundraði þeirra geti orð- ið illkynja á að meðaltali 10 árum. Í fyrstu eru einkennin lítil og því er það líkast til að ristilkrabbamein greinist yfirleitt of seint. Lykillinn að lækn- ingu er greining áður en einkennin koma fram. Skipulögð skimun er for- sendan fyrir því að hægt sé að komast fyrir ristilkrabbamein í tæka tíð og því er ekki eftir neinu að bíða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.