Morgunblaðið - 19.01.2006, Síða 34

Morgunblaðið - 19.01.2006, Síða 34
34 FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN EFASEMDIR um réttmæti sameiningar spítalanna í Reykja- vík hafa heyrst að undanförnu. Í þeirri umræðu hafa efnislegar röksemdir gegn ákvörðuninni lítt eða ekki verið dregnar fram að undanskilinni þeirri staðreynd að nú sé um takmarkaða samkeppni að ræða í spítalaþjónustu. Því er ástæða til þess að draga fram ástæður sameining- arinnar og vísa til reynslu af henni. Hagræðingar- krafa og fagleg sérhæfing Rekstrarleg hag- ræðing var af hálfu stjórnmálamanna höf- uðröksemd fyrir sam- einingu spítalanna. Í nýútkominni stjórn- sýsluúttekt Ríkisend- urskoðunar kemur fram að tekist hafi allvel að halda kostn- aði í skefjum á tímabilinu 1999– 2004 og horfur eru á að rekstr- arniðurstaða ársins 2005 styðji þá niðurstöðu. Í skýrslunni segir enn fremur að líklegt sé að þróunin hefði orðið önnur ef sjúkrahúsin hefðu starfað áfram hvort í sínu lagi. Þessi árangur hefur náðst þótt starfsemin sé enn tvístruð og fari fram á nærri tuttugu stöðum á höfuðborgarsvæðinu, með um- talsverðum kostnaðarauka. Fagleg sérhæfing er grundvöllur þeirra gífurlegu framfara sem orðið hafa á undanförnum áratugum í lækn- ingum og annarri heilbrigðisþjón- ustu. Í mörgum minni sérgreinum er útilokað að halda uppi þróaðri sérhæfingu án þess að sameina kraftana. Menntunar- og rannsóknarhlutverk Öflugt háskólasjúkrahús undir einu þaki, nægjanlega stórt til að standa undir nafni, var sú sýn sem sætti sjónarmið starfsmanna til sameiningar. Þeir sem þekkja til forsendna fyrir tilvist háskóla- sjúkrahúss eru sammála um að sameining aðstöðu og þekkingar í okkar smáa samfélagi var óhjá- kvæmileg. Krafa samfélagsins til heilbrigðisþjónustunnar í landinu er að hún sé fyrsta flokks. Svo verður aldrei til lengdar nema hún standi á grunni trausts vísinda- starfs. Hið sama gildir um mennt- un heilbrigðisstarfsmanna. Árið 2004 voru um 1.100 nemendur í námi eða starfsþjálfun á LSH. Einn mikilvægasti ávinningur sameiningarinnar felst í samein- ingu sérgreina og sérþekkingar á einn stað. Þannig skapast aukið svigrúm til að bæta kennslu og rannsóknir og mögu- leika á kennslu í fleiri sérgreinum og enn fremur til framhalds- náms. Það hefur líka komið á daginn að ásókn í framhaldsnám á LSH hefur aukist til muna. Félagslegt umhverfi Vinnuvernd var höfð í huga við ákvörðun um samein- ingu sjúkrahúsanna. Kröfur sem felast í vinnuverndartilskipun EES hafa reynst erfiðari til úrlausnar en nokkurn óraði fyrir. Með öllu væri útilokað að koma til móts við þessi ákvæði og tryggja samfellda vakt- þjónustu ef spítalarnir væru ekki sameinaðir. Enn skortir meira að segja nokkuð á það að reglum sé fullnægt. Viðhorf yngra fólks til heimilislífs og frístunda hefur breyst hér á landi sem annars staðar. Þeim viðhorfum verður að mæta, annars leitar unga fólkið inn á annan starfsvettvang sem aftur leiðir til skorts á hæfum starfsmönnum. Dýr tækjakostur og annar búnaður Góð nýting tækjabúnaðar skipt- ir miklu fyrir hagkvæmni rekstr- ar. Árleg fjárfesting í tækjabúnaði og endurnýjun hans þarf að vera um 3% af rekstrarfé nútíma- sjúkrahúsa eða u.þ.b. 800 milljónir króna árlega fyrir LSH. Líftími flóknustu tækjanna er aðeins 5–7 ár, m.a. vegna þess að þau úreld- ast vegna örra tækniframfara. Tvöföldun tækjabúnaðar hægir á mögulegri endurnýjun. Með ónauðsynlegri tvöföldun tækja er erfiðara að fylgja tækniframförum eftir og án sameiningar hefði spít- alanum verið ókleift að fylgja eðli- legri tækniþróun. Mikilvægt er líka að hafa í huga að flest þess- ara flóknu tækja krefjast sérþjálf- aðs starfsfólks og launakostnaður vegna slíkra áhafna er gríðarmik- ill, hvað þá ef halda þarf uppi tvö- faldri vaktþjónustu. Heildstætt skipulag Ný þekking á mikilvægi hönn- unar til að auka gæði þjónustu og bæta öryggi sjúklinga hefur leitt til mikilla breytinga á spítala- húsnæði víða um heim, svo og breytt viðhorf sjúklinga og að- standenda þeirra. Sjúkrahúsbygg- ingar í Reykjavík eru flestar komnar til ára sinna og nánast umkringdar viðbyggingum þannig að allt flæði sjúklinga, starfsfólks og vöruflutninga er líkast því sem væri í völundarhúsi. Flutningur sjúklinga milli fjarlægra staða er til tafa og óþæginda fyrir veikt fólk og stundum hættulegur. Að- staða starfsmanna er víða ófull- nægjandi og stendur starfinu fyrir þrifum. Nýjar sjúkrahúsbyggingar eru því mikilvægasta forsendan fyrir eðlilegri þróun og hag- kvæmum rekstri heilbrigðisþjón- ustunnar. Fullur ávinningur með einum stað Framkvæmd sameiningar sjúkrahúsa er aldrei hafin yfir gagnrýni en flest bendir til þess að markmiðum hennar hér hafi að mörgu leyti verið náð þótt hús- næði standist ekki kröfur sem gerðar eru í nútíma heilbrigð- isþjónustu. Fullur ávinningur sam- einingarinnar næst ekki fyrr en allri starfseminni hefur verið kom- ið fyrir á einum stað í nýju sjúkra- húsi. Sameining sjúkrahúsanna var forsenda framfara Jóhannes M. Gunnarsson fjallar um málefnið „Af hverju nýtt sjúkrahús?“ ’Því er ástæða til þessað draga fram ástæður sameiningarinnar og vísa til reynslu af henni.‘ Jóhannes M. Gunnarsson Höfundur er framkvæmdastjóri lækninga á LSH. UMHVERFISMÁL hafa verið sí- fellt meira til umræðu í samfélagi okkar og á síðustu ár- um hefur orðið vakning meðal fólks um að skilja betur að jörðin og náttúra hennar er auðlind. Þessa auðlind ber að umgangast með virðingu og nýta af hóf- semd. Það jákvæða er að flestar auðlindir jarðar eru endurnýt- anlegar, þótt sumar hverjar endurnýi sig á mislöngum tíma. Jörðin okkar er eitt margþætt vistkerfi sem samanstendur af fjölda annarra smærri vistkerfa. Aðgerðir til góðs eða ills fyrir þessi vistkerfi geta haft flókin áhrif og afleiðingar á fjar- lægum stöðum. Það er alltaf að koma betur og betur í ljós hversu samofin vistkerfin eru og samspilið á milli þeirra sífellt að koma á óvart. Við hér á Íslandi höfum stundum virst vera minna meðvituð um meng- un umhverfisins vegna þess hversu náttúra landsins virðist vera lítt menguð. Sannleikurinn er annar. Þótt við þurfum e.t.v. ekki að horfast í augu við sömu risavöxnu vanda- málin og margar þjóðir Evrópu og Asíu, þá erum við að sumu leyti und- ir sömu sökina seld vegna þeirra samtvinn- uðu áhrifa sem vist- kerfi jarðarinnar hefur. Helstu mengun- arvaldar nútímans eru í flestra augum stórfyr- irtækin, iðnaðurinn, samgöngur, landbún- aður og sjávarútvegur. Fæstir sjá að hinn al- menni borgari getur gert sitt hvað til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum. Það er engu að síður svo að venjulegt fólk, ég og þú, er í lyk- ilhlutverki í þessu samhengi. Ein- staklingurinn, heimilin og atvinnu- fyrirtækin bera líka ábyrgð eins og stjórnvöld og stórfyrirtæki. Ég hef í störfum mínum sem formaður um- hverfisráðs Kópavogs kynnst hinum ýmsu hliðum umhverfismála og lært mikið um hvað er hægt að gera með einföldum hætti til að draga úr skemmdum á umhverfinu. Fyrir umhverfið skiptir þó mestu að við nálgumst umræðuna á vit- rænu plani. Ófrjóar deilur um hver sé stærsti sökudólgurinn í þessum efnum, skila engu. Auk þess sem mikilvægt er að við veltum gagn- rýnið fyrir okkur, ég og þú, hvað við getum gert betur í þágu náttúrunn- ar, þá skiptir höfuðmáli að stjórn- völd vinni að umhverfisvernd í sam- vinnu og takt við heildir sam- félagsins, þ.e. fyrirtæki, stofnanir og almenning. Svo að þessi umræða geti skilað börnum okkar betri og líf- vænlegri náttúru verður jafnframt að skapast um það sátt, að mann- skepnan kemst því aðeins af, með því að hafa áhrif á umhverfi sitt. Þetta er síðan augljós staðreynd að þetta samspil manns og náttúru verður að vera á grundvelli farsællar sambúðar. Framtíðin, umhverf- ið og lífsgæðin Eftir Margréti Björnsdóttur ’... þetta samspil mannsog náttúru verður að vera á grundvelli far- sællar sambúðar.‘ Margrét Björnsdóttir Höfundur er varabæjarfulltrúi, formaður umhverfisráðs og gefur kost á sér í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Prófkjör Kópavogur TENGLAR ............................................. www.margretb.is BANDARÍSKI prófessorinn Richard Florida boðar nýjar hug- myndir um vægi hinnar „skapandi stéttar“ í metsölubókinni The Rise of the Creative Class sem kom út árið 2002. Hin skapandi stétt er mikilvægt hreyfiafl efnahagslífsins og myndar verðmæti með frjórri hugsun. Kjarni hennar er vís- indamenn og verk- fræðingar, háskóla- kennarar, skáld og rithöfundar, listamenn, skemmtikraftar, hönn- uðir, hugmyndasmiðir, fræðiritahöfundar og ritstjórar. Florida segir að um miðja síðustu öld hafi menn unnið alla ævi hjá sama fyrirtæki sem þeir samsömuðu sig með, lífshættir voru í föstum skorðum og bóhemar grun- samlegt fólk. Þessi einkenni hafa vikið fyrir hreyfanlegri vinnumarkaði, sveigj- anlegri vinnustöðum, aðlögunarhæfni og áherslu á sköpun, frumkvæði og þekk- ingu. Fyrirtækin hafa uppgötvað að bóhem- inn er hugmyndaríkur og snjall. Klæðnaður manna í vinnu er óformlegur, sjálfsmyndin óbundin vinnustaðn- um. Vægi stórfyrirtækja hefur minnkað, þungaiðnaður á und- anhaldi, fólk hafnar gamalli ein- hæfni og flytur þangað sem það langar til að búa. Þar sem skapandi fólki fjölgar er hugmyndaauðgin hreyfiafl og atvinnutækifæri spretta úr jarðveginum. Nýjum lífsháttum fylgja nýjar kröfur, ferðamenn vilja ekki pakkaferðir heldur einstæðar upplifanir. Florida segir uppgang mestan þar þar sem saman fara þrjú T: technology, talent og tolerance, tækni, hæfileikar og umburð- arlyndi, þættir sem nota má til að reikna út sköpunargetu svæða. Hæfileikar og tækni knýja nýsköp- un en umburðarlyndi er mælt með hommahlutfalli. Fjöldi og sýnileiki samkynhneigðra bendir til að nægi- legt umburðarlyndi ríki til að þeir sem eru öðruvísi fái að njóta hæfi- leika sinna og sköpunargáfu. Lit- skrúðugt menningarlíf, frumleg tónlistarsena og fjölbreyttir útivist- armöguleikar eiga mestan þátt í að gera borgir eða svæði aðlaðandi, frekar en risamannvirki á borð við íþróttaleikvanga og tónleikahús. Austin, Seattle og San Francisco eru efstar á lista hinna skapandi svæða í Bandaríkjunum. Hátækni- miðstöðvar eru mikilvægustu vaxt- arsvæðin en það er hið skapandi umhverfi sem nærir þau meðan stórar iðnaðarborgir tapa fólki og staðna. Florida dregur upp allt aðra framtíðarmynd en íslensk stjórn- völd sem eru í óða önn að byggja upp þungaiðnað með ódýru, lítt skapandi vinnuafli. Þungaiðnaður ryður hátæknifyrirtækjum úr landi, spillir fyrir sjávarútvegi og kæfir nýsköpun. Hagfræðingar hafa bent á að stóriðja hafi einungis stað- bundin uppgangsáhrif á atvinnulíf og sé því gagnslaus við að halda landinu öllu í byggð. Milljarðar fara í undirbúning gamaldags virkj- ana og stóriðju en aðeins milljónir í þá uppbyggingu þekkingarsam- félags sem líklegust er til að skapa bjarta framtíð. Svo virðist sem mest sköpun sé í stórborgum þó ekki sé það algild regla. Stórreykjavíkursvæðið er þorp miðað við milljónaborgirnar sem Florida er tíðrætt um. Engu að síður væri full ástæða fyrir Ís- lendinga að leggja meiri rækt við hátækni og hæfileika, umburð- arlyndi og sveigjanlega fjölbreytni, bæta skilyrði hinna skapandi stétta og setja meira og varanlegra fé í nýsköpun. Það má ganga lengra og end- urmeta ýmis einkenni íslensks sam- félags, fjarlægja gjár milli suðvesturhorns og landsbyggðar, þétt- býlis og dreifbýlis, líta á landið sem eitt borgarsvæði og rækta sköpunarmátt þess í heild. Íbúar eru hvort sem er ekki fleiri en í hverfi í stórborg. Landið þarf að skreppa saman með bættum samgöngum og boðskiptum. Stór- efla þyrfti almenn- ingssamgöngur og jafnvel hafa þær ókeypis til að auka samskipti manna og samstarf um land allt. Góðar háhraðanet- tengingar styðja upp- byggingu á lands- byggðinni og laða að hina skapandi stétt. Æ fleiri sækjast eftir búsetu og hæg- gengari lífsháttum úti á landi, vilja losna undan hraða, streitu og almennum hávaða en eiga þó erfitt með að sleppa hendi af menningu höfuðborg- arsvæðisins. Menning gamla bændasamfélagsins er liðin undir lok en er þó allsstaðar nálæg. Sá andblær sem eftir lifir hefur að- dráttarafl sem styrkist með rækt við fortíðina. Saga og menning- arminjar ganga í endurnýjun líf- daga víða um land í nánu sambandi við náttúruna, sem viðfangsefni rannsókna og ferðamennsku. Land- ið þarf að verða lifandi menningar- heild, þar sem fyrir utan höf- uðborgarsvæðið séu nokkrir öflugir þéttbýliskjarnar, margir minni, og góðar samgöngur um dreifðar byggðir. Þannig mætti skapa ákjós- anleg skilyrði svo hin skapandi stétt dreifist víða um landið. Reykjavíkurborg leggur nú til lóðir til háskóla og vísindastofnana í Vatnsmýri. Hug- og félagsvísindi eru nauðsynlegur þáttur í heild- armynd þekkingarþorpsins, til að átta sig á straumum tímans og þeirri fortíð sem hefur mótað okk- ur. Þekkingarþorpið verður al- þjóðlegt en þarf líka að þjóna land- inu í heild, vísinda- og mennta- stofnunum sem spretta upp víða, oft af vanefnum. Framtíð íslensks samfélags verður að byggja á sam- þættingu menningar, náttúru og vistvænnar hátækni um land allt. Saga, menning og náttúra laða að æ fleiri erlenda ferðamenn en mynda einnig frumnæringu hins fjölbreytta og skapandi samfélags sem verður að ná um allt landið. Ísland á að verða hátæknisamfélag en sköpunarkraftur hátækninnar er dreginn úr frumnæringunni. Skapandi samfélag Viðar Hreinsson fjallar um hugmyndir um nýja lífshætti Viðar Hreinsson ’Framtíð ís-lensks sam- félags verður að byggja á sam- þættingu menn- ingar, náttúru og vistvænnar hátækni um land allt.‘ Höfundur er bókmenntafræðingur og framkvæmdastjóri Reykjavíkur- akademíunnar. mbl.is smáauglýsingar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.