Morgunblaðið - 19.01.2006, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2006 41
MINNINGAR
✝ Sigríður Ólafs-dóttir frá Berg-
vík fæddist á Jörfa
á Kjalarnesi 25.
nóvember 1919.
Hún lést á hjúkrun-
arheimilinu Víð-
inesi 13. janúar síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Ólafur
Finnsson bóndi í
Bergvík og kona
hans Jakobína
Björnsdóttir. Systk-
ini Sigríðar eru
Halldór, Guðrún,
Finnur, Kristbjörg, Guðmundur
og Ásta. Kristbjörg og Guðmund-
ur lifa systkini sín.
Sigríður giftist 28. nóvember
1941 Kristjáni Þorgeirssyni, f. á
Kirkjubóli í Korpudal í Önund-
arfirði 21. febrúar 1918. Börn
þeirra eru: 1) Ólöf Ásta, maki
Garðar Halldórs-
son, þau skildu. Var
í sambúð með Guð-
finni Finnbogasyni,
þau slitu sambúð.
Hún á þrjú börn. 2)
María, maki Guð-
mundur Vignir
Þórðarson, þau
eiga fjögur börn en
Guðmundur Vignir
á tvo syni fyrir. 3)
Ingibjörg, maki
Kristinn Orri Er-
lendsson, þau eiga
fjögur börn. 4) Páll,
maki Katrín Tómasdóttir, þau
eiga tvö börn. Einnig ólu þau
Sigríður og Kristján upp dóttur-
son sinn, Höskuld Svavarsson.
Afkomendur Sigríðar eru 45.
Útför Sigríðar verður gerð frá
Bústaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Í dag kveð ég mína elskulegu
tengdamömmu, Sigríði Ólafsdóttur.
Ég var ekki gömul þegar ég fór að
venja komur mínar í Lágholtið og
frá fyrstu tíð var ég hjartanlega
velkomin, fyrst sem kærasta Palla
og síðan tengdadóttir Siggu og
Stjána.
Ekki hef ég þurft að kvarta yfir
tengdamömmu með sitt ljúfa og
hlýja viðmót. Sigga reyndist sínum
nánustu vel, sem mín fjölskylda
hefur ekki farið varhluta af. „Besta
mamma í heimi“ var það sem ég oft
heyrði og eru orð að sönnu.
Ef jafna þurfti ágreining var það
gert með jólaköku og snúðum enda
var hún af kynslóð þar sem bakkesi
var á borðum. Áttu margir skjól hjá
henni, jafnt börn sem barnabörn;
gestir og gangandi. Ég er þakklát
fyrir að eiga fallegar minningar um
góða tengdamömmu.
Elsku Sigga, Guð geymi þig og
varðveiti.
Þín
Katrín.
Elsku amma, ég fékk óþægilegt
símtal í vinnunni á föstudagsmorg-
uninn, þegar mamma hringdi og
sagði að þú hefðir kvatt þá nótt. Þó
að maður mætti vita að þessi dagur
myndi einhvern tímann renna upp
var þetta samt erfitt. En þegar hún
sagði að þú hefðir verið friðsæl á
svipinn þá vissi ég að þér liði
örugglega betur og vektir yfir okk-
ur öllum sem þótti svo óendanlega
vænt um þig. Þú varst yndisleg
manneskja sem alltaf var hægt að
treysta á og hlæja með.
Þegar ég hugsa til baka rifjast
upp margar minningar. Við systk-
inin vorum svo lánsöm að fá að
alast upp í sömu götu og þið afi,
með aðeins tvö hús á milli. Það
fyrsta sem kemur upp í hugann er
að í þá gömlu góðu daga, þegar
bragðlaukarnir mínir voru í lagi og
ég borðaði fisk, fannst mér æðislegt
að fara í hádeginu til ömmu og fá
saltfisk, stappaðan með kartöflum
og slatta af smjöri og hræringinn
með slatta af sykri út á á eftir.
Þetta var sko ömmu Siggu matur í
lagi. Einnig er það mér mjög minn-
isstætt þegar ég var komin á ung-
lingsárin, þá læddist ég oft til þín
eftir skóla og fékk að leggja mig í
sófanum hjá þér, þangað til ég fór í
hesthúsið með afa, þegar ég átti að
vera heima að læra. Þú passaðir
alltaf upp á að breiða yfir mig svo
að mér yrði ekki kalt. Og hvað mér
fannst æðislegt að fá að fara á
gömlu merina þína hana Flugu, af
því að þú áttir hana. Þú varst alltaf
með húmorinn í lagi og ég sé fyrir
mér svipinn sem þú settir svo oft
upp, svona prakkarasvip sem var
ólýsanlegur. Það var alltaf svo gott
að koma til þín og vita af þér nán-
ast í næsta húsi.
Síðustu minninguna um þig á ég
eftir að varðveita alla ævi, það var á
aðfangadag þegar við sátum yfir
jólamatnum, ég og þú, mamma,
pabbi og afi. Þú hlóst svo mikið
þegar afi var að fá sér waldorfsalat
en þér fannst eins og hann væri að
setja hræring út á kjötið. Okkur
fannst þetta svo fyndið og þér allra
mest. Þó að síðustu árin hafi ekki
verið auðveld var samt alltaf stutt í
hláturinn og þennan yndislega
prakkarasvip.
Elsku amma, ég vona að þér líði
vel þar sem þú ert núna og mun ég
varðveita þessar yndislegu minn-
ingar um þig í hjarta mínu.
Þín
Vigdís.
Elsku amma Sigga, það eru
margar minningar sem leita á mig
núna.
Ég var svo lánsöm að búa í sömu
götu og þú í Lágholtinu þar til ég
flutti að heiman. Það var okkur
systkinunum ómetanlegt að vita af
ykkur afa Stjána í nágrenninu. Allt-
af gat ég komið til þín og það var
vel tekið á móti mér, með kleinum
og jólaköku, eða bara brosi.
Þær voru margar stundirnar sem
ég átti með þér við saumaskap. Ég
átti ekki saumavél en það áttir þú,
ég kom oft og tók nokkur spor á
vélina undir þinni leiðsögn. Ég man
sérstaklega eftir því eitt árið er ég
kom til þín á aðfangadag til að
sauma jólakjólinn minn.
Elsku amma, þín verður sárt
saknað en minningin um þig mun
lifa í hjarta mínu.
Þín
Sigríður Birna.
SIGRÍÐUR
ÓLAFSDÓTTIR
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓNA JAKOBÍNA JÓNSDÓTTIR,
Vogum, Mývatnssveit,
Langholtsvegi 139,
Reykjavík,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 11. janúar.
Minningarathöfn verður í Langholtskirkju fimmtu-
daginn 19. janúar kl. 11.00.
Jarðsett verður frá Reykjahlíðarkirkju föstudaginn 20. janúar kl. 14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim, sem vilja minnast
hennar, er bent á Gluggasjóð Langholtskirkju eða Fuglasafn Sigurgeirs.
Jón Stefánsson, Ólöf Kolbrún Harðardóttir,
Steingerður Védís Stefánsdóttir, Halldór Torfason,
Jakob Stefánsson, Edda Stefánsdóttir,
Ólafur Þröstur Stefánsson,
Sólveig Valgerður Stefánsdóttir, Hákon Páll Gunnlaugsson,
ömmubörn og langömmubörn.
Elskulegur eiginmaður minn, sonur, faðir, stjúp-
faðir, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
PÉTUR SIGURÐSSON,
Geitlandi 8,
Reykjavík,
sem lést af slysförum föstudaginn 13. janúar,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn
20. janúar kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim, sem vilja minnast
hans, er bent á Styrktarfélag vangefinna.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Magnúsdóttir,
Unnur Pétursdóttir,
Jón Óskar Pétursson,
Vignir Pétursson, Alda Þorsteinsdóttir,
Ólafur Pétur Pétursson,
Magnús Baldvinsson,
Sigríður Baldvinsdóttir,
Björg Baldvinsdóttir, Valmundur Valmundsson,
Erla Baldvinsdóttir,
afabörn og systkini.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
GYLFI ELDJÁRN SIGURLINNASON,
Suðurvangi 3,
Hafnarfirði,
sem lést laugardaginn 7. janúar, verður jarðsung-
inn frá Víðistaðakirkju mánudaginn 23. janúar
kl. 15.00.
Í stað blóma og kransa vinsamlega látið Hjartaheill njóta.
Þórunn Sólveig Ólafsdóttir,
Stefana Björk Gylfadóttir, Guðmundur Björgvinsson,
Ólafur Gylfi Gylfason, Bergþóra Kristín Garðarsdóttir,
Þórunn Rakel Gylfadóttir, Sveinn Margeirsson,
Þröstur Ingvar Gylfason, Dóróthea Jónsdóttir
og afabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
ORMUR GUÐJÓN ORMSSON
rafvirkjameistari,
Framnesvegi 20,
Keflavík,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðju-
daginn 17. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Sveinbjörg Jónsdóttir,
Guðrún S. Guðjónsdóttir, Gunnar Indriðason,
Helga M. Guðjónsdóttir, Anton Már Antonsson,
Erling R. Ormsson, Jóhanna Björnsdóttir,
Erla Ormsdóttir, Marteinn Gíslason,
Hrafnhildur Ormsdóttir, Kristján Þórarinsson,
Njáll Torfason, Kristín Ársælsdóttir,
Ásdís Móeiður Sigurðardóttir, Árni G. Árnason,
Róbert Rósmann, Beta Rósmann,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARÍA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Halldórsstöðum,
Bárðardal,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnu-
daginn 15. janúar.
Útför hennar fer fram frá Lundarbrekkukirkju
laugardaginn 21. janúar kl.14:00.
Þórey Ketilsdóttir, Sverrir Thorstensen,
María Ketilsdóttir, Ágúst Hilmarsson,
Kristín Ketilsdóttir, Sigurður Pálsson,
Sigrún Ketilsdóttir, Jörg Wohner,
Ingvar Ketilsson, Bergljót Þorsteinsdóttir,
ömmu- og langömmubörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
SIGURÐUR JÓNSSON,
Álfaskeiði 127,
Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans í í Kópavogi mánu-
daginn 16. janúar.
Útförin auglýst síðar.
Sigríður Sesselja Oddsdóttir,
Lára Björk Sigurðardóttir, Sigursteinn Björn Sævarsson,
Sigríður Þórunn Ragnarsdóttir, Birna Björk Sigursteinsdóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGÞÓRA SIGURÐARDÓTTIR,
Fossheiði 60,
Selfossi,
verður jarðsungin frá Stokkseyrarkirkju laugar-
daginn 21. janúar kl. 14.00.
Unnur S. Bjarnþórsdóttir, Þorlákur Marteinsson,
Guðrún Bjarnþórsdóttir, Hilmar Þ. Sturluson,
Birna Bjarnþórsdóttir, Frans Páll Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR VILHJÁLMSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til hjúkrunar- og starfsfólks
Grundar, dvalar- og hjúkrunarheimilisins við Hring-
braut.
Jósef Magnússon, Rut Magnússon,
Guðríður Helga Magnúsdóttir, Þórir Ragnarsson,
Jakob H. Magnússon, Valgerður Jóhannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.