Morgunblaðið - 19.01.2006, Síða 42

Morgunblaðið - 19.01.2006, Síða 42
42 FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Á kveðjustund hvarflar hugsunin til baka. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur og það eru orð að sönnu. Ég átti pabba sem alltaf gaf sér tíma þó stutt væri á milli róðra. Hann hjálpaði við heimalærdóminn, leiðbeindi og kenndi, hlustaði og skildi og gaf mér það veganesti út í lífið sem skiptir máli. Ég átti pabba sem kunni að gleðjast, gera góðlátt grín, koma mömmu til að hlæja og vera hrókur alls fagnaðar. Pabbi gat orðað allt í bundnu máli og ljóð- in hans til mín og fjölskyldu minn- ar, eru ómetanlegur fjársjóður að eiga. Þau eru full af góðum óskum, hlýju og væntumþykju, sem hann var svo ríkur af. Ég er þakklát fyrir samfylgdina og minningin um elskulegan pabba minn lifir. Þuríður Kristín. Elsku afi, nú ertu farinn, úr köld- um og hörðum heimi. En hlýjan, sem þú hafðir og gafst okkur, situr í hjörtum okkar um ókomna tíð. Þetta er sárt og þetta er erfitt, en það færir okkur gleði og ánægju að vita af þér á góðum, hlýjum og björtum stað þar sem friður hvílir yfir þér. Þú hefur gefið okkur svo margt, kennt okkur að elska, standa á okk- ar, hugsa sjálfstætt og trúa á okkur með því að sýna að þú tryðir á okk- ur og á það sem við vorum að gera. Kenndir okkur að vera sátt við lífið og taka vonbrigðum með staðfestu og vinna úr þeim. Vitur maður sagði mér eitt sinn: Guð leggur aldrei meira á þig en þú getur borið. Og það hefur þú sann- að, því að öllu sem á þig var lagt tókstu á með sæmd og komst í gegnum það með þolinmæði og þrautseigju. Þú varst sterkur mað- ur, barst með þér mikla gleði og varst manni ætíð innan seilingar ef maður missti fótanna um stund. Við vorum alltaf velkomin, alveg sama hvernig stóð á og þú tókst alltaf á móti okkur með gleði í hjarta. Minningarnar um þig streyma í huga minn. Aldrei gleymi ég því að í hvert sinn sem ég heimsótti þig tókst þú um kinnar mér og kysstir vanga minn, með bros á vör og hlýju í aug- um. Eða þegar þú fórst í brjáluðu veðri að laga rafmagnið. Alltaf hugsaði ég til þín og bað Guð að gæta þín. Og það hefur hann gert. Alltaf man ég eftir þér við eld- húsborðið og með Moggann fyrir framan þig. Og þegar þú leist upp þá ljómaðirðu. Og þessi orð: „Nei, ert þú nú komin, elskan mín?“ Svo brostirðu innilega. Það fyllti mig gleði. Nú, þegar þú ert farinn, fer mað- ur að hugsa um allt það liðna og manni finnst tíminn sem maður fékk með þér vera svo óskaplega stuttur en maður brosir vegna þess sem maður fékk þegar maður var með þér. Þú átt stórt pláss í hjört- um okkar allra, varst okkur allt. Enginn kemst með tærnar þar sem þú hafðir hælana. Elsku besti afi, engin orð lýsa þér betur. Kristín Ósk, Arndís Dögg og Laufey Hulda. Fellur jafnt og fífan smá föngulegust eikin GESTUR INGVI KRISTINSSON ✝ Gestur IngviKristinsson fæddist á Þingeyri við Dýrafjörð 21. ágúst 1935. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ísa- firði að kvöldi fimmtudagsins 5. janúar síðastliðins og var jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju 14. janúar. því að dauðinn ávallt á allra hinsta leikinn. (J.B.) Nú er Gestur Kristinsson vinur minn látinn eftir langa og harða sjúk- dómsbaráttu. Löngu var orðið ljóst hvert stefndi. Þó kjarkurinn hafi verið nægur var vitað að maðurinn með ljáinn myndi sigra í þessum leik eins og svo oft áð- ur. Það var mikil gæfa fyrir Súg- andafjörð og Súgfirðinga að Gestur skyldi koma þangað ungur, og festa ráð sitt og búa þar alla tíð síðan, ut- an nokkra síðustu mánuði sem þau hjónin bjuggu á Hlíf, húsi eldri borgara á Ísafirði. Gestur gerði sjó- mennsku að sínu ævistarfi, var þar bæði vélstjóri og síðan skipstjóri í áratugi. Hann sótti sjóinn fast, var mikill aflamaður og farsæll skip- stjóri, sem alltaf kom fleyi sínu heilu í höfn. Þá var eftirsótt að komast í skip- rúm hjá honum. Eftir að Gestur hættir sjómennsku og kemur í land, hefur hann störf hjá Orkubúi Vest- fjarða, og þar eins og annarsstaðar voru störf hans til fyrirmyndar. Ekki gat hjá því farið, að til Gests yrði leitað til starfa að félagsmál- um, og fór mikið af tíma hans í að sinna þeim, en eins og þeir vita, sem til þekkja eru þessháttar störf oft vanmetin og vanþökkuð, lítið eða ekkert borguð, en ómæld vinna. Gestur var einstaklega vel gerður maður, stálheiðarlegur og grandvar og lagði aldrei illt til annarra sam- ferðamanna. Hann var gæddur af- burðagáfum og fékk oftar en einu sinni í skólum viðurkenningu fyrir gáfur sínar og óvenjulega náms- hæfileika. Fyrir lítil samfélög eru þessir hæfileikar mikils virði, enda hlóðust á hann allskonar störf fyrir félagasamtök og fyrirtæki. Var hann yfirleitt formaður í þeim fé- lögum sem hann starfaði í og hélt öllu undir góðri stjórn. Þá var hann hreppstjóri Súgfirðinga í fjölda ára. Það er ekki ætlun mín að minnast allra þeirra félagasamtaka, sem hann starfaði fyrir, því ég treysti mér ekki til þess, svo víða kom hann við. Ég varð þeirrar gæfu að- njótandi að fá að starfa með honum í fjölda stjórna, nefnda og ráða, sem menn voru kjörnir og skipaðir til í Súgandafirði. Ekki fór á milli mála að það sæti sem hann skipaði var vel setið enda ráðagóður og fundvís á réttar lausnir. Kom þá oft fyrir að saklausar vísur og græskulaust gaman fór á milli manna. Gestur var góður hagyrðingur og skáld gott, og orti hann mikið af gam- anvísum fyrir ýmis félagasamtök og einnig ógrynni af afmælis- og brúð- kaupsljóðum. Eftir hann liggur mikið safn, bæði í bundnu máli og óbundnu, því oft var hann fenginn til að halda ræður og erindi, og sjá um samantekt á margskonar efni er vörðuðu byggðalagið eða ýmsa þætti þess. Veturinn 1990–’91 fór á milli okkar bók, sem var þannig, að hann ljóðaði á mig fyrst þremur vís- um, sem ég átti að svara og svo orti hann til baka. Skiptu þessar vísur hundruðum áður en yfir lauk, og var þetta góð dægrastytting í skammdeginu. Gestur hafði stund- um á orði við mig að hann ætlaði að hætta vinnu 70 ára og fara að hafa það náðugt. Svo fór þó að hann hélt upp á 70 ára afmælið sitt 21. ágúst sl., þá orðinn mikið veikur. Nú er hann farinn í ferðina miklu og veit ég að hans bíður góð vist handan landamæranna, enda mjög trúaður maður. Með þessum fátæklegu orð- um kveð ég þennan vin minn og votta Sólveigu eftirlifandi eigin- konu hans og fermingarsystur minni, börnum þeirra og afkomend- um öllum dýpstu samúð okkar hjóna. Guð blessi minningu hans. Eðvarð Sturluson. Látinn er Gestur Ingvi Kristins- son eftir erfið veikindi. Gestur var stjórnarmaður í Sparisjóði Bolungarvíkur til margra ára. Hann hóf afskipti af málefnum sparisjóðanna sem end- urskoðandi Sparisjóðs Súgfirðinga árið 1981, og var síðan kjörinn í stjórnina 1984 til 1985 og síðan frá 1986 og var þá stjórnarformaður til ársins 1994 þegar Sparisjóðurinn var sameinaður Sparisjóði Bolung- arvíkur. Við sameininguna var Gestur kosinn í stjórn Sparisjóðs Bolung- arvíkur, sem fulltrúi Súgfirðinga, og var hann varaformaður stjórnar til ársins 2003, en síðustu tvö árin var hann stjórnarformaður. Gestur var mikill sparisjóðamað- ur, vildi mikið til vinna að hafa sparisjóð í sinni heimabyggð, vann ötullega að sameiningunni við Sparisjóð Bolungarvíkur því hann vissi að þar væri bakhjarl í heima- byggð og lagði mikinn metnað í að Sparisjóðurinn styddi við aðalat- vinnuveg byggðarlaganna og jafn- framt að útvíkkun á starfsvettvangi sjóðsins. Eftir að Gestur varð stjórnarfor- maður jókst samstarf okkar til muna og hittumst við vikulega á Suðureyri, sem var bæði gefandi og skemmtilegt fyrir mig að eiga Gest að vini. Þar var farið ítarlega yfir mál Sparisjóðsins og þróun byggð- arlaganna og landsins alls, einnig voru þessi málefni honum kær eftir að hann lét af störfum. Gestur var góður hagyrðingur og var ekki haldin samkoma, á okkar vegum, án þess að hann kæmi með skemmtilegan og hnyttinn brag. Um leið og Gesti eru þökkuð mik- il og góð störf í þágu Sparisjóðsins, færi ég, fyrir hönd stjórnar og starfsfólks, Sólveigu eiginkonu hans, börnum og fjölskyldum þeirra, innilegar samúðarkveðjur. Ásgeir Sólbergsson. Gestur Kristinsson skipti um starfsvettvang 1976, hætti sem skipstjóri til sjós og hóf störf fyrir Rafmagnsveitur ríkisins. Hann var þeirra maður á Suðureyri og í Súg- andafirði. Gestur hélt síðan áfram störfum hjá Orkubúi Vestfjarða þegar það fyrirtæki tók við rekstri Rarik á Vestfjörðum í ársbyrjun 1978 og starfaði þar allt til ársins 2004 er hann lét af störfum vegna veikinda sinna. Hann aflaði sér réttinda sem raf- veituvirki samhliða starfi sínu hjá Orkubúinu og lagði ávallt mikla al- úð við starf sitt. Hann bar hag Orkubúsins sem og orkunotenda í Súgandafirði fyrir brjósti og var öt- ull baráttumaður fyrir umbótum til að þjónustan við Súgfirðinga gæti verið sem best. Hann var hrein- skiptinn og lá ekki á skoðunum sín- um ef því var að skipta en þegar niðurstaða lá fyrir þá vann hann samkvæmt henni af heilum hug. Gestur tók virkan þátt í fé- lagsstarfi starfsmanna Orkubús Vestfjarða og minnisstæðar eru árshátíðir og aðrar samkomur þar sem hann flutti að jafnaði eigin kveðskap um starfsmenn og mál- efni Orkubúsins. Ég var svo lánsamur að hitta Gest og Sólveigu eiginkonu hans á nýja heimilinu þeirra á Hlíf 1 á Ísa- firði nú rétt fyrir jól. Gestur var að koma heim í stutta heimsókn af sjúkrahúsinu. Hann bar sig svo vel að mig hefði ekki rennt grun í að þar færi helsjúkur maður, hefði ég ekki vitað betur. Við ræddum þarna um eitt og annað en þó aðallega málefni Orkubúsins sem voru Gesti ávallt ofarlega í huga þegar fundum okkar bar saman. Þessi síðasta samverustund okkar geymist í fjár- sjóði minninganna. Ég þakka Gesti trygg og trú störf fyrir Orkubú Vestfjarða og veit að meðal samstarfsmanna hans mun minningin um góðan dreng lifa. Eiginkonu Gests, Sólveigu, börn- um hans, tengdabörnum, barna- börnum og öðrum aðstandendum sendi ég mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Kristján Haraldsson orkubússtjóri. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og afi, PÉTUR GAUTI HERMANNSSON, Holtsbúð 42, Garðabæ, lést fimmtudaginn 12. janúar. Jarðsungið verður frá Langholtskirkju föstudaginn 20. janúar kl. 13.00. Guðríður Sveinsdóttir, Hildur Sólveig Pétursdóttir, Erla Þuríður Pétursdóttir, Pétur Geir Magnússon, Ástrós Magnúsdóttir. Ástkær maðurinn minn, faðir okkar tengdafaðir og afi, GUNNAR ÞORSTEINSSON frá Giljum í Mýrdal, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi, föstudaginn 13. janúar. Jarðarförin fer fram frá Víkurkirkju, Vík í Mýrdal, laugardaginn 21. janúar kl. 14.00. Sigrún Ólafsdóttir, Ólafur Gunnarsson, Þórir Gunnarsson, Sigríður Gunnarsdóttir, Sólrún Gunnarsdóttir, tengdabörn og barnabörn. Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengda- móðir, systir og amma, HÓLMFRÍÐUR HÉÐINSDÓTTIR, Dalbraut 27, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness aðfaranótt sunnudags- ins 15. janúar. Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 20. janúar kl. 14.00. Guðmundur J. Hallgrímsson, Héðinn Unnsteinsson, Skúlína Kristinsdóttir, Guðrún Unnsteinsdóttir, Sturla Sigmundsson, Sverrir Unnsteinsson, Hörður Unnsteinsson, Sigríður Héðinsdóttir, Árni Snæbjörnsson, Hólmfríður og Unnsteinn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SKÚLI KRISTJÓNSSON frá Svignaskarði, Egilsgötu 19, Borgarnesi, lést á heimili sínu þriðjudaginn 17. janúar. Rósa Guðmundsdóttir, Guðbjörg Skúladóttir, Jón Ívarsson, Guðmundur Skúlason, Oddný M. Jónsdóttir, Sigríður H. Skúladóttir, Guðm. Kjartan Jónasson og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ÞÓRANNA FINNBOGADÓTTIR, Kristnibraut 77, Reykjavík, sem lést á Landspítala Landakoti laugardaginn 14. janúar, verður jarðsungin frá Eyvindarhóla- kirkju, Austur-Eyjafjöllum, laugardaginn 21. janúar kl. 11.00. Eyjólfur Torfi Geirsson, Þóra Sigríður Einarsdóttir, Kristín Geirsdóttir, Ólafur Hróbjartsson, Tryggi E. Geirsson, Dagný Ingólfsdóttir, Kolbrún Geirsdóttir, Guðmundur Sigurðsson, Þórhildur R. Geirsdóttir, Magnús Þór Geirsson, Margrét Erna Þorgeirsdóttir, Axel Geirsson, Ásgerður S. Gissurardóttir, Finnbogi Geirsson, Dalrós Jónasdóttir, Guðlaug Geirsdóttir, Þórarinn Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.