Morgunblaðið - 19.01.2006, Page 54
SÝNING tvíeykisins Domenico
Dolce og Stefano Gabbana á yf-
irstandandi herratískuviku í Mílanó
gekk undir nafninu „nýr kraftur“.
Hún fór líka fram á nýjum og ný-
tískulegum stað. Hún er ekki lengur
haldin í hvítu tjaldi í miðborg Mílanó
heldur í sýningarsal í eigu tískuhúss-
ins, sem ljáði henni glæsilegra yf-
irbragð.
„Nýr kraftur“ fær nafn sitt af því
að hugmyndin er að frelsa menn frá
ströngum reglum varðandi klæða-
burð. Sem dæmi er að í stað bindis
nota Dolce & Gabbana-mennirnir
silkiklút í stað bindis. Línurnar eru
afslappaðar og víðar, samlit peysa
kemur í stað þess að vera í jakkaföt-
um.
Fylgihlutirnir eru líka ómissandi
fyrir karlmenn og nóg til af klútum,
töskum og höfuðfötum fyrir þá. Það
er ekki skrýtið því salan er góð í vel-
heppnuðum fylgihlutum og mikið
uppúr því að hafa ef allir karlmenn
kjósa að ganga um með töskur og
eiga margar til skiptanna eins og
konurnar.
Nýi krafturinn teygir sig jafnvel
víðar en einn af ómissandi fylgihlut-
unum hjá Valentino var barn á hand-
legg. Þar var alklæðnaðurinn sam-
litur, eða tónaði vel saman. Útkoman
er glæsileg án þess að vera stíf.
Vestin eru líka ómissandi. Þau
gefa karlmanninum tækifæri til að
fara úr jakkanum en samt vera
formlega klæddur.
Miuccia Prada sagði Prada-
sýninguna snúast um „forboðna
drauma karlmannsins“. Fötin voru
að venju góð blanda ríkulegrar
sköpunargáfu og söluvænleika. Ein-
hverjir eiga áreiðanlega eftir að láta
sig dreyma um föt úr næstu vetr-
arlínu þegar hún kemur í búðir án
þess að hafa efni á.
Tíska | Herratískuvika í Mílanó: Haust/vetur 2006–2007
Dolce & GabbanaValentino
Valentino
Prada
AP
Prada
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
Nýr kraftur
Dolce & Gabbana
Hlutverk upptökustjóransverður sífellt stærra í tón-listarheimi nútímans og
ljóst að margir frægir tónlistarmenn
hefðu ekki náð langt ef snjallra upp-
tökustjóra hefði ekki notið við. Næg-
ir þar að nefna Britney Spears, Jes-
sicu Simpson, 50 Cent og jafnvel
Nylon, svo nærtækt dæmi sé tekið.
Upphaflega var hlutverk upp-
tökustjóra einfaldlega að sjá um
tæknileg atriði er vörðuðu upptöku á
tónlist, en í seinni tíð hefur þetta
hlutverk þróast og mótast og hlut-
verk hans orðið mun víðtækara. Í
dag er svo komið að í mörgum til-
fellum sjá upptökustjórar um útsetn-
ingu, hljóðblöndun, tónjöfnun, leið-
sögn og fleira. Merkilegast verður
þó að teljast að margir upp-
tökustjórar eru farnir að semja tón-
list fyrir þá tónlistarmenn sem þeir
vilja koma á framfæri, og í sumum
tilfellum má segja að þeir skapi
ímynd tónlistarmannanna frá A til Ö.
Einn slíkur upptökustjóri heitirScott Storch, en hann varð á
skömmum tíma stórstjarna í tónlist-
ariðnaðinum í Bandaríkjunum.
Storch fæddist í New York árið 1973
og fékk fljótlega áhuga á tónlist.
Hann hætti snemma í skóla og gerð-
ist hljómborðsleikari í hinni virtu
rappsveit The Roots í upphafi tíunda
áratugar seinustu aldar. Skömmu
síðar komst hann í kynni við ein-
hvern virtasta og frægasta upp-
tökustjóra í Bandaríkjunum, Dr.
Dre, sem er hvað þekktastur fyrir að
hafa komið stórstjörnum á borð við
Snoop Dogg og Eminem á kortið.
Dre fékk Storch til þess að spila á
hljómborð í einu af sínum þekktari
lögum, „Still D.R.E.“, og opnaði sú
vinna margar dyr fyrir Storch. Hann
stjórnaði fljótlega upptökum fyrir
rappara á borð við Xzibit og Snoop
Dogg, og var þar með endanlega
kominn á kortið sem einn af stóru
mönnunum í bransanum.
Síðan þá hefur mikið vatn runniðtil sjávar og hefur Storch stjórn-
að upptökum fyrir listamenn á borð
við Beyoncé Knowles, 50 Cent, Mar-
io, Lil’ Kim, Ice Cube, Method Man,
Christinu Aguilera og Jessicu Simp-
son. Storch er sífellt að leita að nýj-
um áskorunum og sú nýjasta er ekki
af lakara taginu því hann tók að sér
að sjá um upptökur á fyrstu plötu
hótelerfingjans og glanspíunnar
Paris Hilton, en búist er við því að
platan komi út í sumar. Hilton er
fræg fyrir flest annað en sönghæfi-
leika, en Storch er fullur sjálfs-
trausts og hefur mikla trú á henni.
„Ég held að platan eigi eftir að koma
fólki verulega á óvart,“ segir Storch,
en viðurkennir að hann hafi þó verið
fullur efasemda í upphafi. Hann hafi
þó róast eftir að hafa hitt Dr. Dre
sem stappaði í hann stálinu. „Þetta
er mikil áhætta Scott. Annað hvort
slær þetta í gegn eða misheppnast
algjörlega. En áhætta er af hinu
góða,“ sagði Dre við Storch sem
sannfærðist og tók verkefnið að sér í
kjölfarið.
Margir frægustu upptökustjórarí hip-hop heiminum í Banda-
ríkjunum, til dæmis Kanye West, Dr.
Dre og Pharrell Williams, njóta þess
til hins ýtrasta að vera stjörnur og
eiga það til að grípa sjálfir í hljóð-
nemann. Storch hefur hins vegar lít-
inn áhuga á slíku. „Ég hef engan
áhuga á að koma fram í einhverjum
myndböndum og reyna að vera ein-
hver stjarna. Ég vil ekki vera mikið í
sviðsljósinu því ég vil halda mínu
einkalífi út af fyrir mig,“ segir
Storch.
Það má því segja að Storch sé að
vissu leyti „ósýnilegur“ tónlist-
armaður, þrátt fyrir að vera mað-
urinn á bak við fjölmörg vinsæl lög
sem milljónir manna hafa heyrt um
allan heim.
Ósýnilegi tón-
listarmaðurinn
’Margir upptökustjórareru farnir að semja tón-
list fyrir þá tónlist-
armenn sem þeir vilja
koma á framfæri. ‘
Storch ásamt Paris Hilton, en hann
hefur nýlokið upptökum á fyrstu
plötu hótelerfingjans.
AF LISTUM
Jóhann Bjarni Kolbeinsson
jbk@mbl.is
54 FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
JUST FRIENDS
FEITASTI
GRÍNSMELLUR ÁRSINS!
Sprenghlægilegt framhald. Steve
Martin fer enn og aftur á kostum! Mögnuð stríðsmynd með Jake Gyllenhaal og Óskarsverðlaunahöfunum Jamie Foxx og Chris Cooper.
Eins og það sé ekki nóg að ala upp 12 börn
Prófaðu að fara með þau öll í fríið!
„...falleg og skemmtileg
fjölskyldumynd...“
HJ / MBL
Dóri DNA / DV
N ý t t í b í ó
VELJIÐ HÉR AÐ NEÐAN KVIKMYNDAHÚS OG SÝNINGARTÍMA SEM Epískt meistarverk frá Ang Lee
MMJ Kvikmyndir.com„... ástarsaga eins og þær gerast
bestar - hreinskilin, margbrotin
og tilfinningarík...“
L.I.B. - Topp5.com
„…langbesta mynd Ang Lee til
þessa og sennilega besta mynd sem
gerð var á síðasta ári.“
S.K. - DV
ÞAÐ ER TIL STAÐUR ÞAR SEM
SJÚKUSTU
FANTASÍUR
ÞÍNAR VERÐA AÐ VERULEIKA!
Stranglega bönnuð
innan 16 ára
Ó.Ö.H. / DV
A.G. / BLAÐIÐ
D.Ö.J. / Kvikmyndir.com
H.J. / MBL
“…mikið og
skemmtilegt
sjónarspil...”
DÖJ, Kvikmyndir.com
„Sam Mendez hefur sannað
sig áður og skilar hér
stórgóðri mynd.“
BROKEBACK MOUNTAIN kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA
BROKEBACK MOUNTAIN Í LÚXUS kl. 5, 8 og 10.45
CHEAPER BY THE DOZEN 2 kl. 4, 6 og 8
HOSTEL kl. 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA
BROTHERS GRIMM kl. 5.30 og 10 B.I. 12 ÁRA
LITTLE TRIP TO HEAVEN kl. 6, 8 og 10 B.I. 14 ÁRA
DRAUMALANDIÐ kl. 4
JUST
FRIENDS
FEITASTI
GRÍNSMELLUR ÁRSINS!
„Cheaper by the Dozen 2 er falleg
og skemmtileg fjölskyldumynd,
sem heppnast hreint ágætlega“
MMJ Kvikmyndir.com
HOSTEL kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
CHEAPER BY THE DOZEN 2 kl. 6 og 8
JUST FRIENDS kl. 10
LITTLE TRIP TO HEAVEN kl. 6 B.I. 14 ÁRA
„Mannbætandi Gullmoli“
„…Mynd sem þú verður að sjá [...]
Magnþrungið listaverk sem mun
fylgja áhorfandanum um ókomin ár“
S.V. MBL
4Golden Globe verðlaun m.a. besta mynd, besti leikstjóri og besta handrit
H.J. MBL
„...mjög vönduð og
metnaðarfull mynd...“
VJV, Topp5.is