Morgunblaðið - 24.01.2006, Síða 1
STOFNAÐ 1913 23. TBL. 94. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Ráðstefna um gildi ál- og orkuframleiðslu á Íslandi föstudaginn 27. janúar
á Hótel Nordica. Nánari upplýsingar, dagskrá og skráning á www.sa.is
Eins og
klipptur út úr …
Saga af gamalli ljósmynd og
skrýtnum tilviljunum | Menning
Það sem
kýrnar geta
Íslandsmet slegið á besta
kúabúi landsins | Landið
Íþróttir í dag
Landsliðið í handbolta með lest til
Sviss? Eriksson hættir eftir HM
Baldur til reynslu hjá Lyn
SIGRÍÐUR Anna Þórðardóttir um-
hverfisráðherra hefur látið hefja und-
irbúningsvinnu vegna stækkunar
friðlandsins í Þjórsárverum. Hún
lýsti mikilli ánægju í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi með þá
ákvörðun stjórnar Landsvirkjunar í
gær, að leggja undirbúning Norð-
lingaölduveitu til hliðar.
„Ég hef gefið yfirlýsingar um að
Norðlingaölduveita sé í raun þegar
komin á ís. Þetta staðfestir það mjög
afgerandi,“ sagði Sigríður Anna.
„Þegar þessi mál voru til umræðu á
Alþingi sagði ég einnig að ég teldi
koma til greina að stækka friðlandið.
Ég er þegar komin af stað með und-
irbúning að því.“
Sigríður Anna sagði undirbúnings-
vinnuna enn á algjöru frumstigi, en
hún hygðist vinna að málinu í fram-
haldi af þessu. Enn væri ekki hægt að
segja hvernig tillögur um stækkunina
kæmu til með að líta út, en málinu
hefði verið hrint af stað. „Mér þykir
það mjög mikilvægt innlegg í þetta,“
sagði Sigríður Anna Þórðardóttir.
Orka ekki flutt milli landshluta
Viðræður Alcan og Landsvirkjunar
um orkuöflun til stækkunar álversins
í Straumsvík og vinna við mat á um-
hverfisáhrifum álvers í Helguvík, sem
greint var frá á sunnudag, eru eðlileg
skref að mati Valgerðar Sverrisdótt-
ur iðnaðarráðherra.
„En það er ekki mitt að svara því
hvort það verður til nægileg orka í
þetta allt saman. Ég held að það hljóti
að orka tvímælis hvað varðar Suð-
vesturlandið. Það er einnig í undir-
búningi álver á Norðurlandi, sem er í
raun óháð því sem gerist á suðvest-
urhorninu hvað orkuöflun varðar, en
auðvitað verður að taka til greina
áhrif þessara framkvæmda á efna-
hagskerfið,“ sagði Valgerður. Hún
segir engar líkur á að orka verði flutt
milli landshluta vegna þarfa stóriðju.
Valgerður segir að áform um bygg-
ingu álvers á Norðurlandi séu óháð
orkuöflun á suðvesturhorninu.
Áður höfðu Alcan og Orkuveita
Reykjavíkur undirritað viljayfirlýs-
ingu um öflun 40% orkunnar sem
stækkunin krefst. Það sem á vantar
samsvarar orkuframleiðslu Búðar-
hálsvirkjunar og tveggja til þriggja
nýrra rennslisvirkjana neðar í Þjórsá.
Stækkun friðlands undirbúin
Umhverfisráðherra fagnar ákvörðun Landsvirkjunar – Óvíst að næg orka
verði til handa áformuðum álverum suðvestanlands, segir iðnaðarráðherra
Norðlingaalda | Miðopna og 10
Sigríður Anna
Þórðardóttir
Valgerður
Sverrisdóttir
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
Ósló. AP, AFP. | Norski læknirinn Jon
Sudbø hefur játað að hafa ekki að-
eins falsað rannsóknaniðurstöður í
grein í breska læknaritinu The
Lancet, heldur einnig í greinum,
sem birtar voru í tveimur öðrum
vísindatímaritum. Kom það fram
hjá lögfræðingi hans í gær.
Fyrr í þessum mánuði vaknaði
grunur um, að Sudbø hefði farið
með staðlausa stafi í grein sinni í
The Lancet og talsmaður rík-
issjúkrahússins í Ósló, þar sem
Sudbø hefur starfað, sagði eftir að
svikin komust upp, að greinin væri
augljóslega uppspuni frá rótum.
Lögfræðingur Sudbøs, Erling
Lyngtveit, skýrði síðan frá því í
gær, að skjólstæðingur sinn hefði
játað, að tvær aðrar greinar, í The
New England Journal of Medicine í
apríl 2004 og í US Journal of Clini-
cal Oncology í mars í fyrra, væru
líka tilbúningur, að minnsta kosti
að hluta.
„Svo virðist sem svikin hafi farið
hægt af stað en loksins keyrt um
þverbak í greininni í The Lancet,“
sagði Lyngtveit
en þá hélt Sudbø
því fram, að sum
bólgueyðandi lyf
drægju úr líkum
á krabbameini í
munni en ykju
aftur á móti líkur
á hjarta- og æða-
sjúkdómum.
Kvað hann rann-
sóknir á 908 sjúklingum sýna það
en nú er vitað, að þeir voru bara til-
búningur, raunar svo ósvífinn, að
hann lét 205 þeirra hafa einn og
sama afmælisdaginn.
Hundruð millj. kr. í styrki
Lyngtveit sagði, að falsanirnar
hefðu ekkert haft með peninga að
gera en Sudbø hefur fengið mikla
styrki innanlands sem utan.
„Um var að ræða löngun til að
geta sér orð í heimi vísindanna,“
sagði Lyngtveit, sem lagði áherslu
á, að Sudbø hefði verið einn að
verki, meðhöfundar hans hefðu all-
ir verið í góðri trú.
Sudbø játar falsanir
í öðrum tímaritum
Lögfræðingur hans segir að þráin
eftir frægð og frama hafi ráðið för
Jon Sudbø
Teheran. AFP. | Detti inn um bréfa-
lúguna póstur frá Íran kann ein-
hver að spyrja hvað kjarnorkuver
og pílukastsskífa eigi sameiginlegt.
Þetta hvort tveggja er nefnilega á
nýju írönsku frímerki og ástæðan
sú, að eitt helsta áhugamál íranskra
pílukastara er að Íranir fái að vinna
að kjarnorkurannsóknum í friði,
hvað sem líður tortryggni vest-
rænna ríkja.
Á frímerkinu stendur „Frið-
samleg nýting kjarnorkunnar er
réttur Írana“ á farsi og ensku og
Marjan Jedi, félagi í pílukasts-
samtökunum, sagði, að þau hefðu
verið iðin við keppnishald í mosk-
um til að leggja áherslu á málstað-
inn. Á Vesturlöndum er hins vegar
óttast, að Íranir stefni að smíði
kjarnasprengju en því neita klerk-
arnir.
Pílukast og
kjarnorka
ÞÚSUNDIR Kosovobúa létu ekki
mikinn kulda á sig fá er þær vottuðu
Ibrahim Rugova, forseta landsins,
sína hinstu virð-
ingu í gær en
hann lést á sunnu-
dag, 61 árs að
aldri.
Fólkið safnaðist
saman í langa bið-
röð fyrir utan
þinghúsið í
Pristina til að geta
kvatt Rugova en
margir sakna nú
vinar í stað og hafa af því áhyggjur, að
viðræðurnar milli Albana, meirihlut-
ans í héraðinu, og Serba muni líða fyr-
ir fráfall hans. Áttu þær að hefjast í
Vín í Austurríki á morgun en Samein-
uðu þjóðirnar hafa nú frestað þeim
fram í febrúarbyrjun.
Davíð Logi Sigurðsson, blaðamað-
ur Morgunblaðsins, rifjar í blaðinu í
dag upp samtal sitt við Rugova í mars
fyrir þremur árum en þá var Davíð í
Pristina í tilefni af því, að Íslenska
friðargæslan hafði tekið við stjórn al-
þjóðaflugvallarins í borginni.
Rugova
kvaddur
Ibrahim Rugova
Menntamannslegur | 23
Bioce. AFP. | Um 40 manns að
minnsta kosti týndu lífi og vel á ann-
að hundrað slasaðist þegar lest fór út
af sporinu í Svartfjallalandi í gær.
Slysið átti sér stað rétt við bæinn
Bioce þegar lestin kom út úr jarð-
göngum. Steyptist hún þá niður í gil.
Jusuf Kalomperovic, innanríkisráð-
herra landsins, sagði, að fyrstu frétt-
ir bentu til, að hemlabúnaður lest-
arinnar hefði brugðist.
Talið var, að með lestinni hefðu
verið um 300 manns, þar á meðal
mörg börn á leið úr skíðafríi.
Tugir létust
í lestarslysi
♦♦♦
♦♦♦
VIÐVARANDI þrengsli hafa valdið
starfsfólki og sjúklingum á hjarta-
deild Landspítala – háskólasjúkra-
húss (LSH) miklum óþægindum og
þurfa mjög veikir sjúklingar oft að
liggja á göngum. Aðeins fjörutíu
rúm eru á deildinni, en þeim hefur
fækkað um fimmtán frá sameiningu
LSH. Nokkuð er um að sjúklingar
sem þurfa bara hjúkrun liggi lengi á
bráðadeildinni, en það er mjög óhag-
kvæmt að sögn sérfræðings á deild-
inni, enda er þjónustan á hjarta-
deildinni afar dýr og margir þurfa
mun einfaldari og ódýrari þjónustu.
Sjúklingar taka þessum óþægindum
þó af mesta æðruleysi, enda stærri
vandamál sem þarf að glíma við. | 4
Morgunblaðið/Ásdís
Þrengsli á hjartadeild