Morgunblaðið - 04.02.2006, Page 4
4 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Gylfi Gíslason, teiknari
og myndlistarmaður,
er látinn sextíu og fimm
ára að aldri. Gylfi
fæddist í Reykjavík
hinn 19. desember
1940. Hann varð bráð-
kvaddur á heimili sínu,
að Skólastræti í
Reykjavík, sl. miðviku-
dag.
Gylfi nam við Mynd-
listaskólann í Reykja-
vík, en áður lauk hann
prófi í húsasmíði við
Iðnskólann í Reykja-
vík. Gylfi hélt fjölda
einka- og samsýninga frá 1971,
kenndi teikningu, stjórnaði sýning-
um og rak gallerí, myndskreytti
bækur og blöð og hannaði leikmynd-
ir. Hann skrifaði gagnrýni í dagblöð
og annaðist þáttagerð fyrir útvarp
og sjónvarp ásamt handritaskrifum.
Gylfi hlaut tilnefn-
ingu til Edduverð-
launanna 2005 ásamt
Þiðriki Ch. Emilssyni, í
flokknum sjónvarps-
þáttur ársins, fyrir
þáttinn „Útlínur“ sem
fjallaði um íslenska
myndlistarmenn.
Gylfi var einn af höf-
undum verksins Kjar-
val sem Nesútgáfan
gaf út á síðasta ári og
fékk Íslensku bók-
menntaverðlaunin
2005 í flokki fræðirita
og bóka almenns efnis
hinn 2. febrúar síðastliðinn.
Eiginkona Gylfa var Unnur G.
Þorkelsdóttir, þau skildu. Börn
þeirra eru Margrét Þóra, Kristín
Edda, Unnur Kristbjörg, Freyja og
Þorkell Snorri. Systir Gylfa er Krist-
ín Eiríka Gísladóttir.
Andlát
GYLFI GÍSLASON
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
fengi 48,8% atkvæða í borgarstjórn-
arkosningum ef kosið væri nú, sé mið-
að við þá sem tóku afstöðu í nýrri
könnun sem Félagsvísindastofnun
Háskóla Íslands gerði fyrir Morgun-
blaðið. Flokkurinn fengi samkvæmt
því átta menn kjörna af samtals
fimmtán borgarfulltrúum og því
hreinan meirihluta í borgarstjórn.
Samfylkingin mældist í sömu könn-
un með 33% fylgi, sem myndi skila
flokknum sex borgarfulltrúum.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
fengi 10,5% fylgi og einn borgarfull-
trúa. Hvorki Framsóknarflokkur né
Frjálslyndi flokkurinn kæmu manni
að yrðu þetta niðurstöður kosninga.
Framsóknarflokkurinn mældist með
5,3% fylgi, og Frjálslyndi flokkurinn
2,2%, af þeim sem tóku afstöðu.
Alls sögðu 2,7% þeirra sem tóku
þátt í könnuninni að þeir myndu ekki
kjósa í kosningum væri kosið nú, 2,3%
sögðust myndu skila auðu eða ógildu,
og 6,2% neituðu að svara. Samtals
sögðust 7,5% aðspurðra ekki hafa
gert upp hug sinn.
Fylgi VG lækkar
Litlu munaði að níundi maður
Sjálfstæðisflokks næði inn, á kostnað
sjötta manns Samfylkingar, sem
stendur tæpt samkvæmt niðurstöð-
um könnunarinnar. Einnig vantaði
ekki mikið upp á til þess að annar
maður á lista VG næði inn, né heldur
vantaði mikið til þess að Framsókn-
arflokkurinn næði inn manni.
Fylgi við Sjálfstæðisflokk, Sam-
fylkingu og Framsóknarflokk hefur
aukist frá því í sambærilegri könnun
sem gerð var í október 2005, á kostn-
að fylgis VG og Frjálslynda flokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig
2,9 prósentustigum, Samfylkingin 2,2
prósentustigum og Framsóknar-
flokkur 2,4 prósentustigum. Fylgi VG
lækkar hins vegar um 4,3 prósentu-
stig milli kannana, og fylgi Frjáls-
lynda flokksins minnkar um tæplega
helming, eða 1,7 prósentustig.
Um var að ræða símakönnun sem
unnin var af Félagsvísindastofnun
Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið,
dagana 31. janúar til 2. febrúar. Alls
voru 1.000 Reykvíkingar á aldrinum
18–80 ára í úrtakinu, og var svarhlut-
fall 64,1%.
Notaðar voru þrjár spurningar til
að fá fram afstöðu svarenda til þess
hvað þeir myndu kjósa ef borgar-
stjórnarkosningar yrðu daginn eftir.
Fyrst var spurt „Ef borgarstjórnar-
kosningar væru haldnar á morgun,
hvaða flokk eða lista myndir þú
kjósa?“ Þeir sem sögðust ekki vita
það voru spurðir áfram: „En hvaða
flokk eða lista telurðu líklegast að þú
munir kjósa?“ Þeir sem enn voru
óvissir voru þá spurðir: „En hvort
heldurðu að sé líklegra, að þú kjósir
Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern ann-
an flokk eða lista?“
Þrjár spurningar til
að fækka óákveðnum
Þessi aðferð er að sögn skýrsluhöf-
undar notuð til þess að fækka
óákveðnum kjósendum, eftir fyrstu
tvær spurningarnar voru 18,6% svar-
enda enn óvissir, en þegar svörum við
þriðju spurningunni er bætt við fór
hlutfall óráðinna niður í 7,5%. Svar-
endum þriðju spurningarinnar er
bætt við fylgi Sjálfstæðisflokksins
segi þeir líklegra að þeir kjósi hann en
aðra flokka, en deilt í sömu hlutföllum
og fengust við hinum spurningunum
niður á hina flokkana segi viðkomandi
líklegra að hann kjósi eitthvað annað
en Sjálfstæðisflokkinn.
Þessi aðferðafræði er til komin
vegna þess að reynslan hefur sýnt að
tilhneiging er til þess að meta fylgi
Sjálfstæðisflokksins of hátt í könnun-
um miðað við fylgi hans á kjördag, og
því þriðja spurningin í raun til þess
fallin að minnka fylgi flokksins í könn-
uninni svo það sé nær því sem líklegar
niðurstöður úr kosningum gætu orð-
ið. Eftir fyrstu tvær spurningarnar
sögðust 53,3% þeirra sem tóku af-
stöðu ætla að kjósa Sjálfstæðisflokk-
inn, en eftir þriðju spurninguna var
fylgið komið niður í 48,8%. Eftir tvær
spurningar sögðust 30,1% ætla að
kjósa Samfylkinguna, en 33% eftir
þriðju spurninguna.
Könnun Félagsvísindastofnunar á fylgi flokkanna fyrir borgarstjórnarkosningar
Sjálfstæðismenn með 48,8%
og meirihluta fulltrúa
!"##$ %!"##&
!
" #$
Eftir Brján Jónasson
brjánn@mbl.is
HEILSUSTOFNUN Náttúrulækn-
ingafélags Íslands var í gær fyrst
samtaka á Íslandi til að lýsa því
yfir opinberlega, að svæði hennar
sé án erfðabreyttra lífvera, en í
því felst að engin erfðabreytt efni
eru notuð í ræktun stofnunar-
innar. Fram kom í tilkynningu
frá Náttúrulækningafélaginu að
við hæfi þætti að lýsa þessu yfir á
50 ára afmæli Heilsustofnunar-
innar í Hveragerði. Jafnframt
kemur fram að félagið hvetji til
þess að landeigendur, framleið-
endur, landfræðilega afmarkaðar
byggðir og sveitarstjórnir sem
víðast á landinu lýsi umráðasvæði
sín sem svæði án erfðabreyttra
lífvera.
Ólafur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Heilsustofnunar-
innar, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að undanfarin ár hefði
öll ræktun stofnunarinnar verið
lífræn en með þessari yfirlýsingu
munu starfsmenn vera á varð-
bergi og gæta þess að ný fræ og
plöntur hafi ekki verið erfða-
fræðilega bætt. Hann sagði að
slíkar yfirlýsingar væru að verða
mun algengari erlendis og þá sér-
staklega í Evrópu. Svisslendingar
hafa einnig nýlega samþykkt í
þjóðaratkvæðagreiðslu að leggja
bann við útiræktun erfðabreyttra
plantna í fimm ár.
Ólafur sagði að til að byrja
með ætti þessi yfirlýsing einungis
við ræktun stofnunarinnar en ill-
mögulegt væri að fylgjast með
hvort matur væri erfðabreyttur
eða ekki, þar sem framleiðendur
erfðabreyttra afurða hafa ekki
merkt sína vöru sérstaklega.
Svæði HNLFÍ án erfðabreyttra lífvera
Ljósmynd/Bjarni Harðarson
Heilsustofnunin í Hveragerði var í gær lýst frí af erfðabreyttri ræktun og
erfðabreyttum matvælum. F.v. talið Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri
HNLFÍ, Hjörtur Benediktsson, garðyrkjustjóri HNLFÍ, Björg Stefáns-
dóttir, skrifstofustjóri NLFÍ, Ingi Þór Jónsson, stjórnarformaður NLFÍ, og
Árni Þór Sigurðsson, yfirmatreiðslumaður Heilsustofnunarinnar.
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands
hefur dæmt karlmann á áttræð-
isaldri til að greiða 160 þúsund
krónur í sekt fyrir að aka undir
áhrifum áfengis þann 17. júní
2005, ásamt sakarkostnaði upp
á 17.907 krónur og þóknun skip-
ast verjanda síns, 68.475 krónur
– samtals tæpar 250 þúsund
krónur. Maðurinn var jafnframt
sviptur ökuleyfi í þrjú ár.
Í dómnum kemur fram að bif-
reið ákærða hafi verið veitt eft-
irför. Báru lögreglumenn vitni
um að þeir hefðu farið rakleitt á
eftir manninum eftir að hann
steig úr bifreið sinni og hand-
tekið hann við útidyrnar að íbúð
hans.
Áfengislykt hefði lagt frá
ákærða og var hann færður á
heilsugæslustöð þar sem blóð-
sýni var tekið úr honum. Reynd-
ist vínandamagn í blóði manns-
ins vera 1,80%.
Fyrir dómi neitaði ákærði sök
og kvaðst ekki hafa ekið bifreið-
inni undir áhrifum áfengis.
Hann kvaðst hafa verið að koma
frá því að kaupa sér áfengi og
hefði hann drukkið um hálfan
lítra af sterku áfengi inni í íbúð
sinni, áður en lögreglumenn
handtóku hann.
Í niðurstöðu dómsins kemur
fram að maðurinn hafi ítrekað
ekið undir áhrifum áfengis, var
m.a. sviptur ökuréttindum í
fjóra mánuði árið 2004, og tekur
refsingin mið af því.
Málið dæmdi Ásta Stefáns-
dóttir, settur héraðsdómari.
Sigurður Sigurjonsson hrl. var
skipaður verjandi mannsins en
Anna Birna Þráinsdóttir, sýslu-
maður, sótti málið.
250 þúsund
króna sekt
fyrir að aka
ölvaður
LÍÐAN Dorritar Moussaieff for-
setafrúar er með ágætum, að sögn
Örnólfs Thorssonar forsetaritara, en
hún fékk aðsvif í upphafi afhending-
ar Íslensku bókmenntaverðlaun-
anna, sem veitt voru á Bessastöðum
síðdegis á fimmtudag. Dorrit fór í
rannsókn hjá lækni snemma í gær-
morgun og hélt í kjölfarið á Bessa-
staði til hvíldar.
Forsetaritari segir enga niður-
stöðu hafa komið úr rannsókninni,
enn sem komið er, og ekkert nýtt að
frétta af ástandi Dorritar annað en
að líðan hennar sé ágæt. Hann segir
að Dorrit muni jafnframt gangast
undir framhaldsrannsókn í dag.
Dorrit til
frekari
rannsókna
KARLMAÐUR á fimmtugsaldri fór í
ævintýraför á trillu sinni fimmtudags-
kvöld og aðfaranótt föstudags sem
endaði með því að hann sigldi bátnum
upp í fjöru í Hrísey og festi hann milli
stórra steina í fjöruborðinu. Að sögn
lögreglunnar á Akureyri hafði mað-
urinn farið út á trillunni frá Akureyri
síðdegis á fimmtudag. Hafði hann
drukkið ótæpilega af áfengi um borð
með fyrrgreindum afleiðingum.
Manninum var komið fyrir í trillu
sem átti leið hjá og fékk hann að gista
fangageymslur lögreglunnar yfir
nótt. Skýrsla var tekin af honum eftir
að runnið hafði af honum víman og
eftir skýrslutöku var honum sleppt.
Ráðgert var að sækja trilluna í há-
deginu í gær en það hafði enn ekki
verið gert í gærkvöldi.
Sigldi í strand
í Hrísey
♦♦♦