Morgunblaðið - 04.02.2006, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 04.02.2006, Blaðsíða 22
Blönduós | Kraftar duglegra byggingamanna nýtast vel í vorveðrinu þessar vikurnar. Það kemur vel í ljós þegar fylgst er með byggingu 1.320 fermetra verksmiðju- og verk- stæðishúss sem Ámundakinn ehf. er að reisa á Blönduósi. Byggingin rís á grunni húss sem hýsti verksmiðju Vilkó, pakkhús Húnakaupa og Bíla- þjónustuna áður en það brann haustið 2004. Þessir drengir notuðu vor- blíðuna til að flytja hurð úr flutningabíl inn í nýbyggingu Ámundakinnar. Sá sem í hurð- ina heldur er Haukur Berg Guðmundsson en lyftaranum stýrir Óli Aadnegard, báðir starfsmenn hjá Vörumiðlun. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Hurðirnar fluttar inn Byggingar Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Margrét Þóra Þórs- dóttir, maggath@mbl.is, 669-1117 og Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmunds- dóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi- @mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Undirbúningur framboða fyrir sveit- arstjórnarkosningarnar í vor virðist ekki kominn á mikinn rekspöl hér í Rang- árþingi ytra. Í síðustu kosningum voru boðnir fram fjórir listar sem allir fengu menn í sveitarstjórn, enda níu manna hreppsnefnd sem þá var kosið til, en það voru fyrstu kosningarnar eftir sameiningu þriggja sveitarfélaga í eitt. Nú hefur verið ákveðið að fækka í sjö sveitarstjórn- armenn. Af sex efstu sem skipuðu D-lista sjálfstæðismanna í síðustu kosningum, en hann fékk hreinan meirihluta þá, hafa fjórir lýst því yfir að þeir muni ekki sækj- ast eftir endurkjöri í vor. Meðal þeirra er Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, sem hef- ur verið sveitarstjóri Rangárvallahrepps og Rangárþings ytra í nærfellt 16 ár í vor.    Að sögn efstu manna listanna frá síðustu kosningum eru þreifingar og fundahöld í gangi þessa dagana um framboðin. D-list- inn var sá eini sem viðhafði prófkjör fyrir síðustu kosningar og ekki ólíklegt að svo verði aftur miðað við hvað margir efstu manna gefa ekki kost á sér nú. Þó gæti orðið bein uppstilling ef áhugaleysi er ríkjandi um að bjóða sig fram til starfa í sveitarstjórn. K-listi almennra íbúa mun ekki bjóða fram með sama hætti og síðast, en jafnvel fara í samstarf við aðra, en efsti maður Ó-lista óháðs framboðs segir fram- boð verða undir svipuðum formerkjum og áður. Aðstandendur B-lista framsókn- armanna og annarra áhugamanna um sveitarstjórnarmál segja góðar líkur á framboði af sama toga nú.    Þorrablót eru nú haldin í gríð og erg um allt land og hér hefur tíðkast fram að þessu að halda blótin eins og áður fyrr eft- ir mörkum gömlu sveitarfélaganna, þrátt fyrir sameiningu. Eitt er á Hellu, tvö blót eru haldin á Laugalandi og eitt hefur verið í Þykkvabæ fram undir þetta. En nú bregður svo við að hætta varð við þorra- blótið í Þykkvabæ vegna lítillar þátttöku. Á Hellu hafa blótin undanfarin ár verið mjög fjölmenn og vel heppnuð, 4-500 manns hafa komið saman í sínu fínasta pússi og notið upprifjunar og annála liðins árs á gamansaman hátt. Úr bæjarlífinu HELLA EFTIR ÓLA MÁ ARONSSON FRÉTTARITARA finnst betra að „það taki aðeins í“. Hann bregður sér því oft til sunds í sjálft Norður-Atlantshafið. Dag einn nú fyrir skömmu brá Eyþór sér í sjóinn, lofthiti var -3 gráð- ur og strekkingsvindur og því mikil loftkæling. Sá sem hélt á myndavélinni Eyþór Atli Jónsson,forstöðumaðurÍþróttamiðstöðv- arinnar á Þórshöfn passar að hitinn í sundlaug þeirra Þórshafnarbúa fari ekki mikið niður fyrir 30 gráð- ur á Celcíus. Hann er þó ekki mikið gefinn fyrir að baða sig í slíkum hita en var krókloppinn á hönd- unum og leist miður vel á þegar sjósundgarpurinn stefndi til hafs í 2ja gráða heitum sjónum. Hann skil- aði sér auðvitað aftur enda vanur maður en myndasmiðurinn varð að leggjast undir sæng með hitapoka eftir aðfarirnar. Ljósmynd/Hallgrímur Ingólfsson Eyþór Atli Jónsson í ísköldu Norður-Atlantshafinu. Ískalt bað Hólmfríður Bjart-marsdóttir,Sandi í Aðaldal, fékk að heyra setningar úr ritgerðum nemenda frá íslenskukennara úr öðru landshorni og setti þær í vísu, lítið eitt aðlag- aðar: Ekki málið er nú mar að aka þér til Selfossar. Heldú getir húkkað far hinn daginn til Borgnessar. Vilhjálmur Eyjólfsson á Hnausum hlustaði á Víðsjá í Útvarpinu. Þar kom fram að ólíft væri í íbúð vegna ástarleikja í íbúðinni fyrir ofan og svo var líka múrbrot í gangi í húsinu: Í höfuðborg er haldið geim hristist allt í sloti. Þar eru frygðar væl og vein sem valda múrabroti. Það barst vísa frá Tóm- asi Waage: Mannsins leið er mörg og örg mikil stjarna er fallin Þorsteinn genginn Baugs í björg blessaður elsku kallinn. Ekki málið pebl@mbl.is Reykjavík | Reykjavíkurborg og Vega- gerðin hafa fest kaup á nýju vöktunar- og stýrikerfi fyrir umferðarljós í Reykjavík. Kerfið er keypt af Siemens og verður komið upp í september næst- komandi. Í nýja stjórnkerfinu verða allar breyt- ingar á stillingu umferðarljósa gerðar í tölvu sem staðsett verður hjá Fram- kvæmdasviði Reykjavíkurborgar. Þá mun kerfið vakta og tilkynna um allar bilanir. Það býður einnig upp á sveigj- anlegri stillingu umferðarljósa eftir tíma dags og umferð. Nú er umferðarljós- unum stýrt af stjórnkössum við einstök gatnamót. Fram kemur í Framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar að gamla kerfið sé óþjált í rekstri og breytingar tímafrek- ar. Þá láti það ekki vita um bilanir. Þegar reynsla hefur fengist af rekstri kerfisins verður horft til þess að láta kerfið meta hagkvæmustu stillingar ljósa á hverjum tíma, að því er fram kemur í Framkvæmdafréttum. Tekið verður tillit til umferðarþunga og ljós- unum stýrt með það að markmiði að draga úr seinkunum í umferðinni og nýta umferðarmannvirkin sem best. Öllum ljós- um stýrt úr sömu tölvu VEGNA metþátttöku í borgaralegri ferm- ingu á vegum Siðmenntar í ár hefur verið ákveðið að halda sérstakt undirbúnings- námsskeið á Akureyri fyrir þá sem þar búa. Undanfarin ár hefur Siðmennt haldið helgarnámskeið í Reykjavík fyrir þátttak- endur úti á landi en nú verður helmingur helgarnámskeiðsins haldinn á Akureyri. Þetta þýðir að þátttakendur utan af landi þurfa að ferðast minna en ella. 130 hafa skráð sig til þátttöku í borgaralegri ferm- ingu í ár og er það 40% aukning frá því í fyrra. Þetta er í fyrsta sinn sem undirbúnings- námskeið er haldið bæði í Reykjavík og á Akureyri. Siðmennt stefnir að því að bjóða upp á slík námskeið hér eftir á Akureyri og síðar meir á öðrum stöðum á landinu eftir því sem þörf og áhugi fyrir slíkan valkost eykst. Metþátttaka í borgaralegri fermingu ♦♦♦ Fréttir í tölvupósti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.