Morgunblaðið - 04.02.2006, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.02.2006, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Iðnaðarráðherra er búinn að redda Kyoto-kvabbinu. Hún segir að það finnist ekki svo mikið sem smáskítalykt ef þú notar svona græjur. Ólíklegt er að for-ysta Bændasam-takanna muni á næstunni gera aðra til- raun til að selja húseignir samtakanna, Hótel Sögu og Hótel Ísland. Búnaðar- þing hafnaði á mánudag- inn að selja fasteignirnar. Niðurstaðan var mjög af- gerandi en „nei“ sögðu 36 en „já“ sögðu 13. Tilboðið kom frá Jóhannesi Sig- urðssyni athafnamanni sem m.a. hefur verið mikið í fasteignavið- skiptum. Jóhannes bauðst til að kaupa eignirnar á 4.255 milljónir króna. Það voru bændur sem um miðja síðustu öld tóku ákvörðun um að reisa veglegt hótel í Reykjavík. Byggingin var m.a. fjármögnuð á þann hátt að sérstakt gjald, bún- aðarmálagjald, var lagt á bændur. Lög voru sett um þessa gjaldtöku á Alþingi. Nokkur umræða hefur farið fram um hvort bændur sem greiddu þetta gjald séu ekki réttir eigendur hótelsins og að þeir ættu að fá söluhagnaðinn í sínar hend- ur. Hafa ber hins vegar í huga að þetta hefur aldrei verið fært sem séreign bænda. Búnaðarmála- gjaldið var í reynd lagt á bændur eins og hver annar skattur. Þar að auki er stór hluti þeirra bænda sem greiddu gjaldið látnir. Rekstur Hótel Sögu hefur gengið upp og ofan. Staðan hefur þó batnað mikið á allra síðustu ár- um. Hækkun á fasteignamarkaði hefur einnig aukið verulega verð- mæti eignarinnar. Hugsanleg sala á Hótel Sögu hefur lengi verið til umræðu. Bún- aðarþing samþykkti árið 2002 ályktun þar sem segir ,,að komi til flutnings höfuðstöðva Bændasam- taka Íslands á næstu misserum verði þeim fundinn staður í tengslum við aðra starfsemi sem tengist landbúnaðinum. Staðsetning samtakanna þarf jafnframt að vera hentug með til- liti til samgangna við alla lands- hluta og stjórnsýsluna í landinu.“ Málið var aftur rætt 2004 og í fyrra og var stjórn samtakanna þá falið að vinna áfram að málinu. Á þinginu 2004 kom fram formleg tillaga um að metið yrði hvaða áhrif það hefði ef söluhagnaður af Bændahöllinni (Hótel Sögu) yrði látinn renna til Lífeyrissjóðs bænda. Ýmsir hafa skoðað hugsanleg kaup á fasteignum Bændasamtak- anna. Forysta samtakanna hefur hins vegar ekki verið sátt við þær verðhugmyndir sem hafa verið nefndar fyrr en nú. Búið var að undirrita kaupsamning við Jó- hannes Sigurðsson með fyrirvara um samþykki Búnaðarþings. Jó- hannes bauðst til að kaupa fast- eignirnar á 4.255 milljónir. Tilboð- ið var með bankatryggingu frá Landsbanka Íslands. Þegar búið var að greiða skuldir sem hvíla á hótelunum voru eftir um 2.400 milljónir. Samkvæmt tillögunni sem lögð var fyrir Búnaðarþing átti að verja þeim fjármunum sem kæmu út úr sölunni til Bændasamtak- anna og til þess að kaupa nýtt hús- næði undir samtökin. Hugmyndir voru uppi um að koma á fót sér- stökum sjúkrasjóði fyrir bændur. Ekki var hins vegar gert ráð fyrir að fjármunirnir yrðu notaðir til að styrkja Lífeyrissjóð bænda, en það hefur þó verið rætt á liðnum árum. Sumir fulltrúar á Búnaðar- þingi gagnrýndu hvernig verja ætti söluhagnaðinum og kann það að hafa ráðið einhverju um nið- urstöðu atkvæðagreiðslunnar. Mikil andstaða við söluna Meiri andstaða var við söluna á Búnaðarþingi en gert var ráð fyr- ir. Ýmis rök voru færð gegn söl- unni. Sumir töldu enga ástæðu til að selja þessa miklu eign. Sumir töldu hugsanlegt að fá hærra verð. Gagnrýni kom einnig fram á það hvernig gert væri ráð fyrir að verja söluhagnaðinum. Tveir af fyrrverandi forystumönnum bænda, Ari Teitsson og Haukur Halldórsson, mæltu gegn sölunni. Ríkissjóður greiðir árlega tals- vert mikla fjármuni til reksturs Bændasamtakanna. Samkvæmt nýjum búnaðarlagasamningi fara 123 milljónir til rekstursins á þessu ári og 591 milljón samtals á næstu fimm árum. Á Búnaðar- þingi var það nefnt hvort það væri ekki ábyrgðarleysi af bændum að hafna allgóðu tilboði í hótelin, en ætlast á sama tíma til þess að rík- issjóður greiddi hundruð milljóna króna til reksturs Bændasamtak- anna. Veik staða Lífeyrissjóðs bænda Staða Lífeyrissjóðs bænda hef- ur í mörg ár verið mjög veik. Al- gengt er að bændur fái örfáa tugi þúsunda í lífeyri úr sjóðnum á mánuði. Fyrir lá að skerða þyrfti réttindin vegna veikrar stöðu sjóðsins. Eftir að söluandvirði Lánasjóðs landbúnaðarins var lát- ið renna í sjóðinn er staða hans komin yfir núllið. Hann getur hins vegar ekki aukið réttindi miðað við núverandi stöðu. Hugmyndir hafa verið uppi um að sameina sjóðinn öðrum sjóði til að styrkja hann enn frekar, en talið er að það sé erfitt nema staða sjóðsins styrkist enn frekar. Fréttaskýring | Salan á Hótel Sögu Bauð 4,3 millj- arða í hótelin Um 2,4 milljarðar hefðu staðið eftir þegar búið væri að greiða áhvílandi skuldir Búnaðarþing hafnaði tilboði í Hótel Sögu. Bændur greiddu gjald til að fjármagna bygginguna  Hótel Saga var byggð á ár- unum 1956–1962. Hótelið er nú 20 þúsund fermetrar og fjöldi rúma um 410. Til að fjármagna bygginguna voru tekin innlend og erlend bankalán og búnaðar- samtökin seldu ýmsar eignir sín- ar og jarðir, auk þess sem sam- þykkt var á Búnaðarþingi árið 1958 að greitt yrði 0,5% viðbót- argjald í búnaðarmálasjóð af sölu búvara. Það átti í fyrstu að gilda til ársins 1961, en var fram- lengt og endanlega aflagt 1970. Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122 fia› ver›ur heitt á könnunni hjá mér og veitingar me› milli ellefu og eitt á kosningaskrifstofunni í Borgartúni 6. Komdu og spjalla›u yfir sí›búnum morgunver›i e›a mátulegu hádegissnarli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.