Morgunblaðið - 04.02.2006, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.02.2006, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Kaíró. AP, AFP. | Óttast er, að mörg hundruð manna hafi farist er egypsk farþegaferja sökk á Rauðahafi í gær. Um borð voru um 1.400 manns en sumum tókst að komast í björg- unarbáta og í gærkvöld var búið að bjarga um borð í önnur skip upp undir 200 manns. Þá voru björg- unarmenn búnir að koma auga á lík tuga manna í sjónum. Ferjan, Al-Salam Boccaccio 98, 35 ára gamalt skip, var á leið frá Duba í Sádi-Arabíu til hafnarborgarinnar Safaga í Egyptalandi. Voru farþegar með henni 1.310, aðallega Egyptar, sem unnið hafa í Sádi-Arabíu eða voru á leið heim úr pílagrímsför. Í áhöfninni voru um 100 manns. Hið versta veður var á Rauðahafi í gær, ölduhæð mikil og mikill straumur, sem gerði björgunaraðgerðir erf- iðari en ella. Reglur kveða á um, að nóg sé af björgunarvestum í skipum en í Egyptalandi er eftirlit með því sagt heldur slakt. Ekki fóru neinar frétt- ir af því í gær, að fólkið, sem bjarg- aðist eða fannst látið í sjónum, hafi verið með slíkan búnað. Neyðarkall frá ferjunni heyrðist í Skotlandi Sagt er, að ferjan hafi sökkið um 40 km út af egypsku hafnarborginni Hurghada þegar flestir farþeganna voru í fastasvefni. Var haft eftir yf- irvöldum í Egyptalandi, að ekki væri vitað til, að neyðarkall hefði borist frá skipinu en breska utanríkisráðu- neytið segir hins vegar, að neyð- arkall frá því hafi heyrst í björg- unarmiðstöð flughersins í Skotlandi tveimur mínútum fyrir miðnætti í fyrrinótt. Hafi þá strax verið haft samband við egypsk stjórnvöld. Ekki er enn ljóst hvað olli því, að ferjan, sem var 118 metra löng og 24 metra breið, sökk. Veðrið var að vísu fremur slæmt en alls ekki svo, að það hefði átt að granda svona stóru skipi. Um borð var aftur á móti mikið af bifreiðum af ýmsu tagi, sumar fréttir segja allt að 220, og það vekur grunsemdir um, að sá farmur hafi færst til og hvolft ferj- unni. Breytt til að auka flutningsgetuna Franski skipafræðingurinn Yvan Perchoc segir, að Al-Salam Boccacc- io 98 sé ein af nokkrum gömlum, ítölskum ferjum, sem hafi verið breytt til að auka flutningsgetuna. Hafi hún jafnvel verið þrefölduð eða meira. „Það, sem vekur sérstaka athygli við þessi skip á Rauðahafinu, er hvað þau eru há. Við þau hefur verið bætt fjórum þilförum til að þau geti flutt 1.400 farþega í stað 500,“ sagði Perchoc og bætti við, að full ástæða væri til að efast um stöðugleika þeirra. Allar reglur um hann gjör- breyttust þegar hverri hæðinni væri bætt ofan á aðra. David Osler hjá Lloyds í London tekur undir þetta og segir, að þessi skip séu mjög varasöm og þurfi ekki að taka inn á sig mikinn sjó til að þeim hvolfi. Fjögur skip frá egypska sjóhern- um og strandgæslunni voru á slys- stað í gær og eitt breskt herskip var á leið þangað. Óttast um afdrif mörg hundruð manna eftir sjóslys á Rauðahafi Um 1.400 manns voru með egypsku ferjunni sem sökk í fyrrinótt en búið var að bjarga allt að 200 í gær AP Farþegaferjan Al-Salam Boccaccio 98 á sex ára gamalli mynd. Hún var ein af nokkrum gömlum, ítölskum ferjum, sem voru hækkaðar og breytt mikið til að auka flutningsgetuna. Var hún meira en þrefölduð frá því sem var. AP Sjúkrabifreið fer frá höfninni í Safaga í Egyptalandi en þangað var komið með fólk sem lifði slysið af.  /    %   ( "    )#*++            "  ,   - .% # .(/012 678932% '2:; <;=% 2>2?52 +BM L-** ; ! )N+ L>,>7 .O#7       .  (&-# &-$-3 '$1   1 2 #% $ 2  1 / ' .$ / /1 P  1 B' B/ 4'"### . 1    32/ 1  " *  &-3 M < 2 % $  L-** $ '-  -$    -$<  - /- -/ "1  1 B .2*0%B London. AFP. | Kunnur, breskur sér- fræðingur í alþjóðalögum, Philippe Sands, segist hafa fyrir því heimildir, að George W. Bush Bandaríkjafor- seti hafi verið ákveðinn í að ráðast inn í Írak með eða án samþykkis Sameinuðu þjóðanna. Við það hafi síðan Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, lýst fullum stuðningi í janúarlok 2003. Kemur þetta fram í endurskoðaðri útgáfu bókarinnar „Heimur án laga“ en Sands segir, að þetta komi fram í minnisblöðum, trúnaðarskjali, sem hann hafi komist yfir. Segir hann, að Blair hafi svarað ákvörðun Bush með því, að hann stæði „fullkomlega með forsetanum og tilbúinn til að gera allt, sem þarf, til að afvopna Saddam Hussein“. Á þeim tíma hafi þó eftirlitsmenn SÞ ekki verið búnir að finna neitt, sem benti til, að Sadd- am réði yfir gereyðingarvopnum. Sands segir, að Bush hafi gengið svo langt að leggja til, að bandarísk flugvél yrði dulbúin sem SÞ-flugvél í þeirri von, að Írakar skytu á hana. Með því fengist ástæða fyrir Sam- einuðu þjóðirnar til að samþykkja hernaðaraðgerðir. Ekki treystandi „Það, sem minnisblöðin sýna, er, að það er ekki hægt að treysta Bandaríkjaforseta eða forsætisráð- herra Bretlands til að taka mikil- vægar ákvarðanir með upplýstum og ábyrgum hætti,“ segir Sands. Þess má geta, að Sands er hluthafi í lögfræðistofunni Matrix Chambers, sem hefur innan sinna vébanda ekki aðeins aðra gagnrýnendur Íraks- stríðsins, heldur einnig Cherie Booth, eiginkonu Tony Blairs. Íraksinnrásin var löngu afráðin Moskva. AFP, AP. | Mannréttinda- hreyfingar í Rússlandi hafa boðið leyniþjónustu landsins birginn eft- ir að hún sakaði þær um að reka erindi erlendra njósnara. „Við höfum tekið höndum sam- an. Við munum alltaf verja hvert annað,“ sagði Ljúdmila Aleksej- eva, formaður Helsinki-hópsins í Moskvu á blaðamannafundi helstu mannréttindahreyfinga Rússlands. Helsinki-hópurinn segist ætla að leita til dómstóla til að verjast ásökunum leyniþjónustunnar FSB um að hreyfingin hafi þegið pen- inga af njósnurum sem störfuðu fyrir breska sendiráðið í Moskvu. Rússneska ríkissjónvarpið Rossiya hafði sýnt myndir sem sagðar voru sýna að fjórir starfsmenn sendi- ráðsins hefðu notað njósnatæki, falið í gervisteini, í því skyni að koma tölvugögnum til rússneskra samverkamanna. Hermt er að einn sendiráðsmannanna, sem sást á myndunum, hafi gegnt því hlut- verki í breska sendiráðinu að ann- ast sjóð sem notaður sé til að styrkja óháð samtök í Rússlandi. Aleksejeva neitaði ásökunum FSB um að mannréttindahreyfing- in tengdist breskum njósnurum. Hún sagði að Helsinki-hópurinn hefði þegið þrjá styrki frá bresku stjórninni árið 2000 til að þjálfa eftirlitsmenn og fylgjast með því hvort konur og fangar nytu fullra réttinda samkvæmt lögum. Hreyf- ingin hefði aldrei verið í neinum tengslum við breska sendiráðs- manninn sem nefndur var í sjón- varpinu. Rætt við fulltrúa samtakanna Félagar í Helsinki-hópnum sögðu aðgerðir leyniþjónustunnar og stjórnvalda í Kreml minna á of- sóknir sovésku leyniþjónustunnar á hendur andófsmönnum í Sov- étríkjunum. Sergej Lavrov, utanríkisráð- herra Rússlands, átti í gær fund með fulltrúum óháðra samtaka, að því er virðist til að reyna að draga úr gagnrýninni. Á fundinum lagði Lavrov til að samtökin tækju þátt í undirbúningi leiðtogafundar helstu iðnríkja heims sem haldinn verður í Rússlandi síðar á árinu. Ásökun leyniþjónustunnar varð til þess að Vladímír Pútín Rúss- landsforseti fordæmdi meint tengsl óháðra samtaka við erlenda njósnara. „Við erum hlynnt því að fjármögnun samtakanna sé gagnsæ,“ sagði Pútín. „Við erum hlynnt því að samtökin séu sjálf- stæð en viljum ekki að erlendir leikbrúðustjórnendur ráðskist með þau.“ Bjóða leyni- þjónustu Rússlands birginn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.