Morgunblaðið - 04.02.2006, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 65
ÞÝSKI elektró-rokkarinn Namosh kemur
fram á tónleikum á skemmtistaðnum NASA
við Austurvöll í kvöld. Þar mun hann frum-
flytja efni af nýjustu breiðskífu sinni sem
hlotið hefur nafnið Moccatongue. Þetta er
ekki í fyrsta skipti sem Namosh kemur
hingað til lands, en hann kom fram á dans-
leik á NASA í tengslum við Gay Pride-
hátíðina í fyrra, auk þess sem hann hélt
minni tónleika á skemmtistaðnum Sirkus,
þar sem færri komust að en vildu. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Hr. Örlygi, sem
stendur fyrir tónleikunum, er sviðs-
framkoma Þjóðverjans einstök og hefur
honum meðal annars verið líkt við þýsku
tónlistarkonuna Peaches, sem einnig hefur
haldið tónleika hér á landi, en bæði eru þau
frá Berlín. Þá hefur tónlist hans verið líkt
við einhvers konar sambland af tónlist
Prince og Iggy Pop. Auk Namosh koma
Hairdoctor, Jack Schmidt & Blake, Margeir
og DJ Casanova fram á tónleikunum.
Tónleikar | Þýskt elektró-rokk á NASA í kvöld
Sambland af Prince,
Peaches og Iggy Pop
Sviðsframkoma Namosh þykir einstök og hefur honum verið líkt við Peaches hvað það varðar.
Tónleikar á NASA í kvöld.
Fram koma: Namosh, Hairdoctor, Jack
Schmidt & Blake, Margeir og DJ Casanova.
Húsið verður opnað kl. 23.00.
Aðgangseyrir er 1.000 kr.
www.namosh.de.
Frásagnir herma að Billy Corg-an sé að endurvekja hljóm-
sveitina Smashing Pumpkins en
heyrst hefur að hann og trommari
sveitarinnar, Jimmy Chamberlin,
séu að hefjast
handa við
upptökur á
nýrri plötu.
James Iha
og D́arcy
Wretsky, gít-
arleikari og
bassaleikari
hljómsveit-
arinnar, eru
ekki að vinna
að plötunni
með Corgan
og Chamberl-
in. Að sögn
heimildarmanna mun tónlist-
armaðurinn Billy Mohler taka þátt
í vinnslu plötunnar upp að vissu
marki. Mohler lék áður á bassa
með rokksveitinni Calling og lék
jafnframt á sólóplötu Chamberlins
frá því í fyrra.
„Svo fremi sem Billy hefur
Jimmy, þá getur hann búið til
ekta „Pumpkins“ plötu, er ég viss
um,“ sagði fyrrum bassaleikari
sveitarinnar, Melissa Auf Der
Maur, við tónlistarvefinn Billboar-
d.com. Hún bætti því við að hún
sé ekki að taka þátt í verkefninu
en sé þó ávallt til þjónustu
reiðubúin ef Corgan vill fá hana.
Talsmaður Corgans hefur ekki
viljað tjá sig um hvort ný plata sé
væntanleg eður ei.
Corgan hefur undirritað nýjan
samning við útgáfufyrirtækið
Front Line Mangament. Hann
lagði Graskerin á hilluna við lok
ársins 2000 eftir að hljómsveitin
gaf út MACHINA/the machines of
god.
Fólk folk@mbl.is
Leikkonanog grín-
istinn Ros-
anne Barr
hefur heldur
betur gefið
viðkvæmar
upplýsingar
um leikarann
George Cloo-
ney, nefnilega
þær að hann
hafi líkt eftir einum Marx-
bræðranna, Groucho, með kyn-
færum sínum. Þessu sagði Barr
frá í viðtali við breska tímaritið
Attitude.
„Kvöld eitt vorum við öll ölvuð
eftir kvöldmáltíð og John Good-
man (leikari) tók ljósmynd af
Clooney nöktum með Groucho
Marx gleraugu yfir sínu allra heil-
agasta,“ sagði Barr. Myndin hafi
verið fest á ísskápinn í sviðsmynd
sjónvarpsþáttanna sem hún og
Goodman léku saman í og hétu
Rosanne Barr Show. Henni hafi
verið stolið en þau Goodman at-
hugi það reglulega hvort hún sé til
sölu á eBay.
Barr klykkir út með því að hún
hafi haft samfarir við Clooney
margoft.