Morgunblaðið - 04.02.2006, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 04.02.2006, Blaðsíða 61
eru nýstárlegar og vandaðar sýningar auk safnbúðar og kaffihúss. Hlutverk safnsins er að auka og miðla þekkingu á menningararfi Íslendinga frá landnámi til nútíma. Opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17. Skemmtanir Cafe Catalina | Í kvöld spilar Eurovision- höfundurinn Hörður G. Ólafsson. Horfum á Evrovision á stóru tjaldi. Classic Rock | Hljómsveitin Kvarts spil- ar á Classic Rock. Players, Kópavogi | Hljómsveitin Ber- muda leikur í kvöld. Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveitin Six- ties leikur föstudag og laugardag. Húsið opnað kl. 22, frítt inn til miðnættis. Mannfagnaður Kaffi Hljómalind | Dagskrá næsta Spunakvölds: Amigo, Svimi og Úð. Í hléi verður opnað fyrir skráningu atriða á stuttum fundi. Spuni er öllum opinn og gjaldfrjáls. Nánar á uppl. http:// spuni.org Fyrirlestrar og fundir Bókasafn Kópavogs | Dharmendra Bohra heldur erindi um hindúasið, 8. febrúar kl. 17.15–18.15. Fyrirspurnir og umræður. Liður í fyrirlestraröð um trúarbrögð sem bókasafnið stendur fyrir næstu vikur. Eirberg | Málstofa Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði við HÍ og LSH verður 6. febrúar kl. 12.10, stofu 201, annarri hæð. Jónína Einarsdóttir, lektor við mann- fræðiskor HÍ, heldur fyrirlestur er nefn- ist: Barnalán og ólífvænlegar fæðingar, þar sem kynntar verða kenningar um viðbrögð mæðra við ólífvænlegum fæð- ingum. Kraftur | Kraftur – stuðningsfélag ungs fólks sem greinist með krabbamein og aðstandendur heldur félagsfund í húsi Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8, 4. hæð, 7. febrúar kl. 20. Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur flytur fyr- irlestur og bókin: Með lífið að láni verð- ur til sölu á 2.000 kr. Landssamband lögreglumanna | Aðal- fundur lífeyrisþegadeildar Lands- sambands lögreglumanna verður haldinn 5. feb. kl. 10 í Brautarholti 30. Kaffiveit- ingar í boði LL. Sögufélag | Nafnfræðifélagið efnir til fræðslufundar kl. 13.30 í húsi Sögufélags í Fischersundi. Tryggvi Gíslason, fyrrv. skólameistari, talar um norsk örnefni á Íslandi og undarleg örnefni í Eyjafirði, örnefni sem borist hafa með norskum landnámsmönnum til Íslands. Fréttir og tilkynningar Fjölskylduhjálp Íslands | Tökum á móti matvælum, fatnaði og leikföngum alla miðvikudaga frá kl. 13 til 17. Úthlutun matvæla er alla miðvikudaga frá kl. 15 til 17 í Eskihlíð 2–4 v/Miklatorg. Þeir sem vilja styðja starfið fjárhagslega vinsam- legast leggi inn á reikning 101-26-66090 kt. 660903-2590. GA-fundir | Ef spilafíkn er vandamál hjá þér eða þínum geturðu hringt í síma GA- samtakanna (Gamblers Anonymous): sími 698-3888. Frístundir og námskeið Yoga Shala Reykjavík | Ashtanga-jóga- helgarnámskeið verður með Mark Freeth frá Englandi dagana 10.–12. febrúar (átta klst). Allar nánari upplýsingar og skrán- ing í síma 862-6323 eða á helgasnjolfs@gmail.com. Útivist og íþróttir Félag Snæfellinga og Hnappdæla í Reykjavík | Félag Snæfellinga og Hnapp- dæla í Reykjavík efnir til klukkutíma gönguferðar fyrsta laugardag hvers mánaðar. Í dag verður farið frá Fella- og Hólakirkju kl. 10.30. Allir velkomnir. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 61 DAGBÓK Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is Í DAG kl. 14 opnar myndlist- armaðurinn Jónas Viðar sýningu í Galleríi Sævars Karls. Jónas Viðar útskrifaðist frá Myndlistarskólanum á Akureyri 1987, stundaði framhaldsnám á Ítalíu frá ‘90 til ‘94. Listamaðurinn hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði hér á Íslandi og erlendis, ásamt því að stunda kennslu. Sýningin stendur til 23. febr- úar. Jónas Viðar í Galleríi Sævars Karls MENNING YFIRLITSSÝNINGAR þykja jafn- an merkur áfangi í ferli myndlist- armanns. Þá er horft yfir þróun í list- sköpun hans og listaverkin endurskoðuð í nýju samhengi. Það telst því til tíðinda þegar listamaður lítur um öxl rétt á þrítugasta afmæl- isdegi sínum og býður áhugasömum upp á yfirlitssýningu eins og nú er raunin í Nýlistasafninu, en þar sýnir Curver Thoroddsen ævistarf sitt. Curver er annars kunnur úr dæg- urlagageiranum og er m.a. meðlimur í hljómsveitunum Dópskuld og Ghostdigital. Sem myndlistarmaður hefur Curver fyrst og fremst vakið athygli fyrir hversdagsgjörninga sína. Skemmst er að minnast þess þegar hann auglýsti í fjölmiðlum dag hvern í eina viku hvar og hvenær hann mundi borða hamborgara og í farsælu samstarfi við Listasafn Ís- lands á sýningunni „Ný íslensk myndlist“ voru heimilishættir hans sýndir í beinni. Það er svo sem ekkert skrýtið að margur maðurinn hafi fussað og sveiað yfir listrænu gildi þessara uppákoma. En fyrir mitt leyti er Curver hvers manns lista- maður sem gerir hversdagsleikann hátíðlegan með því að upphefja venjulega atburði og gera þá að skap- andi og skemmtilegu viðfangsefni. Annað sem mér þykir athyglisvert við list Curvers er hvernig hann not- ar fjölmiðla sem vettvang fyrir hvers- dagsgjörninga sína í formi tilkynn- inga, auglýsinga, umræðna á X-inu eða reglulegra heimsókna frá Innlit– útlit genginu. Hefðbundinn sýning- arsalur er því varasamur fyrir lista- menn eins og Curver þar sem list- rýmið er bundið vissri friðhelgi og nýtur umburðarlyndis sem almennt rými fær ekki. En Curver spilar mjög vel úr því sem hann hefur. Á sýning- unni eru myndverk og skúlptúrar sem ná aftur til leikskólaáranna. Ég verð reyndar að viðurkenna að mynd- verk og áþreifanlegir hlutir eru ekki hans sterkasta hlið. En verkin gegna samt veigamiklu hlutverki sem heim- ildir um lífsskeið listamannsins þegar hann er nú að kveðja fortíð sína og byrja upp á nýtt með þeim einfalda hætti að skipta um nafn, en í 30 ár, allt til 2. febrúar síðastliðins, hefur hann borið nafnið Birgir Örn. Í ýmsum andlegum fræðum er tal- ið að nafngift sé ákveðin af sál manns áður en hún tekur sér bólfestu í lík- ama og nafnið hafi áhrif á þroska sál- arinnar á meðan hún fylgir lík- amanum. Breyting á nafni er því merki um að vissum áfanga sé lokið og tími til kominn að byrja á nýju þroskastigi. Þetta er einmitt ein af ástæðunum fyrir því að andlegir meistarar, eins og t.d. Jesús Kristur og Gautama Buddah, hafa gefið læri- sveinum ný nöfn. Svo vill til að grein- arhöfundur hefur reynslu af því að taka við nýju nafni og satt að segja fylgja því ótrúlegar breytingar. Einna helst er það að sjálfsímynd manns hefur verið svo nátengd nafn- inu sem maður hefur borið frá fæð- ingu að skilgreining manns á sjálfum sér nær oft ekki lengra en til nafnsins og þá til sjálfsímyndarinnar sem nafninu fylgir. Sé nafnið numið á brott fellur um leið fyrsta fyrirstaðan að svarinu við grundvallarspurningu hvers manns; „Hver er ég?“ Nýju nafni fylgir þó líka sjálfsímynd og í tilfelli Curvers er hann að velja hana sjálfur og er nú þegar búinn að máta hana í dægurlagageiranum um þó nokkurt skeið. En nú er skrefið tekið til fulls. Hann hefur birt auglýsingar í dagblöðum þar sem hann biður fólk um að virða ákvörðun sína og sótt um löglega breytingu til nafnanefndar dóms- og kirkjumálaráðuneytisins. Í svarbréfi frá ráðuneytinu sem hangir við inngang Nýlistasafnsins er bent á að nafnið lúti ekki reglum um nafna- giftir á Íslandi. En Curver ætlar ekki að láta ríkið hafa vit fyrir sér og tekur sér nafnið engu að síður með því að líta yfir farinn veg og kveðja Birgi Örn með fimm daga sýningargjörn- ingi sem er svo sannarlega áfangi út af fyrir sig. Maður að nafni Curver MYNDLIST Nýlistasafnið Opið miðvikudaga til föstudaga 14–17. Uppákomur í auglýstri dagskrá öll kvöld á meðan sýningin stendur yfir. Lokið 5. febrúar. Curver Thoroddsen Morgunblaðið/Eggert Helvar og Heiða innrömmuð í einu verka Curvers, á Nýlistasafninu í vikunni. Jón B.K. Ransu Laugarborg, Eyjafirði kl. 13 Opnunartónleikar – Veglaust haf Caput leikur verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Snorra Sigfús Birgisson, Tryggva M. Baldvinsson, Hafliða Hallgrímsson, Þorkel Sigurbjörnsson og Huga Guðmundsson. Þessi dagskrá er tileinkuð hafinu og var fyrst flutt á Expo í Japan 15. júlí 2005. Titillinn er sóttur til Matt- híasar Johannessen. Atli Heimir samdi Dansa dýrð- arinnar vestur í Flatey og tengjast þeir hafinu á nánast áþreifanlegan hátt. Kalaïs, sonur norðanvindsins, situr við ströndina og leikur á hljóð- færi sitt í verki Þorkels Sigurbjörns- sonar. Tengsl annarra verka við hafið eru ekki jafn augljós, jafnvel mjög langsótt, þótt Hafliði yrki reyndar um öldur hafsins í Tristíu. En vatnið er vissulega alltaf ná- lægt. Halldór Ásgeirsson hefur unnið myndverk út frá þessum fimm tón- verkum, myndverk sem breytist frá sýningu til sýningar. Enda eru þessar síbreytilegu myndir einungis „ristar“ í vatnið. Tónleikarnir verða endurteknir í Salnum á mánudagskvöld. Ýmir, Reykjavík kl. 20 Atón – Stefán Jón Bernharðsson stjórnar Atón leikur verk eftir Áka Ásgeirs- son, Atla Heimi Sveinsson, Charles Ross, Inga Garðar Erlendsson, Kol- bein Einarsson, Pál Ívan Pálsson, Ríkharð H. Friðriksson og Úlfar Inga Haraldsson. Atón er tónlistarhópur sem flytur nýja tónlist. Hópurinn hefur starfað frá 1998 og hefur frumflutt um 40 ís- lensk verk. Atón hefur haldið tónleika í Reykjavík, á landsbyggðinni, Græn- landi og í Færeyjum. Á döfinni er m.a. tónleikaferðalag til Kaliforníu í apríl nk. og þátttaka í Norrænum tónlistardögum 2006. Atón var til- nefndur til Íslensku tónlistarverð- launanna 2004 sem bjartasta vonin. Myrkir músíkdagar Atli Heimir Sveinsson á verk á hvorum tveggju tónleikum dagsins á Myrkum músíkdögum; Dansa dýrðarinnar á tónleikum Caput og Fluff or Drama á tónleikum Atón. Morgunblaðið/Þorkell AKVARELL Ísland kallast hópur íslenskra listamanna sem um þess- ar mundir heldur sýningu í Hafn- arborg, í tilefni af 10 ára afmæli hópsins. Hópurinn á það sameig- inlegt að vinna með akvarellu- litum; litum sem blandast með vatni og spila saman með pappírnum sem unnið er á. „Þetta hófst með því að ég fékk bréf frá Samtökum vatns- litamálara á Norðurlöndunum, sem hafa aðsetur í Svíþjóð, en til að samtökin gætu starfað eðlilega þótti nauðsynlegt að Ísland yrði með. Því setti ég mig í samband við fólk hér á landi sem ég vissi að væri að vinna með vatnsliti og þannig varð hópurinn til,“ segir Katrín Helga Ágústsdóttir, ein úr hópnum. Meðlimir Akvarell Ísland vinna sjálfstætt að sinni listsköpun en hópurinn hefur haldið samsýningar reglulega allt frá stofnun. „Lista- maðurinn, og málarar sérstaklega, er einfari í sinni list: hann vill tjá það sem hann telur sig þurfa að tjá og vill kannski ekki vera að blanda öðrum í það,“ segir Katrín Helga. Meðlimir hópsins fylgja því ekki neinni gefinni stefnu í aðdraganda sýninga en fela utanaðkomandi að- ilum að velja verk til sýningar hverju sinni. „Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur stjórnar sýningunni að þessu sinni ásamt Jóni Axel Björnssyni og gæta þess að sýn- ingin hafi fallegan heildarsvip.“ Þótt listamennirnir vinni ekki saman að sýningunum er sam- starfsvettvangurinn þó gefandi og örvandi fyrir listina: „Við troðum ekki hvert öðru um tær, en mér þykir ég greina á fólki að það sé mjög ánægt að fá það tækifæri sem gefst með sýningum hópsins. Við höfum einnig boðið öðrum að taka þátt í þeim, og ekki eru alltaf þeir sömu sem sýna. Núna gefur að líta verk eftir 12 listamenn á sýning- unni, en síðast vorum við 15, og byrjuðum hópinn níu talsins,“ segir Katrín. Þeir sem sýna í Hafnarborg að þessu sinni, auk Katrínar Helgu, eru Þórður Hall, Gunnlaugur Stefán Gíslason, Alda Ármanna Sveins- dóttir, Ásta Árnadóttir, Björg Þor- steinsdóttir, Eiríkur Smith, Helga Magnúsdóttir, Jón Reykdal, Kristín Þorkelsdóttir, Torfi Jónsson og Þór- unn Guðmundsdóttir. Sýning Akvarell Ísland stendur til 27. febrúar. Morgunblaðið/RAXFrá sýningu hópsins Akvarell Ísland í Hafnarborg. Listamaðurinn er einfari Myndlist | Hópurinn Akvarell Ísland opnar sýningu í Hafnarborg í dag Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.