Morgunblaðið - 04.02.2006, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 04.02.2006, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hljómur hofklukkunnar á morgun FRÉTTIR SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ hefur, að tillögu Hafrannsóknastofn- unar, gefið út reglugerð um að auka loðnukvótann á vetrarvertíðinni 2006 í 210.000 tonn eða um 110.000 tonn. Þar af koma 103.000 tonn í hlut ís- lenskra skipa. Kvóti þeirra verður því samtals 150.000 tonn af 210.000. Áfram verður fylgzt með göngu loðn- unnar og kvótinn aukinn síðar ef ástæða þykir til. Þetta verður minnsti loðnuafli á vetrarvertíð síðan árið 1983, en þá var engin veiði leyfð. Mestur hefur loðnu- afli á einu ári orðið 1.561.000 tonn, en heildarafli hefur alloft farið yfir eina milljón tonna. Heildarafli á síðustu vetrarvertíð varð 692.000 tonn og hlutur Íslands af því 594.000 tonn. Gera má ráð fyrir að útgerðir nýti þennan litla kvóta að langmestu leyti til frystingar og áfram verði því lítið um verkefni fyrir fiskimjölsverk- smiðjurnar. Á tímabilinu 26. janúar–1. febrúar 2006 var rannsóknaskipið Árni Frið- riksson við loðnumælingar út af Aust- urlandi þar sem leitarskip og fyrri leiðangur stofnunarinnar höfðu stað- sett loðnugöngur. Alls mældust á svæðinu 614 þúsund tonn af kyn- þroska loðnu. Að frátöldum 400 þús- und tonnum til hrygningar í lok ver- tíðar og að gefnum náttúrulegum afföllum svarar mælingin til 210 þús- und tonna hámarksafla frá 1. febrúar til vertíðarloka í mars 2006. Áfram fylgzt með loðnunni Árni Friðriksson verður í höfn um helgina, en fer aftur á leitarsvæðið í næstu viku. Bjarni Sæmundsson fór vestur fyrir nú í vikunni og var í gær úti af Vestfjörðum. Mælingar hans hafa ekki gefið tilefni til aukningar kvótans. Jóhann Sigurjónsson, for- stjóri Hafrannsóknastofnunarinnar, segir að fylgzt verði með stöðunni næstu vikurnar. „Mælingin fyrir austan og norðan tókst mjög vel og af þeim sökum ekki ástæða til frekari mælinga þar. Hins vegar útilokum við að sjálfsögðu ekki frekari göngur. Það er jákvætt að það er loðna að ganga inn að landinu til hrygningar, þó kvótinn sé með minnsta móti,“ seg- ir Jóhann. Einar K. Guðfinnsson sjáv- arútvegsráðherra segir að vissulega hefði verið betra að meira hefði fund- izt en ekki væri öll nótt úti enn, því rannsóknaskipin myndu halda áfram að vakta miðin. Þetta væru í senn bæði góð og slæm tíðindi. Kvóti væri í allra minnsta lagi, en á hinn bóginn væri stofninn nógu stór til eigin við- halds og gæti staðið undir nægilegri hrygningu. Auk þess væru veiðar í flottroll takmarkaðar til að draga úr hættunni á neikvæðum afleiðingum þeirra á loðnuna og göngur hennar. Hann sagðist gera ráð fyrir því að út- gerðirnar einbeittu sér að því að gera sem mest verðmæti úr þessum tak- markaða kvóta með vinnslu til mann- eldis um borð í skipunum og í landi. Í gær höfðu tvö erlend skip tilkynnt komu sína á miðin, annað norsk og hitt grænlenzkt. Hvorugt þeirra hafði tilkynnt um afla. Minnsti loðnu- kvóti í tvo áratugi Heildarkvóti á vetrarvertíð 210.000 tonn, hlutur íslenzkra skipa 150.000 tonn        '   ()*+,"##$      "(#                   Leitarsvæði og dreifing loðnunnar. Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is FIMM gefa kost á sér í efsta sæti á lista Fram- sóknarflokksins fyrir bæjarstjórnarkosning- arnar á Akureyri í vor, þar af tveir sitjandi bæj- arfulltrúar. Prófkjörið fer fram 18. þessa mánaðar. Þeir sem stefna á topp- sæti listans eru eft- irtaldir: Elvar Árni Lund, sveitarstjóri Öxarfjarð- arhrepps (sem gefur bara kost á sér í 1. sæti), bæjarfulltrúarnir Gerður Jónsdóttir og Jóhannes Gunnar Bjarnason, sem bæði gefa kost á sér í 1.–2. sæti, og þau Erla Þrándardóttir verkefnisstjóri og Sigfús Ólafur Helgason, varafor- maður Íþróttabandalags Akureyr- ar, sem gefa kost á sér í 1.–3. sæti listans. Aðrir sem gefa kost á sér í próf- kjörinu eru þessir: Stefán Jónsson í 2.–3. sæti, Guðlaug Kristinsdóttir (2.–4.), Geir Hólmarsson (3.–5.), Þorsteinn Pétursson (3.–5.), Örlyg- ur Þór Helgason (3.–6.), Jón Vigfús Guðjónsson (4.–6.), Páll Gauti Páls- son (4.–6.), María Ingadóttir (4.–6.), Erlingur Kristjánsson (4.–6.), Ingi- mar Eydal (5.–6.), Sóley Magn- úsdóttir (5.–6.), Eiður Stefánsson (5.–6.), Petrea Ósk Sigurðardóttir (6.) og Alex Björn Stefánsson (6. sæti). Fimm stefna á efsta sætið Elvar Árni Lund Gerður Jónsdóttir Jóhannes Gunnar Bjarnason Erla Þrándardóttir Sigfús Ólafur Helgason ÞRÁTT fyrir að evrópskir iPod- glymskrattar séu með innbyggða vörn gegn hávaða yfir 100 dB geta eigendur þeirra nú halað niður af netinu hugbúnaði sem slekkur á þeirri vörn og gerir þá jafnhættulega og bandaríska iPod-spilara, sem geta skilað af sér allt að 140 dB hávaða, en það getur stórskaðað heyrn fólks á nokkrum sekúndum. Þetta segir Bryndís Guðmundsdóttir, heyrnar- fræðingur barna á Heyrnar- og tal- meinastöð Íslands. Talið er að um 20.000 iPod-glym- skrattar hafi verið keyptir frá Bandaríkjunum, en þeir eru á mun lægra verði en þeir sem koma frá Evrópu. Bryndís segir fjölda iPod-spilara skipta tugum þúsunda hér á landi, en vissulega skipti máli hvort um sé að ræða ameríska eða evrópska spilara, því þeir amerísku geti farið upp í allt að 140 dB eins og þeir koma upp úr kassanum. „Evrópsku tækin eru með innbyggðri vörn þannig að þau komast ekki hærra en í 100 dB,“ seg- ir Bryndís, en bætir við að dæmi séu um að unglingar hlaði niður forriti af netinu sem geri þeim kleift að opna evrópsku tækin og hundsa hávaða- takmörkunina. Hins vegar láti flestir unglingar það ógert að fikta á þenn- an hátt í tækjum sínum, svo evrópsk- ir spilarar séu vissulega öruggari. „Ef við miðum við Rammstein- tónleikana, sem margir muna eftir, þá var hávaðinn þar 110 dB, og þú mátt vera í hálftíma í slíkum hávaða áður en þú ferð að eyðileggja heyrn- ina,“ segir Bryndís og bætir við að ef farið sé alla leið upp í 140 dB, sem sé um átta sinnum meiri hávaði en 110 dB, sé viðkomandi löngu kominn yfir sársaukamörk. „Það er eins og flug- eldur rétt hjá manni og eyðileggur heyrnina strax, á nokkrum sekúnd- um.“ Bryndís segir hátíðnisviðið skað- ast fyrst í hávaða. „Ef við hugsum okkur greiningu á töluðu máli, þá hættir fólk að heyra óraddaða sam- hljóða í málinu,“ segir Bryndís og bætir við að fyrst detti út stafir eins og S, F og Þ og sé þá erfitt að greina í sundur orð sem byrja á þessum stöf- um og hljóðum. „Þetta skiptir miklu máli fyrir krakka og ungt fólk sem er að læra málið og læra svo margt með málinu. Fólk missir fljótt hæfileik- ann til að greina talmál í klið. Þetta veldur því að fólk verður mjög fljótt þreytt og pirrað, því það er svo mikið álag að reyna að ná því sem verið er að segja. Auðvitað veit fólk á þessu stigi ekki af því að það heyrir vitlaust og það er sífellt að reka sig á afleið- ingarnar af því að hafa heyrt vitlaust, bæði félagslega og námslega.“ Þáttur foreldranna er gífurlega mikilvægur. M.a. er mikilvægt að vera vakandi fyrir því hversu lengi börnin hafa þetta í eyrunum og í öðru lagi að fylgjast með því á hvaða styrk þau eru með þetta. Það þarf að fræða þau um að nota ekki niðurhal af net- inu til þess að taka vörnina burtu þar sem hún er til staðar og leggja mikla áherslu á það að því hærra sem þú stillir tækið, því styttri tíma megir þú hafa það áður en þú skemmir. Hætta á heyrnarskemmd- um af amerískum iPod Morgunblaðið/Árni Torfason Eftir Svavar Knút Kristinsson svavar@mbl.is  Sverrir Guðjónsson tónlistar- maður og Elín Edda Árnadótt- ir, leikmynda- og búningahönn- uður, dansa saman í lífi og list og eru nýkomin úr ævintýra- legri ferð til Japans ÚR VERINU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.