Morgunblaðið - 04.02.2006, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„ÞETTA eru bara innistæðulausar fullyrðingar,
sem eiga engan rétt á sér,“ segir Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borg-
arstjórn og fulltrúi í stjórn Landsvirkjunar, um
þá gagnrýni Alfreðs Þorsteinssonar, forseta
borgarstjórnar, að með því að greiða atkvæði í
stjórn Landsvirkjunar með ráðstöfun Laxár-
virkjunar hafi Vilhjálmur unnið gegn hagsmun-
um Reykvíkinga.
„Það er á engan hátt verið að ganga á hags-
muni Reykvíkinga. Það er miklu fremur verið að
verja hagsmuni Landsvirkjunar, sem Reykjavík-
urborg á 45% í. Það er eins og menn gleymi því.
Alfreð Þorsteinsson talar eins og þetta sé bara
hættulegur og illvígur keppinautur. Þetta er gert
til að gera Landsvirkjun kleift að taka þátt í
þeirri samkeppni sem nýskipan raforkumála ger-
ir ráð fyrir,“ segir Vilhjálmur.
Hann ítrekar að engan veginn sé hægt að
halda því fram að verið sé að skaða hagsmuni
borgarbúa og bendir á að Landsvirkjun eigi 30%
í sölufyrirtæki Landsvirkjunar, Orkubús Vest-
fjarða og Rarik og borgin sé þar á meðal vegna
45% eignaraðildar Reykjavíkurborgar að Lands-
virkjun.
Mat á Laxárvirkjun var fært
úr 700 í 1.100 milljónir króna
„Þetta mál var tekið fyrir á tveimur fundum í
stjórn Landsvirkjunar. Mat á Laxárvirkjun í
reikningum Landsvirkjunar
er um 700 milljónir en var
fært í tæpar 1.100 milljónir
króna til samræmis við það
mat sem notað var við matið á
orkufyrirtækjunum hjá Rarik
og Orkubúi Vestfjarða,“ segir
hann.
„Það var líka beðið um
álitsgerð frá lögfræðingi
Landsvirkjunar á því hvort
stjórninni væri heimilt að
ganga til slíks. Mat lögfræðingsins var að stjórn-
in hefði heimild til að gera þetta og þá var þetta
samþykkt,“ segir hann.
Vilhjálmur bendir á að fulltrúar Reykjavík-
urlistans í stjórn Landsvirkjunar, Álfheiður
Ingadóttir og Helgi Hjörvar, hafi setið hjá við
afgreiðsluna. Vilhjálmur segir þetta mál sýna
vandræðagang innan R-listans. Þar virðist menn
ekki tala saman.Greinilegt sé að Helgi Hjörvar
hafi rætt þetta við borgarstjóra, sem hafi hins
vegar ekki látið Alfreð Þorsteinsson vita neitt
um málið og Alfreð hafi orðið bálillur þegar hann
frétti þetta. „Fulltrúar þeirra í Landsvirkjun
greiddu ekki atkvæði gegn þessu heldur sátu hjá
og fluttu heldur ekki tillögu um að málinu yrði
vísað til fulltrúa eigenda, þ.á m. borgarstjórans í
Reykjavík. Þetta er bara vandræðaleg uppákoma
hjá þeim og þau verða að sitja uppi með hana í
stað þess að reyna að koma henni yfir á ein-
hverja aðra.“
Vilhjálmur samþykkti tillögu sem afgreidd var
í borgarráði í fyrradag þar sem óskað var eftir
að stofnun sölufyrirtækis Rarik, Landsvirkjunar
og Orkubús Vestfjarða yrði frestað á meðan
fram fari skoðun á heimild stjórnar til ráðstöf-
unar Laxárvirkjunar. Hann segist telja sjálfsagt
og eðlilegt að málið sé skoðað enn frekar ef beð-
ið er um það.
Ber að gæta hagsmuna
fyrirtækisins
„Við erum fulltrúar Reykjavíkurborgar í
stjórn þessa fyrirtækis og þá ber okkur að sjálf-
sögðu að gæta hagsmuna þess fyrirtækis.
Þetta mál sýnir líka að sú skipan mála gengur
ekki til lengdar í þessu breytta raforkusam-
keppnisumhverfi, að Reykjavíkurborg sé 95%
eigandi í Orkuveitu Reykjavíkur og 45% eigandi
í Landsvirkjun,“ segir hann.
Vilhjálmur bætir við að fulltrúar Reykjavík-
urlistans hafi ekki einu sinni getað komið sér
saman um að selja hlut borgarinnar í Lands-
virkjun. ,,Þó svo að Framsókn og Samfylking
vildu selja þá vildu Vinstri grænir það ekki og
skipti þá engu máli hvaða verð hefði boðist.
Þetta söluferli síðasta árið var bara farsi, sem
einkennir stjórnsýslu borgarinnar á margan hátt
í dag.“
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson vísar á bug gagnrýni Alfreðs Þorsteinssonar
Á engan hátt verið að ganga
á hagsmuni Reykvíkinga
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
YFIRSTJÓRN Menntaskólans á Eg-
ilsstöðum hefur verið gert að fjar-
lægja myndavélar á heimavist nem-
enda samkvæmt úrskurði Persónu-
verndar. Nemandi við skólann
kvartaði við Persónuvernd vegna
myndavéla á heimavist skólans í
ágúst á síðasta ári. Verða þær mynda-
vélar fjarlægðar áður en nemendur
hefja skólavist næsta haust, en aðrar
öryggismyndavélar fá að standa.
Í ME eru 14 öryggismyndavélar en
tvær af þeim eru ekki í notkun. Þrjár
vélar eru utanhúss við innganga í
mötuneytis- og heimavistarhús, ein
vél er í aðalanddyri heimavistarhúss,
ein í tölvuveri skólans og önnur á
gangi framan við tölvuver en við þann
gang er einnig fjarfundaver skólans
og miðstöð tölvukerfis. Ein vél er á
gangi sem liggur að heimavist en við
þann gang eru kennslustofur og skrif-
stofur starfsfólks og nemendafélags.
Ein myndavél er í þvottahúsi heima-
vistar og beinist hún að inngangi í
þvottahúsið. Þá eru ótaldar 4 mynda-
vélar á 4 herbergjagöngum hinnar
eiginlegu heimavistar. Gangarnir eru
opnir í báða enda með tengingum í
stigahús. Við þessa ganga eru alls 52
herbergi sem rúma að hámarki 117
nemendur.
Fælingarmáttur verulegur
Í bréfi sem Helgi Ómar Bragason,
skólameistari ME, sendi Persónu-
vernd þegar kallað var eftir upplýs-
ingum segir að reynslan af öryggis-
myndavélunum sé í meginatriðum sú
að algjörlega hafi verið tekið fyrir
skemmdarverk á vistargöngum og
öðru almennu rými. Ekki hafi verið
kvartað yfir þjófnaði úr þvottahúsi
eftir uppsetningu myndavélar þar.
Þjófnaður úr herbergjum nemenda sé
nú fátíður og raunar ekki verið til-
kynnt um hvarf neinna verulegra
verðmæta. Lítil sem engin vandræði
hafi verið vegna utanaðkomandi
„gesta“ í húsnæði skólans svo líklega
sé fælingarmáttur öryggismyndavéla
verulegur. „Öryggismyndavélar hafa
reynst mikilvæg hjálpartæki fyrir
okkur sem berum ábyrgð á húsa-
kynnum skólans og yfir 100 ung-
mennum á heimavist sem flest eru
yngri en 18 ára“ segir Helgi Ómar í
bréfi sínu. „Öryggismyndavélarnar
geta þó ekki komið í veg fyrir sólar-
hringsvöktun öryggisvarða. Fjárveit-
ingar til skólans hafa ekki gert það
mögulegt að ráða fleira starfsfólk til
umönnunar barna/ungmenna á
heimavist. Einungis er fjárveiting
fyrir einu stöðugildi starfsmanns á
heimavist og þar varð engin breyting
á við hækkun sjálfræðisaldurs í 18 ár.
Við núverandi aðstæður er því ekki
um að ræða nein vægari úrræði en
þau sem felast í myndavélavöktun
þess húsnæðis sem heimavist skólans
er hluti af. Skólameistari telur að
leggja verði niður heimavist skólans í
núverandi mynd ef ekki verður hægt
að veita vistarbúum það öryggi sem
þeir búa nú við.“
Fjarlægðar fyrir nýtt skólaár
Persónuvernd telur að sú rafræna
vöktun sem fram fer í þvottahúsi,
tölvuveri, anddyrum og utandyra fái
staðist samkvæmt reglum. Hins veg-
ar fari sú rafræna vöktun sem nú fer
fram á göngum heimavistarinnar í
bága við ákvæði laga og reglna. Per-
sónuvernd hefur því ákveðið að leggja
fyrir yfirstjórn skólans að stöðva þá
vöktun sem fram fer á göngum
heimavistar skólans. Skólameistari
telur að ekki sé unnt að verða við fyr-
irmælum um stöðvun vöktunarinnar
fyrr en með nýju skólaári og er því
lagt fyrir skólann að láta af þeirri
vöktun sem hér um ræðir áður en
nemendur koma á heimavist haustið
2006. Þær sjö eftirlitsmyndavélar
sem heimilt er því að nota eru þrjár
myndavélar sem eru staðsettar utan-
húss, ein myndavél í aðalanddyri, ein
myndavél í tölvuveri, ein myndavél í
þvottahúsi og ein myndavél sem ætl-
að er að vakta hliðarinngang sem not-
aður er um helgar. Síðasttöldu
myndavélinni skal þó snúið að inn-
ganginum.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum telur fælingarmátt öryggismyndavéla vera verulegan.
Nemandi við Menntaskólann á Egilsstöðum kvartaði til Persónuverndar
Gert að fjarlægja mynda-
vélar af heimavist skólans
Nemendur Menntaskólans á Egilsstöðum þurfa á næstu önn ekki að þola
öryggismyndavélar inni á heimavistinni, en þær hafa verið umdeildar.
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
austurland@mbl.is
EKKI er marktækur munur milli
efstu manna í prófkjöri Samfylking-
ar í Reykjavík. Þetta er niðurstaða
könnunar, sem Frjáls verslun gerði
31. janúar til 2. febrúar fyrir vef-
svæðið heimur.is, á fylgi við fram-
bjóðendur í prófkjörinu. Þegar fylgi
flokkanna var skoðað kom í ljós að
sjálfstæðismenn voru með mest fylgi
eða um 48%, Samfylking kom næst
með 36%, VG fékk 10%, Framsókn-
arflokkur 4% og Frjálslyndi flokk-
urinn 2%.
Stefán Jón Hafstein fékk mest
fylgi í heild eða 36%. Dagur B. Egg-
ertsson kom næstur með 33% og
Steinunn Valdís Óskarsdóttir var
með 31%. Frjáls verslun segir að
munurinn sé ekki tölfræðilega mark-
tækur á Stefáni og Degi en Steinunn
Valdís sé hins vegar með marktækt
minna fylgi en Stefán.
Dagur nýtur mests trausts Sam-
fylkingarmanna eða 41%, Stefán Jón
kemur þar næstur með 35% en
Steinunn Valdís rekur lestina með
24%. Munurinn á Degi og Stefáni er
ekki tölfræðilega marktækur en
Steinunn Valdís er hins vegar með
marktækt minna fylgi en þeir báðir.
Spurt var: Hverju eftirtalinna
treystir þú best til að leiða lista Sam-
fylkingarinnar í Reykjavík: Degi B.
Eggertssyni, Stefáni Jóni Hafstein
eða Steinunni Valdísi Óskarsdóttur?
Samtals voru 406 spurðir. Um 32%
vildu ekkert þeirra, voru óviss eða
neituðu að svara. Óvissan er +/- 5%
en +/- 10% þegar aðeins var miðað
við stuðningsmenn Samfylkingar.
Varðandi fylgi flokkanna fengi
Sjálfstæðisflokkurinn 8 borgarfull-
trúa og hreinan meirihluta í borginni
samkvæmt könnuninni. Samfylking-
in fengi sex menn og VG einn.
Prófkjör Samfylkingar
í Reykjavík
Ekki mark-
tækur mun-
ur milli
efstu manna
♦♦♦
SMYRIL Line, sem gerir út ferjuna
Norrænu, hefur sagt upp sjö úr
áhöfninni. Um er að ræða fjóra vél-
stjóra og þrjá aðra starfsmenn, að
því er fram kemur í blaðinu Nord-
lys.
Hendrik Egholm, sölu- og mark-
aðsstjóri Smyril-Line, sagði við
Morgunblaðið, að eftir taprekstur
síðustu ára þyrfti að skera niður
ýmsan kostnað. Sjö manns hefði
verið sagt upp en í áhöfninni eru nú
rúmlega 50 manns.
Egholm sagði að á tímabilinu apr-
íl til september yrði fjölgað í áhöfn-
inni á ný, enda væri það mesti anna-
tíminn í rekstrinum. Enginn
Íslendingur væri nú í áhöfninni en
ávallt væru nokkrir ráðnir á sumrin.
Hann sagði stjórnendur Smyril-
Line vera bjartsýna á að Norræna
myndi skila hagnaði í ár. Mikil
aukning hefði orðið á sölu farmiða,
sér í lagi til Íslands. Íslensk ferða-
þjónusta mætti eiga von á mun fleiri
ferðamönnum með Norrænu í ár en
á síðasta ári.
Uppsagnir
á Norrænu
en aukin sala
til Íslands
♦♦♦
JEPPABIFREIÐ var ekið á hross
rétt sunnan við Hvammstanga í
gærmorgun. Samkvæmt upplýsing-
um frá lögreglunni á Blönduósi
hljóp hrossið fyrir bílinn í rökkrinu
og var árekstur þeirra býsna harð-
ur og aðkoman slæm. Þurfti að af-
lífa hrossið. Töluverðar skemmdir
urðu á bifreiðinni en ökumann
hennar sakaði ekki.
Hross hljóp fyrir bíl