Morgunblaðið - 04.02.2006, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 11
FRÉTTIR
HANNES G. Sigurðsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, segir á heimasíðu samtakanna
að óformlegt en almennt samkomulag
um að opinberir að-
ilar geri ekki kjara-
samninga í aðdrag-
anda kosninga hafi
verið rofið með
kjarasamningi
Reykjavíkurborgar
við Eflingu og
Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar
í byrjun desember.
Hannes segir að
á árunum og áratugunum fyrir árið
1990 hafi það gerst ítrekað að kjara-
samningar stéttarfélaga við ríki eða
sveitarfélög væru gerðir í aðdrag-
anda kosninga til þings eða sveitar-
stjórna. Kjarasamningar sem gerðir
hafi verið við þessar aðstæður hafi
gjarnan falið í sér háar prósentutölur
og valdið uppnámi á vinnumarkaðn-
um. Kjarasamningar við slíkar að-
stæður hafi líklega síðast verið gerðir
vorið 1987 í aðdraganda alþingiskosn-
inga.
„Þetta mynstur breyttist eftir þjóð-
arsáttina 1990 og hefur það verið
þroskamerki á íslensku samfélagi að
almennt samkomulag hefur ríkt um
að beita ekki kjarasamningum í póli-
tískum tilgangi fyrir einstaka fram-
bjóðendur eða stjórnmálaflokka. Til
þess væru of miklir grundvallarhags-
munir í húfi. Þetta óformlega sam-
komulag var rofið með kjarasamningi
Reykjavíkurborgar við Eflingu og
Starfsmannafélag Reykjavíkurborg-
ar í byrjun desember 2005. Þá var
undirritaður verðbólgusamningur
með gamla laginu með 25–30% kostn-
aðarhækkun á þremur árum. Kjara-
samningarnir fengu nánast rúss-
neska kosningu í stéttarfélögunum og
borgarstjórinn bætti stöðu sína gagn-
vart keppinautunum í prófkjörsbar-
áttunni,“ segir Hannes.
Hann segir ljóst að flest sveitar-
félög verði að slá lán fyrir öllum þeim
launahækkunum sem nú fylgi í kjöl-
farið. Mörg minni sveitarfélög standi
afar tæpt og geti engan veginn staðið
undir þessum kostnaðarhækkunum
og því megi búast við að sveitarfélög-
in biðli til ríkisins um fjármuni, nýja
tekjustofna, til að geta staðið undir
launahækkunum til starfsmanna.
Búið að rjúfa samkomulag um
að gera ekki kosningasamninga
Hannes G.
Sigurðsson
STEINUNN Valdís Óskarsdóttir,
borgastjóri í Reykjavík, gaf í gær
hestamannafélaginu Fáki formlegt
fyrirheit um úthlutun bygging-
arréttar fyrir hesthús og aðra að-
stöðu fyrir hestamenn í Almannadal,
á nýju svæði vestan Fjárborgar.
„Þetta er mjög jákvætt skref sem
þarna er verið að stíga, því þessi út-
hlutun hefur gríðarlega mikla þýð-
ingu fyrir okkur,“ segir Bjarni
Finnsson, formaður Fáks, og bendir
á að mörg ár séu síðan félagið hafi
síðast fengið úthlutað lóðum. Að
sögn Bjarna hefur verið mikil eft-
irspurn eftir lóðum, en skorturinn á
lóðum fyrir félagsmenn hafi staðið
félagsstarfi Fáks fyrir þrifum.
Aðspurður segir Bjarni aðstöðuna
í Almannadal, sem er beint norður af
Rauðhólum, vera nýtt svæði sem
bætist við fyrri aðstöðu Fáks. „Í
þessum fyrsta áfanga í Almannadal
verður rými fyrir allt að 1.600 hesta,
en í beinu framhaldi af dalnum er
stærra svæði til úthlutunar síðar í
svonefndum Trippadal, norðan Al-
mannadals. Þannig að þarna er
mjög stórt svæði hestamanna fyr-
irhugað í framtíðinni,“ segir Bjarni
og tekur fram að staðsetningin sé af-
ar góð þar sem góðar reiðleiðir liggi
í allar áttir.
Aðspurður hvenær fyrstu hest-
húsin muni rísa segir Bjarni að fyrsti
hluti svæðisins, sem sé um þriðj-
ungur af þessum fyrsta áfanga, sé
nú þegar tilbúinn til úthlutunar þar
sem það sé þegar byggingarhæft.
„Þannig að fyrstu hesthúsin munu
örugglega rísa þarna strax í sumar.“
Aðspurður segir Bjarni ljóst að
skilningur sé hjá borginni fyrir mik-
ilvægi hestamennskunnar sem
íþróttagreinar og að henni sé vel
sinnt. „Vonandi verður þetta já-
kvæða framtak borgarinnar þess
valdandi að nægt lóðaframboð verði
á Reykjavíkursvæðinu fyrir hesta-
menn, svo lóðir undir hesthús verði
ekki óheyrilega dýrar, því hesta-
mennska má ekki verða fárra
manna sport, þ.e. íþrótt hinna efna-
meiri,“ segir Bjarni.
Morgunblaðið/Kristinn
Bjarni Finnsson, formaður Fáks, var kampakátur eftir að Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri hafði staðfest
við hann að borgin ætlaði að úthluta svæði undir hesthús. Með Steinunni er Kristrún Vala Ólafsdóttir, dóttir hennar.
Jákvætt skref fyrir hestamenn
Fáðu fréttirnar
sendar
í símann þinn
VALGAR‹SSON
KJARTAN
3sæti
Prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík
Samfelldur skóli
P
B
ár
a
Lj
ós
m
yn
da
ri
H
öd
di
B
om
ba
D
www.joiogfelagar.is
OPIÐ HÚS MILLI 16 & 18
LAUGARDAGINN 4. FEBRÚAR Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG 8
JÓI & FÉLAGAR 18 ÁRA
Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG (10 ÁRA)
10 ÁRA Á ÍSLANDI
SIMBI 45 ÁRA
VELKOMIN/N