Morgunblaðið - 04.02.2006, Page 20
20 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENTÚ
TS
A
LA
afsláttur
af völdum
hlýjum,
mjúkum
og góðum
vörum
Enn
meiri
verð-
lækkun
40-50%
ANDERS Fogh Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur, ræddi í
gær við sendiherra múslímalanda í
Kaupmannahöfn til að reyna að
mýkja reiði múslíma er hafa mót-
mælt skopteikningum sem birtust
fyrst í danska dagblaðinu Jyllands-
Posten fyrir fjórum mánuðum.
Sendiherra Egyptalands sagði eftir
fundinn að hann dygði ekki til að
lægja öldurnar og Danir þyrftu að
gera meira til að „sefa allan múslíma-
heiminn“.
76 sendiherrar þáðu boð danska
forsætisráðherrans um að hlýða á út-
skýringar hans á afstöðu stjórnarinn-
ar til málsins. Fogh Rasmussen full-
vissaði sendiherrana um að dönsk
stjórnvöld bæru fulla virðingu fyrir
íslam. „Danska stjórnin getur þó
aldrei beðist afsökunar fyrir hönd
frjáls og óháðs dagblaðs,“ sagði Fogh
Rasmussen eftir um klukkustundar
fund með sendiherrunum.
„Við biðjumst ekki afsökunar en
það er mikilvægt fyrir okkur að
leggja áherslu á að við erum samfélag
sem styður gagnkvæma virðingu og
umburðarlyndi,“ hafði Jyllands-Post-
en eftir Per Stig Møller, utanríkis-
ráðherra Danmerkur.
Sendiherra Egyptalands, Mona
Omar Attia, sagði að þeir sem mót-
mælt hafa teikningunum yrðu ekki
ánægðir fyrr en Jyllands-Posten gæfi
út „skýra afsökunarbeiðni“. Hún
kvaðst því ætla að beita sér fyrir því
að múslímalöndin héldu áfram að
mótmæla teikningunum. „Ég hef allt-
af skilið afstöðu dönsku stjórnarinnar
en hún ætti að minnsta kosti að
hvetja blaðið til að biðjast afsökunar
og leiða málið til lykta í þágu dönsku
þjóðarinnar.“
Fogh Rasmussen hafði áður synjað
beiðni sendiherra ellefu múslíma-
landa um fund til að ræða skopteikn-
ingarnar af Múhameð spámanni.
Danska matvörufyrirtækið Arla
tilkynnti í gær að það hygðist segja
upp 125 starfsmönnum verksmiðja í
Danmörku vegna minni útflutnings
til Mið-Austurlanda þar sem múslím-
ar hafa sniðgengið danskar vörur
vegna deilunnar.
Fogh Rasmussen sagði að mikil-
vægara væri að standa vörð um tján-
ingarfrelsið en að verja viðskipta-
hagsmuni Danmerkur.
Blendin viðbrögð við viðtali
Arabíska fréttasjónvarpið Al-Ar-
abiya sýndi viðtal við danska for-
sætisráðherrann í fyrrakvöld og
hann sagði að sér þætti það mjög leitt
að teikningarnar særðu trúarvitund
múslíma. „Ég get sagt ykkur að
danska stjórnin hefur miklar áhyggj-
ur af því sem er að gerast vegna þess
að í Danmörku er hefð fyrir friðsam-
legu samstarfi – og opnum tengslum
– við múslímaheiminn og okkur er
mjög umhugað um að framhald verði
á því,“ sagði Fogh Rasmussen meðal
annars í viðtalinu.
Áætlað er að 50 milljónir manna
hafi hlýtt á orð forsætisráðherrans og
viðbrögð þeirra voru mjög blendin,
að sögn fréttavefjar danska ríkisút-
varpsins. Sumir sögðu að svör ráð-
herrans væru ófullnægjandi vegna
þess að hann hefði ekki beðið músl-
íma afsökunar en aðrir sögðu að hann
hefði komið vel fyrir og arabar gætu
sætt sig við útskýringar hans.
Réðust inn í danskt sendiráð
Efnt var til mótmæla gegn Dan-
mörku víða í löndum múslíma eftir
föstudagsbænir í gær. Um hundrað
félagar í róttækri íslamskri hreyfingu
í Indónesíu réðust inn í danska sendi-
ráðið í Jakarta og hrópuðu vígorð
gegn Dönum. Öryggisverðir vísuðu
hópnum út og ekki kom til átaka.
Íslamskur samfélagsvettvangur,
bandalag tuga íslamskra hreyfinga í
Indónesíu, skoraði á ríkisstjórn Dan-
merkur að „biðja múslíma úti um alla
heim afsökunar og dæma höfund
skopmyndanna til dauða ásamt öllum
sem vinna með honum“.
Voru efins um teikningarnar
Sænska dagblaðið Dagens Nyhet-
er birti í gær viðtal við fjóra af tólf
teiknurum sem Jyllands-Posten fékk
til að teikna myndirnar af Múhameð
spámanni þar sem blaðið taldi að fjöl-
miðlar iðkuðu sjálfsritskoðun þegar
þeir fjölluðu um íslam. Teiknararnir
sögðust hafa verið efins um hvort
þeir ættu að verða við beiðninni en
ákveðið að slá til í nafni tjáningar-
frelsis.
„Mér fannst ég vera í úlfakreppu,“
sagði einn teiknaranna. „Ef ég segði
nei væri ég gunga sem stuðlaði að
sjálfsritskoðun. Ef ég segði já yrði ég
að ábyrgðarlausum manni sem
breiddi út hatursáróður um íslam.“
„Ég reiddist reyndar þegar ég
fékk bréfið [frá Jyllands-Posten],“
sagði annar myndlistarmannanna. „Í
fyrstu vildi ég ekki taka þátt í þessu,
en síðan ræddi ég það við nokkra vini
mína frá Mið-Austurlöndum og þeir
töldu að ég ætti að gera þetta.“
Teiknararnir voru þó gagnrýnir á
Jyllands-Posten og létu í ljósi efa-
semdir um markmið blaðsins með
umfjölluninni. „Pólitísk afstaða
blaðsins er hættuleg,“ sagði einn
teiknaranna. „Þetta er hópur ögrandi
afturhaldsseggja.“
Nokkrum teiknaranna hafa borist
morðhótanir og lögreglan hefur heit-
ið að veita þeim öllum vernd allan sól-
arhringinn, að sögn Dagens Nyheter.
Ósáttir við viðbrögð Dana
og segja þau ófullnægjandi
Anders Fogh
Rasmussen efndi
til fundar með
sendiherrum
múslímalanda
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
AP
Indónesískir múslímar kveikja í fána Danmerkur fyrir utan sendiráð landsins í Jakarta til að mótmæla skopteikn-
ingum af Múhameð spámanni sem birtar voru í danska dagblaðinu Jyllands-Posten.
Kandahar. AFP. | Talið er að tuttugu og þrír hafi
fallið í bardögum milli liðsmanna afganska hers-
ins og talibana í Helmand-héraði í suðurhluta
Afganistans í gær. Þetta eru hörðustu bardagar
milli afganska hersins og talibana í tvö ár.
Amir Mohammad Akhundzada, aðstoðarhér-
aðsstjóri í Helmand, sagði tuttugu talibana hafa
fallið og þrjá lögreglumenn. Hann sagði talib-
anana hafa verið á bilinu 200 til 300 og að bar-
dagar stæðu enn yfir. Mohammed Hanif, sem
sagður er talsmaður talibana, staðfesti að enn
væri barist en sagði að aðeins 25 talibanar væru
á vettvangi og aðeins einn talibana lægi í valn-
um.
Bandarískar herflugvélar flugu þegar á vett-
vang þegar fréttist af bardögunum og vörpuðu
þær sprengjum á talibana, að sögn talsmanna
Bandaríkjahers.
1.200 hollenskir hermenn
sendir til Afganistans
Hollenska stjórnin sagði í gær að tólf hundruð
hollenskir hermenn færu senn til Afganistans,
en yfirlýsing Hollendinga kemur degi eftir að
þingið í Haag samþykkti að taka þátt í friðar-
gæslusveitum NATO, ISAF, í Uruzgan-héraðs í
suðurhluta Afganistans. Þykir þetta mikilvægt
skref en NATO-ríkin hafa verið treg í taumi að
taka að sér frekari verkefni í Afganistan, þar
sem uppreisnarmönnum hefur vaxið fiskur um
hrygg að undanförnu.
Harðir bardag-
ar í Afganistan
Washington. AFP, AP. | John
Boehner er nýr leiðtogi Re-
públikanaflokksins í fulltrúa-
deild Bandaríkjaþings en hann
tekur við hlutverki Toms DeLay,
hins umdeilda þingmanns frá
Texas, sem neyddist til að víkja
sl. haust eftir að hann var sak-
aður um spillingu. Valið á
Boehner vekur athygli, hann bar
sigurorð af Roy Blunt í atkvæða-
greiðslu en Blunt var talinn
standa DeLay nærri.
Boehner hlaut 122 atkvæði í
kjörinu og Blunt 109. Boehner
hafði ekki verið álitinn sigur-
stranglegastur í upphafi en þeg-
ar greidd voru atkvæði á milli
þeirra tveggja, Boehners og
Blunts, sem orðið höfðu efstir í
fyrstu umferð skaust hann fram
úr og tryggði sér sigur.
Boehner er 56 ára gamall full-
trúadeildarþingmaður fyrir Ohio
og hefur setið á þingi í sextán ár.
Hann fór fram sem umbótasinni
í þessu kjöri en siðferði var mjög
til umræðu í kosningabaráttunni
meðal repúblikana, bæði vegna
vandræða DeLays og tengsla
Ljóst er að fjöldi þingmanna
hefur þegið fé eða aðra fyrir-
greiðslu af Abramoff og repúbl-
ikanar voru áfram um að þvo af
sér spillingarstimpilinn. En þó
að Boehner hafi reynt að búa til
þá ímynd af sér, að hann væri
umbótasinni, þá er hann í hópi
þeirra þingmanna sem þegið
hafa fé frá Abramoff. Setti þessi
staðreynd svip sinn á viðbrögð
demókrata við kjöri Boehners,
gagnrýndu þeir að repúblikanar
skyldu ekki hafa snúið algerlega
við blaðinu.
Þingkosningar fara fram í
Bandaríkjunum í nóvember og
margir repúblikanar óttast að
flokkur þeirra, sem hefur trygg-
an meirihluta í báðum þingdeild-
um, bæði öldungadeildinni og
fulltrúadeildinni, kunni þar að
tapa þingsætum. Boehner sagði
eftir að sigur hans var ljós að nú
væri mikilvægast að endurvinna
traust milli bandarísku þjóðar-
innar og þingsins. Jafnframt yrði
að halda áfram á þeirri braut að
draga úr áhrifum ríkisvaldsins á
líf Bandaríkjanna.
ýmissa áhrifamanna í flokknum
við Jack Abramoff, þekkts hags-
munavarðar (lobbíista) sem ný-
verið gekkst við ýmsum afbrot-
um og samþykkti að vinna með
ákæruvaldinu í máli sem höfðað
var gegn honum vegna meintra
fjársvika, samsæris og skatta-
svindls.
Nýr leiðtogi repúblikana
kjörinn í fulltrúadeildinni
Reuters
John Boehner ræðir við frétta-
menn í fyrrakvöld.