Morgunblaðið - 04.02.2006, Síða 24

Morgunblaðið - 04.02.2006, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR „ÞETTA var mjög mikil upplifun, stórkostlegt tækifæri fyrir mig,“ segir Helga Alfreðsdóttir, þroska- þjálfi hjá fjölskyldudeild Akureyr- arbæjar, en hún hélt til Bandaríkj- anna í lok nýliðins árs til að kynna sér vetraríþróttir fatlaðra. Þar tók hún þátt í námskeiði hjá Challenge Aspen í Colorado, sjálfseignar- stofnun sem sinnir þörfum fatlaðra fyrir íþróttir og útivist, og dvaldi þar í fjórar vikur. Challenge Aspen er verkefni sem hefur verið í gangi í Snowmass í Colorado í Bandaríkjunum í rúman áratug, og tók raunar við af svipuðu verkefni, „Adaptive Ski Program“, sem hafði verið starfrækt undan- farin 25 ár þar á undan. Nú á næstunni verður boðið upp á kynningu á vetraríþróttum fyrir fatlaða í Hlíðarfjalli við Akureyri og er þess vænst að í kjölfarið verði hægt að byggja upp meira starf en verið hefur á þessum vettvangi áð- ur. Helga hefur lengi starfað við mál- efni fatlaðra og segist hafa sér- stakan áhuga á að auka þátttöku þeirra í íþróttum, þeim til ánægju og heilsubótar. Hún segir margt hafa áunnist í þeim efnum og bendir m.a. á þátttöku fatlaðra í sundmótum, á þeim vettvangi hafi margir úr þeirra hópi unnið stór afrek. Helga bendir á að á Akureyri hafi mikið og gott starf verið unnið hvað varðar vetraríþróttir en þátttaka fatlaðra í þeim geira íþróttanna hafi ekki verið áberandi. Vetraríþrótta- miðstöð Íslands er á Akureyri og eitt meginmarkmið hennar er að efla vetraríþróttir, íþróttafræðslu og útivist og stuðla þannig að heil- brigðu lífi og heilsurækt meðal al- mennings, s.s. skólafólks, fatlaðra og keppnis- og afreksfólks. Þær Helga og Karólína Gunnars- dóttir, verkefnisstjóri í félags- þjónustunni, telja nú tímabært að gefa fötluðum kost á að stunda vetr- aríþróttir, það sé hægt með öflugri kynningu, aðstoð og hvatningu. „Við höfum lengi leitað að tækifær- um til að efla íþróttaiðkun og tóm- stundastarf fatlaðra. Íþróttir eru þeim ekki síður en öðrum nauðsyn- legar, þátttaka í íþróttum eykur sjálfstraust þeirra og þá þurfa þeir jafnt og aðrir á hreyfingu að halda,“ segir Karólína. Hefðbundnar keppn- isíþróttir í hópi henta fötluðum yf- irleitt ekki. „Það hefur ekki gengið upp,“ segir hún. Fyrir nokkrum ár- um var hrundið í framkvæmd af Fjölskyldudeild, í samvinnu við ÍSÍ og Sundfélagið Óðin, sundæfingum fyrir fötluð börn og þeim boðið að taka þátt í sundæfingum á vegum Sundfélagsins Óðins á Akureyri og nú nýlega tóku 13 manns þátt í móti syðra, fóru í sýna fyrstu keppnisferð og voru hæstánægð. Þá munu þátt- takendur úr þeirra hópi halda á Ól- ympíuleika fatlaðra, Special Olymp- ics, sem efnt verður til í haust. „Margir fatlaðir einstaklingar finna fyrir mikilli félagslegri ein- angrun, þeir finna sig ekki. Okkar markmið er að rjúfa félagslega ein- angrun sem er algeng meðal fólks og kennslan í Hlíðarfjalli er liður í því,“ segir Helga. Karólína segir að um 100 fötluð börn og ungmenni séu á Eyjafjarð- arsvæðinu, sem búi heima hjá sér og taki sum hver lítinn þátt fé- lagsstarfi. „Við höfum yfirsýn yfir þennan hóp, hvernig hann er sam- settur og hverjar þarfirnar eru,“ segir Karólína og vonar að ein- hverjir muni taka því fagnandi að komast á skíði. Í Hlíðarfjalli eru til tæki sem gagnast hreyfihömluðum og var á sínum tíma reynt að mark- aðssetja þau, „en þá var það snjór- inn sem brást vetur eftir vetur,“ seg- ir Helga og bendir á að nú séu nýir tímar, framleiðsla á snjó hafin og því eigi ávallt að vera til staðar snjór í skíðabrekkunum. Helga bendir á að það þurfi ekki allir á flóknum hjálpartækjum að halda, margir fatlaðir, s.s. þroska- heftir, einhverfir og blindir svo dæmi séu tekin, hafi ágæta lík- amlega burði og heilbrigði. „Þeir þurfa einungis einföld hjálpartæki, bambusstangir, skíðastafi, húlla- hopphringi, festingar á skíðin og eitthvað því um líkt,“ segir hún, en hún aðstoðaði m.a. blinda á skíðum úti í Aspen og segir það hafa verið sérkennilega reynslu. „Ég var auð- vitað dauðhrædd og fann til mikillar ábyrgðar, en það var alveg dásam- legt að sjá þetta fólk upplifa frelsið þegar það fann vindinn leika um sig á leiðinni niður brekkurnar.“ Þær Helga og Karólína segja nokkurn tíma taka að byggja upp öfluga skíðaiðkun í hópi fatlaðra og þá þurfi að koma til sögunnar leið- beinendur og aðstoðarmenn sem nú séu ekki á hverju strái. „Úti var mik- ið um sjálfboðaliða í þessu, fólk sem vildi gjarnan láta gott af sér leiða. Þá má vel hugsa sér að byggja upp slíkt kerfi hér heima líka. “ Helga Alfreðsdóttir á námskeiði um vetraríþróttir fatlaðra hjá Challenge Aspen Þátttaka í íþróttum eykur sjálfstraustið Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Helga Alfreðsdóttir, Guðmundur Karl Jónsson, Karólína Gunnarsdóttir og Hörður Finnbogason, en þeir tveir starfa í Hlíðarfjalli þar sem á næstunni verður haldið námskeið í því skyni að efla vetraríþróttir fatlaðra. Þarna aðstoðar Helga 8 ára blinda stúlku í skíðabrekkunni, rennir sér í humátt eftir henni og segir henni til, hvað sé framundan og er tilbúin að rétta hjálparhönd ef á þarf að halda. Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur maggath@mbl.is AKUREYRI Anna gerir heiminn hreinan ANNA Richards lætur ekki deigan síga við að gera hreint í veröldinni. Hún stendur fyrir heilmikilli uppá- komu í dag, laugardag, en kl. 15 opnar hún sýninguna „Alheims- hreingjörningur í 10 ár“. Þetta er verkefni sem hófst árið 2004 og er annað árið af alls 10 sem það mun standa yfir. Raunar hófst Anna árið 1999 við að flytja listaverkið „Hreingjörning“ á mismunandi vegu víðs vegar um heim, byrjaði á vikulegri hreingerningu í miðbæ Akureyrar og var að í heilt ár, mætti með skúringafötuna á hverju föstudagssíðdegi og gerði hreint. Verkefnið þróaðist síðan með þeim hætti að Anna tók að sér að þrífa allan heiminn og nú í boði ýmissa listahátíða. Nokkrir akureyrskir listamenn leggja Önnu lið nú og fremja gjörn- inga á sýningunni. Þar á meðal eru tveir kafarar, Tómas Knútsson og Erlendur Bogason, en sá fyrrnefndi hefur sett sér það markmið að hreinsa hafnir og fjörur landsins á 10 árum. Hann mun kafa niður við Torfunefsbryggju og leita óhrein- inda kl. 12 á hádegi. Erlendur, sem starfar m.a. við að hreinsa Akureyr- arhöfn, kvikmyndar gjörninginn og verða myndirnar sýndar á sýning- unni auk þess sem litskyggnum Er- lendar úr höfninni verður brugðið upp. Þannig geta áhorfendur sjálfir t.d. dæmt um hvort gamalt skips- flak sem er í höfninni flokkast undir óhreinindi eða sögulegar minjar. Þá mun hugvitsmaðurinn Jóhann Friðrik opna vefinn www.cleaning- .is, sem hann hefur hannað sérstak- lega og tileinkar „Alheimshrein- gjörningi í 10 ár“. Anna verður svo með sinn hreingjörning bæði á sjó og landi. Sýning | Ósk Vilhjálmsdóttir opnar sýninguna SCHEIßLAND á Kaffi Karólínu á morgun, laugardaginn 4. febrúar kl. 14. Verkið var unnið fyrir Íslandskynningu í Köln í Þýskar- landi nóvember sl. Gestum gefst tækifæri til að kaupa T-boli sem hún hannaði að þessu tilefni. Sýningin stendur til 3. mars næstkomandi.    LANDIÐ Vestmannaeyjar | Kvenfélagið Líkn í Vestmannaeyjum hélt sinn árlega Nýársfagnað í Akógeshúsinu á dög- unum. Dansleikurinn er einkum ætl- aður eldri borgurum. Þetta gæti orðið síðasti nýársfagnaðurinn og verði það niðurstaðan, lýkur merkum kafla hjá þessu öfluga félagi sem staðið hefur í 80 ár. Drífa Kristjánsdóttir, formaður Líknar, segir að nýársfagnaðir hafi verið barn síns tíma þegar lítið var í boði fyrir eldra fólk í Vestmannaeyj- um. Þess vegna hafi þessi umræða komið upp í félaginu. Skemmta í sjálfboðavinnu „Nú er miklu meira um að vera hjá þessu fólki sem um leið er mun virk- ara í því sem er að gerast. Þátttakan hefur verið í samræmi við það en við eigum eftir að taka endanlega ákvörð- un,“ sagði Drífa og vill hún þakka þeim fjölmörgu sem hafa lagt Líkn- arkonum lið við nýársfagnaðinn í gegnum árin. „Fólk hefur lagt til skemmtiatriði án þess að taka krónu fyrir, Akóges hefur lánað okkur húsið og ekki má gleyma strákunum sem koma og bregða sér í dansinn með konunum.“ Það var engin undantekning í ár. Fé- lagar í Leikfélaginu sýndu atriði úr Sister Act sem frumsýnt verður á næstunni, Védís Guðmundsdóttir lék á flautu, Sædís Magnúsdóttir lék á pí- anó og Lalli lék fyrir dansinum á eftir. Gæti orðið síðasti dansleikurinn Morgunblaðið/Sigurgeir Nýársdansleikur Dansleikurinn sem Líkn hélt fyrir eldri borgara í Vestmannaeyjum gæti verið sá síðasti. Eftir Sigursvein Þórðarson Gert við kirkjuklukk- una í Belgíu Vestmannaeyjar | Aðalkirkjuklukka Landakirkju í Vestmannaeyjum verður send á næstu dögum til við- gerðar hjá málmsteypu í Belgíu. Hljómur kirkjuklukkunnar sem er frá 1743 datt niður í desember og kom þá í ljós að sprunga hafði mynd- ast í henni. Í fyrstu töldu menn að kirkjuklukkan væri ónýt en svo kom í ljós að líklega væri hægt að gera við hana. Samið hefur verið um viðgerðina við málmbræðslu í Belgíu sem jafn- framt er með smiðju í Hollandi. Kristján Björnsson sóknarprestur segir að sprungan í klukkunni verði hreinsuð, hún hituð upp og síðan brætt í sprunguna. Þá segir hann að fyrirtækið hafi boðist til að smíða nýjan kólf í klukkuna, kólf sem hæfði henni en hugsanlega hefði sá gamli ekki hentað. Viðgerðin kostar með flutningi og öllu hundruð þúsunda, líklega upp undir hálfa milljón, eða svipað og ný klukka. Gamla kirkjuklukkan í Landa- kirkju, frá 1617, sem var í aukahlut- verki á meðan sú nýrri virkaði var í aðalhlutverki um jólin. Kristján seg- ir að hún hafi kallað vel því óvenju góð kirkjusókn hafi verið í Landa- kirkju um jól og áramót.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.