Morgunblaðið - 04.02.2006, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 27
MINNSTAÐUR
Opið í dag kl.11-15
Reykjanesbær | Tveir þriðju íbúa
Reykjanesbæjar eru hlynntir því að
reist verði álver við Helguvík en 19%
andvíg.
Hitaveita Suðurnesja fékk IMG
Gallup til að gera könnun á viðhorf-
um íbúa Reykjanesbæjar til áforma
Norðuráls um að reisa álver í Helgu-
vík sem knúið yrði jarðvarmaorku
frá Hitaveitu Suðurnesja.
Fram kemur í niðurstöðunum að
66,5% íbúa Reykjanesbæjar eru ým-
ist mjög hlynnt eða frekar hlynnt ál-
veri í Helguvík. 14,7% kváðust
hvorki hlynnt né andvíg. Frekar eða
mjög andvígir voru 18,8%. Mikill
meirihluti beggja kynja og fólks í öll-
um aldurhópum sagðist fylgjandi ál-
versframkvæmdum.
Stjórnendur Hitaveitu Suðurnesja
líta á þessar niðurstöður sem mik-
ilvægan stuðning í þeirri undirbún-
ingsvinnu sem fyrirtækið vinnur nú
að í samvinnu við Reykjanesbæ og
Norðurál um álver við Helguvík.
„Íbúar í Reykjanesbæ gera sér
greinilega ljóst hve gríðarlegur
styrkur tilkoma álversins yrði fyrir
byggðarlögin hér og að sama skapi
mundi stór hluti þeirrar umhverfis-
vænu orku sem hér verður til nýtast
svæðinu beint,“ segir Júlíus Jónsson,
forstjóri HS, í fréttatilkynningu fyr-
irtækisins um niðurstöður könnun-
arinnar.
Könnunin var gerð 13. til 23. jan-
úar sl. 746 íbúar voru í úrtakinu og
svöruðu 71,3% þeirra.
Tveir þriðju
íbúa hlynnt-
ir álveri í
Helguvík
Reykjanesbær | „Þegar við fréttum
af bókinni fannst okkur þetta kær-
komið tækifæri til að vekja athygli á
þessu vandamáli,“ segir Hjördís
Árnadóttir, félagsmálastjóri
Reykjanesbæjar. Fjölskyldu- og fé-
lagsþjónusta Reykjanesbæjar af-
henti í gær eintök af Fyrstu bókinni
um Sævar til grunnskóla og leik-
skóla bæjarins, bókasafns Reykja-
nesbæjar og Bjartsýnishópsins, sem
er félag aðstandenda ADHD-barna.
Hjördís segir að stór hópur teng-
ist börnum sem hafi verið greind of-
virk og misþroska (ADHD), svo sem
foreldrar, systkini, vinir, kennarar
og skólasystkini. Hún segir að þessi
vandamál komi oft inn á borð hjá
starfsmönnum félagsþjónustunnar
enda eigi börnin oft í tilvistarkreppu
alla sína skólagöngu og lengur.
Hún segir að útkoma Fyrstu bók-
arinnar um Sævar hafi verið gott
tækifæri til að vekja athygli fólks á
því að þetta væri líffræðilegt vanda-
mál, ekki óþekkt, og einnig til að slá
á fordóma í þeirra garð með því að
koma bókinni sem víðast á framfæri.
Afhenda bók til
að slá á fordóma
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Gluggað í bókina Áhugasamir starfsmenn leikskóla skoða bókina, fv. Ár-
dís Hrönn Jónsdóttir, Gerður Pétursdóttir og G. Ágústa Björgvinsdóttir.
Reykjanesbær | Alls komu 1424
börn í sundlaugar Reykjanesbæjar í
janúarmánuði en þau voru 589 í jan-
úar í fyrra. Fjöldi sundgesta á þess-
um aldri hefur því meira en tvöfald-
ast milli ára og eru þá ekki taldir
með gestir vegna sundmóta, sundæf-
inga og skólasunds. Þessa fjölgun
má rekja til þess að börn á grunn-
skólaaldri fá nú frítt í sund.
Þrátt fyrir það að gjald grunn-
skólabarna hafi verið fellt niður um
áramót hafa tekjur almenningslaug-
anna aukist á milli ára um þriðjung,
eða alls liðlega 153 þúsund krónur,
enda hafa fullorðnir sótt sundið
meira en áður. Á vef Reykjanesbæj-
ar kemur fram hjá Jóni Jóhannssyni,
forstöðumanni sundmiðstöðvarinn-
ar, að skýring á auknum tekjum geti
hugsanlega verið sú að börnin sem fá
frítt í sund séu að taka með sér eldri
systkini og foreldra.
Auknar
tekjur þótt
börnin fái
frítt
SUÐURNES
Fimm ára Krókur | Heilsu-
leikskólinn Krókur í Grindavík er
fimm ára um þessar mundir. Af því
tilefni verður opið hús í leikskól-
anum í dag, laugardag, kl. 14 til 16.
Sýning verður á verkum barnanna,
leikefni, námsgögnum og ljós-
myndum frá opnun skólans. Form-
leg athöfn verður kl. 15 þegar ný
heimasíða leikskólans verður opnuð.
♦♦♦
♦♦♦
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni