Morgunblaðið - 04.02.2006, Page 34
34 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Í DAG fer fram prófkjör okkar
sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi.
Okkar verkefni verður að halda
áfram að viðhalda þeim stöðugleika
sem hefur einkennt stjórn sjálfstæð-
ismanna undanfarna áratugi. Þar
stendur hæst ábyrg fjármálastjórn
og góð þjónusta.
Næsta kjörtímabil verður eitt
mesta framkvæmdar-
tímabil í sögu Seltjarn-
arnesbæjar. Lokið
verður við langþráðan
gervigrasvöll ásamt til-
heyrandi aðstöðu.
Sundlaugin verður nán-
ast endurnýjuð frá
grunni og bygging lík-
amsræktarstöðvar er í
deiglunni. Til stendur
að reisa hjúkr-
unarheimili á svokall-
aðri Lýsislóð, í sam-
vinnu við
Reykjavíkurborg.
Skipulagsmál hafa verið í brenni-
depli. Ég mun leggja mitt lóð á vog-
arskálarnar við að ljúka skipulagi á
Hrólfsskálamel, væntanlegri íbúð-
arbyggð á Bygggörðum og nýrri
ásýnd að miðbæjarkjarna, í sátt og
samlyndi við íbúa Seltjarnarness.
Ég hef verið einn af þátttakendum
í þeim verkefnum sem Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur tekið sér fyrir
hendur á þessu kjörtímabili sem er að
ljúka og hef jafnframt tekið þátt í
þeirri stefnumótun sem Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur verið að móta til
framtíðar. Ég hef öðlast talsverða
reynslu sem varabæjarfulltrúi,
fulltrúi í skólanefnd og varamaður í
umhverfisnefnd og hyggst nýta mér
það á komandi kjörtímabili. Ég hef
tekið þátt í grasrótarstarfinu innan
flokksins. Ég hef líka verið mjög virk-
ur í foreldrastarfinu,
hvort sem það hefur
verið skólinn, íþrótta-
félagið auk þess hef ég
setið í stjórn Hand-
knattleiksdeildar
Gróttu síðastliðin fjögur
ár og þekki þann rekst-
ur mjög vel. Ég hef lært
heilmikið á þessum síð-
astliðnum fjórum árum
í þessum störfum og er
enn að læra. Mikilvægt
er að sjálfstæðismenn
stilli upp sterkum lista
með fólki sem hefur
reynslu að baki. Ég hef ákveðið að
gefa kost á mér í 4. sæti á lista sjálf-
stæðismanna, sem er baráttusæti,
vegna þess að ég tel að ég sé tilbúinn
til að takast á það verkefni.
Mín helstu stefnumál eru:
Fjármál: Traustur fjárhagur er
undirstaða velsældar og framfara.
Með þetta að leiðarljósi hafa sjálf-
stæðismenn á Seltjarnarnesi getað
haldið úti lágum álögum en að sama
skapi boðið upp á öfluga þjónustu.
Stjórnsýslan: Mikilvægt er að
stjórnsýslan verði opin og gagnsæ.
Skólamál: Lögð verði áhersla á að
koma til móts við hvern nemanda
m.a. með einstaklingsmiðuðu námi og
fjölbreyttum kennsluháttum.
Leitað verði leiða til að gera nám
og kennslu barnanna markvissari í
leikskólunum til að undirbúa þau enn
betur undir grunnskólann. Hafist
verði handa, í áföngum, við að leggja
drög að gjaldfrjálsum leikskóla.
Áfram verði rekið metnaðarfullt
starf í tónlistarskólanum og tengslin
við leik- og grunnskóla verði efld enn
frekar.
Skólamannvirki: Lögð verði
áhersla á að halda áfram endurbótum
á skólamannvirkjum bæjarins. Mötu-
neyti nemenda Valhúsaskóla verði
endurnýjað og stækkað þannig að
hægt sé að bjóða þeim upp á sam-
bærilegar máltíðir og nemendum í
leikskólum og Mýrarhúsaskóla.
Skólalóð Mýrarhúsaskóla verði end-
urhönnuð frá grunni og stækkuð.
Starfsfólk bæjarins: Starfsfólki
bæjarins verði boðið upp á bestu kjör
sem völ er á og umbunað fyrir vel
unnin störf.
Íþrótta- og tómstundamál: Kannað
verði hvort Hvatastyrkjum verði
komið á fyrir börn 6–16 ára. Upp-
byggingu íþróttamannvirkja við Suð-
urströnd verði flýtt ef tækifæri gefst.
Kannað verði hvort hægt sé að
byggja hlaupabraut fyrir fimleikasal-
inn. Markmiðið er að aðstaða til
íþróttaiðkunar verði ávallt með því
besta sem völ er á.
Selið: Leitað verði leiða til að bæta
félagsaðstöðu Selsins. Haldið verði
áfram að efla samvinnu á milli heim-
ila, skóla, Selsins, kirkju, bæjaryf-
irvalda og lögreglu.
Skipulagsmál: Samráð við íbúana
er mjög mikilvægt í þessu sambandi.
Gæta þarf þess að íbúar séu vel upp-
lýstir og komið sé til móts við þarfir
þeirra. Byggt verði af varfærni og
skynsemi.
Samgöngur: Hugsa verður heild-
stætt hvernig leysa megi umferð-
arhnúta í kringum skólana og íþrótta-
miðstöðina. Gert verði átak í að
endurnýja gangstéttir og götur.
Eldri bæjarbúar: Kannað verði
formlega hjá fólki sem er eldra en 60
ára hvaða óskir það hefur um búsetu-
form og þjónustuþörf með framtíð-
arsýn Seltjarnarness að leiðarljósi.
Mikilvægt er að eldri borgarar myndi
sér sjálfir skoðun á þeim málum sem
varða þá mest. Lögð verði áhersla á
að eldri íbúar geti búið sem lengst á
heimilum sínum með markvissri
umönnun og þjónustu. Lögð verði
áhersla að efla dagvist eldri borgara
enn frekar. Það eiga að vera forrétt-
indi að eldast á Seltjarnarnesi.
Góðir Seltirningar, að lokum þetta
Ég er tilbúinn til að takast á við
þessi verkefni og vona að þið veitið
mér brautargengi með því að velja
mig í 4. sæti í prófkjörinu í dag.
Prófkjör á Seltjarnarnesi
Eftir Lárus B. Lárusson ’Ég er tilbúinn að takastá við þessi verkefni og
vona að þið veitið mér
brautargengi …‘
Lárus B. Lárusson
Höfundur er varabæjarfulltrúi og
býður sig fram í 4. sæti listans í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á
Seltjarnarnesi.
Prófkjör Seltjarnarnesi
TENGLAR
..............................................
www.larusb.is
UPPBYGGILEGAR tómstundir
og áhugamál eru spurning um lífs-
gæði. Áhugamál æskunnar fylgja
mörgum í gegnum líf-
ið og sá tími sem fer í
að sinna þeim veitir
viðkomandi ómælda
ánægju og lífsfyllingu.
Íþrótta- og æskulýðs-
mál eru mér ákaflega
hugleikin enda hef ég
helgað mig þeim
málaflokki í starfi
mínu sem íþrótta-
fulltrúi Kópavogs síð-
astliðin átján ár. Öll-
um er ljóst hversu
miklu máli það skiptir
fyrir íbúa að bæj-
arfélag haldi úti upp-
byggilegu og víðtæku
æskulýðsstarfi. Starf-
ið þarf að vera fjöl-
breytt þannig að sem
flestir finni sér við-
fangefni við hæfi.
Virk þátttaka í
tómstundastarfi er
fyrirbyggjandi. Ung-
lingar sem eiga sér
áhugamál og hafa að-
stöðu til að sinna þeim lenda síður í
svokölluðum áhættuhópum eða
áhættulíferni. Forvarnagildið er því
ótvírætt. Að missa ungling út í
ógæfu er harmleikur sem enginn
vill lenda í. Auk hins mannlega
harmleiks þá er ljóst að kostnaður
samfélagsins er gríðarlegur, kostn-
aður við innlagnir, meðferðir og
annað slíkt skiptir milljónum á
hvern einstakling. Hagnaður sam-
félagsins af æskulýðsstarfi er ótví-
ræður svo ekki sé minnst á þau
lífsgæði sem þau skapa ein-
staklingum.
Fjölbreytileiki er lykilorð, góðar
félagsmiðstöðvar, gott skátafélag,
gott kórastarf, gott æskulýðsstarf á
vegum kirkjunnar, gott íþróttastarf
og starfsemi allra þeirra félaga
sem láta sig málefni æskunnar
varða eru allt mikilvægir hlekkir í
öryggisneti samfélagsins, hinu fyr-
irbyggjandi starfi, liður í því að all-
ir hafi tækifæri til þess að finna sér
þroskandi viðfangsefni við hæfi,
skapi sér lífsgæði.
Af þessum sökum er
því nauðsynlegt að
styrkja og styðja þetta
víðtæka starf eins og
frekast er kostur. Ár-
angurinn verður ekki
aðeins blómlegt mann-
líf, árangurinn verður
jafnframt vel heppnað
forvarnarstarf, starf
sem byggir á að gefa
einstaklingum kost á
að þroskast og vaxa
upp við jákvæðar for-
sendur.
Vel heppnað æsku-
lýðsstarf og góð sam-
vinna við foreldrafélög
í bæjarfélaginu er ávís-
un á árangur í for-
vörnum. Því verður að
leggja aukna áherslu á
starfsemi foreldra-
félaga. Það þarf einnig
að samræma krafta
allra þeirra sem fara
með málefni unglinga.
Með samstilltu átaki
má lyfta grettistaki og vinna af
krafti að velferð okkar ágæta unga
fólks.
Málefni æskunnar þurfum við því
að sjá í víðu samhengi, enginn er
öðrum mikilvægari í þessu spilverki
en saman sköpum við heild sem
gerir það að verkum að uppvaxt-
arskilyrði æskunnar verða eins
ákjósanleg og frekast er kostur.
Okkar hlutverk sem stjórnmála-
manna er að skapa forsendur til
þess að svo megi verða. Fái ég til
þess fulltingi mun ég af fullu afli
beita mér fyrir málefnum unga
fólksins. Æskan er okkar fjár-
sjóður.
Æskan er
okkar fjársjóður
Eftir Jón Júlíusson
Jón Júlíusson
’… það skiptirmiklu máli fyrir
íbúa að bæj-
arfélag haldi úti
uppbyggilegu og
víðtæku æsku-
lýðsstarfi.‘
Höfundur er íþróttafulltrúi Kópavogs
og gefur kost á sér í 1. sæti í prófkjöri
Samfylkingarinnar í Kópavogi.
Prófkjör Kópavogi
Í DESEMBER 2004 sló meiri-
hlutinn í Kópavogi um
sig með því að boða
niðurgreiðslu æfinga-
gjalda fyrir börn í
Kópavogi. Í fyrstu leit
þetta rosalega vel út
og íbúar í Kópavogi
voru mjög ánægðir.
Svo þegar kom í fram-
kvæmd var þetta ekki
eins gott og það
hljómaði í upphafi.
Einungis þeir sem
stunduðu íþróttir
fengu 10.000 króna
niðurgreiðslu á æf-
ingagjöldum í tveimur
greinum. Svo var því
bætt við nú í desem-
ber 2005 að þeir sem
hafa áhuga á skáta-
starfi, ballett og skák
fái líka niðurgreiðslu.
Þannig að allt sem
heitir list er skilið út
undan.
Oft eru það list-
greinarnar sem eru
langdýrastar og því
oft á tíðum einungis
börn efnameiri for-
eldra sem geta stundað tónlist-
arnám. Listgreinar eru dýrari því
oft eru færri þar í hóp eða jafnvel
einkakennsla eins og t.d. í tónlist-
arnámi. Þarna er verið að mismuna
börnum og fjölskyldum um miklar
upphæðir.
Tökum mína fjölskyldu sem
dæmi: Ég á tvö börn,
10 ára stelpu og 12 ára
strák. Við erum mjög
heppin að því leyti að
þau stunda bæði tvær
íþróttagreinar og því
fær mín fjölskylda nið-
urgreiðslu frá bænum
upp á 40.000 krónur,
sem er æðislegt fyrir
okkur. En hvað með
hina, hvers eiga þeir að
gjalda sem ekki eru
með íþróttir á heil-
anum!?
Börn eru með mis-
jöfn áhugamál og það
að barn stundi sitt
áhugamál í tóm-
stundum er langbesta
forvörn sem til er. Því
eiga bæjaryfirvöld að
gera allt sem þau geta
til að sem flest börn
finni sér sitt áhugamál
og hjálpa þeim við að
stunda þau. Ekki taka
eitt áhugasvið út úr og
hampa því. Gerum öll-
um jafnhátt undir
höfði.
Gerum öllum jafn-
hátt undir höfði
Eftir Bjarna Gauk
Þórmundsson
Bjarni Gaukur
Þórmundsson
’Börn eru meðmisjöfn áhuga-
mál og það að
barn stundi sitt
áhugamál í tóm-
stundum er lang-
besta forvörn
sem til er.‘
Höfundur er íþróttakennari og gefur
kost á sér í 3. sæti í prófkjöri Sam-
fylkingarinnar í Kópavogi.
Prófkjör Kópavogi
ÁGÆTI Seltirningur.
Þá er stóra stundin runnin upp. Í
dag velur þú nýja forystusveit Sjálf-
stæðismanna fyrir sveitarstjórn-
arkosningarnar í vor.
Ég hef að undanförnu fundið fyr-
ir mikilli ánægju fólks
í okkar bæjarfélagi
með þá ákvörðun mína
að bjóða mig fram til
forystu í flokki okkar
sjálfstæðismanna á
Seltjarnarnesi.
Ákvörðun mín var tek-
in að mikilli áeggjan
margra og góðra Sel-
tirninga, ákafra sjálf-
stæðismanna, vina og
kunningja. Öllu þessu
fólki þakka ég innilega
fyrir hvatningu og
veittan stuðning.
Nái ég kjöri mun ég standa vörð
um að Seltjarnarnes:
haldi sérkennum sínum með
lágreistri og hlýlegri byggð,
bjóði íbúum sínum, jafnt ung-
um sem öldnum, betra þjónustustig
en gerist í öðrum sveitarfélögum,
nýti þau mörgu tækifæri sem
felast í byggingu gervigrasvalla og
stúku við Valhúsaskóla,
verði áfram það bæjarfélag
sem leggur lægstar
álögur á alla sína
þegna, með sérstakri
áherslu á barna-
fjölskyldur.
Þrátt fyrir sterka
stöðu Sjálfstæðis-
flokksins á Seltjarn-
arnesi er einungis um
eins manns meirihluta
að ræða í bæjarstjórn.
Skjótt geta skipast
veður í stjórnmálum
og því þurfa sjálfstæð-
ismenn að velja sér
forystu sem líkleg er til að auka og
breikka fylgi flokksins og styrkja
stöðu hans enn frekar í bæjarfélag-
inu. Ég treysti mér til þess að ná
þeim markmiðum og hvet þig því til
að mæta á kjörstað í dag styðja mig
í 1. sæti.
Ágæti Seltirningur
Eftir Bjarna Torfa Álfþórsson
Bjarni Torfi Álfþórsson
’Þrátt fyrir sterka stöðuSjálfstæðisflokksins á
Seltjarnarnesi er ein-
ungis um eins manns
meirihluta að ræða í
bæjarstjórn.‘
Höfundur er bæjarfulltrúi og
gefur kost á sér í 1. sæti á lista
sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi.
Prófkjör Seltjarnarnesi
Marteinn Karlsson: „Vegna
óbilgjarnrar gjaldtöku bæjar-
stjórnar Snæfellsbæjar af
okkur smábátaeigendum, þar
sem ekkert tillit er tekið til
þess hvort við megum veiða
10 eða 500 tonn, ákvað ég að
selja bátinn og flytja í burtu.“
Sigríður Halldórsdóttir
skrifar um bækur Lizu Mark-
lund sem lýsa heimilisofbeldi.
Hulda Guðmundsdóttir: „Ég
tel að það liggi ekki nægilega
ljóst fyrir hvernig eða hvort
hinn evangelísk-lútherski
vígsluskilningur fari í bága
við það að gefa saman fólk af
sama kyni …“
Prófkjörsgreinar á mbl.is
www.mbl.is/profkjor
Margrét S. Björnsdóttir
styður Sigrúnu Elsu Smára-
dóttur í prófkjöri Samfylking-
arinnar í Reykjavík.
Ágúst Ólafur Ágústsson
styður Sigrúnu Elsu Smára-
dóttur í prófkjöri Samfylking-
arinnar í Reykjavík.
Guðrún Edda Haraldsdóttir
styður Lárus B. Lárusson í
prófkjör Sjálfstæðisflokksins
á Seltjarnarnesi.
Ingólfur Margeirsson styður
Dag B. Eggertsson í próf-
kjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík.
Gísli Gunnarsson styður
Sigrúnu Elsu Smáradóttur í
prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík.
Guðrún Ögmundsdóttir
styður Sigrúnu Elsu Smára-
dóttur í prófkjöri Samfylking-
arinnar í Reykjavík.
Gunnar Gíslason styður Ás-
gerði Halldórsdóttur í 2. sæt-
ið í prófkjöri sjálfstæðismann
í Seltjarnarnesi.
Þór Whitehead styður Ólaf
Egilsson, sem býður sig fram
i prófkjöri sjálfstæðismanna á
Seltjarnarnesi.
Birgir Dýrfjörð styður Sig-
rúnu Elsu Smáradóttur sem
býður sig fram í 2. til 4 sæti í
prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík
Magnús Helgi Björgvinsson
mælir með Guðríði Arnar-
dóttur í 1. sætið í prófkjöri
Samfylkingarinnar í Kópa-
vogi.
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar