Morgunblaðið - 04.02.2006, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 37
un vinnur
rkjunar í
na neðar-
virkjunar,
afossvirkj-
mnar það
gt væri að
ega stutt-
ur Lands-
inn virkj-
Tungnaá,
ur Lands-
virkjana-
Hólmsá í
rik sagði
m virkjanir
æmt, m.a.
að breyt-
yndi hafa
m og ám.
rkjun hafi
ðvarma á
að rann-
ð Hágöng-
ur hafi hafist fyrir nokkrum árum.
Svæðið sé hins vegar langt frá meg-
inorkuflutningskerfi landsins og því
sé óvíst hvenær nýting þess geti haf-
ist. Friðrik segir að einnig hafi verið
sótt um rannsóknarleyfi á vestan-
verðu Torfajökulssvæðinu, en það
hafi Orkuveita Reykjavíkur einnig
gert.
Enn er langt í land með að vind-
orkuver og sjávarfallavirkjanir geti
keppt við vatnsaflsvirkjanir og jarð-
varmavirkjanir. Vatnsaflið og jarð-
varminn þykja betri kostir fyrir raf-
orkukerfi landsins, enda fallvötn og
jarðhiti stöðugri orkuuppsprettur
en hverfull vindurinn. Vindorka er
því yfirleitt notuð til að hvíla raf-
orkuver sem knúin eru einhvers
konar eldsneyti. Þá er uppsett afl til
rafmagnsframleiðslu til staðar ann-
ars staðar í raforkukerfinu, þótt það
komi logn. Landsvirkjun hefur ekki
skoðað sjávarfallavirkjanir sérstak-
lega upp á síðkastið, en fylgist með
þróun á því sviði.
Alþingi hefur samþykkt breyt-
ingu á lögum um rannsóknir og nýt-
ingu á auðlindum í jörðu. Með laga-
breytingunni er samræmt það
umhverfi sem gildir um virkjun á
vatnsafli og jarðvarma. Áður voru
sett sérstök lög um vatnsaflsvirkj-
anir hverju sinni. Friðrik segir
breytinguna tilkomna vegna þess að
nú sé komin samkeppni á raforkusv-
iði. Hann telur það vera mikilvægt
atriði við lagabreytinguna að nú sé
tryggt að sá sem rannsakar tiltekinn
virkjunarkost fái rannsóknarkostn-
aðinn greiddan þótt annar fái nýt-
ingarleyfið. Enda komi rannsókn-
irnar þeim sem nýtir til góða. Þessi
regla sé eðlileg og hafi t.d. gilt um
olíuvinnslu meðal annarra þjóða. En
þýðir þetta að allt í einu sé kominn
verðmiði á fyrri rannsóknir Lands-
virkjunar á virkjanakostum, sem
e.t.v. var búið að afskrifa í bókhaldi
fyrirtækisins?
Friðrik telur ólíklegt að svo sé.
Hann bendir á að Landsvirkjun hafi
rannsakað marga virkjanakosti í
gegnum tíðina og til þess kostað
verulegum fjármunum. Mikill hluti
þessara rannsókna hafi verið grunn-
rannsóknir. Í samkeppnisumhverfi
sé eðlilegast að hið opinbera stundi
grunnrannsóknir, en orkufyrirtæk-
in rannsaki þá virkjanakosti sem
þeim koma beinlínis við. Friðrik
nefndi til dæmis að Landsvirkjun
hefði stundað miklar rannsóknir á
Austurlandi, sem nú nýttust við
gerð Kárahnjúkavirkjunar. Einnig á
Þjórsársvæðinu og nú við Hágöng-
ur. Ekki hefði verið varið miklum
fjármunum í rannsóknir á Skaftá og
Hólmsá.
Á árum áður var rannsóknakostn-
aður eignfærður hjá Landsvirkjun
og eru sumar eldri rannsóknir enn
taldar til eigna hjá fyrirtækinu en
aðrar hafa verið afskrifaðar. Við
breytingu á bókhaldslögum voru
rannsóknir í auknum mæli gjald-
færðar sem hluti af rekstri fyrirtæk-
isins. Undanfarið hafa fyrst og
fremst verið stundaðar rannsóknir á
gufu- og vatnsafli. Friðrik segir ekki
vitað hvort sú fjárfesting skili sér,
en það komi ekki endanlega í ljós
fyrr en samningar hafi náðst um
orkusölu. Þetta eigi bæði við um
virkjanir á Norðurlandi og í neðri
Þjórsá. Hins vegar sé óvíst að dýrar
rannsóknir á Norðlingaölduveitu
muni nokkurn tíma skila sér.
Aukin stóriðja ekki óraunhæf
Ekki er óraunhæft, með tilliti til
mögulegrar orkuöflunar, að ráðgera
talsvert mikla uppbyggingu stóriðju
á Suðurlandi, að mati Ásgeirs Mar-
geirssonar, framkvæmdastjóra
framleiðslu og sölu hjá Orkuveitu
Reykjavíkur (OR). Hann segir að
þar sé töluverð óbeisluð orka og
miklir möguleikar að halda áfram
orkuöflun í jarðhitanum. Ásgeir seg-
ir menn telja að jarðgufuvirkjanir á
Hellisheiði geti mögulega gefið álíka
mikla raforku og Kárahnjúkavirkj-
un, sem verður langstærsta vatns-
aflsvirkjun landsins. Auk uppbygg-
ingar á Hellisheiði hefur OR sótt
ásamt Hitaveitu Suðurnesja um
sameiginlegt rannsóknaleyfi með
forgangi til nýtingar í Brennisteins-
fjöllum á Reykjanesi, suðvestan við
Bláfjöllin. Svæðið þykir áhugavert,
en hefur ekki verið rannsakað mikið.
Ekki er búið að veita leyfið, að sögn
Ásgeirs. Þá er OR ásamt fleirum að
huga að virkjun Skjálfandafljóts við
Hrafnabjörg.
Samningur við Alcan
OR gerði samkomulag við Alcan í
Straumsvík 29. júní 2005 um að OR
myndi útvega raforku sem samsvar-
aði 200 MW uppsettu afli til áform-
aðrar stækkunar álversins. Sem
kunnugt er stefnir Alcan að því að
stækka álver sitt um 280.000 tonn
svo að ársframleiðsla þar verði sam-
tals 460.000 tonn. Samningaviðræð-
ur OR og Alcan standa enn, að sögn
Ásgeirs. Niðurstaðan er m.a. háð
niðurstöðu viðræðna Alcan við
Landsvirkjun um útvegun orku sem
samsvarar 300 MW uppsettu afli til
sama álvers. Tilkynnt var um upp-
haf þeirra í byrjun síðustu viku. Ás-
geir segir að verði af samningum
OR við Alcan muni raforkunnar
verða aflað með jarðgufuvirkjunum
á Suðvesturlandi.
OR vinnur nú að frekari rann-
sóknum á jarðhitasvæðum á Hellis-
heiði þar sem fyrirtækið hefur rann-
sóknaleyfi með forgangi til nýtingar.
Nú er unnið að mati á umhverfis-
áhrifum vegna borana á Stóra-
Skarðsmýrarfjalli. Ætlunin er að
leiða jarðgufu þaðan að Hellisheið-
arvirkjun við Kolviðarhól og nota
hana til stækkunar á virkjuninni,
sem verður gangsett næsta haust.
Hellisheiði og Kárahnjúkar
Á þessu ári ætlar OR að rannsaka
tvö ný svæði á Hellisheiði til viðbót-
ar svæðinu ofan við Kolviðarhól.
Annars vegar Hverahlíð við rætur
Skálafells, sem er sunnan þjóðveg-
arins yfir Hellisheiði. Hins vegar á
Ölkelduhálsi norðan við Hveragerði.
„Við erum að færa okkur austar á
heiðina,“ sagði Ásgeir. Til að nýta
jarðhitann í Hverahlíð og á Ölkeldu-
hálsi verður að reisa nýjar virkjanir
þar. Ekki er hægt að fullyrða um
hve mikla orku er hægt að virkja
þarna, fyrr en að rannsóknum lokn-
um, en það er hægt að geta sér til
um það með nokkurri vissu.
„Við erum að gera okkur vænt-
ingar um að Hellisheiðarsvæðið
standi undir 600–800 MW raforku-
framleiðslu og varmavinnslu að
auki. Ég er að tala um jafngildi
Kárahnjúkavirkjunar í raforku og
heita vatnið til viðbótar. Þetta er
ekkert grín,“ sagði Ásgeir. Hann
sagði áætlanir gera ráð fyrir því að
þörf verði fyrir aukið heitt vatn til
höfuðborgarsvæðisins árið 2009. Þá
þarf OR að vera búin að byggja
varmastöð við Kolviðarhól og leggja
heitavatnslögn til byggða. Lögnin
verður niðurgrafin og því ekki til
lýta í landslaginu.
Í fyrra bauð OR út „stærsta bor-
verkefni Íslandssögunnar“ sem inni-
fól boranir á Stóra-Skarðsmýrar-
fjalli og rannsóknir á nýju
svæðunum tveimur á Hellisheiði.
Jarðboranir hf. áttu lægsta boð í
verkið, um sjö milljarða króna. Enn
er verið að bora samkvæmt eldri
samningi en vinna við stóra borverk-
efnið hefst í vor. Ásgeir sagði að bor-
holurnar yrðu flestar um tveggja
km djúpar.
Virkjun í
Skjálfandafljóti
Auk þess að vera framkvæmda-
stjóri hjá OR er Ásgeir einnig
stjórnarformaður Hrafnabjarga-
virkjunar hf. Félagið var stofnað 20.
ágúst 2004 til að undirbúa nýtingu
vatnsafls í Skjálfandafljóti til raf-
orkuframleiðslu með sérstaka
áherslu á Hrafnabjargavirkjun.
Eigendur félagsins eru OR (60%),
Þingeyjarsveit (2,5%), Orkuveita
Húsavíkur (18,75%) og Norðurorka
á Akureyri (18,75%). Hugmyndin er
að byggja 90 MW virkjun við
Hrafnabjörg en áætlaður kostnaður
við slíka framkvæmd er 12–13 millj-
arðar króna. Stíflan og Hrafna-
bjargalón, allt að 27 km2 uppistöðu-
lón, yrði töluvert fyrir ofan byggð en
stöðvarhúsið nálægt Mýri í Bárðar-
dal.
Ásgeir sagði að Hrafnabjarga-
virkjun hefði verið í biðstöðu meðan
beðið var niðurstöðu Alþingis um
breytingu á lögum um rannsóknir
og nýtingu á auðlindum í jörðu. Ný-
samþykkt lög hefðu opnað á að veitt
yrði rannsóknaleyfi með forgangi til
nýtingar á vatnsafli líkt og gilt hefur
um jarðvarma. Ásgeir taldi að með
þessari breytingu legðu menn frek-
ar fjármuni í rannsóknavinnu og
annan kostnað við undirbúning
vatnsaflsvirkjana. Þeir ættu þá von
um að geta endurheimt þann kostn-
að ef sótt yrði um virkjunarleyfi. Áð-
ur hefði Landsvirkjun verið ein um
hituna, en með samkeppni í raforku-
framleiðslu gætu fleiri en eitt orku-
fyrirtæki verið að skoða sama virkj-
unarkost. „Maður fer ekki í allar
þær rannsóknir sem þarf til að upp-
fylla kröfur um virkjunarleyfi, nema
hafa eitthvað tryggt í höndunum,“
sagði Ásgeir. Í rammaáætlun um
nýtingu vatnsafls og jarðvarma er
gerð grein fyrir grunnrannsóknum
sem gerðar hafa verið á ýmsum
virkjunarkostum og segir Ásgeir
gert ráð fyrir því að sá sem fái virkj-
analeyfi muni greiða fyrir þær upp-
lýsingar.
Kraftur í Suðurnesjum
Hitaveita Suðurnesja hf. (HS)
framleiðir raforku með jarðgufu-
virkjunum, auk þess að reka hita-
veitur og afla fersks vatns fyrir íbúa
Suðurnesja og Vestmannaeyja.
Einnig rekur fyrirtækið hitaveitur í
Hafnarfirði, á Álftanesi, í hluta
Garðabæjar og á Árborgarsvæðinu.
Þá selur það jarðgufu til iðnaðar. Að
sögn Friðriks Friðrikssonar, for-
stöðumanns orku- og framleiðslu-
sviðs HS, er fyrirtækið nú með 45
MW uppsett afl til raforkufram-
leiðslu í Svartsengi og að reisa nýtt
100 MW raforkuver á Reykjanesi,
Reykjanesvirkjun. Þar verða tvær
50 MW aflvélar og stefnt er að því að
virkjunin fari í gang 1. maí næst-
komandi. Búið er að semja um sölu á
rúmlega 96 MW frá Reykjanesvirkj-
un til Norðuráls á Grundartanga.
Unnið er að stækkun raforku-
versins í Svartsengi og stefnt að því
að bæta við 30 MW í lok árs 2007
þannig að þar verður uppsett afl 75
MW. Í framhaldi af því er ætlunin að
stækka Reykjanesvirkjun um 50–80
MW ef næg orka finnst. Um 30 MW
af þeim fengjust með betri nýtingu
þeirrar orku sem tekin er upp úr
svæðinu. Vinna við þá stækkun gæti
hafist 2008 og telur Friðrik að fram-
kvæmdir við stækkunina þurfi ekki
að taka langan tíma. Nú er búið að
afla nægrar gufu fyrir 100 MW
virkjunina sem verður gangsett í vor
og ýmis búnaður fyrir stækkunina
er fyrir hendi. Þó þarf að fjölga bor-
holum fyrir stækkunina.
„Við þurfum að læra betur á
svæðið, því efnafræðin er svolítið
flókin í gufunni og við þurfum að afla
okkur meiri reynslu áður en hægt er
að ákveða hvað uppbyggingin verð-
ur hröð,“ sagði Friðrik. Gufan á
Reykjanesi inniheldur fulla seltu
sjávar en gufan í Svartsengi 2⁄3 af
seltu sjávar. Þetta veldur útfelling-
um í vélbúnaðinum og segir Friðrik
að búið sé að ná tökum á útfelling-
unum í Svartsengi, en beita þurfi
öðrum ráðum í Reykjanesvirkjun.
Ný svæði í skoðun
Hitaveita Suðurnesja hf. hyggst
færa út kvíarnar og hefur sótt um
rannsóknaleyfi á nýjum svæðum.
Fyrirtækið er búið að bora eina til-
raunaholu við Trölladyngju og ætlar
að rannsaka svæðið betur með því
að bora aðra rannsóknaholu á þessu
ári. Friðrik sagði að virkjanafram-
kvæmdir við Trölladyngju hæfust
væntanlega um leið og búið væri að
rannsaka svæðið, meta afkastagetu
þess og afla tilskilinna leyfa, en
virkjunin mun væntanlega tengjast
byggingu álvers í Helguvík. Áform-
að er að setja þar upp 100 MW virkj-
un. Þá hefur HS hf. sótt um rann-
sóknaleyfi á Krýsuvíkursvæðinu.
Þar er líklega hægt að virkja á
tveimur til þremur svæðum, í Sel-
túni, Austurengjum og Sandfelli.
Fáist leyfi til rannsókna og nýtingar
þar taldi Friðrik að rafmagnið færi
væntanlega til fyrirhugaðs álvers
Norðuráls í Helguvík. Einnig hafa
HS hf. og Orkuveita Reykjavíkur
sótt sameiginlega um rannsókna-
leyfi í Brennisteinsfjöllum.
Friðrik benti á að þrátt fyrir að
rannsóknaleyfi fengjust þyrftu fyr-
irhugaðar virkjanaframkvæmdir
einnig að gangast undir mat á um-
hverfisáhrifum. Engin trygging
væri fyrir því að fallist yrði á um-
hverfisáhrif, eins og þau eru metin,
og framkvæmdin samþykkt, þrátt
fyrir að rannsóknir hefðu lofað góðu.
Þá þyrfti að afla starfsleyfis fyrir
hverja virkjun.
Ef fyrirhugað álver í Helguvík á
að framleiða 250.000 tonn á ári þarf
raforkuver með um 450 MW uppsett
afl til að útvega því orku, að sögn
Friðriks. „Við erum að tala um að
verða tilbúnir í einhvern byrjunar-
áfanga, t.d. ef menn eru til í að byrja
með 90.000 tonna álver og byggja
þetta í tveimur áföngum. Við verð-
um aldrei tilbúnir með allar virkj-
anir sem við höfum áformað á
Krýsuvíkursvæðinu árið 2010. Það
er ljóst. En ef allt gengur upp gætu
Trölladyngja og stækkun á Reykja-
nesi komið inn á þeim tíma.“
Djúpboranir
eru framtíðarsýn
Friðrik sagði að gera þyrfti ítar-
legar rannsóknir áður en ákveðið
væri að virkja. Þótt jarðhiti væri
nægur á svæðinu þyrfti einnig næg-
an vökva til að leiða varmann úr iðr-
um jarðar upp á yfirborðið. Yfirleitt
er borað 2–3 km niður í jörðina og
jafnvel dýpra á Reykjanesi. Svo-
nefndar djúpboranir eru enn á rann-
sóknastigi og mjög tæknilega flókið
viðfangsefni, að sögn Friðriks. Gríð-
armikill hiti og þrýstingur, ásamt
ýmsum efnasamböndum í iðrum
jarðar, gera verkefnið erfitt úr-
lausnar. Við svo erfiðar aðstæður
þurfa bæði borar og fóðringar í hol-
um að vera úr eðalefnum. Friðrik
sagði að ef menn næðu tökum á því
að bora svo djúpt myndi afl hverrar
holu tífaldast frá því sem nú er. Bor-
hola sem nú gefur 10 MW afl yrði þá
um 100 MW.
r í raforkuöflun
@ !0 ?
@
@
A ? 4
B C ! = ' - $ 'M
' - $ 2 P1
? 0
:
@ 3 0
, #$%
&'
+,-
* ./
!
"
#$
"
gudni@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
um verði nokkrar stórar virkjanir byggðar hér á landi.