Morgunblaðið - 04.02.2006, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 39
FRÉTTIR
VEGNA umfjöllunar íslenskra fjöl-
miðla í kjölfar dómsúrskurðar um
skipun í embætti sendiráðsprests í
London, samþykkti safnaðarnefnd
íslenska safnaðarins í London eft-
irfarandi yfirlýsingu á fundi sínum
31. janúar síðastliðinn.
„Við viljum lýsa því yfir að við telj-
um að sú ákvörðun að velja séra Sig-
urð Arnarson í embætti sendiráðs-
prests hafi verið rétt og í samræmi
við vilja og þarfir safnaðarins. Meðal
safnaðarfólks ríkir mikil ánægja
með störf séra Sigurðar. Við lögðum
ríka áherslu á það á sínum tíma að
þjónandi prestur hér í London hefði
sérmenntun í sálgæslu og færðum
rök fyrir því, enda var starfið aug-
lýst undir þeim formerkjum sérstak-
lega. Söfnuðurinn eða fulltrúar hans
hafði síðan hvorki tillögu- né ákvörð-
unarrétt um ráðningu í embættið
eins og tíðkast við ráðningu presta í
prestsembætti á Íslandi.
Við erum þakklát biskupi fyrir all-
an hans velvilja og stuðning við starf
okkar hér og höfum hvergi í máls-
meðferðinni séð neitt sem bendir til
þess að vensl milli biskups og prests-
ins okkar hafi haft áhrif á ráðningu
hans í starfið. Þvert á móti teljum
við að biskup hafi lagt sig í líma við
að koma hvergi nálægt þessari ráðn-
ingu. Hins vegar mislíkar okkur
mjög að sjá varla nafn séra Sigurðar
svo nefnt í fjölmiðlum að ekki fylgi
viðskeytið ,,tengdasonur biskups“
þar á eftir. Við teljum að sr. Sig-
urður eigi ekki að njóta fjölskyldu-
tengsla sinna í starfi en hann á ekki
að þurfa að gjalda þeirra heldur.
Það eru sjálfsögð mannréttindi að
leita réttar síns ef fólk telur að á sér
hafi verið brotið. Hins vegar er mið-
ur að það skuli gert með því að lítils-
virða störf og menntun annarra ein-
staklinga.
Við viljum ítreka enn og aftur
ánægju íslenska safnaðarins með
störf séra Sigurðar Arnarsonar og
þakklæti okkar fyrir að fá að hafa
hann hér hjá okkur sem starfandi
prest.“
Safnaðarnefnd íslenska safnaðar-
ins í London skipa Guðrún Jensen
formaður, Björg Þórhallsdóttir
varaformaður, Steindóra Gunn-
laugsdóttir ritari, Andrew Cauthery
gjaldkeri, Erla Kiernan meðstjórn-
andi, Björg Árnadóttir varamaður,
Ragna Erwin varamaður, Jón Gunn-
ar Jónsson varamaður, Pétur Ein-
arsson varamaður og Guðrún Eyj-
ólfsdóttir varamaður.
Greinargerð safnaðarnefndar
Safnaðarnefnd íslenska safnaðar-
ins í London sendi Morgunblaðinu
einnig greinargerð í tilefni af stefnu
sr. Sigríðar Guðmarsdóttur gegn
biskupi Íslands.
„Vorið 2003 komum við í Safnað-
arnefnd íslenska safnaðarins í Lond-
on saman til að ræða væntanlega
ráðningu safnaðarprests, þar sem
sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson hafði
verið kjörinn vígslubiskup að Hólum
í Hjaltadal. Safnaðarnefndin hefur
hvorki tillögu- né ákvörðunarrétt
um ráðningu safnaðarprests. Þrátt
fyrir það sá nefndin ástæðu til að
ræða ítarlega þá eiginleika sem nýr
prestur yrði að hafa og þær kröfur
sem gera þyrfti til embættis hans
vegna þeirrar miklu sérstöðu sem
starf safnaðarprestsins felur í sér.
Gerð var þarfagreining og nákvæm
úttekt á því starfi sem við töldum að
prestur þyrfti að rækja meðal ríf-
lega 2.500 Íslendinga, sem búa hér á
Bretlandseyjum, og fer sífellt fjölg-
andi. Þess var farið á leit við Bisk-
upsstofu að tekið yrði tillit til þess-
arar greiningar þegar starfið yrði
auglýst og ráðið yrði í stöðuna. Af
okkar hálfu var lögð sérstök áhersla
á að nýr prestur hefði sérmenntun í
sálgæslu, líkt og fyrirrennari hans,
sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson,
hafði, vegna margvíslegra fé-
lagslegra aðstæðna Íslendinga sem
hér búa.
Í tuttugu ár gegndi sr. Jón Að-
alstein Baldvinsson stöðu safnaðar-
prests í London og byggði upp safn-
aðar- og kórstarf sem hafði mikla og
varanlega þýðingu fyrir Íslendinga
og fjölskyldur þeirra á Bretlandi. Sr.
Jón sinnti störfum sínum hér af ein-
stakri alúð og þegar ljóst var að
hann myndi láta af störfum sýndist
okkur að erfitt gæti reynst að finna
jafn hæfan einstakling til starfsins.
Það hefur þó komið í ljós að arftaki
hans, sr. Sigurður Arnarson, hefur á
skömmum tíma unnið sér almenna
hylli meðal þeirra sem tengjast ís-
lenska söfnuðinum og lagt fram
drjúgan skerf til þess að tryggja
samheldni og samkennd innan hans
með áhuga sínum, heilindum og um-
hyggju. Við teljum að heima á Ís-
landi geri fólk sér ekki almennt
grein fyrir því hversu mikla þýðingu
preststarfið hér í London hefur fyrir
þá tilfinningu að vera Íslendingur,
fyrir þá sem búa við það hlutskipti
að dvelja langdvölum fjarri ættingj-
um og vinum á Íslandi.
Annar umsækjenda um prests-
starfið í London, sr. Sigríður Guð-
marsdóttir, hefur höfðað mál gegn
biskupi Íslands þar sem fullyrt er að
réttum formreglum við skipun í
embættið hafi ekki verið fylgt og
brotið hafi verið gegn jafnréttislög-
um. Við teljum að þessi ákæra geti
ekki átt við rök að styðjast,enda þótt
við sjáum ekki tilgang í því að rök-
ræða þá hlið málsins þar sem söfn-
uðurinn hefur ekki bein afskipti af
skipun prests í embætti safnaðar-
prests í London.
Á hinn bóginn fáum við ekki orða
bundist þegar því er haldið fram í
málflutningi með stefnunni, sem birt
hefur verið, m.a. opinberlega í
Morgunblaðinu, að umsækjandinn
sem valinn var til prestsstarfa sé síð-
ur hæfur en sá sem ekki varð fyrir
valinu. Safnaðarnefndin ræddi málið
ítarlega á sínum tíma og komst að
þeirri niðurstöðu að sr. Sigurður
Arnarson væri einstaklega hæfur til
starfans og tæki hinum umsækjand-
anum fram.
Í stefnunni er því haldið fram að
óþarflega mikil áhersla hafi verið
lögð á sálgæsluhlutverk prests Ís-
lendinga í London í auglýsingu Bisk-
upsstofu um starfið. Dagbækur
prestsembættisins segja aðra sögu.
Þær fjölskyldur og einstaklingar á
Bretlandi sem notið hafa aðstoðar
prestsins í hvers kyns erfiðleikum
vegna dauðsfalla, veikinda, sambúð-
arerfiðleika eða félagslegra örðug-
leika af ýmsu tagi standa í mikilli
þakkarskuld við hann og þá aðila
sem standa undir kostnaði við starf-
semina, þ.e. utanríkisráðuneytið,
Tryggingastofnun ríkisins og Þjóð-
kirkjuna.
Því er haldið fram að sr. Sigurður
hafi notið þess óeðlilega að hann
hafði gegnt embætti fyrir sr. Jón
Aðalstein Baldvinsson um ellefu
mánaða skeið. Þessari röksemd má
hins vegar snúa við vegna þess að
hefði hann ekki verið hæfur til að
gegna embættinu hefði það komið
vel í ljós áður en ákvörðun um val á
presti var tekin. Sá umsækjandi sem
nú hefur stefnt fékk tækifæri að eig-
in ósk til að kynna sig fyrir söfn-
uðinum. Eftir að niðurstaða val-
nefndar lá fyrir var einhugur meðal
allra nefndarmanna í safnaðarnefnd
um að hæfari einstaklingurinn hefði
verið valinn. Okkur þykir miður að
málið skuli hafa tekið þessa stefnu
og ekki ríki friður um embættið. Við
erum enn þeirrar skoðunar að rétt
var valið, ekki síst í ljósi þeirra eft-
irmála sem stöðuveitingin hefur nú
haft í för með sér.
Við teljum miður að í málflutningi
með áðurnefndri stefnu er gert
minna en efni standa til úr sálgæslu-
menntun séra Sigurðar Arnarsonar.
Við teljum að hún og einstæðir per-
sónulegir hæfileikar hans til þess að
eiga náin og hlý samskipti við þá
sem af einhverjum ástæðum eiga um
sárt að binda séu til vitnis um sér-
staka hæfni hans til þess að gegna
starfi prests íslenska safnaðarins í
London, svo og skipulagshæfileikar
hans á safnaðarstarfi sem nær til
dæmis til hinna mismunandi aldurs-
hópa. Ekki er þó síst um vert að
hann hefur náð sérstaklega vel til
barna og unglinga sem þurfa mjög á
uppörvun og tengslum við kristin-
dóm að halda í stórborgarumhverf-
inu.
Að lokum viljum við koma því á
framfæri að öll Safnaðarnefnd ís-
lenska safnaðarins í London er
sannfærð um að tekin var rétt og
farsæl ákvörðun þegar skipað var í
embætti safnaðarprests.“
Yfirlýsing frá safnaðarnefnd
íslenska safnaðarins í London
RAGNAR Stefánsson jarðskjálfta-
fræðingur hefur verið ráðinn pró-
fessor í jarðvárfræðum við Háskól-
ann á Akureyri
og er það gert í
framhaldi af
samkomulagi há-
skólans við Veð-
urstofu Íslands
frá 29. desember
sl.
Ragnar er
fæddur árið
1938. Hann lauk
Fil. kand.-prófi í
stærðfræði og eðlisfræði frá Há-
skólanum í Uppsölum árið 1961 og
Fil. kand.-prófi í landmælingum og
jarðeðlisfræði ári síðar frá sama
skóla. Að því loknu hóf hann störf á
Veðurstofu Íslands og var settur
yfirmaður jarðeðlisfræðisviðs
stofnunarinnar, sem einkum sá um
rekstur skjálftamæla á Íslandi og
úrvinnslu gagna. Árið 1963 fór
Ragnar til framhaldsnáms í Upp-
sölum og lauk þaðan Fil.lic.-prófi í
jarðskjálftafræðum árið 1966. Það
próf er hliðstætt hefðbundnu dokt-
orsprófi. 1964 fékk Ragnar Ful-
bright-styrk og dvaldi í hálft ár við
Jarðfræðastofnun Banda-ríkjanna
(USGS) á Hawai og í Kaliforníu og
við Carnegie-stofnunina í Wash-
ington.
Ragnar gegndi starfi forstöðu-
manns jarðeðlisfræðisviðs Veður-
stofu Íslands allt til ársins 2003. Ár-
ið 2004 gerðist hann forstöðumaður
Rannsóknarseturs Veðurstofu Ís-
lands á Akureyri, sem starfar í nán-
um tengslum við Háskólann á Ak-
ureyri. Þar vinnur hann áfram að
þróun aðferða við jarðskjálftaspár
og að öðrum jarðvárfræðum. Frá
árinu 1988 hefur Ragnar veitt for-
stöðu 4 stórum og fjölþjóðlegum
rannsóknaverkefnum á sviði jarð-
skjálftaspár, það fyrsta með Norð-
urlandastuðningi, en hin 3 hafa ver-
ið Evrópusambandsverkefni.
Ragnar hefur gegnt fjölmörgum
trúnaðarstörfum, setið í nefndum
og stjórnum fyrir stjórnvöld hér á
landi og verið virkur í alþjóðlegri
samvinnu, jafnt fyrir hönd stjórn-
valda sem og vísindasamfélagsins.
Má þar nefna nefndir um jarð-
skjálftavá, vísindaráð Almanna-
varna ríkisins, nefndir á vegum
ESB, skipulag samstarfs á milli
Indverja og Íslendinga í jarðvár-
rannsóknum o.fl.
Ragnar Stefánsson ráðinn
prófessor í jarðvárfræðum
Ragnar Stefánsson