Morgunblaðið - 04.02.2006, Síða 44
44 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Júlía Ólöf Berg-mannsdóttir
fæddist í Vest-
mannaeyjum 10. júní
1963. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Vestmannaeyja 25.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
eru Bergmann Júl-
íusson, f. 5. septem-
ber 1939, og Eygló
Björg Ólafsdóttir, f.
22. júní 1939. Systk-
ini Júlíu eru Edda, f.
1957, Finnur, f.
1966, og Friðrik, f. 1968.
Hinn 6. september 1986 giftist
Júlía eftirlifandi eiginmanni sín-
um, Jóhanni Frey Ragnarssyni, f.
13. ágúst 1965. Foreldrar hans eru:
Ragnar Þór Baldvinsson, f. 31. des-
ember 1945, og
Anna Jóhannsdóttir,
f. 14. mars 1946.
Systkini Jóhanns eru
Hlíf, f. 1967, Þórunn,
f. 1976, og Ragna, f.
1979. Börn Júlíu og
Jóhanns eru: Berg-
lind, f. 27. mars
1986, og Ragnar
Þór, f. 5. október
1988.
Júlía ólst mikið
upp hjá móðursystur
sinni, Birnu Ólafs-
dóttur, f. 9. desem-
ber 1927, og eiginmanni hennar,
Baldri Kristinssyni, f. 13. desem-
ber 1927, d. 25. janúar 2004.
Útför Júlíu verður gerð frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum í
dag og hefst athöfnin klukkan 14.
Takk fyrir allt, elsku Júlía mín,
takk fyrir að elska mig, takk fyrir að
leyfa mér elska þig, ég þarf bara að
þakka þér fyrir svo margt í lífinu, þó
sérstaklega börnin okkar tvö sem við
höfum alltaf verið svo stolt af í gegn-
um lífið. Við gengum í gegnum bæði
gleði og sorg saman og við fengum
okkar skammt af erfiðleikum og ham-
ingjustundum en mestu erfiðleikar
sem okkur var úthlutað voru veikindi
þín sem stóðu í einn þriðja af ævi okk-
ar saman og þvílík hetja sem þú varst
í öll þessi ár, hversu mikið þú barðist
og gafst aldrei upp. Ég hef allavega
aldrei kynnst annarri eins hetju,
endalaus vonbrigði, alltaf versnaði og
versnaði þessi sjúkdómur og þér óx
alltaf jafnframt meiri og meiri kjark-
ur og ákveðni að þú skyldir hafa sigur
að lokum þó svo að þú vissir að sjúk-
dómurinn myndi sigra að lokum. Þú
áttir eftir að gera svo mikið, gifta
börnin þín, verða amma, njóta þess að
fara til Kanarí með mér og ekki síst
langaði þig svo að verða fín gömul
kona sem héldi sér svo vel til á efri ár-
um. Þú varst kölluð Skúli rafvirki hér
á heimilinu því þegar eitthvað bilaði
eða þurfti að stilla vídeó, DVD-spil-
ara, sjónvörp og annað slíkt þá sást
þú um það.
Ef þurfti að mála hérna heima, laga
stól eða setja eitthvað saman, þá
varstu alltaf á kafi í öllu slíku. Það
skipti engu máli hvað við vorum að
framkvæma hérna heima, þú tókst
alltaf þátt í því af fullum krafti, líka
þessi ár sem þú varst svo veik. Þó að
þú værir sárkvalin og við værum að
halda húsinu við þá varstu komin í
vinnugallann og búin að taka stjórn-
ina en það gaf þér svo mikla gleði að
taka þátt í þessu öllu. Við vorum með
endalausar matarveislur hérna á
heimilinu okkar, bæði fyrir fjölskyld-
ur og vini, og hversu lítið mál þér
þótti þetta alltaf þó svo að það væru
15–20 manns í mat í einu. Þú varst al-
veg einstaklega góður kokkur, þú
þurftir ekkert að vera með upp-
skriftabók hjá þér, þetta rann bara
upp úr þér enda fannst okkur fátt
skemmtilegra en að vera með fólk í
kringum okkur. Þegar líða tók á
kvöldið og farið var að hækka í mús-
íkinni þá stóðst þú yfirleitt við græj-
urnar og stjórnaðir og þá var nú ekki
spilað lágt heldur var yfirleitt allt í
botni.
Það gerði mig svo sannarlega að
betri manneskju að hafa kynnst þér
og búið með þér öll þessi ár, elsku Júl-
ía mín. Við sögðum nú svo oft þegar
við vorum ein að okkur fyndist að við
bættum hvort annað svo mikið upp,
að við værum svo miklu betri persón-
ur saman, og við hlökkuðum til að
vera bara ein og ferðast þegar ald-
urinn færðist yfir en öll þessi ferðalög
gáfu okkur svo mikið. Það var eitt það
skemmtilegasta sem að við gerðum.
En nú er kvölunum þínum lokið og
ég stend hér einn eftir með börnin
okkar tvö og mun ég gera allt sem í
mínu valdi stendur til að standa mig
eins vel og ég get til að okkur líði sem
best og fara eftir þeim óskum sem þú
varst búin að biðja mig að hafa að
leiðarljósi með framtíð okkar þriggja,
en þú áttir ekkert eftir ósagt hér á
jörð, þú varst búin að koma öllu frá
þér sem þú vildir, enda var það orðin
þín eina ósk að kvölum þínum myndi
linna og að þú fengir hvíldina.
Enn og aftur: Takk, elsku Júlía
mín, fyrir allt sem að við höfum átt
saman. Ég er mikið ríkur af minn-
ingum um tíma okkar saman hér á
hótel jörð.
Jóhann Freyr Ragnarsson
(Jói Ragg).
Þegar við sitjum hér og hugsum
um okkar ástkæru dóttur Júlíu, þá er
margs að minnast og margar góðar
minningar leita á okkur t.d. frá Kefla-
vík og Vestmannaeyjum og úr sum-
arbústaðnum, en þessar minningar
ætlum við að geyma í hjarta okkar.
Júlía var mikill gleðigjafi og sannköll-
uð hetja í sinni baráttu, það var eins
og sólargeisli kæmi þegar hún birtist,
alltaf svo hlýleg og góð við alla, sér-
staklega börnin, sem hændust að
henni bæði stór og smá.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa mig hér.
Og það er svo margt að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Elsku Jói, Berglind og Ragnar Þór,
ykkar söknuður er sárastur. Við biðj-
um góðan Guð að styrkja ykkur í
sorginni.
Elsku Júlía okkar, nú ert þú búin
að fá hvíldina. Við eigum eftir að
sakna þess að hafa þig hjá okkur. Guð
varðveiti þig.
Mamma og pabbi.
Elsku mamma, hvílík hetja, í sjö og
hálft ár hefurðu barist illvígan sjúk-
dóm, krabbamein. Þú gafst aldrei
upp, þú gerðir allt sem í þínu valdi
stóð til þess að hjálpa þér. Þú lést
þessi veikindi aldrei stoppa þig í
neinu og þú hélst þínu ávallt ótrauð
áfram. Þú veist ekki hversu stolt ég
hef verið af þér í öll þessi ár.
En nú hefurðu fengið hvíldina,
hvíldina frá öllum verkjunum og veik-
indunum. Nú þarftu aldrei að finna til
aftur. Ég trúi því að þú sért komin á
fallegan stað þar sem þér líði vel, þú
sért verkjalaus og getir valsað um
sem fallegasti engillinn á himnum.
Ég er ekki aðeins að missa móður
mína heldur einnig mína bestu vin-
konu. Hvað geri ég án þín? Þú varst
mér allt, líf mitt og yndi. Við eyddum
nánast öllum okkar tímum saman, við
sögðum hvor annarri allt og við gerð-
um allt saman. Þau eru ófá skiptin
sem við sátum saman að spila langt
fram á nætur, kúrðum okkur saman
uppi í rúmi, horfðum á góðar bíó-
myndir, fórum í bíltúr, upp í sum-
arbústað, út í Elliðaey, í tuðruferðir,
til útlanda, og er mér minnisstætt
þegar við fórum tvær mæðgurnar til
London í nokkra daga fyrir tæpum
tveimur árum og einnig þegar við fór-
um fjölskyldan í sumar út í Elliðaey í
sumarfríið okkar.
Síðustu dagana þína eyddum við
miklum tíma saman, við sátum mikið
frammi og spiluðum, þú kenndir mér
að prjóna, ég gisti hjá þér á spítalan-
um, við horfðum á bíómyndir og er
mér minnisstætt tveimur kvöldum
fyrir andlát þitt þegar við horfðum
saman á bíómynd og hlógum og hlóg-
um saman að henni. Þetta eru mér
allt dýrmætar minningar ásamt
mörgum öðrum sem ég mun varð-
veita vel í hjarta mínu.
Það er svo sárt að þú skulir vera
farin að engin orð fá lýst sársaukan-
um. En það var gott að geta fengið að
kveðja þig. Síðasta daginn þinn sat ég
hjá þér, hélt í höndina á þér og þú
lagðir mér lífsreglurnar. Allt sem ég
sagði og það sem þú sagðir, ég mun
standa við það. Nokkrum klukkutím-
um fyrir andlát þitt héldum við utan
um hvor aðra og ég sagði: „Ég elska
þig meira en allt,“ og þú svaraðir: „Ég
elska þig líka.“
Ég elska þig óendanlega mikið,
elsku mamma mín, og mun sakna þín
meira en orð fá lýst. Þú átt stærsta
staðinn í hjarta mínu og munt ávallt
eiga. Takk fyrir allt.
Mamma, elsku mamma
man ég augun þín,
í þeim las ég alla
elskuna til mín
Mamma, elsku mamma,
man ég þína hönd,
bar hún mig og benti
björt á dýrðarlönd.
Mamma, elsku mamma
man ég brosið þitt;
gengu hlýir geislar
gegnum hjarta mitt.
Mamma, elsku mamma,
mér í huga skín
bjarmi þinna bæna,
blessuð versin þín.
Mamma, elsku mamma,
man ég lengst og best
hjartað blíða, heita –
hjarta, er sakna’ ég mest.
(Sumarliði Halldórsson.)
Þín elskandi dóttir,
Berglind.
Elsku hjartans Júlía tengdadóttir.
Nú er þessari skelfilegu þrautagöngu
lokið. Þú barðist svo sannarlega
harðri baráttu öll þessi ár og finnst
manni ósanngjarnt að þú hafðir ekki
sigur í þessu stríði, þar sem þú lést
einskis ófreistað til að ná árangri. Þú
reyndir allar leiðir bæði hefðbundnar
og óhefðbundnar. Við sem höfum
fylgt þér í gegnum þessa baráttu höf-
um oft verið orðlaus yfir dugnaðinum
og metnaðinum í þér. Þú fórst til
dæmis aldrei út nema glæsilega
klædd og fullkomlega snyrt þannig að
marga grunaði ekki einu sinni að þú
værir veik. Þessari reisn og glæsi-
leika hélst þú alveg þar til yfir lauk.
Þú komst inn í okkar fjölskyldu
fyrir rúmum 20 árum þegar þið Jó-
hann fóruð að vera saman. Alla tíð
síðan hefur samband okkar verið
mikið og náið. Við getum ekki hugsað
okkur hvernig lífið verður nú þegar
þú ert horfin á braut. Við höfum alltaf
litið á þig sem stelpuna okkar ekkert
síður en dætur okkar. Við erum mjög
þakklát fyrir að hafa verið samferða
þér í þessi ár. Þú hefur kennt okkur
svo ótal margt, ekki síst um að meta
heilsuna og passa upp á líkamann.
Kvöldið áður en þú fórst hvattir þú
okkur til að rækta betur líkamann,
því ekkert væri eins mikils virði og
góð heilsa. Einnig baðst þú okkur um
að standa saman og styrkja hvert
annað eftir að þú værir farin. Það ætl-
um við að standa við eftir okkar bestu
getu. Minning þín mun alla tíð lifa í
hjarta okkar, við söknum þín svo sárt.
Elsku Jóhann, Berglind og Ragnar
Þór, þið hafið misst svo mikið og biðj-
um við Guð almáttugan að fylgja ykk-
ur í framtíðinni.
Anna og Ragnar Þór.
Hinn 25. janúar sl. fengum við
þungbært símtal frá Þórunni dóttur
okkar, allir voru komnir til Eyja því
hún Júlía átti stutt eftir. Við pöntuð-
um okkur flug strax og vorum komin
upp á sjúkrahús seinnipartinn og
fengum að sjá Júlíu í hinsta sinn. Það
var okkur ómetanlegt en jafnframt
mjög erfitt. Það var öllum mikið áfall
þegar Júlía greindist með brjósta-
krabbamein í blóma lífsins árið 1998
eða þegar hún var einungis 35 ára
gömul. Nú er þessari baráttu lokið
eftir tæp átta ár.
Júlía var mikil Eyjakona. Eftir
gosið flutti fjölskyldan upp á land en
eyjan togaði alltaf í Júlíu og hún flutti
þangað aftur. Fyrstu árin bjó hún hjá
þeim mætu hjónum Birnu og Baldri
sem reyndust henni vel alla tíð, komu
fram við hana eins og eigin dóttur.
Seinna meir eignast Júlía svo fjöl-
skyldu og skilur nú eftir sig tvö ynd-
isleg börn. Júlía var barngóð og
reyndist mér ákaflega vel þegar ég
eignaðist mitt fyrsta barn, alltaf tilbú-
in að passa.
Þetta var ómetanlegt og áttum við
systurnar margar yndislegar stundir.
Ferðin til Spánar var einnig frábær,
þar áttum við öll góðar ógleymanleg-
ar stundir sem eru nú dýrmætar
minningar í hjörtum okkar. Allar
góðu stundirnar og fallegu minning-
arnar um Júlíu lifa að eilífu.
Guð blessi þig, Júlía mín, þín verð-
ur sárt saknað.
Við vottum fjölskyldu Júlíu og öll-
um aðstandendum samúð okkar.
Þín systir,
Edda Bergmannsdóttir
og Jón Ásgeir.
Júlía, loksins líður þér betur eftir
alla þessa baráttu við erfiðan sjúk-
dóm. Ég man alltaf eftir því hvað þú
varst góð við alla í kringum þig og
alltaf til í að miðla málum. Eins og
þegar við vorum á ferðalagi með
mömmu og pabba, við sátum þrjú aft-
ur í, ég, Finnur og þú. Alltaf þurftir
þú að sitja á milli mín og Finns til að
stilla til friðar hjá okkur bræðrunum.
Svo fluttir þú ung að árum til Eyja og
varst hjá Biddu og Baldri sem hugs-
uðu vel um þig. Það var alltaf svo gott
að tala við þig um allt milli himins og
jarðar. Það var alltaf mjög gaman að
heimsækja þig, Jóa, Berglindi og
Ragnar Þór, því það er alveg einstak-
lega vel tekið á móti manni á Illuga-
götu 15. Þegar þú komst upp á land í
heimsókn til mömmu og pabba þá
gátu allir treyst á að nú yrði Júlía með
einhvern tilraunamat handa liðinu
sem ekki allir voru sáttir við. Júlía var
oft kölluð afskiptamálaráðherrann
hjá okkur í fjölskyldunni vegna þess
að hún var alltaf með skoðanir á öllu
og vildi oft ráða hinu og þessu. Það
var líka skemmtilegt að sitja inni í
eldhúsi hjá mömmu og pabba fram
eftir kvöldi og ræða málin sem voru
efst á baugi hjá okkur. Addi og Patti
eiga eftir að sakna þín mikið, þeim
fannst svo gaman að koma til þín á
Shellmótinu í fyrra og hlökkuðu mik-
ið til að koma aftur í sumar. En ég
veit að Jói, Berglind og Ragnar Þór
munu taka vel á móti okkur eins þeim
er einum lagið. Þú ólst upp alveg ein-
staklega skemmtileg og góð börn, þú
þarft ekki að hafa áhyggur af þeim.
Þau mun spjara sig vel í lífinu. Það að
þú kvaddir þennan heim á sama degi
og á sama klukkutíma og hann Bald-
ur fyrir tveimur árum er engin til-
viljun, hann Baldur vildi ekki sjá þig
þjást lengur og kom að sækja þig til
sín. Við biðjum öll að heilsa honum og
segðu honum að Líney biðji einnig að
heilsa, hann Baldur skilur þetta. Við
þökkum fyrir alla tímana sem við átt-
um saman, Júlía mín, ég veit að þér
líður betur núna eftir alla þessa erfiðu
baráttu síðastliðin sjö og hálft ár.
Við eigum eftir að sakna þín mikið.
Þú ert hetjan okkar allra.
Friðrik (Rikki) bróðir, Ingi-
björg (Bogga), Aníta, Arnór
Smári og Patrekur Örn.
Það er komið að kveðjustund.
Langri og erfiðri baráttu er lokið.
Eftir sitjum við hnípin og eigum erfitt
með að koma hugsunum okkar í orð.
Við minnumst þín, Júlía, fyrir ein-
stakan kjark þinn, þor og dáð. Þú
varst svo geislandi fögur og uppfull af
lífskrafti allt fram á síðustu stundu að
auðvelt var að gleyma því að óboðinn
gestur hafði gert sig heimakominn
hjá þér og sótti hvað eftir annað hart
að þér. Þér tókst hið ótrúlega, að hat-
ast ekki við óvininn, hann var kominn
til að vera, heldur bauðst honum birg-
inn og tókst á einhvern óútskýranleg-
an hátt að slá vopnin úr höndum hans
hvað eftir annað, ekki uppfull af reiði
og heift heldur af hugprýði, jákvæðni
og ótrúlegri þolinmæði.
Það er of langt mál að telja upp alla
kosti þína en ekki er hægt að minnast
þín án þess að geta þess hversu barn-
góð þú varst og nutu Anna Mjöll og
Elín Perla þess alla tíð enda var vart
fyrr komið til Eyja en dæturnar
skoppuðu yfir til þín og þinna og tókst
þú þeim ávallt fagnandi.
Kjarkur þinn og þor birtist okkur
snemma, þegar Anna Mjöll á sínum
fyrstu árum hrelldi allt og alla með
sjúkdómi sínum, hikaðir þú ekki við
það sem aðrir veigruðu sér við, og
fórst með hana í sund og bæjarferðir.
Þrátt fyrir óskemmtilegar uppákom-
ur brást þér aldrei kjarkur og óhikað
var næsta bæjarferð skipulögð.
Það hefur verið okkur mikill lær-
dómur að kynnast þér og fá að fylgj-
ast með þér og þinni yndislegu fjöl-
skyldu í baráttu ykkar allra. Við
kveðjum þig, Júlía, með trega og
söknuði og þökkum þér samfylgdina.
Elsku Jóhann Freyr, Berglind,
Ragnar Þór og aðrir aðstandendur.
Við biðjum almættið um styrk ykkur
til handa til að takast á við sorgina og
lífið fram undan.
Hlíf, Stefán, Anna Mjöll
og Elín Perla.
Ég var sex ára gömul og ég held að
Jóhann bróðir hafi farið á ball. Þegar
ég vaknaði morguninn eftir voru
kvenmannsskór í ganginum sem ég
vissi að mamma átti ekki. Ég vakti
Rögnu systur og við lágum á hleri í
allavega tvo klukkutíma áður en við
gáfumst upp. Bróðir minn og þessi
sem var hjá honum gátu sofið enda-
laust fannst okkur systrum. En að
lokum heyrðum við að hann og daman
voru vöknuð. Ég ætla ekki að lýsa
spenningnum sem yfir okkur kom.
Gat það verið að stóri bróðir minn
væri komin með kærustu? Jebb, hann
var komin með kærustu og hún hét
Júlía. Mér leist alveg rosalega vel á
þessa konu (fyrir mér var hún kona,
þá 19 ára). Mér fannst ég hafa eignast
aðra stóra systur. Ég var rosalega
montin af þessu öllu saman. Ég fékk
að fara út að labba með kærustu-
parinu og þau leiddust og allt. Stund-
um kysstust þau líka úti á götu.
Ég held reyndar að þú, Júlía mín,
hafir ekki gert þér grein fyrir hversu
mikill barnakarl hann bróðir minn
var. Vegna þess að þú varst ekkert
bara að eignast eitt stykki kærasta
heldur átti hann tvær litlar systur
sem héngu í rassinum á honum alltaf
hreint. Ég var svo heppin að Júlíu
fannst þetta ekkert vandamál og því
breyttist samband okkar Jóhanns
ekki neitt við þetta þó svo að mér hafi
stundum fyrst um sinn fundist mér
ógnað mjög.
Árin liðu og þið Jóhann eignuðust
Berglindi og Ragnar Þór, giftuð ykk-
ur, keyptuð íbúð í Birkihlíðinni og svo
hús á Illugagötunni.
Ég á endalausar minningar um þig
frá þessum árum, allt bara góðar
minningar. Þú varst nefnilega alltaf
svo góð við mig. Mér fannst þú svo
skemmtileg og góð að ég hændist að
þér. Svo gerðir þú líka besta túnfisk-
salat í öllum heiminum. Það voru
mörg kvöldin sem ég var hjá ykkur að
horfa á video og í boði voru saltkringl-
ur og túnfisksalat.
Þegar ég svo varð fullorðin og eign-
aðist sjálf börn varð okkar samband
eins og hjá vinkonum. Ég bjó í
Reykjavík og þú hringdir í mig til að
biðja um gistingu fyrir ykkur Jóhann
þar sem þú þurftir að fara í smá skoð-
un á leitarstöðinni vegna þess að þú
hafðir fundið ber í brjóstinu. Þegar ég
keyrði þig á leitarstöðina fannst mér
þú ótrúlega róleg yfir þessu. Ég var
áhyggjufull. Berið þurfti að fjarlægja,
það var það sem kom út úr skoðun-
inni. Þú varst lögð strax inn og þegar
yfir lauk var búið að fjarlægja hægra
brjóstið á þér og framundan var
ströng lyfjameðferð og geislameð-
ferð. Þú kveiðst því svolítið að missa
hárið. Þú varst undirbúin vel og Hlíf
systir klippti þig snöggt til að venja
þig við. Þið voruð rosalega mikið hjá
JÚLÍA ÓLÖF BERG-
MANNSDÓTTIR