Morgunblaðið - 04.02.2006, Side 45

Morgunblaðið - 04.02.2006, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 45 MINNINGAR mér á þessu tímabili og það kom í minn hlut og Jóhanns að taka af þér hárið þegar það var allt orðið laust. Ég var í sjokki yfir þessu en þið hjón- in gátuð haft gaman af og sögðuð okk- ur vera að reyta þig eins og hænu. Þú varst alveg jafn falleg án hársins, mér fannst þetta breyta engu. Framundan voru mikið erfiðir tímar hjá þér, þær eru ófáar næturn- ar sem þið hafið þurft að gista hjá mér þar sem þú þurftir að sækja lækningu til Reykjavíkur. Við reynd- um að hafa eins gaman og mögulegt var og vorum ánægð með þennan fína matarklúbb sem orðið hafði til hjá þér, Jóhanni, mér og Anga. Jóhann og Angi sáu alltaf um matseldina og þú og ég nutum. Mikið þykir okkur sárt að vita til þess að matarklúbb- urinn skuli verða án þín þegar við flytjum aftur heim til Íslands. Þú gerðir tvær tilraunir til þess að heimsækja okkur hingað út til Bruss- el en þú varst bara orðin svo veik að það gekk því miður ekki upp. Þú varðst að hætta við. Ég græt sáran yfir að hafa ekki átt möguleika á að kveðja þig á spítalan- um. Hins vegar kem ég heim núna til að fylgja þér í þína hinstu ferð. Þú varst hetjan okkar allra. Þú sýndir þvílíkt æðruleysi í þínum veik- indum að það dáðust allir að þér og hrifust með. Þegar ég gaf þér æðru- leysisbænina sagðir þú mér að það væri erfitt að tileinka sér þessi fallegu orð en það varð þér nú aldeilis ekki erfitt. Þú varst hetja í augum okkar allra. Elsku Júlía, nú er þjáningum þín- um lokið og dvölin á hótel jörð hefur tekið enda. Hótelið sem þú ert núna komin á er fimm stjörnu og er fullt af yndislegu fólki sem hefur hyllt þig eins og sannri hetju ber þegar hann Baldur þinn leiddi þig til þeirra. Við sem eftir erum sitjum eftir í sárum og djúpri sorg en yljum okkur saman við yndislegar minningar um þig, konu sem við öll erum betri manneskjur fyrir að hafa kynnst. Elsku Jóhann minn, ég er orðlaus yfir þeirri yfirvegun og stillingu sem þú hefur sýnt undanfarna daga og get óhikað sagt að ég sé mikið stolt yfir að vera litla systir þín. Elsku Berglind og Ragnar Þór, þið litlu hetjur. Mamma ykkar var óend- anlega stolt af ykkur en nú er hún far- in í ferðina löngu og enginn kemur í staðinn. Ég vil að þið vitið að ég er sko líka ótrúlega stolt af ykkur og ég verð alltaf til staðar fyrir ykkur og ég kem til með að standa þétt við hlið ykkar beggja bæði í blíðu og í stríðu. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði’ er frá. Nú héðan lík skal hefja, ei hér má lengur tefja í dauðans dimmum val. Úr inni harms og hryggða til helgra ljóssins byggða far vel í Guðs þíns gleðisal. (V. Briem.) Þín elskandi mágkona, Þórunn. Guð minn góður hvað það er erfitt að setjast niður og skrifa minningar- grein um Júlíu mína. Það er svo sárt að missa þig. Það er óásættanlegt. Þetta er stundum svo ósanngjarnt líf, en þú barðist við þennan illvíga sjúk- dóm í svo mörg ár. Þú þráðir að fá hvíld eftir alla þessa baráttu. Það er svo gott að vita að þér líði núna vel hjá Baldri. Hann kom og sótti þig sama dag og hann dó fyrir tveimur árum. Hann gat ekki lengur horft upp á þig þjást. Þú varst svo mikil baráttukona, Júlía mín. Þú gerðir allt til að láta þér líða vel en ég er svo heppin að eiga frábærar minningar um þig sem ég mun varðveita vel. Alltaf gat ég leitað til þín þegar mér lá eitthvað á hjarta. Þú varst alltaf svo góðhjörtuð og blíð við mig. Alltaf hafðir þú áhyggjur af öðrum þrátt fyrir veikindi þín. Þegar ég hugsa um þig núna sé ég þig sitja og prjóna. Það var eitt af þínum áhugamálum. Þú prjónaðir peysu og húfu á Ásgeir Orra litla frænda þinn sem er mér svo kær. Ég var svo hepp- in að fá að eiga lopapeysu sem þú náð- ir að klára að prjóna handa mér og ég á eftir að varðveita svo vel. Það var með síðustu peysunum sem þú gerðir. Ég man hvað þú hafðir miklar áhyggjur af því að það átti eftir að setja rennilásinn á peysuna þegar við töluðum saman á spítalanum daginn áður en þú fórst. En þetta er einmitt það sem einkenndi þig, þú hafðir svo miklar áhyggjur af öðrum og vildir gott fyrir alla aðra gera. Takk æðislega fyrir allar góðu stundirnar sem við höfum átt. Allar bústaðaferðirnar, búðarápið, ættar- mótin, kaffispjallið og ekki má gleyma þjóðhátíðunum. Þú ert hetjan mín sem lifir í minningu minni. Enda- laust á ég eftir að sakna þín, Júlía mín. Guð geymi og varðveiti þig, elsku Júlía mín. Elsku Júlía þú ert langbesta frænka sem ég hef átt enda varstu eins og stóra systir mín. Þín að eilífu, Þórunn. Elsku Júlía. Þú varst alltaf góð, skemmtileg og besta frænka sem maður getur hugsað sér. Ég er 100% sammála Ragnari og Berglindi um að þeim fannst þú vera besta mamma í heimi. Sjö og hálft ár með krabbamein. En viltu lofa okkur einu: aldrei fara frá fjölskyldunni þinni. Geturðu lofað því? Bara fyrir þína fjölskyldu. Vonandi líður þér miklu betur. All- ir sakna þín. Ég vona að þú hafir haft það sem best í lífinu og notið þess að vera til. Nú bráðum ætla allir að fá að kveðja þig. Faðir vor, þú sem er á himnum helgist þitt nafn, til komi þitt ríki, verði þinn vilji,svo á jörðu sem himni. Gef oss í dag vort daglegt brauð og fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum. Eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu. því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu. Amen. Þín Lísa Margrét. Elsku Júlía. Við áttum margar yndislegar stundir með þér við fjöl- skyldan. Þú varst svo mikil hetja. Þú sem barðist við þín veikindi fram á hinstu stund. Í öllum lyfjameðferðun- um sem þú fórst í þurftir þú að koma upp á land og þá kom öll fjölskyldan saman og borðaði góðan mat eða við pöntuðum pítsu og töluðum um dag- inn og veginn en alltaf varst þú bros- andi og leið vel að hitta okkur þrátt fyrir veikindi þín en núna er svo tóm- legt án þín, elsku Júlía. Okkur verður það alltaf minnisstætt hvað þér fannst gaman að taka myndir af fólk- inu sem var í kringum þig og um- hverfinu. Þú náðir oft góðum mynd- um af litla frænda þínum sem þér þótti svo vænt um. Þú varst alltaf tilbúin að vera með hann þegar við þurftum að bregða okkur frá. Við gleymum því aldrei þegar við fórum í útskriftarveislu og þú bauðst til að vera með hann þótt veikindin væru farin að hafa mikil áhrif á þig. Það kvöld varð Þórunn fyrir því óhappi að fá rauðvín yfir sig. Hún fór heim til að skipta um föt og þá tók Júlía okkar á móti henni og setti fötin í þvott og keyrði hana í veisluna. Svona var hún alltaf. Alltaf tilbúin að gera allt fyrir alla. Morguninn eftir var hún búin að ganga frá öllum fötunum og setti í aðra vél. Hún hugsaði alltaf svo vel um okkur og sérstaklega litla frænda sinn. Hún sagði að hann væri svo mik- ill gullmoli og gleðigjafi. Það var svo sárt þegar við vorum að kveðja hana á sjúkrahúsinu í Vest- mannaeyjum vegna þess að hún vissi innst inni að hún mundi ekki sjá litla frænda sinn aftur þar sem hann var uppi á landi. Hún spurði mikið um hann og bað okkur að hugsa vel um hann. Takk enn og aftur fyrir allt sem þú hefur gert og skilið eftir þig hjá okk- ur. Við munum varðveita jólakortin sem þú skrifaðir alltaf svo fallega til okkar. Þú áttir svo auðvelt með að tjá tilfinningar þínar með skrifum þín- um. Það hefur verið átakanlegt að fylgjast með skrifum þínum á netinu og við erum stolt af því hversu opin og hreinskilin þú varst með þín veikindi. Við munum einnig varðveita handa- vinnu þína þar sem þú varst einstak- lega handlagin og gerðir allt svo vel sem þú tókst þér fyrir hendur. Elsku Jói, Berglind og Ragnar Þór, við sendum ykkur innilegustu sam- úðarkveðju á þessum erfiðum tímum. Megi minningin um yndislegu Júlíu ykkar lifa í hjörtum okkar. Þórunn, Magnús Geir og Ásgeir Orri. Júlía var eldri systir pabba og hef- ur verið sönn hetja seinustu sjö árin. Hún greindist með krabbamein í brjósti árið 1998. Hún átti heima í Vestmannaeyjum ásamt Berglindi og Ragnari börnum sínum og Jóa eig- inmanni sínum Þegar hún var uppi á landi og hjá mömmu sinni, ömmu minni, fór ég næstum alltaf í heim- sókn. Júlía var ein af bestu frænkum mínum, og ég elskaði þegar öll fjöl- skyldan hennar kom upp á land og við borðuðum saman heima hjá ömmu, sérstaklega hrygg eða hamborgara, svo ís í eftirrétt Ég man alltaf um jólin 2000 minnir mig að ég fékk að opna einn pakka strax eftir matinn. Ég valdi pakkann sem Júlía gaf mér. Í honum var nammi og skilti til að setja á hurð sem Júlía bjó til. Á því stóð: „Hvar er Aníta?“ og svo hékk hús úr því og á því stóð „Í körfubolta“. Það var þegar ég var að æfa körfu og svo jólin 2005 gaf hún mér svarta og hvíta lopapeysu sem ég mun örugglega aldrei láta sleppa frá mér. Svo líka rauða Volkswagen tösku, „War of the worlds“ og „Racing strip- es“. Ég man alltaf eftir þeim atburði í ágúst 2005 á ættarmótinu úti í Höfn. Föstudagurinn var mjög erfiður fyrir mig. Ég þekkti engan þarna nema Júlíu, Jóa, Ragnar og Berglindi, svo auðvitað ömmu og afa. Ég spurði afa um bíllykilinn, fór inn í bílinn hans, og grét mig í svefn. Mér leið eitthvað voðalega illa. Fyrsta manneskjan sem tók eftir mér var Júlía. Hún kom inn í bíl og huggaði mig og skutlaði mér upp á hótel. Ég fékk að vera þar ásamt Jóa að horfa á mynd (2Fast2Furious). Sofnaði reyndar yf- ir henni. Um morguninn vaknaði ég við að Júlía var komin úr bakaríinu úti í Höfn með stóra brauðtertu og kókómjólk fyrir alla. Júlía Bergmannsdóttir dó 25. jan- úar 2006 kl. 23.38 og hefur verið ein mesta hetja aldarinnar! Hún hefur svo sannarlega lifað lífinu vel. En það furðulega við daginn sem hún dó var að fyrrverandi besti frændi minn, Baldur, dó fyrir ná- kvæmlega tveimur árum kl. 23. Þín frænka, Aníta.  Fleiri minningargreinar um Júlíu Ólöfu Bergmannsdóttur bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Viðar og Eygló, Jóna Björg, Davíð og Elva Rún, Valmundur, Björg, Anna og Valur, Guðrún Bergrós Tryggva- dóttir, Guðbjörg Erla, Hanna Carla Jóhannsdóttir, Áslaug Finnsdóttir, Gerður Garðarsdóttir, Steinunn Hödd, Árni Johnsen, Eygló G., Eygló E., Hulda, Rósa, Árný, Björg, Jóný, Erna og Sveindís, Birkir Eg- ilsson, Gunnhildur Kjartansdóttir og Ólafur Erlendsson. ✝ Eyjólfur Guð-mundur Ólafs- son fæddist í Reykjavík 27.12. 1916. Hann lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Ísafirði 31. janúar síðastliðinn. Móðir hans var Guð- mundína Ingunn Eyjólfsdóttir, f. í Smiðjuvík á Horn- ströndum 27.5. 1890, d. 12.2. 1984. Faðir Eyjólfs var Ólafur Ólafsson, f. 27.8. 1888, d. 3.3. 1957. Foreldrar Eyjólfs bjuggu ekki saman. Systir sammæðra var Anna Maríanus- dóttir, f. 14.5. 1919, d. 18.7. 1997. Systkini samfeðra: Ólafur, Guð- mundur, Magnúsína, Ólöf, Hall- dór og Einar. Af þeim eru Magn- úsína og Halldór á lífi. Eyjólfur kvæntist 22.5. 1954 Guðrúnu Friðriku Pétursdóttur frá Kvíum í Jökulfjörðum, f. 7.9. 1908, d. 20.12. 1982. Guðrún var ekkja. Eyjólfur og Guðrún eign- uðust saman sex börn. Þau eru: 1) Einar Eyjólfur, f. 6.1. 1940, býr á Eskifirði, kvæntur Elínu Kristínu Hjaltadóttur, f. 23.2. 1946. Þau eiga tvo syni. 2) Ólafur Guðjón, f. 16.6. 1942, býr á Ísafirði, kvæntur Jónínu Sigurjónsdóttur. 3) Petr- ína Helga, f. 30.10. 1944, býr á Ak- ureyri, maður Pétur Jónsson, f. 13.8. 1944. Þau eiga tvo syni. 4) Ingólfur Birkir, f. 5.7. 1946, býr á Ísafirði, kvæntur Sigrúnu Guð- mundsdóttur, f. 16.10. 1946. Þau eiga þrjár dætur. 5) Þráinn, f. 10.3. 1949, býr á Ísafirði, kvæntur Grétu Gunnarsdóttur, f. 14.2. 1954. Þau eiga þrjú börn. 6) Rún- ar, f. 7.8. 1954, býr á Ísafirði. Hann var kvæntur Auði Valsdótt- ur, f. 30.6. 1958. Þau eignuðust þrjú börn en skildu. Guðrún átti tvö börn frá fyrra hjónabandi. Stjúpbörn Eyjólfs eru: 1) Sigurborg Ingunn Einars- dóttir, f. 11.5. 1932, býr á Eskifirði, mað- ur Sören Sörensson, f. 26.6. 1924, d. 13.9. 2004. Þau eignuðust einn son. Sören var ekkjumaður og ól- ust dætur hans, Jak- obína og Helena, upp hjá þeim. 2) Þorvaldur Einars- son, f. 22.2. 1937, býr á Eskifirði, kvæntur Friðriku Björnsdóttur, f. 19.1. 1941, og eiga þau fjögur börn. Afkomendur Eyjólfs og Guð- rúnar fylla brátt fimmta tuginn. Eyjólfur flutti barn að aldri til Ísafjarðar og ólst upp á eyrinni norðanverðri kringum Ölduna með móður sinni og systur. Hann fór snemma til sjós og var sjómað- ur nema nokkur ár sem hann var í lögreglunni á Ísafirði. Hann gekk í barnaskóla á Ísa- firði en skólaárið 1941–1942 var hann í Stýrimannaskólanum á Ísa- firði og fékk við það skipstjórn- arréttindi. Hann var lengst af á samvinnubátunum og ,,dísunum“ með miklum aflaskipstjórum á vertíð á vetrum og síld á sumrin. Þegar þeim útgerðum lauk fór hann sjálfur að gera út, fyrst Svaninn en frá 1971– 1981 Báru ÍS í félagi við Ólaf son sinn. Eyjólfur hætti útgerð 1981 Eft- ir það reri hann á opinni trillu, Rúnu, öll sumur og fór síðast á sjó fyrir fjórum árum 85 ára gamall. Eyjólfur bjó á Hlíðarvegi 45 allt þar til 1993 þegar hann flutti í íbúðir aldraðra á Hlíf I á Ísafirði og bjó þar þangað til í nóvember síðastliðið ár að hann flutti á þjón- ustudeild fyrir aldraða á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Ísafirði þar sem hann lést. Útför hans verður gerð frá Ísa- fjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Elsku langafi minn. Mikið varð ég hryggur þegar mamma og pabbi sögðu mér að þú værir dáinn. Það er svo stutt síðan ég sagði við mömmu og pabba að við yrðum að heimsækja þig næst þegar við færum til Íslands því ég væri svo hræddur við að þú myndir deyja áður en við gætum hitt þig. Pabbi og mamma segja að þú verðir alltaf hjá okkur og passir vel upp á okkur. Ég veit að ég á eftir að hugsa oft um þig og sakna þín mikið því þú ert besti og hlýjasti langafi sem hægt er að eiga. Guð og englarnir geymi þig, elsku langafi minn. Þinn langafastrákur í Danmörku, Pétur Jónsson. Elsku langafi. Við urðum svo leið og sorgmædd þegar mamma og pabbi sögðu okkur að þú værir dá- inn. Okkur langar að segja þér að okkur þykir mjög vænt um þig og að þú munt alltaf lifa í hjarta okkar. Við eigum yndislegar og hlýjar minning- ar um þig sem munu fylgja okkur í lífinu. Vaktu, minn Jesús,vaktu í mér, vaka láttu mig eins í þér, sálin vaki þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. (Hallgr. Pét.) Sofðu rótt, elsku langafi. Þín Kara Mist og Ævar, Danmörku. EYJÓLFUR GUÐ- MUNDUR ÓLAFSSON Yfir 40 ára reynsla Sendum myndalista Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík sími 587 1960 • www.mosaik.is 10-50% afsláttur TILBOÐ á legsteinum, fylgihlutum og uppsetningu SÓLSTEINAR  Gæði  Góð þjónusta  Gott verð  Mikið úrval i j i i l Kársnesbraut 98, 200 Kópavogi – s: 564 4566 www.solsteinar.is – sol@solsteinar.is 15-50% afsláttur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.