Morgunblaðið - 04.02.2006, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 49
MINNINGAR
✝ María Björns-dóttir Hansen
fæddist á Refsstöð-
um á Laxárdal í A-
Hún. 5. mars 1920.
Hún lést á dvalar-
heimili Sauðárkróks
26. janúar síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru Björn Leví
Gestsson, f. á Litlu-
Ásgeirsá 28. septem-
ber 1889, d. 18. jan-
úar 1971, og María
Guðmundsdóttir f. á
Torfustöðum í A-
Hún. 3. nóvember 1881, d. 20.
ágúst 1976. Systur Maríu voru
Bergþóra, f. 20. mars 1910, d. 13.
ágúst 1946; Heiðrún, f. 31. október
1911, d. 30. maí 1988; Þorgerður, f.
22. nóvember 1912, d. 23. nóvem-
ber 1994; og stúlka, f. 19. júlí 1927,
d. 19. júlí 1927 (fædd andvana).
María giftist Matthíasi Kristjáni
Friðrikssyni Hansen 29. júní 1946.
Sonur þeirra er Kristján Þór Han-
sen, f. 10. júlí 1950, kona hans Sig-
urbjörg Egilsdóttir, f. 1. ágúst
1950. Börn þeirra eru: 1) Kristján
Örn, f. 1968, maki Sigríður Mar-
grét Ingimarsdóttir, f. 1968. Dæt-
ur þeirra eru Ingunn, f. 1990, Sig-
urbjörg, f. 1997, og Margrét, f.
2002. 2) Egill Jón, f. 1970, maki
Sigurósk Guðbjörg Kristjánsdótt-
ir, f. 1968. Börn þeirra eru Magnea
Ýr Gylfadóttir, f. 1991; Hrafnhild-
ur María, f. 2000,
Guðjón Þór, f. 2001.
3) Ásdís, f. 1972.
Börn hennar eru
Sunna Rut Stefáns-
dóttir, f. 1990, og
Kári Sveinberg
Bjarnason, f. 1993.
4) María, f. 1978,
maki Bjarni Bald-
vinsson, f. 1976.
Dætur þeirra eru El-
ísa Sól, f. 2001; og
Lilja Björg, f. 2003.
Einnig ólu þau
María og Matthías
upp frá unga aldri systurson Mar-
íu, Sævar Einarsson, f. 9. apríl
1942, maki Guðlaug Gunnarsdótt-
ir, f. 19. ágúst 1942.
María brautskráðist úr Sam-
vinnuskólanum 1940. Hún vann
skrifstofustörf hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga 1940–41. Hún var
aðalbókari á skrifstofu Ríkisspít-
alanna í Rvík 1941–44. María nam í
Húsmæðraskóla Reykjavíkur
1944–45. Fyrstu árin eftir gift-
inguna vann hún hálfs dags vinnu
á skrifstofu sýslumanns á Sauðár-
króki, en vann síðan sem bókhald-
ari og fleira við flutningafyrirtæki
eiginmanns síns „Kristján og Jó-
hannes“ þar til þeir bræður seldu
fyrirtækið.
Útför Maríu verður gerð frá
Sauðárkrókskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Elsku amma.
Nú húmar og svefninn þig hrífur
og ber þig á höndum sér burt
á dúnmjúku skýi þú svífur
en líkaminn sölnar sem jurt.
Börnin þín sárlega sakna
þau spyrja um dauðann og þig
og hvenær þú ætlir að vakna
og koma og spila við sig.
Hjá okkur mun minningin lifa
við máttvana kveðjum þig nú,
hjá okkur mun lífsklukkan tifa
uns sjáumst við ég og þú.
Það er ekki auðvelt að setjast nið-
ur og skrifa minningargrein um þig,
elsku amma, það er af svo miklu að
taka að það væri efni í heila bók ef
maður hefði ekki takmarkaðan stafa-
fjölda til nota.
Þú ert besta amma sem nokkur
getur hugsað sér og ekki síður lang-
amma.
Minningar dætra okkar um lang-
ömmu og samverustundirnar með
þér eiga eftir að lifa með þeim.
Fyrstu skrefin út í heiminn voru tek-
in með þinni handleiðslu og um-
hyggja þín átti sér engin takmörk.
Þú kvartaðir aldrei og barlómur
var þér ekki að skapi. Eftir stutta
sjúkralegu kom kallið í friðsælum
svefni. Nú ertu laus við meinið sem
gerði þig þreklausa og gerði það að
verkum að þú gast ekki gert það sem
hugurinn vildi.
Takk fyrir allt og allt, elsku amma,
Guð geymi þig.
Kristján Örn, Sigríður Margrét,
Ingunn, Sigurbjörg og Margrét.
Það rifjast upp margar góðar
minningar þegar ég hugsa um Maju
ömmu, sérstaklega minningar frá
því að ég var krakki, fór ég þá oft til
hennar á Skagfirðingabrautina eftir
skóla og gaf hún mér gjarnan mjólk-
urglas og með því. Svo átti hún alltaf
til kandís á eldhúsborðinu.
Maja amma eldaði stundum góm-
sæta fjallagrasasúpu sem ég mun
aldrei gleyma, hún var frábær kokk-
ur, eldaði ekta íslenskan og hollan
heimilismat sem ég var svo heppin
að fá að njóta í gegnum tíðina.
Maja amma var ástúðleg og ynd-
isleg, hafði einstaklega gott hjarta-
lag og var mjög geðgóð kona, það var
alltaf gott að vera hjá henni og hún
hugsaði ávallt vel um sína nánustu.
Á jóladag ár hvert allt til ársins
2003 kom fjölskyldan saman á Skag-
firðingabrautinni og minnist ég sér-
staklega góða matarins og marens-
kökunnar góðu í eftirrétt, litla gamla
jólatrésins með gamla fallega
skrautinu, hlýju og gestrisni hennar
Maju ömmu.
Ég hitti ömmu í síðasta sinn síð-
astliðið sumar, hún og afi tóku vel á
móti mér og Kára eins og þau hafa
alltaf gert. Það var gott að koma til
þeirra í þessa hinstu heimsókn á
Skagfirðingabrautina og sú heim-
sókn er okkur Kára mjög mikils
virði.
Elsku Maja amma, ég kveð þig nú,
ég vildi að ég hefði komið norður um
jólin og kvatt þig almennilega, kysst
þig, faðmað og sagt þér hvað mér
þætti vænt um þig. Takk fyrir þann
tíma sem við áttum saman, minning
þín verður ætíð varðveitt í hjarta
mínu.
Ásdís.
Elsku amma.
Bara ef ég hefði
verið oftar hjá þér,
hringt í þig oftar,
sent þér oftar bréf eða kort,
talað meira við þig.
Elsku amma
Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér,
Alla ástina,
gjafirnar,
góða matinn
og allar góðu minningarnar sem við eigum
saman.
Þú varst alltaf svo góð og hugsaðir alltaf
svo vel um alla,
svo öllum liði vel.
Þú munt alltaf lifa í hjarta mínu.
Hjarta okkar allra.
Kveðja.
Sunna Rut.
Elsku amma, það er erfitt að
kveðja þig, en nú ertu hjá guði og líð-
ur betur.
Ég mun sakna þín mikið. Takk
fyrir allt, sofðu rótt.
Kveðja.
Kári Sveinberg.
Ég kynntist Maríu Hansen þegar
ég tengdist henni fjölskylduböndum
snemma á síðasta áratug liðinnar
aldar. Þó þau bönd brystu skjótt, átti
ég því láni að fagna að halda góðu
sambandi við hana alla tíð síðan og
fyrir það langar mig að þakka kær-
lega nú að leiðarlokum.
Það var gott að koma í heimsókn á
Skagfirðingabraut 31. Þar var ávallt
tekið á móti mér með hlýju og ró-
lyndi. Margar góðar stundir átti ég
þar með syni mínum í heimsókn hjá
langömmu hans og langafa. Minnist
ég bæði glæsilegra jólaboða sem
María hélt stórfjölskyldunni hver
jól, en ekki síður miklu fleiri nota-
legra stunda við eldhúsborðið þegar
rædd voru málefni dagsins. Eina
ágreiningsefnið sem ég minnist frá
slíkum stundum, var þegar ég bað
hana eitt sinn að setjast og spjalla,
án þess að bjóða mér vott né þurrt.
Slíkt kom ekki til greina á því heim-
ili. Gestum var ávallt boðin hressing.
Nú síðari ár, eftir að ég flutti suð-
ur með fjölskyldu mína, minnkuðu
samskipti okkar mikið. Ekki síst
þess vegna gladdi það mig mjög þeg-
ar mér barst afmælisskeyti frá Mar-
íu og Kristjáni á fertugsafmæli
mínu. Þær haminguóskir sýndu vel
hve traust og minnug María var. Það
gladdi mig mjög að geta þakkað
henni það skeyti þegar við hittumst
síðast á liðnu hausti.
Ég votta Kristjáni Hansen inni-
lega samúð mína vegna hans mikla
missis. Einnig sendi ég samúðar-
kveðjur til allra annarra í fjölskyld-
unni.
Bjarni Ragnar Brynjólfsson.
Elsku Maja amma. Það er svo erf-
itt að rifja upp allar þær góðu minn-
ingar sem ég á um þig. Þú varst mér
afar góð og síðar, þegar ég óx úr
grasi og flutti frá Sauðárkróki, þá
var yndislegt að koma við á Skagfirð-
ingabrautinni hjá þér og afa með
börnin mín.
Þegar ég var barn þá var ég mikið
hjá þér, þú leyfðir mér að hlusta á
plötur í flotta stóra plötuspilaranum
þínum og þú áttir svo skemmtilegar
barnabækur sem ég þreyttist aldrei
á að lesa. Þegar ég varð eldri þá fékk
ég að vera hjá þér þegar þú varst að
vinna fyrir afa hjá Vöruflutningum
Kristjáns og Jóhannesar og þá fékk
ég líka að keyra bílinn þinn á gamla
flugvellinum á Króknum. Fyrst
komst þú með í einskonar ökutíma
og það má með sanni segja að þú haf-
ir kennt mér undirstöðuatriðin í að
keyra bíl. Það voru vissulega forrétt-
indi að fá að alast upp með þig sem
ömmu mína, þú varst okkur öllum
svo góð og ég mun aldrei gleyma þér,
amma mín. Ég sakna þín sárt og
minningarnar um þig lifa í hjarta
mínu svo lengi sem ég lifi.
Við þökkum samfylgd á lífsins leið,
þar lýsandi stjörnur skína
og birta himnesk björt og heið
hún boðar náðina sína
en Alfaðir blessar hvert ævinnar skeið
og að eilífu minningu þína.
(Vigdís Einarsdóttir.)
Ég bið Guð að varðveita þig.
Egill Jón Kristjánsson.
MARÍA
BJÖRNSDÓTTIR
HANSEN
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
KOLBRÚN FRIÐÞJÓFSDÓTTIR
kennari
frá Litluhlíð
á Barðaströnd
lést á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi 30. janúar.
Útför hennar verður gerð frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 6. febrúar kl. 13:00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Félag
aðstandenda Alzheimerssjúklinga.
Jóhann Þorsteinsson,
Sigurður Barði Jóhannsson, Valgerður Vésteinsdóttir,
Steingerður Jóhannsdóttir, Árni B. Emanúelsson,
Áróra Jóhannsdóttir,
Friðþjófur Jóhannsson, Áslaug Ólöf Þórarinsdóttir,
Júlíus Ragnar Pétursson, Renáta Pétursson
og fjölskyldur.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GRÉTA SVANLAUG JÓNSDÓTTIR,
Villingaholti í Flóa,
sem lést laugardaginn 28. janúar, verður jarðsung-
in frá Villingaholtskirkju laugardaginn 4. febrúar
kl. 13:30.
Börn, tengdabörn, ömmu-
og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÓLÍNA REBEKKA EIRÍKSDÓTTIR,
Hrafnistu, Reykjavík,
áður Víðiholti,
Skagafirði,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn 31. janúar.
Útför hennar fer fram frá Víðimýrarkirkju laugar-
daginn 11. febrúar kl. 14.00.
Þrúður Hjaltadóttir,
Kristín Hjaltadóttir, Ásmundur S. Guðmundsson,
Hörður Hjaltason,
Eiríkur Hjaltason, Jóhanna Sigmundsdóttir,
Árný Hjaltadóttir,
Guðbjörg Hjaltadóttir, Haraldur I. Óskarsson,
Eygló Hjaltadóttir,
Auður Hjaltadóttir,
Hlífar Hjaltason, Sigríður Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
LAUFEY SÍMONARDÓTTIR,
Flétturima 27,
lést á Landspítalanum Fossvogi mánudaginn
30. janúar.
Jarðarförin verður gerð frá Garðakirkju, Álftanesi,
miðvikudaginn 8. febrúar kl. 13.00.
Magnús Jónsson,
Ágústa Magnúsdóttir, Kristján Sigfússon,
Evert Sveinbjörn Magnússon, Hugrún Stefánsdóttir,
Sigrún Magnúsdóttir,
Hildur Kolbrún Magnúsdóttir,
Berglind Agnes Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og systir,
ÞÓRA HALLDÓRSDÓTTIR,
Eyrarholti 20,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut miðviku-
daginn 1. febrúar.
Útförin hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 10. febrúar kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Gunnar Ragnar Sveinbjörnsson,
Ágústa Sigríður Gunnarsdóttir, Halldór A. Þórarinsson,
Valdís Þóra Gunnarsdóttir,
Sara Lind Gunnarsdóttir, Páll Þórir Jónsson,
barnabörn og systkini.