Morgunblaðið - 04.02.2006, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 51
MINNINGAR
Í dag kveðjum við Ingibjörgu Jóns-
dóttur, „Imbu hans Hjalta“ eins og
hún var kölluð í fjölskyldunni. Imba
var góður fulltrúi þeirrar kynslóðar
sem helgaði sig húsmóðurstarfinu.
Heimilið var hennar stolt og þar sást
aldrei blettur eða hrukka, hvorki inn-
an dyra né utan. Hjá þessum konum
var viðtekin venja að ljúka heimilis-
störfunum fyrir hádegi og þær létu
ekki sjá sig utan dyra eftir hádegi
nema uppábúnar og snyrtar.
Imba gekk í Kvennaskólann í
Reykjavík sem var á þeim tíma besti
skóli sem ungar stúlkur áttu kost á.
Sú skólaganga veitti Imbu mikla lífs-
fyllingu og hélt hún vinskap við skóla-
systur sínar alla ævi. Skólasystraboð-
in vöktu alltaf mikla tilhlökkun hjá
henni og þegar hún hélt boðin sjálf
var mikill viðbúnaður og ekkert til
sparað. Imba hafði einmitt sérstaka
hæfileika til að taka á móti gestum.
Þá var allt það fallegasta og besta sett
á borð og skipti ekki máli hver gest-
urinn var. Imba var einstaklega
glæsileg kona og hafði gaman af að
klæða sig fallega. Hún átti kynstur af
fallegum fötum og því sem við átti,
hún hafði vandaðan smekk og vakti
hvarvetna athygli.
Imba og Hjalti voru samvalin hjón
þótt þau væru ólík. Hjalti var einstak-
lega starfsamur maður og var alltaf
eitthvað að sýsla. Imbu fannst sjálf-
sagt að Hjalti ætti sín áhugamál og
var stolt af honum. Hún gladdist inni-
lega þegar hann naut sín sem best við
píanóið að spila undir söng og taldi
ekki eftir sér að færa honum kaffið í
skúrinn þegar hann hafði sem mest
að gera við járnsmíðina.
Sameiginlegt áhugamál þeirra
hjóna var ferðalög. Þau voru í hópi
þeirra fyrstu sem fóru í sólarlanda-
ferðir og okkur sveitakrökkunum
þóttu þau miklir heimsborgarar þeg-
ar þau komu í heimsókn kaffibrún og
sælleg. Ekki má gleyma garðinum
þeirra sem var verðlaunaður fyrir
fegurð og snyrtimennsku. Hann veitti
þeim marga ánægjustundina, þar
nýttust hæfileikar beggja, Imba
skipulagði og sinnti um viðkvæmustu
blómin en Hjalti sá um stærri fram-
kvæmdir.
Mamma og pabbi hófu búskap í
kjallaranum hjá Imbu og Hjalta fyrir
60 árum. Það varð til að binda þær
mömmu og Imbu ævilöngum vináttu-
böndum og bar aldrei skugga á. Imba
og Hjalti komu oft í heimsókn í
Reykjahlíð og eiga stóran þátt í upp-
vexti okkar. Okkur er í fersku minni
þegar þær stöllur drógu sig út úr bú-
skaparfjasinu í þeim bræðrum,
hreiðruðu um sig í betri stofunni og
töluðu lágt.
Við hugsum okkur að Hjalti hafi
staðið við hliðið og tekið á móti Imbu
sinni. Hann hefur eflaust verið farið
að lengja eftir henni þótt ekki sé langt
síðan hann kvaddi, hefur trúlega tekið
undir höndina á henni og skundar nú
með hana á vit nýrra verkefna.
Við systkinin minnumst þeirra
hjóna með mikilli hlýju og þakklæti.
Blessuð sé minning þeirra.
Systkinin frá Reykjahlíð.
Imba frænka er fallin frá og hefur
gengið til móts við Hjalta sinn sem
lést á síðastliðnu ári.
Imba frænka, eins og við systkinin
kölluðum hana ávallt, er í huga okkar
ljóslifandi mynd æsku okkar og upp-
eldis.
Imba og Hjalti voru okkur nákom-
in og heimili þeirra okkur systkinum
sem annað heimili alltaf opið og skjól
til að leita í.
Imba frænka var glæsileg kona í
alla staði, þannig að eftir var tekið
sama hvar hún fór og við allar mögu-
legar aðstæður. Imba og Hjalti urðu
ekki þeirrar gæfu aðnjótandi að eign-
ast eigin börn og nutum við systkinin
og önnur systkinabörn þess í okkar
æsku að búa í mikilli nálægð og vera
tekin sem þeirra.
Það væri hægt að segja margar
sögur af Imbu frænku og Hjalta en
ekki væri auðvelt að segja sögu af
þeim hvoru í sínu lagi því þau voru
einstaklega samrýnd hjón.
Imba var mikill fagurkeri og hafði
yndi og ánægju af fallegum hlutum og
fallegum fötum og lagði mikla vinnu í
val sitt. Sterk er sú minning okkar
systkina þegar móðir okkar og aðrir
nákomnir nutu þess, sem var ósjald-
an, að Imba hafði aflað hluta sem síð-
an ekki stóðust hennar ýtrustu kröfur
og höfnuðu þeir því oft í ranni ann-
arra.
Imba og Hjalti ferðuðust mikið
heima og erlendis, meira en tíðkaðist
almennt hjá fólki á okkar uppvaxtar-
árum, og eru margar góðar minning-
ar af frásögnum Imbu af ferðum til
fjarlægra staða þar sem frásögnin var
okkur upplifun fjarlægra drauma.
Við systkinin viljum votta Hansínu
Ástu, Ingva og börnum þeirra okkar
innilegustu samúð og þökkum þeim
umhyggjuna fyrir Imbu og Hjalta.
Foreldrar okkar og föðursystir
kveðja nú systur, góðan vin og sam-
ferðakonu sem sárt er saknað og vott-
um við þeim okkar dýpstu samúð.
Það eru forréttindi að hafa fengið
að vera samferða Imbu og Hjalta og
kveðjum við systkinin og fjölskyldur
okkar þau með virðingu og þökk fyrir
það sem okkur var gefið af umhyggju
og væntumþykju.
Blessuð sé minning Imbu.
Jón B., Gísli, Sigmundur,
Hansína Ásta, Anna Björg,
og Dóra Sjöfn Stefánsbörn
og fjölskyldur.
Elskuleg móðursystir mín Ingi-
björg Jónsdóttir er látin. Hún Imba
frænka sem staðið hefur fyrir svo
margt – festu, öryggi, myndarskap,
hlýju og yndislegt bros.
Einstaklega falleg kona jafnt í útliti
sem persónu. Mér koma fyrir hug-
skotssjónir blá dragt, mávastell,
handavinna, ljóst borðstofusett með
grænröndóttum setum, einstakar
kleinur, það er af svo mörgu að taka.
Myndarskapur í heimilishaldi var
henni svo eðlislægur og hreint ynd-
islegt að vera gestur þeirra hjóna,
alltaf tókst þeim að finnast maður
vera einstakur í hvert sinn er maður
sótti þau heim.
Saman gengu þau farsælan og fal-
legan æviveg, Imba og Hjalti. Alltaf
samstiga og af reisn og myndugleik
ræktuðu þau garðinn sinn í orðsins
fyllstu merkingu. Þeim hjónum varð
ekki barna auðið en þess fengum við
systkinabörn þeirra líka að njóta til
fulls því frændgarðinn ræktuðu þau
af stakri prýði og umhyggju.
Mikið óskaplega þótti mér vænt
um þetta fólk og mun ég sakna þeirra
svo lengi sem ég lifi.
Ég vil biðja um sérstakar samúðar-
kveðjur til mömmu minnar, Stebba
frænda, Hansínu og Ingvars og
þeirra barna sem reyndust Imbu og
Hjalta einstök alla tíð.
Kristjana Ólafsdóttir.
Góð vinkona okkar hjóna, hún
Imba, er látin rétt rúmlega 86 ára
gömul. Það voru aðeins tíu mánuðir á
milli þeirra hjóna, en Hjalti Þórðar-
son, eiginmaður hennar, lést þann 12.
mars á síðasta ári.
Það liggur mikið eftir þessi sæmd-
ar hjón í samfélagi okkar, eftir liðlega
sextíu ára búsetu hér, þótt ekki yrði
þeim barna auðið.
Vinahópurinn er stór, bæði skyldra
og vandalausra, og því mikil eftirsjá í
svo góðum vinum, sem allir dáðu og
nutu þess að heimsækja og vera með.
Gestrisni og hlýlegrar móttöku þeirra
hjóna á heimili þeirra til margra ára
að Engjavegi 43, á Selfossi, munu
margir minnast. Rausnarlegar veit-
ingar húsmóðurinnar sem naut þess
að setja upp veislu í hvert sinn sem
einhvern gest bar að garði.
Imba var alla tíð mjög áberandi í
samfélagi okkar hér á Selfossi, fyrir
glæsilega framkomu og reisn og naut
sín vel í þjónustu við sveitunga sína og
aðra viðskiptavini um árabil í versl-
unum Kaupfélags Árnesinga.
Ingibjörg var líka mjög dugleg og
virk í félagsmálum og var um árabil í
stjórn Kvenfélags Selfoss, þar sem
Hildur og hún unnu mikið saman.
Auk þess hafði hún á hendi um ára-
tuga skeið, af mikilli samviskusemi,
sölu á minningarkortum félagsins til
styrktar Sjúkrahúsi Suðurlands.
Imba og Hjalti nutu þess að ferðast
allt fram á síðustu ár, bæði innan-
lands og erlendis. Á þessum ferðum
sínum eignuðust þau marga góða vini
og hefur sú vinátta haldist allt til
þessa dags.
Í því sambandi má nefna hálend-
isferðir þeirra fyrr á árum hér innan-
lands með góðum vinum sínum og
áhugaverðar og oft aflasælar veiði-
ferðir þeirra inn í Veiðivötn á Land-
mannaafrétti.
Í utanlandsferðum þóttu það sönn
forréttindi að lenda með þeim í hópi
ferðafélaga og þá spillti ekki gleð-
skapnum, þegar Hjalti settist við pí-
anóið og spilaði undir almennan söng,
eins og honum einum var lagið. Ekki
veit ég með vissu hve víða þau hafa
sést í slíkum ferðum á jarðarkringl-
unni, líklega í flestum heimsálfum og
ótrúlegum fjölda þjóðlanda. Nú eru
þau Hjalti og Imba komin saman á ný
og það finnst okkur vinum þeirra
passa vel, því ósjaldan þegar við
ræddum um þau og það sem þeim
tengdist, þá sögðum við í orðræðunni,
„Hjalti og Imba“.
Við hjónin fögnum því og þökkum
einlæglega hvað þau áttu góðar
stundir bæði tvö á Ljósheimum, þar
til yfir lauk. Hjúkrunar- og þjónustu-
fólk sem þar vinnur er hetjur af guðs-
náð í augum okkar eldra fólksins.
Innilegar samúðarkveðjur til að-
standenda Ingibjargar frá okkur.
Minningin um Imbu vinkonu er
björt og fögur.
Hildur og Hafsteinn.
Fleiri minningargreinar um Ingi-
björgu Jónsdóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Höfundar eru: Ásdís Ágústsdóttir;
Helgi S. Haraldsson og fjölskylda.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Barnagæsla
Leitum að barngóðri og reyndri
manneskju til að gæta 10 mánaða
drengs hluta úr degi, 3 daga vik-
unnar. Afar meðfærilegt barn
sem gott er að annast. Erum bú-
sett í rúmgóðri íbúð í Bryggju-
hverfi. Góð laun. S. 692 9020.
Bækur
Ættfræðibækur, sýslumannaæf-
ir I-V, Dalamenn, Strandamenn,
Íslenskar æviskrár I-VI, Hver er
maðurinn, Æviskrár samtíðar-
manna. Ennfremur ferðabækur
um Ísland og forn Íslandskort.
Sími 869 6043.
Fatnaður
Allar fatabreytingar
Styttum buxur meðan beðið er.
Skraddarinn á horninu,
Vatnsstíg 11, s. 552 5540.
Allar fatabreytingar
Styttum buxur meðan beðið er.
Skraddirinn á horninu,
Vatnsstíg 11, s. 552 5540.
Ferðalög
Saumaklúbbar,
sérsníðum ferðir eftir þörfum!
Hafið samband.
Ferðaskrifstofan Ísafold,
sími 544 8866.
www.isafoldtravel.is
Litlir hópar - lifandi ferðir!
Gisting
Hótelíbúðir 34-47 fm
Glæsileg gisting í 101 Reykjavík,
laus við skarkala næturlífsins.
Internet, gervihnöttur, jacuzzi.
Febrúartilboð kr. 9.900
m. vsk og morgunmat.
Davíð sími 822 1963 og 534 0444.
Sjón er sögu ríkari, sjá: icelandica.com
Veitingastaðir
Nýbýlavegi 20, s. 554 5022
Súpa og fjórir réttir.
Verð 1.390 á mann.
Tekið með, verð 1.250.
Heimsendingarþjónusta
Húsgögn
Fallegar yfirbreiðslur. Fallegar
yfirbreiðslur fyrir sófa, stóla og
borðstofustóla. Sófalist, Síðumúla
20 (2. hæð). Opnunartími mánud.-
fimmtud. 15.00-18.00 og laugard.
12.00-15.00.
Húsnæði í boði
Efnispakki
Harðviðarhús.
Einbýlishús.
Sumarhús.
Gestahús.
Bílskúrar.
Klæðningarefni.
Pallaefni.
Þakkantar.
Sjá nánar á heimasíðu:
www.kvistas.is, sími 869 9540.
Húsnæði óskast
Húsnæði óskast í
Setbergshverfi.
Kona á miðjum aldri óskar eftir
íbúð sem allra fyrst í Setbergs-
hverfi í Hafnarfirði. Öruggum
greiðslum heitið. Fyrirfram-
greiðsla ef óskað er.
Upplýsingar í síma 897 3035.
Fyrirtæki
Söluskáli óskast
Óska eftir að kaupa ca 30 m² sölu-
skála til flutnings eða húsnæði
sem gæti hentað undir slíka starfs-
emi. Stál eða álgrind að húsi kæmi
líka til greina.
S. 892 4592, netf: hjalli@talnet.is
Sumarhús
Sumarhús — orlofshús.
Erum að framleiða stórglæsileg
og vönduð sumarhús í ýmsum
stærðum. Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbú-
in hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
KANADA SUMARHÚS
Fullbúin og fokheld hús eða sum-
arhús, garðhús og gestahús. Inn-
flutt efni frá Kanada og kanadísk-
ir smiðir í stærri verkefnin.
www.kanadasumarhus.com .
Uppl. í sími 893 9902.
Námskeið
Upledger höfuðbeina- og
spjaldhryggjarm. Byrjendaáfangi
í Upledger höfuðbeina- og spjald-
hryggjarmeðferð, CSTI, verður
haldin 9.-12. febrúar næstkom-
andi á Radisson SAS Hótel Sögu.
Upplýsingar og skráning í síma
863 0610 og 863 0611 eða á
www.upledger.is.
Ropeyoga
Ný námskeið að hefjast í Baðhús-
inu, Brautarholti 20. Upplýsingar
og skráning í síma 821 1399 og á
www.kata.is .
Reykstopp árið 2006
Sjálfstyrking - reykstopp - frelsi
frá streitu og kvíða.
Notuð er m.a. EFT (Emotional
Freedom Techniques) og
dáleiðsla (Hypnotherapy).
Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslu-
fræðingur, sími 694 5494,
www.EFTiceland.com .
Íslenska fyrir útlendinga. Stig
I og II Icelandic I, 7 vikna hrað-
námskeið 6/2-22/3 mánud., mið-
vikud. og föstud. kl. 18-19:30.
Stig II: 10 vikna námskeið 7/2-13/4
þriðjud./fimmtud. kl 18-19:30,
Ármúla 5, sími 588 1169 -
iceschool@icetrans.is
Handstúkur
Lærið að prjóna: Sjöl og hyrnur,
dúka, handstúkur, lopapeysur.
Fjölbreytt handverksnámskeið.
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN,
Laufásvegi 2 - 101 Reykjavík,
símar 551 7800 - 895 0780,
hfi@heimilisidnadur.is,
www.heimilisidnadur.is.
Tölvur
XBox 360 til sölu. Til sölu Xbox
360 með HD (20gb), þráðlaus net-
kort, þrjú stýri (eitt með snúru og
tvö þráðlaus), tveir leikir (Project
Gotham Racing 3, Need for Speed
Most Wanted. S. 896 8061.
Til sölu
Tékkneskar og slóvanskar
kristalsljósakrónur. Handslípaðar.
Mikið úrval. Gott verð.
Slóvak Kristall, Dalvegi 16b,
201 Kópavogur, s. 544 4331.
Ótrúlegt úrval af öðruvísi
vörum beint frá Austurlöndum.
Frábært verð. Sjón er sögu ríkari.
Vaxtalausar léttgreiðslur.
Opið virka kl. 11-18, laug. 11-15.
Sigurstjarnan,
Bláu húsin Fákafeni,
sími 588 4545,
netfang: postulín.is
Lager af Tattoo litum og stensl-
um. Lager af frábærum tattoo lit-
um og stenslum, mjög vinsælt hjá
krökkunum. Auðvelt að selja
þessa vinsælu vöru. Upplýsingar
í síma 899 6669.
Bókhald
Bókhald. Get bætt við mig verk-
efnum í bókhaldi og launaútreikn-
ingi. Einnig framtöl einstaklinga.
Sveinbjörn, s. 898 5434, netfang
svbjarna@simnet.is.