Morgunblaðið - 11.02.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 41. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Komdu í sirkus
Silvíu Nóttar
Það er alltaf einhver sem kynnir
trúðana inn í hringinn | Af listum
Lesbók, Börn og Íþróttir
Lesbók | Er RÚV risavaxinn offitusjúklingur? Elskar að segja
sögur Börn | Hressir krakkar í Melaskóla Íþróttir | Með réttu
treyjuna á fæðingardeildina Egyptar Afríkumeistarar
Palo Alto. AP. | Bandarísk kona, sem er 90
sentimetrar á hæð og var tæp 17 kíló-
grömm á þyngd áður en hún varð þunguð,
hefur alið fyrsta barn sitt – heilbrigðan
son. Læknar í Kaliforníu skýrðu frá þessu í
gær.
Eloysa Vasquez, sem þjáist af alvarlegri
beinbrotasýki, notar hjólastól og hafði
tvisvar sinnum misst fóstur. Hún þyngdist
um níu kílógrömm á meðgöngunni og ól
barnið 24. janúar á barnasjúkrahúsi Stan-
ford-háskóla.
Læknarnir sögðu að barnið hefði verið
tekið með keisaraskurði átta vikum fyrir
tímann til að vernda Vasquez vegna smæð-
ar móðurlífsins.
Sonurinn, sem hefur verið skírður Tim-
othy, erfði ekki sjúkdóm móðurinnar. „Ég
held að hann verði hávaxinn strákur,“
sagði Vasquez.
AP
Eloysa Vasquez og eiginmaður hennar,
Roy, sýna nýfæddan son sinn, Timothy.
Nítján kíló-
gramma móðir
AFTAKAVEÐUR gerði á Flateyri
í gærkvöldi með þeim afleiðingum
að gamalt trésmíðaverkstæði, áfast
slökkvistöð bæjarins, staðsett við
Túngötu, hreinlega splundraðist,
en vindur fór upp í 43,9 m/s í kröft-
ugustu hviðunum. Að sögn lögregl-
unnar á Ísafirði urðu engin meiðsl á
fólki, en brakið úr byggingunni
dreifðist í a.m.k. 100 metra radíus.
Veður á borð við þetta nefnist
Grundarendaveður og skall síðast á
á Flateyri í febrúarmánuði 1991.
„Ég get sagt þér að aðkoman að
á Flateyri og meðlimur í björgun-
arsveitinni, var úti meðan veðrið
var sem verst. Segir hann vindhvið-
urnar hafa verið rosalegar. „Það
fuku meira að segja bílar og ljósa-
staur svignaði þannig að hann
smurðist ofan í jörðina,“ segir Ön-
undur og tekur fram að 60-70 fiski-
kör hafi fokið og dreifst um bæinn.
Björgunarsveitin fór í gærkvöld
um bæinn til að kanna hvort allir
væru heilir á húfi. Þegar það lá
ljóst fyrir tók við heilmikið hreins-
unarstarf og fyrirbyggjandi að-
gerðir.
verkstæðinu minnti mann óþyrmi-
lega á aðkomuna eftir snjóflóðið.
Það er hreinlega ekkert eftir af
húsinu sem sprakk í loft upp, en
brakið úr því dreifðist yfir stórt
svæði og allt handónýtt,“ segir Páll
Önundarson, íbúi á Flateyri.
Að sögn Ívars Kristjánssonar,
formanns björgunarsveitarinnar
Sæbjargar á Flateyri, urðu miklar
skemmdir vegna braksins. „Það
eru mörg hús illa farin eftir fok og
einnig bílar. Rúður eru brotnar og
þakplötur hafa losnað. Það eru líka
skemmdir á húsunum sjálfum,
klæðningar og annað ónýtt.“
Önundur Hafsteinn Pálsson, íbúi
Valur Sæþór Valgeirsson úr björgunarsveitinni á Suðureyri var einn þeirra sem lögðu hönd á plóginn við hreinsunarstarf í gærkvöldi.
Ekkert eftir af húsinu
Eftir Silju Björk Huldudóttur
og Sunnu Ósk Logadóttur
Miklar skemmdir urðu í vonskuveðri á Flateyri í gærkvöldi
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Verkstæðið sprakk | 11
EINN af helstu múslímaklerkum
Danmerkur, Ahmed Abu Laban, neit-
aði því í gær að hafa kynt undir of-
beldisverkum í löndum múslíma
vegna umdeildra skopmynda af Mú-
hameð spámanni.
„Við höfum ekki hellt olíu á eldinn,“
sagði Abu Laban, ímam í Kaup-
mannahöfn, eftir föstudagsbænir.
„Við höfum ekki æst upp alþýðu
manna í múslímaheiminum.“
Abu Laban og fleiri danskir músl-
ímaklerkar eru sakaðir um að hafa
kynt undir reiði múslíma með því að
reka áróður gegn Danmörku í arab-
ískum fjölmiðlum á ferðum um Mið-
Austurlönd í desember og janúar.
Skoðanakönnun sem birt var í gær
bendir til þess að meirihluti Dana telji
að trúarleiðtogarnir í Danmörku eigi
mesta sök á ofbeldinu.
„Eftir eldgosið kemst á friður“
„Ástandið núna er mjög jákvætt,“
hafði fréttavefur danska ríkisútvarps-
ins eftir Abu Laban. „Það knýr okkur
til að veita hvert öðru meiri athygli og
færir okkur saman.“
Klerkurinn bætti við að það já-
kvæða við deiluna væri að hún hefði
vakið umræðu um íslömsk gildi á
Vesturlöndum. „Eldfjallið bjó í okk-
ur,“ sagði hann. „Núna gýs það og eft-
ir eldgosið kemst á friður að nýju.“
Neitar því að eiga
sök á ofbeldinu
Reuters
Múslímaklerkurinn Abu Laban prédikar í mosku í Kaupmannahöfn. Beðist afsökunar | 18
New York. AP. | Michael Bloomberg,
borgarstjóri New York, er ekki gef-
inn fyrir leiki í vinnunni og var því
fljótur að reka borgarstarfsmann
þegar hann sá kapal á tölvuskján-
um hans.
Edward Greenwood IX var að
lesa skjöl við skrifborð sitt á einni
af skrifstofum borgarinnar þegar
Bloomberg kom þangað í fylgd ljós-
myndara og heilsaði starfsfólkinu.
Greenwood stóð upp þegar borg-
arstjórinn nálgaðist skrifborð hans
og ljósmyndarinn tók mynd af þeim
þegar þeir heilsuðust.
Bloomberg sá kapal á tölvuskján-
um og rak skrifstofumanninn fyrir
að misnota tölvu í eigu borg-
arinnar. „Vinnustaðurinn er ekki
rétti staðurinn fyrir leiki,“ sagði
hann.
Rekinn vegna
tölvukapals
Kúveitborg. AFP. | Mannræningjar sem tóku
bandarísku blaðakonuna Jill Carroll í gísl-
ingu í Bagdad 7. janúar hafa hótað að myrða
hana 26. febrúar verði ekki gengið að kröfum
þeirra fyrir þann tíma.
Sjónvarpsstöðin Al-Rai í Kúveit hafði
þetta í gærkvöldi eftir heimildarmönnum
sem eru í sambandi við mannræningjana.
Carroll hvatti bandarísk yfirvöld til að verða
við kröfu mannræningjanna á myndbands-
upptöku sem birt var í fyrradag. Þeir krefj-
ast þess að allar konur í íröskum fangelsum
verði látnar lausar.
Hóta að myrða
gísl í Írak
♦♦♦