Morgunblaðið - 11.02.2006, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HÚS SPRAKK Í LOFT UPP
Hús sprakk í loft upp í veðurofsa
sem gekk yfir Flateyri í gærkvöldi.
Náði vindhraðinn tæplega 43,9 m/
sek í sterkustu hviðunum. Engin
meiðsl urðu á fólki en skemmdir á
húsum og bílum urðu töluverðar
bæði vegna braks úr húsinu sem
sprakk og einnig vegna vindhraðans.
Neitar að eiga sök á ofbeldi
Einn af helstu múslímaklerkum
Danmerkur, Ahmed Abu Laban,
neitaði því í gær að hafa kynt undir
ofbeldisverkum í löndum múslíma
vegna umdeildra skopmynda af Mú-
hameð spámanni. Danskir múslíma-
klerkar eru sakaðir um að hafa ýtt
undir ofbeldið með því að reka áróð-
ur gegn Danmörku í arabískum fjöl-
miðlum í desember og janúar.
Fundu gröf í Dal konunga
Bandarískir fornleifafræðingar
hafa fundið nýja gröf í Dal konung-
anna í Egyptalandi. Þetta er fyrsta
gröfin sem finnst í dalnum síðan gröf
Tutankhamon konungs fannst 1922.
Steinar úr Steinafjalli
Grjót hrundi úr fjallinu Steina-
fjalli fyrir ofan bæinn Steina I í gær-
dag. Nokkrar skriður féllu og var
stærsti hnullungurinn 15–20 tonn.
Fór skriðan ekki nálægt bænum og
menn og skepnur sakaði ekki.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Umræðan 40/53
Úr verinu 14 Bréf 54
Viðskipti 16 Kirkjustarf 54/55
Erlent 18/20 Minningar 56/65
Minn staður 22 Myndasögur 70
Akureyri 24 Dagbók 70/73
Suðurnes 28 Víkverji 70
Landið 24 Staður og stund 71
Árborg 28 Velvakandi 70
Daglegt líf 34/38 Bíó 78/81
Ferðalög 38 Ljósvakamiðlar 82
Menning 30/31 Staksteinar 83
Forystugrein 42 Veður 83
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir bæklingurinn Sérferðir 2006
frá Heimsklúbbi Príma Emblu.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
% ! !
!
&
'() *
+,,,
!
!!
!
! !!
„VIÐ lítum nánast á það sem lítilsvirðingu við okk-
ur að leggja fram svona tilboð,“ segir Vernharður
Guðnason, formaður samninganefndar Lands-
sambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
(LSS), um tilboð það sem launanefnd sveitarfé-
laga (LN) lagði fram á samningafundi á fimmtu-
dag. Tilboðið hljóðaði upp á um 25% hækkun launa
og hafnaði LSS því alfarið. Vernharður bendir
hins vegar á að byrjunarlaun slökkviliðsmanna
séu tæplega 105 þúsund krónur á mánuði, vinnu-
vikan sé 42 tímar og inni í grunnlaunum séu ýmsir
þættir sem aðrar stéttir fái greitt sérstaklega fyr-
ir. LSS líti svo á að félagsmenn sínir hafi dregist
verulega aftur úr í launum. Meðaltalshækkun
þeirra kjarasamninga sem LN gerði á síðasta ári
hafi verið um 22% og því sé aðeins um 2% hækkun
umfram það að ræða í tilboðinu. Þá sé sérstaða
starfa slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna ekki
metin að verðleikum né þær menntunarkröfur
sem gerðar eru til þeirra.
Útlærður slökkviliðsmaður með
130 þúsund krónur í grunnlaun
Gerð er krafa um að slökkviliðsmenn hafi iðn-
menntun eða sambærilega menntun sem nýtist í
starfi. „Okkar meginkrafa er að byrjunarlaunin
inn í slökkviliðið miðist við þær kröfur sem gerðar
eru til okkar. Það hefur aldrei verið gert.“
Vernhaður segir að starfsmenn LSS hækki
nokkuð hratt í launum eftir að þeir hefji störf en
samt sem áður sé útlærður slökkviliðsmaður, sem
kominn er með neyðarbílsréttindi, aðeins með um
130 þúsund krónur í grunnlaun á mánuði sem sé
óviðunandi.
„Slökkviliðsmenn eru orðnir langþreyttir á lé-
legum launum og við munum láta á þau ráð reyna
sem við höfum tiltæk. Okkur er að sjálfsögðu mik-
ið í mun að til þess þurfi ekki að koma en við mun-
um ekki hika við það.“
Vernharður segist taka undir með ályktun fund-
ar LSS á fimmtudag um að dráttur hafi orðið á
kjaraviðræðum og að ekki sé rétt sem fram kom
hjá formanni samninganefndar LN að viðræðu-
áætlun hafi náð til loka janúar heldur hafi hún
runnið út um áramót. Þá hafi fundum verið frestað
ítrekað. Samninganefnd LSS semur fyrir hönd
300 slökkviliðsmanna í fullu starfi og um 800 til
viðbótar sem eru í hlutastarfi.
Vernharður segir að enn hafi ekki komið til upp-
sagna slökkviliðsmanna en fólk bíði átekta hvað
komi út úr samningaviðræðum. Ekki megi gleyma
að það kosti 10–12 milljónir að þjálfa hvern
slökkviliðsmann svo um gríðarlegt hagsmunamál
fyrir sveitarfélögin sé einnig að ræða.
Ákveðið hefur verið að funda aftur á mánudag
og reyna að finna frekari flöt á viðræðum, segir
Vernharður.
Slökkviliðsmenn eru lang-
þreyttir á lágum launum
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
NOKKUR inflúensutilfelli af A-
og B-stofni hafa fundist hér á
landi að undanförnu og sagði
Haraldur Briem, sóttvarnar-
læknir hjá landlæknisembætt-
inu, að reynslan hefði sýnt það í
gegnum tíðina að stutt væri í
faraldur eftir að tilfelli hefðu
komið fram.
Aðspurður hvenær hann ætti
von á að faraldurinn myndi
breiða úr sér gat Haraldur ekki
svarað til um það en bjóst fast-
lega við því að það yrði á næstu
vikum, yfirleitt hæfist þetta ró-
lega en skylli svo á stuttu eftir
það.
Einkenni sem fólk má búast
við eru hár hiti, vöðvaverkir,
lasleikatilfinning, hálssærindi og
jafnvel hósti en hraust fólk ætti
að geta losað sig við veikindin á
5–7 dögum, en ekki er teljandi
munur á milli stofna. Um leiðir
til að fyrirbyggja smit sagði
Haraldur að tíður handþvottur
væri mikilvægur en inflúensan
væri mjög smitandi. Einnig
væri mikilvægt að halda sig
heima við ef veikindin gera vart
við sig vegna smithættunnar.
Fyrir utan það er hægt að láta
bólusetja sig en á milli 50 og 55
þúsund manns láta bólusetja sig
á hverju hausti. Haraldur sagði
jafnframt að í lagi væri að bólu-
setja fólk núna ef bóluefni væri
til. Um uppruna inflúensunnar
sagði Haraldur nokkur dæmi
um hana í Skandinavíu en lík-
legra væri að hún kæmi frá
meginlandi Evrópu.
Inflúensan byrjuð
að láta á sér kræla
RAGNHILDUR Sigurðardóttir,
kylfingur úr Golfklúbbi Reykjavík-
ur, var í gær útnefnd íþróttamaður
Reykjavíkur árið 2005 við hátíðlega
athöfn í Höfða. Steinunn Valdís
Óskarsdóttir borgarstjóri afhenti
Ragnhildi tvo bikara, annan frá
Reykjavíkurborg til varðveislu en
hinn frá Íþróttabandalagi Reykja-
víkur til eignar. Þar að auki fékk
hún 150 þúsund króna styrk frá
ÍBR, sem nýtast mun vel til æfinga
á vormánuðum, þegar veðrið á Ís-
landi býður ekki upp á iðkun golf-
íþróttarinnar.
Ragnhildur stóð sig afar vel á síð-
asta ári og varð þrefaldur Íslands-
meistari, í höggleik í þriðja sinn, í
holukeppni í fimmta skipti og í
sveitakeppni með félagi sínu en hún
varð jafnframt stigameistari
Toyota-mótaraðarinnar.
„Þetta var alveg meiriháttar og
ég var eiginlega í losti þegar verið
var að taka myndirnar, gat ekki einu
sinni brosað,“ sagði Ragnhildur þeg-
ar Morgunblaðið náði af henni tali í
gærkvöldi. „Þetta kom mér mikið á
óvart enda er svo mikið af frábæru
íþróttafólki í Reykjavíkurborg, og
það er því ótrúlega mikill heiður að
fá þessa viðurkenningu.“
Ragnhildur segir að á síðasta ári
hafi hún náð sínum besta árangri frá
upphafi en hún muni halda ótrauð
áfram. „Á hverju ári set ég mér það
markmið að gera betur en á síðasta
ári og það er á dagskránni að fara á
keppnismót erlendis í sumar,“ segir
Ragnhildur og minnist þess þegar
hún var stödd í Höfða fyrir 21 ári en
þá tók félagi hennar úr Golfklúbbi
Reykjavíkur við sömu viðurkenn-
ingu. „Þannig að golf er svolítið
sniðug íþrótt, það er aldrei of seint
að standa sig.“
Ragnhildur Sigurðardóttir valin íþróttamaður Reykjavíkur 2005
Mitt besta ár frá upphafi
Morgunblaðið/Kristinn