Morgunblaðið - 11.02.2006, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
KOFI Annan hverfur úr stóli fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna
í árslok en þá verða liðin tíu ár frá því
að hann tók við embættinu. Vanga-
veltur eru þegar hafnar um það hver
leysi hann af hólmi og raunar er full-
yrt að hafin sé keppni á bakvið tjöld-
in um það hver hlýtur embættið. Þar
eru einkum nefndir til sögunnar
ýmsir frammámenn frá Asíu, enda
ætti næsti framkvæmdastjóri SÞ að
koma þaðan skv. hefðinni. Richard
Holbrooke, fyrrverandi fastafulltrúi
Bandaríkjanna hjá SÞ, líkti þeirri
baráttu sem nú væri háð á bakvið
tjöldin við forval stóru flokkanna
tveggja í Bandaríkjunum vegna for-
setakosninga þar í landi í grein sem
hann skrifaði í The Washington Post
3. febrúar sl.
Áhugasamir frambjóðendur væru
á ferð og flugi, heimsæktu áhrifa-
menn í höfuðstöðvum SÞ í New
York, valdaaðila í Washington, Pek-
ing, Moskvu, París og London.
Nefnir Holbrooke síðasttöldu
borgirnar fimm væntanlega vegna
þess að ljóst er að enginn getur orðið
framkvæmdastjóri SÞ nema hafa til
þess stuðning allra þjóðanna fimm
sem fast sæti og neitunarvald eiga í
öryggisráði SÞ; Bandaríkjanna,
Kína, Rússlands, Frakklands og
Bretlands.
Jose Ramos-Horta líklegur
En hverjir eru helst nefndir til
sögunnar sem hugsanlegir eft-
irmenn Annan? Holbrooke telur upp
nokkur nöfn í áðurnefndri grein í
The Washington Post: Surakiart
Sathiratahi, aðstoðarforsæt-
isráðherra Taí-
lands, en Taí-
lendingar gerðu
áhuga hans ljós-
an á síðasta ári
og hefur hann opinskátt sóst eftir
embættinu, hefur m.a. verið dugleg-
ur við að heimsækja stórborgirnar í
því skyni að afla framboði sínu
stuðnings.
Þá skiptir máli að hann hefur
tryggt sér formlegan stuðning Sam-
taka Suðaustur-Asíuríkja.
Holbrooke nefnir einnig Ban Ki
Moon, utanríkisráðherra Suður-
Kóreu. Ban þykir hafa staðið sig vel í
starfi og á sunnudag var hann á ferð
í París, var eftir því tekið að hann
flutti þar ræðu um frið og hagsæld í
Norðaustur-Asíu á frönsku, en svar-
aði svo spurningum á ensku.
En sem kunnugt er eru bæði
franska og enska meðal opinberra
tungumála SÞ og áreiðanlega engin
tilviljun að Ban lagði sig eftir því að
Hver tekur við af Kofi Annan?
Jose
Ramos-Horta
Surakiart
Sathirathai
Líklegast þykir að næsti framkvæmdastjóri SÞ komi frá Asíu
Ban
Ki-Moon
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
Singapúr. AFP. | Sérfræðingar segja
að meint áform al-Qaeda-hryðju-
verkasamtakanna um að fljúga far-
þegaþotu á hæsta skýjakljúfinn á
vesturströnd Bandaríkjanna,
Bankaturninn í Los Angeles, árið
2002 hafi varla náð lengra en á um-
ræðustigið. Telja þeir að George W.
Bush Bandaríkjaforseti kunni að
hafa skýrt frá þessum áformum al-
Qaeda til þess að reyna að fylkja
bandarísku þjóðinni á bakvið sig og
efla stuðning á alþjóðavettvangi við
hið svonefnda hryðjuverkastríð.
Bush greindi frá áformunum á
fimmtudag og sagði þá að komið
hefði verið í veg fyrir áðurnefnt
hryðjuverk með aðstoð Asíuþjóða.
Bush sagði að Khalid Sheikh Mo-
hammed, sem er grunaður um að
hafa skipulagt hryðjuverkin í
Bandaríkin 11. september 2001,
hefði hafið skipulagningu árás-
arinnar á skýjakljúfinn í Los Angel-
es í október sama ár. Sagði Bush að í
stað araba hefði meiningin verið sú
að beita ungum mönnum frá SA-
Asíu sem skipuleggjendur töldu
ekki vekja eins miklar grunsemdir.
Búið að handsama
alla fjóra
„Ég held að hann sé aðeins að
ýkja,“ sagði Clive Williams, sérfræð-
ingur í öryggis- og varnarmálum við
Australian National University, um
yfirlýsingar Bush Bandaríkja-
forseta. Sagði Williams að þó að al-
Qaeda hefði látið sér detta árás sem
þessi í hug þá hafi liðsmenn samtak-
anna varla verið mjög langt á veg
komnir með skipulagningu hennar.
Bush sagði að ungu mennirnir,
sem fremja áttu hryðjuverkið, hefðu
farið á fund Osama bin Laden áður
en undirbúningur hófst fyrir alvöru,
en áætlanirnar runnu út í sandinn
þegar ónefnt ríki í Suðaustur-Asíu
fangaði ónefndan háttsettan al-
Qaeda-liða.
Bush sagði að indónesíski klerk-
urinn Hambali, einn af leiðtogum
hryðjuverkahreyfingarinnar Jem-
aah Islamiyah, hefði tekið þátt í
undirbúningi árásarinnar. Er haft
eftir Frances Townsend, ráðgjafa
Bandaríkjaforseta um hryðjuverka-
varnir, að allir fjórir liðsmenn sell-
unnar, sem átti að fremja hryðju-
verkið, hefðu verið handsamaðir.
En hún neitaði að nefna þau fjögur
ríki í Suður- og Suðaustur-Asíu sem
áttu þátt í að þeir náðust og þar með
var komið í veg fyrir hryðjuverkið.
Fyrir liggur hins vegar að Ham-
bali var handtekinn í Taílandi árið
2003 og Khalid Sheikh Mohammed,
sem kallaður hefur verið „heilinn“
og er sagður hafa verið þriðji
áhrifamesti aðilinn í al-Qaeda, var
handtekinn snemma sama ár í Pak-
istan.
Rohan Gunaratna, yfirmaður
rannsókna á hryðjuverkum við
Institute of Defence and Strategic
Studies í Singapúr, sagði engan vafa
leika á því að Hambali hefði verið al-
Qaeda innan handar og að til um-
ræðu hefðu verið frekari hryðju-
verk í Bandaríkin. Hann tók hins
vegar undir með Williams að málið
hefði aðeins verið á umræðustigi.
Indónesíski sérfræðingurinn
Kusnanto Anggoro benti á að erfitt
væri að staðfesta yfirlýsingar Bush,
jafnvel þó að sannarlega sé líklegt
að róttæklingar í Suðaustur-Asíu
hefðu viljað taka þátt í verkefni sem
þessu. „Vandinn er þessi: hvers
vegna lýsir Bush þessu yfir núna?“
sagði Anggoro. Sagði hann að lík-
lega væri Bandaríkjaforseti að
greina frá þessu núna til að fá ríki í
Voru tillögur um árás aðeins á umræðustigi?
Sérfræðingar velta fyrir sér hvers vegna Bush greinir nú
frá hugmyndum hryðjuverkamanna um árás á Los Angeles