Morgunblaðið - 11.02.2006, Qupperneq 24
24 LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
LANDIÐ
Kópasker | „Ég hefði ekki trúað því hvað
þetta er gaman. Frúrnar brosa út undir
eyru,“ segir Ingunn St. Svavarsdóttir, sál-
fræðingur og myndlistarkona í Öxarfirði.
Hún er í forsvari fyrir dansvakningu sem nú
er á Kópaskeri og nágrannasveitum og
þangað kemur raunar fólk austan úr Þist-
ilfirði og Raufarhöfn og vestan úr Keldu-
hverfi.
„Ég hef búið hér í tuttugu ár rúm og oft
heyrt talað um að það þyrfti að koma á
danskennslu hér, en aldrei orðið neitt úr
neinu. Ég bara dreif í þessu. Skrifaði dreifi-
bréf til að kanna áhugann og fékk góðar
undirtektir,“ segir Ingunn. Yfirskrift bréfs-
ins var „Dönsum saman inn í framtíðina“ og
virðist það hafa hrifið.
Anna Breiðfjörð, danskennari á Akureyri,
kemur einu sinni í mánuði til að kenna og
fer kennslan fram í Pakkhúsinu á Kópa-
skeri. Fyrst koma byrjendurnir og eru fyrst
einir með kennaranum og síðan koma þeir
sem voru með síðasta vetur. Hóparnir eru
því saman um tíma en reyndara fólkið dans-
ar síðan lengur. Ingunn segir að kennslan sé
mjög fjölbreytt. Hún nefnir hefðbundna
dansa eins og tangó og enskan vals, einnig
hringdans og salsa og fleiri tískudansa. Síð-
an býður kennarinn nemendum að taka með
sér tónlist heim á diski til að æfa sig og seg-
ir Ingunn eitthvað um að fólk nýti sér það.
Þá segir Ingunn ótrúlegt hvað fólk leggi á
sig langa keyrslu fyrir dansnámskeiðið, eða
alveg austan úr Þistilfirði, þeir sem búa
lengst í burtu. „Þetta er skemmtilegt krydd
í tilveruna og svo fáum við heilmikla líkams-
rækt út úr þessu því við komum rennsveitt
heim að loknu námskeiði.“
„Við erum margar valkyrjur hér sem er-
um vanar því að stjórna. En við fáum engu
að ráða í dansinum. Anna segir okkur það
skýrt að karlmennirnir eigi að stjórna ferð-
inni. Þetta er stundum erfitt fyrir okkur en
við verðum að láta okkur hafa það. Karl-
arnir hafa lúmskt gaman af. Það er kannski
þess vegna sem þeir eru svona viljugir að
koma með okkur,“ segir Ingunn.
Fólkið sem tekur þátt í dansnámskeiðinu
reynir að mæta á sem flestar samkomur til
að nýta lærdóminn, að sögn Ingunnar, og
hún telur að þetta hafi haft góð áhrif á böll-
in. Síðan nefnir hún að danskennararnir í
Eyjafirði stefni að því að halda stóra
danshátíð í vor, fyrir alla hópana sína, „og
við verðum að sjálfsögðu með“, segir Ing-
unn.
„Frúrnar brosa út undir eyru“
Morgunblaðið/Kristbjörg Sigurðardóttir
Dansæfing Mikið fjör og góður andi er á dansæfingunum í Pakkhúsinu á Kópaskeri. Á fjórða
tug manna kemur, þegar mest er. Eitthvað spennandi var í gangi þegar myndin var tekin.
Morgunblaðið/Kristbjörg Sigurðardóttir
Valkyrjur Ingunn St. Svavarsdóttir kom
danskennslunni á og Anna Breiðfjörð kennir.
Dansáhugafólk af öllu norðausturhorninu kemur saman á Kópaskeri og „dansar saman inn í framtíðina“
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
NÝTT húsnæði við Vallartún 2 var tekið í notk-
un á dögunum, en þar eru íbúðir fyrir geðfatl-
aða, 6 talsins, og eru íbúar fluttir inn í 5 þeirra,
sú síðasta verður tekin í notkun innan tíðar.
Fyrirmyndin er sótt í svipað form og er í húsi
við Skútagil þar sem 5 einstaklingar með geð-
fötlun búa í einstaklingsíbúðum og hefur það
gefið mjög góða raun, að sögn Ólafs Torfasonar,
forstöðumanns búsetu geðfatlaðra. Auk
húsanna tveggja við Vallartún og Skútagil er á
Akureyri rekið áfangaheimili við Álfabyggð þar
sem rými er fyrir 7 íbúa.
Nú eru 5 manns á virkum biðlista eftir búsetu
á áfangaheimili eða í þjónustuíbúð að sögn
Kristínar Sóleyjar Sigursveinsdóttur, deild-
arstjóra búsetudeildar Akureyrarbæjar. Íbúða-
sambýli og íbúðir með sameiginlegri aðstöðu er
búsetuform sem hentar öllum, óháð fötlun, svo
framarlega sem þjónustan sem í boði er miðist
við þarfir hvers og eins. Á næstu árum, til ársins
2013, er stefnt að því að afhenda fjölda íbúða af
svipuðu tagi sem leysa munu af núverandi sam-
býli og er markmiðið að engir biðlistar verði eft-
ir búsetuúrræðum og þjónustu.
Akureyrarbær tók í upphafi ársins 1997 að
sér þjónustu við fatlaða með samningi við fé-
lagsmálaráðuneytið, gerðist það sem kallað var
reynslusveitarfélag um þjónustu við fatlaða, en
hafði áður verið á könnu ríkisins, á vegum
Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra. Sköp-
uðust við þessa breytingu tækifæri til að færa
þjónustu við fólk með fötlun skrefi framar á Ak-
ureyri en í þeim sveitarfélögum sem ekki gerðu
slíkan samning. Setti bærinn sér það markmið
að vera ávallt í fararbroddi hvað varðar þjón-
ustu við fólk með fötlun, en búseta er veigamik-
ill þáttur í lífsgæðum fólks og er því lögð áhersla
á að fólk með fötlun geti valið sér búsetuform í
samræmi við óskir sínar og þarfir á sama hátt
og aðrir þjóðfélagsþegnar. Þá er og horft til
þess að búsetuþjónusta við fólk með fötlun sé
skipulögð og veitt á einstaklingsbundnum for-
sendum og með það viðhorf í huga að fólk með
fötlun er ekki einsleitur hópur, heldur ein-
staklingar með fjölbreytilegar þarfir, líkt og
aðrir bæjarbúar.
„Þróunin hefur verið býsna hröð hér á Ak-
ureyri, ekki er ýkja langt síðan allir voru á
stofnun, vistheimilinu Sólborg, sem tók til starfa
í kringum 1970, en hún var lögð niður 1996 og
allir íbúarnir fluttu út í sambýli,“ segir Kristín.
Undanfarin ár hefur svo markvisst verið unnið
að því að íbúum sambýlanna bjóðist meira
einkarými, komist í eigin íbúð kjósi þeir það. Á
liðnu hausti var til að mynda tekið í notkun
íbúðahús við Klettatún þar sem eru 5 íbúðir auk
sameiginlegs rýmis fyrir íbúana. Það hefur að
sögn Kristínar gefist vel, en
sameiginlega rýmið er þó minna notað en
menn bjuggust við. „Fólkið vill vera út af fyrir
sig,“ segir hún.
Alls eru nú 5 manns á biðlista eftir búsetu á
sambýli eða í þjónustuíbúð og að auki hafa 7 lagt
inn umsókn um að fá þjónustuíbúð eða komast á
sambýli á árunum 2007–2008, en þar er um að
ræða yngra fólk á leið úr foreldrahúsum.
Vantar samþykki ráðuneytis
áður en haldið verður áfram
Fyrir þremur árum, árið 2003, var stefna Ak-
ureyrarbæjar í búsetumálum fólks með fötlun
samþykkt en þar er m.a. að finna framtíðarsýn
til ársins 2013. „Við fórum af stað með bjartsýni
og stórhug,“ segir Kristín um áætlunina sem
fram til þessa hefur gengið eftir. Þannig er til að
mynda nú verið að reisa hús með 5 smáíbúðum
sem henta fjölfötluðum en það er við Geislatún.
Öryrkjabandalagið og Þroskahjálp hafa gefið
vilyrði fyrir því að áfram verði haldið að byggja
íbúðir, en samþykki félagsmálaráðuneytis sem
tryggja þarf reksturinn í kringum starfsemina
skorti. „Við höfum ekki fengið beint nei enn þá,
en heldur ekki samþykki fyrir því að halda
áfram á sömu braut,“ segir Kristín.
Kristín og Ólafur segja nokkur brýn mál
þarfnast úrlausnar varðandi málefni geðfatl-
aðra á Akureyri.
Búsetudeildin í samvinnu við geðdeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri hefur sent beiðni
til yfirvalda og óskað eftir fé af svonefndum
Landsímapeningum til að bæta þar úr. Eitt
þeirra er endurhæfingarúrræði. „Það vantar al-
veg hér í bænum eitthvert millibil, sem brúar
bilið frá því fólk útskrifast af geðdeild og fer inn
á áfangaheimili. Það er þó nokkur hópur fólks
sem gæti nýtt sér slíkt úrræði,“ segir Ólafur. Þá
nefndi hann einnig að þörf sé á nýju áfanga-
heimili, það húsnæði sem fyrir er henti ekki alls
kostar vel. Eitt þeirra brýnu mála sem þarfnast
úrlausnar er að geta veitt fólki í viðvarandi
vímuefnavanda úrræði í búsetumálum. Nokkrir
einstaklingar ættu sér langa sögu um hringferð
í meðferðarkerfinu, fólk sem gengi erfiðlega að
losa sig undan vímuefnum. „Við höfum ekki get-
að boðið þessu fólki viðunandi úrræði varðandi
búsetu,“ segir Kristín og nefndi að um lítinn hóp
væri að ræða, „en hann fer hratt vaxandi. Sumir
eru haldnir geðsjúkdómi en glíma að auki við
fíknina,“ segir Kristín en ekki yrði gerð krafa
um vímuleysi íbúa í íbúðum sem þessum hópi
yrði vonandi boðið upp á ef peningar fást. „Við
höfum fram til þessa ekki getað boðið þessum
hópi upp á nokkurn skapaðan hlut,“ segir Krist-
ín.
Loks nefna þau Kristín og Ólafur að tilfinn-
anlega skorti félagsmiðstöð, eða eins konar
hlutverkasetur, aðstöðu þar sem geðfatlaðir
geta komið saman á eigin forsendum og stýra
sjálfir því sem þar fer fram. Í þeim efnum væri
horft til Hugarafls og klúbbsins Geysis sem fyr-
irmynd, „þar sem notandinn sjálfur leggur
áherslur og línur. Það vilja allir hafa hlutverk og
þurfa að hafa hlutverk. Geðfatlað fólk hefur
margt fram að færa,“ segir Ólafur.
Nú er unnið að því að koma á einhvers konar
ráðgjafarþjónustu sem veitt verður fólki heima
hjá sér, nokkurs konar stuðning á meðan fólk er
að fóta sig að nýju í tilverunni t.d. eftir innlögn á
geðdeild. „Þetta yrði svona öðruvísi heimaþjón-
usta,“ segir Ólafur og algjörlega miðuð við
hvern og einn notanda. Einn þyrfti ef til vill að-
stoð varðandi fjármál sín, annar við þrif eða
jafnvel bara hvatningu til að hafa sig sjálfur í
slík verkefni, aðstoð við að taka til lyf eða hvað-
eina sem þarf. „Við viljum mæta notandanum á
hans heimavelli og veita honum þá þjónustu
sem hann sjálfur þarf á að halda,“ bætir Ólafur
við, en stefnt er að því að þessi þjónusta verði í
boði þegar næsta vor. „Sumir þurfa nokkra
klukkutíma í viku, aðrir kannski bara eitt sím-
tal.“
Kristín segir að vel gangi að framfylgja áætl-
un þeirri sem hrint var í framkvæmd fyrir fáum
árum. Vissulega hafi miklar breytingar orðið í
þessum málaflokki, „en við höfum talað við alla
íbúa og aðstandendur þeirra og farið yfir óskir
þeirra og þarfir. Allar breytingar eru gerðar í
samvinnu við íbúa, starfsmenn og aðstand-
endur. Við upplýsum fólkið, gerum grein fyrir
stöðu mála þannig að það þurfi ekki að vera óró-
legt þótt breytingar séu í vændum.“
Verði í fararbroddi í þjónustu við fólk með fötlun
Viljum mæta notand-
anum á heimavelli
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Íbúðasambýli Kristín Sigursveinsdóttir og Ólafur Torfason í einni af nýju íbúðunum við Vall-
artún, íbúðasambýli fyrir geðfatlaða sem var tekið í notkun nýlega.
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mb.is