Morgunblaðið - 11.02.2006, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 43
LAGT hefur verið fram frum-
varp ríkisstjórnarinnar um til-
teknar réttarbætur til handa sam-
kynhneigðum: Frumvarp til laga
um breytingu á lagaákvæðum er
varða réttarstöðu samkyn-
hneigðra, sambúð, ættleiðingar,
tæknifrjóvgun. Lagt fyrir Alþingi
á 132. löggjafarþingi 2005–2006.
Fyrsta umræða fór
fram hinn 22. nóv. sl.
Þar kom fram í máli
Guðrúnar Ögmunds-
dóttur að breyta þyrfti
2. og 7. grein hjúskap-
arlaganna þannig að
ekki verði þar lengur
talað um mann og
konu (eins og hún
sagði) heldur ein-
staklinga.
Ef þetta verður sett
fram sem breyting-
artillaga við 2. gr. og
7. gr. hjúskaparlaga
nr. 31/1993 verður ekki
lengur tekið tekið fram í lögum að
hjón séu karl og kona, heldur ein-
staklingar af ótilgreindu kyni.
Upphaf hjúskaparlaganna og 1.
grein þeirra hljóðar nú svo: I.
kafli. Efnissvið laganna og almenn
ákvæði. A. Gildissvið laganna. 1.
gr. Lög þessi gilda um hjúskap
karls og konu. Þau taka ekki til
óvígðrar sambúðar. Eftir breyt-
ingu myndi greinin hljóða svo: 1.
gr. Lög þessi gilda um hjúskap
einstaklinga. Þau taka ekki til
óvígðrar sambúðar.
Upphaf annars kafla laganna
með 7.greininni hljóðar nú sem hér
segir: II. kafli. Hjónavígsluskil-
yrði. A. Aldur hjónaefna. 7. gr.
Karl og kona mega stofna til hjú-
skapar þegar þau hafa náð 18 ára
aldri. Dóms- og kirkjumálaráðu-
neytið getur veitt yngra fólki leyfi
til að ganga í hjúskap [enda liggi
fyrir afstaða forsjárforeldra til
hjúskaparstofnunarinnar].
Eftir breytingu myndi greinin
hljóða svo: 7. gr. Einstaklingar
mega stofna til hjúskapar þegar
þeir hafa náð 18 ára aldri. Dóms-
og kirkjumálaráðuneytið getur
veitt yngra fólki leyfi til að ganga í
hjúskap [enda liggi fyrir afstaða
forsjárforeldra til hjúskaparstofn-
unarinnar].
Í þessu samhengi er nauðsyn-
legt að varpa fram nokkrum
spurningum og athugasemdum um
það hvaða vandamál koma upp í
hjúskaparskilningi þjóðkirkjunnar
ef hjónabandshugtakinu verður
breytt í hjúskaparlögum eins og
hér er gert ráð fyrir.
Frumvarpið er réttarbót
Að mati flestra sem yfirleitt tjá
sig um málið er stjórnarfrum-
varpið sjálft réttarbót. Því hefur
einnig verið vel tekið í öllum meg-
inatriðum af biskupi og þeim
fulltrúum þjóðkirkjunnar sem hafa
tjáð sig um málið. Þó hafa verið
sett spurningarmerki við breyt-
ingu á hugtökum og túlkun þeirra,
með því að frumvarpið tekur að
mestu leyti út úr texta eldri laga
orðin karl, kona, faðir, móðir og
foreldrar og setur í staðinn hug-
tökin einstaklingar og foreldri.
Þetta er væntanlega gert í sam-
ræmi við þá meginstefnu að ekki
sé hægt að tryggja rétt samkyn-
hneigðra í lögum án þess að setja í
stað hefðbundinna hugtaka önnur
hugtök sem talin eru kynlaus í eðli
sínu, eins og karlkyns hugtakið
einstaklingur.
Ekki verður þó séð hvers vegna
þetta er nauðsynlegt og enginn
rökstuðningur hér að lútandi er í
greinargerð með frumvarpinu.
Spyrja má hvort ekki sé í ljósi fjöl-
breytileika mannlífsins frekar
æskilegt að fjölga nú hugtökum en
fækka þeim.
Nú hafa þjóðkirkjan og með sér-
stökum hætti biskup hennar verið
gerð að blóraböggli í þessu máli
vegna þess að þjóðkirkjan hefur
viljað taka sér tíma til að ræða
innan sinna vébanda hinn kirkju-
lega skilning á hjónabandinu og
geti ekki fyrirvaralaust breytt
honum þó að löggjafinn muni ef til
vill gera það.
Tilteknir einstaklingar hafa lýst
því yfir að helsti andstæðingur
réttindabaráttu samkynhneigðra
sé biskup þjóðkirkjunnar, og að
sjá þurfi til þess að afskipti hans
af málinu takmarki ekki rétt ann-
arra trúfélaga til þess að koma að
því á eigin forsendum.
Hvorki í viðbrögðum biskups né
í þessari grein er
meiningin sú að
reyna að taka fram
fyrir hendur for-
ystumanna annarra
trúfélaga. Hér er
einungis verið að
vekja athygli á því
að þjóðkirkjan er
með málefni sam-
kynhneigðra til um-
ræðu og hefur sett
sér ákveðið vinnulag
í því máli. Á hitt er
að líta að ólíklegt er
að löggjafinn vilji
mismuna trú-
félögum í réttarbót sem á að draga
úr mismunun yfirleitt.
Þjóðkirkjan og blessun
para af sama kyni
Það liggur fyrir sem meg-
instefna þjóðkirkjunnar síðan á
árinu 1998 að ekkert sé því til fyr-
irstöðu að prestar í þjóðkirkjunni
annist athöfn til blessunar og fyr-
irbænar yfir tryggð og trúfesti
samkynhneigðra para þegar þau
óska eftir því. Þar er að vísu ekki
um að ræða opinbera athöfn eins
og brúðkaup karls og konu, en þar
hefur þjóðkirkjan ekki viljað
ganga lengra en aðrar kirkjur í
heiminum. Engin þeirra býður
þann valkost að leggja að jöfnu at-
höfn til staðfestingar og blessunar
sambúðar karls og karls eða konu
og konu við brúðkaup karls og
konu.
Sænska kirkjan, sem hefur unn-
ið mjög markvisst að þessu mál-
efni síðan á áttunda áratugnum og
verið í forystu í heiminum um
bætta stöðu samkynhneigðra, hef-
ur nú samþykkt að gera formlegt
ritual fyrir blessunarathöfn þegar
samkynhneigt par hefur fengið
staðfesta samvist, en þar er ekki
um eiginlega hjónavígslu að ræða.
Til þessa hafa ríki og kirkja átt
góða sambúð varðandi hjúskap-
arstofnun, enda hefur til grund-
vallar legið sami skilningur á
hjónabandinu í hjúskaparlögum og
kirkjuskilningi: hjón eru karl og
kona. Þetta er líka vandlega undir-
strikað í hjónavígslurituali þjóð-
kirkjunnar. Af því leiðir að til
þessa hefur það ekki verið vanda-
mál að prestar annist hinn lög-
formlega gjörning hjúskaparstofn-
unar í umboði ríkisins.
Í samræmi við gildandi lög eru
þau sem stofna til hjúskapar í
kirkjuathöfn samkvæmt Handbók
þjóðkirkjunnar ávörpuð sem brúð-
ur og brúðgumi og í öllum grein-
um ritualsins er gengið út frá því
að þau séu karl og kona.
Það hefur heldur ekki verið
vandamál að til eru margskonar
önnur form fyrir hjúskaparstofnun
sem kirkjan kemur ekki að nema
eftir því sé leitað eftir á, þegar
hjón sem gefin eru saman borg-
aralega fá kirkjulega blessun síðar
að eigin ósk.
Til þessa hafa verið í gildi í það
minnsta fjórar mismunandi aðferð-
ir fyrir par að staðfesta samband
sitt með formlegum hætti: Gifting
í trúarsöfnuði, borgaraleg gifting,
óvígð en skráð sambúð og staðfest
samvist samkynhneigðra. Aðeins í
hinu fyrstnefnda tilviki koma trú-
félög við sögu í lögformlegu sam-
hengi. Í öðrum tilvikum geta hlut-
aðeigendur beðið um og fengið
kirkjulega blessun yfir samband
sitt ef þau óska þess.
Þjóðkirkjan hefur litið svo á síð-
an lög voru sett um staðfesta sam-
vist samkynhneigðra para að slík
pör eigi að geta fengið blessun í
kirkju eftir að samvist þeirra hef-
ur verið staðfest með lögform-
legum hætti, ef þau óska þess.
Í formlegum sem óformlegum
viðræðum um þetta málefni hefur
sá kostur verið ræddur að nota
hjúskaparritual þjóðkirkjunnar
fyrir karl og konu þegar um sam-
kynhneigt par hefur verið að ræða,
í þeim tilgangi að undirstrika jafna
réttarstöðu allra þeirra para sem
heita tryggð og trúfesti.
Jákvæð viðbrögð við þeirri til-
lögu hafa strandað á því að hjú-
skaparstofnun er að hefðbundnum
skilningi mál sem snertir karl og
konu. Hjúskaparritualið sjálft er
miðað við karl og konu, brúði og
brúðguma. Það á upphaf sitt í orð-
um guðspjallsins:
„Hafið þér eigi lesið, að skap-
arinn gjörði þau frá upphafi karl
og konu og sagði: Fyrir því skal
maður yfirgefa föður og móður og
bindast konu sinni, og þau tvö
skulu verða einn maður. Þannig
eru þau ekki framar tvö heldur
einn maður. Það sem Guð hefur
tengt saman, má maður eigi sund-
ur skilja.“ (Matt. 19. 4–6.)
Sá sem þetta ritar hefur um
langa hríð fylgst með því hvernig
athafnir fyrir pör af sama kyni
hafa þróast meðal þeirra kirkna
sem bjóða til þeirra. Um það má
lesa sér til á heimasíðu samtaka
um samkynhneigða og kirkju,
www.huk.org.
Þar hefur hvergi verið reynt að
nota hefðbundið ritual óbreytt,
enda er það ekki hægt.
Pörin sjálf hafa líka sérstaklega
óskað þess að fá að móta þessa at-
höfn með sínum hætti og frá-
brugðið hinum hefðbundna. Hér á
landi hefur aftur á móti áherslan
hvílt á því að nota verði eitt og
sama formið fyrir öll pör.
Hvað er hjónavígsla?
Sem fyrr segir hafa þjóðkirkjan
og löggjafinn verið samstiga í
skilningi sínum á því hvað hjóna-
band er. Slíkur sameiginlegur
skilningur er forsenda þess að rík-
ið geti falið þjóðkirkjunni (og öðr-
um trúfélögum) heimild til að ann-
ast hinn lögformlega gerning sem
hjúskaparstofnun er.
Fari nú svo að fyrrnefndum
greinum hjúskaparlaganna verði
breytt og þar með ákveðið að hjón
séu tveir einstaklingar óháð kyni
skilur á milli viðtekins skilnings
þjóðkirkjunnar og skilnings lag-
anna á því hvað hjónaband er.
Þetta er meginástæða þess að
þjóðkirkjan hefur óskað eftir að
löggjafinn virði þann frest sem
hún hefur talið sig þurfa til að
ræða þessi mál í sínum hópi. Það
er vinnuregla í hinni evangelísk-
lúthersku kirkju sem þjóðkirkjan
tilheyrir, að málefni kenningar og
helgisiða fái umfjöllun bæði á sér-
stöku prestaþingi (synodus) sem á
almennu kirkjuþingi. Það væri
óviðunandi þvingun af hendi þjóð-
þingsins að virða ekki rétt þjóð-
kirkjunnar til að ræða þessi stóru
mál áður en Alþingi setur um þau
lög. Þarf varla að vísa til þess að
þjóðkirkjan er sjálfstætt trúfélag
meirihluta þjóðarinnar til að rök-
styðja það.
Séð með augum þjóðkirkjunnar
hlýtur stærsta vandamálið við að
Alþingi breyti hjúskaparlögunum
á þann hátt sem breytingartillagan
gerir ráð fyrir að vera þetta:
Ef þjóðkirkjan vill gefa saman
hjón í umboði ríkisins eins og hún
hefur gert til þessa, það er að
segja að annast hinn lögformlega
gerning, þá hlýtur hún að gera það
á grundvelli gildandi laga um
hjónabandið. Erfitt er að sjá að
hjúskaparritual hennar megi inni-
halda eitthvað það sem stríðir
gegn gildandi lögum, eins og það
til dæmis að tilgreina að þeir ein-
staklingar sem lögin nefna geti
verið af einhverju tilteknu kyni.
Þetta er það atriði sem biskup
og fleiri hafa kallað þvingun kirkj-
unnar. Ekki verður séð að kirkj-
unni leyfist að hafa annan skilning
á stofnun hjúskapar og á hjúskap-
arskilyrðum heldur en löggjaf-
anum, ekki frekar en henni leyfist
að hafa annan skilning yfirleitt en
þann sem löggjafinn hefur.
Ætla má að það sé viðtekinn
skilningur innan þjóðkirkjunnar að
henni beri að fara í einu og öllu
eftir landslögum, enda verða ekki
skilyrði til þess að hafa heimild til
að stofna trúfélag á Íslandi skilin
með öðrum hætti en þeim að trú-
félagið heiti því að fylgja lands-
lögum.
Með lögum um stöðu, stjórn og
starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/
1997 var þjóðkirkjan gerð að sjálf-
stæðu trúfélagi sem í öllum innri
málum sínum, þar á meðal mál-
efum kenningar og helgisiða, lýtur
réttkjörnum biskupi sínum sem
stýrir þjóðkirkjunni ásamt vígslu-
biskupum og kirkjuráði og skal
bera málefni helgisiðanna og kenn-
ingarleg málefni undir preststefnu
áður en þau eru falin kirkjuþingi
til afgreiðslu. (Sbr. 20. grein þjóð-
kirkjulaganna.) Með þessum lög-
um afsalaði ríkisvaldið sér með af-
gerandi hætti réttinum til að hafa
áhrif á innri mál kirkjunnar. Allar
tilraunir til þess að ganga framhjá
rétti þjóðkirkjunnar í þessum efn-
um hlýtur hún að skoða sem
þvingun.
Handbók og helgisiðir
þjóðkirkjunnar
Sá sem þetta ritar hefur verið
formaður helgisiðanefndar þjóð-
kirkjunnar um langa hríð. Þau
málefni sem hér eru til umræðu
hafa verið á borði nefndarinnar í
bráðum 10 ár. Hún hefur með öðr-
um þeim sem koma að málinu,
skref fyrir skref, reynt að vinna að
bættri stöðu samkynhneigðra para
innan þjóðkirkjunnar. Mörgum
finnst við hafa farið of hægt. Það
kann vel að vera. Við höfum ekki
viljað dansa út úr röð systurkirkn-
anna í þessum efnum. Það má vel
gagnrýna þá afstöðu. Óhjá-
kvæmilegt er þó fyrir þjóðkirkjuna
að horfa til annarra samstarfs-
kirkna í þessum efnum á sama
hátt og löggjafinn hlýtur að gera í
mýmörgum málum sem koma til
umfjöllunar á Alþingi.
Það hefur verið nefnt í þessari
umræðu að ef Alþingi breytir lög-
unum geti vart annað gerst en að
þjóðkirkjan óski eftir því að lög-
gjafinn taki þann kaleik frá henni
að kirkjuleg giftingarathöfn geti
jafnframt verið borgaraleg. En
málið er miklu alvarlega. Þjóð-
kirkjan hlýtur að þurfa að fara að
lögum, sem í þessu efni munu þá
stríða gegn handbók og helgisiða-
bók hennar. Helgisiðabók kirkj-
unnar er frá fornu fari bindandi
regla. Í kirkjustarfi og kirkjuaga
er hún ígildi starfsreglna sem
Kirkjuþing setur. Samkvæmt lög-
unum um þjóðkirkjuna frá 1997 fá
starfsreglur númer með sama
hætti og reglugerðir sem settar
eru við lög frá Alþingi. Þær hafa
því sömu stöðu og gildi og reglu-
gerðir sem settar eru í samræmi
við önnur lög.
Það er ekkert í veginum fyrir
því að auka og bæta það ritual fyr-
ir blessun para í staðfestri samvist
sem þjóðkirkjan hefur getað notað
til þessa. Það getur að sjálfsögðu í
fyllingu tímans orðið opinber at-
höfn, en það getur ekki að svo
stöddu verið samhljóða því rituali
sem nú er notað fyrir hjúskap
karls og konu.
Hvernig það mál verður leyst til
frambúðar er eitt af þeim mörgu
málum í þessu samhengi sem
fulltrúar þjóðkirkjunnar þurfa að
ræða á sínum þingum og ná sam-
stöðu um. Það er réttlætismál að
Alþingi gefi þeim tíma til þess.
Um hjónabandið
Eftir Kristján Val Ingólfsson ’… er nauðsynlegt aðvarpa fram nokkrum
spurningum og at-
hugasemdum um það
hvaða vandamál koma
upp í hjúskaparskilningi
þjóðkirkjunnar ef hjóna-
bandshugtakinu verður
breytt í hjúskaparlögum
eins og hér er gert ráð
fyrir. ‘
Höfundur er formaður helgisiða-
nefndar þjóðkirkjunnar og lektor í
kennimannlegri guðfræði við Há-
skóla Íslands.
Kristján Valur
Ingólfssson
ein-
þjónað af
af svæð-
nustu
fyrir að
reyttum
mst njóta
um mál-
ustu
ó jafn-
ng að geð-
meðal
úkdóms-
ð það er
legt.
áætlaður
sem veita
kstrar- og
in um að
efnisins
ð
nisstjórn
irumsjón
geðfatl-
un taka
kefnisins
for-
nnast
áðuneyti
á annast
ætt-
mkvæmd
kan ráð-
aðstand-
a:
gismaður,
ðstoð-
armaður félagsmálaráðherra.
Þór G. Þórarinsson, skrif-
stofustjóri í félagsmálaráðuneytinu.
Sæunn Stefánsdóttir, aðstoð-
armaður heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra.
Guðrún Sigurjónsdóttir, verkefn-
isstjóri í heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneyti.
Reynsla og þekking
notenda og aðstandenda
Áhersla er lögð á að nýta við
framkvæmd þessa verkefnis þá
þekkingu og reynslu, sem fyrir
hendi er hjá geðfötluðum og að-
standendum þeirra og einnig fag-
aðilum sem unnið hafa að málefnum
geðfatlaðra. Til þess að tryggja að-
komu notenda, aðstandenda og fag-
aðila að ákvörðunum sem teknar
verða um uppbyggingu búsetuúr-
ræða og þjónustu hefur verið til-
nefndur sérstakur ráðgjafahópur
skipaður fulltrúum geðfatlaðra og
aðstandenda þeirra.
Í honum eiga sæti:
Ragnhildur Bragadóttir, tilnefnd
af Hugarafli.
Sveinn Magnússon, tilnefndur af
Geðhjálp.
Pétur Hauksson, tilnefndur af
Geðverndarfélagi Íslands.
Gunnhildur Bragadóttir, tilnefnd
af Aðstandendahópi Geðhjálpar.
Héðinn Unnsteinsson, notandi,
skipaður af ráðherra án tilnefn-
ingar.
Ráðgjafahópnum er ætlað að
vera verkefnisstjórn og embætt-
ismönnum til ráðgjafar og annast
tengsl og samráð við samtök not-
enda og aðstandenda. Gert er ráð
fyrir að leitað verði samráðs við
fleiri aðila úr hópi notenda, aðstand-
enda og fagfólks við undirbúning
ákvarðana sem snerta einstaka not-
endahópa og hagsmuni þeirra aðila
sem veita geðfötluðum þjónustu í
dag.
Að endingu vil ég árétta það að
leiðarljós þessa verkefnis er að auka
lífsgæði geðfatlaðra og aðstandenda
þeirra sem verða má og styðja við
virka þátttöku geðfatlaðs fólks í
samfélaginu. Sú stefnumörkun er í
samræmi við stefnuyfirlýsingu rík-
isstjórnarinnar í þessum mála-
flokki.
verk-
fsgæði
tand-
erða
irka
s fólks
Höfundur er félagsmálaráðherra.
rúnar, Marey Þóra Guðmunds-
dóttir og Irena Líf Hafsteinsdóttir
og fremst er Þóra Björg Ingv-
arsdóttir, sem hún bjargaði frá
drukknun.
Sigríður
rsson,
r og Jóna
tur Guð-
ur ársins
“
Morgunblaðið/Júlíus