Morgunblaðið - 11.02.2006, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 53
UMRÆÐAN
ÞRÁTT fyrir að Framsókn-
arflokkurinn hafi undanfarið verið
að mælast með allt niður í 4–5%
fylgi í Reykjavík í skoðanakönn-
unum er nú þegar byrjað að nefna
nýkjörinn leiðtoga
þeirra, Björn Inga
Hrafnsson, sem mögu-
legan borgarstjórak-
andídat eftir næstu
kosningar. Sjálfur hef-
ur Björn Ingi látið í
það skína að hann hafi
áhuga á að komast í
oddaaðstöðu og muni
þá jafnvel krefjast
borgarstjórastólsins
fyrir sjálfan sig. Ef
þetta gengi eftir væri
staðan orðin sú að einn
minnsti flokkur lands-
ins færi með tvö valdamestu emb-
ætti þjóðarinnar. Slíkt væri að mínu
mati í mikilli andstöðu við öll al-
menn lýðræðissjónarmið.
Fái ég brautargengi í prófkjöri
Samfylkingarinnar nú um helgina
mun ég beita mér fyrir róttækri
uppstokkun á stjórnkerfi borg-
arinnar. Meðal annars mun ég
leggja til að borgarstjórinn í
Reykjavík verði framvegis kosinn í
beinni kosningu. Slík breyting
myndi koma í veg fyrir að nokkur
geti gegnt þessu mikilvægasta emb-
ætti höfuðborgarinnar án þess að sá
hinn sami njóti viðtæks stuðnings
borgarbúa. Mín skoðun er sú að
borgarbúar eiga að velja borg-
arstjórann. Þetta embætti er of mik-
ilvægt til að vera skiptimynt í
hrossakaupum milli flokka. Borg-
arbúar vilja skýra valkosti við stjórn
borgarinnar og borgarstjóri sem
kosinn er beint ber skýrari ábyrgð
gagnvart kjósendum. Leiða má lík-
um að því að beint kjör
borgarstjóra myndi
laða fleiri að því að
taka þátt í kosning-
unum.
Að fá að hafa bein
áhrif á hver gegnir
þessu mikilvæga emb-
ætti myndi þannig ýta
undir kosningaþátt-
töku sem er mikilvægt
lýðræðismál. Vilmund-
ur heitinn Gylfason var
fyrstur til að leggja til
að forsætisráðherra
yrði kosinn beinni
kosningu. Í gegnum árin hafa menn
við og við dustað rykið af þessum
hugmyndum Vilmundar en af ein-
hverjum ástæðum hafa þær aldrei
fengið byr undir báða vængi. Hverj-
ar skyldu vera ástæður þess að
stjórnkerfið er hér eins og meitlað í
stein á meðan að fjöldi Evrópuþjóða
hefur haldið áfram að þróa sitt lýð-
ræði og gert ýmsar breytingar á
stjórnkerfinu. Það er sömuleiðis
nokkuð sérstakt að á Íslandi skuli
eini embættismaðurinn sem kjörinn
er í beinni kosningu vera sá sem
hefur hvað minnst raunveruleg völd,
en það er forseti lýðveldisins.
Það má spyrja sig hvers vegna sé
verið að hafa fyrir því að vera með
þjóðkjörinn forseta? Ef það eru að-
eins embætti með táknræn völd sem
þjóðin fær að taka þátt í að ráðstafa
þá er kannski eins gott að forsetinn
sé bara kjörinn af Alþingi. Í Lond-
on, París og New York eru borg-
arstjórarnir allir kosnir beint af íbú-
um þessara borga.
Ef borgarstjórinn væri kosinn
beint þá er líklegt að fram á sjón-
arsviðið gætu komið frambjóðendur
með fjölbreyttari bakgrunn. Borg-
arstjórar framtíðarinnar gætu
þannig komið úr atvinnu- eða menn-
ingarlífinu eða jafnvel úr íþrótta-
heiminum. Þeir gætu tengst
ákveðnum stjórnmálaflokki, eða
ekki.
Þessum og fleiri aðgerðum til
auka lýðræði í borginni mun ég
beita mér fyrir fái ég stuðning í
prófkjörinu nú um helgina. Því lofa
ég.
Tryggjum að borgarstjóri þurfi
stuðning meirihluta borgarbúa
Eftir Andrés Jónsson ’Þessum og fleiri aðgerð-um til að auka lýðræði í
borginni mun ég beita
mér fyrir fái ég stuðning í
prófkjörinu nú um
helgina.‘
Andrés Jónsson
Höfundur er formaður Ungra jafn-
aðarmanna og frambjóðandi í 4. sæti í
prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Prófkjör Reykjavík
Kjósið
Þekkingu og reynslu
Kjósið
Skynsemi og skilning
Kjósið
Stefán Benediktsson
Stuðningsmenn Stefáns Benediktssonar
Opið prófkjör Samfylkingarinnar og óháðra
helgina 11. og 12. febrúar
SÍÐUSTU daga, vikur og mánuði
hafa skoðanakannanir um fylgi
stjórnmálaflokkanna í Reykjavík
sýnt það að Sjálfstæðisflokkurinn
muni fá 8-9 borgarfull-
trúa í komandi borg-
arstjórnarkosningum.
Þær verða haldnar
þann 27. maí svo að
það eru einungis tæpir
fjórir mánuðir í stóru
stundina. Það sem við
vinstri menn óttumst
einna mest er að úrslit
kosninganna í maí eigi
eftir að verða á sama
veg og síðustu skoð-
anakannanir. Það að
Sjálfstæðisflokkurinn
taki við stjórn borg-
arinnar er að minni skoðun eitt af
því versta sem getur komið fyrir
okkar ágætu borg. Eitt er víst að ef
að við ætlum að afstýra því stórslysi
þá þurfum við öll að leggja hönd á
plóg og gera okkar allra besta.
Ég tel Samfylkinguna vera það afl
sem á mestan möguleika á því að
vinna á fylgi Sjálfstæðisflokksins.
Þegar ákveðið var að slíta R-lista
samstarfinu var kastað á glæ hundr-
uðum ef ekki þúsundum atkvæða. Í
borgarstjórnarkosningum 2002
hlaut R-listinn 35.938 atkvæði eða
52,6% allra atkvæða. Langmesti
hluti þessara atkvæða voru greidd af
óflokksbundnum. Það þýðir að
flokkarnir sem standa að samstarf-
inu geta misst mikinn hluta atkvæða
R-listans til Sjálfstæðisflokksins. Ný
skoðanakönnun sýnir að tæp 16% R-
listafólks ætli að kjósa Sjálfstæð-
isflokkinn (Morgunblaðið 5.febrúar).
Þeir kjósendur sem eiga eftir að
ákveða sig og/eða eru utan flokka
munu ráða úrslitum. Þess vegna
verður Samfylkingin að tefla fram
lista með fjölbreyttu fólki frá öllum
hliðum samfélagsins.
Prófkjör Samfylking-
arinnar og óháðra hefst
í dag, 11. febrúar. Þar
munu samfylking-
armenn og allir þeir
sem vilja taka þátt í
prófkjörinu og hafa náð
kjöraldri stilla upp
þeim lista fólks sem
þarf að kljást við Sjálf-
stæðisflokkinn í kosn-
ingabaráttu næstu fjög-
urra mánaða. Það
verður ekki auðveld
barátta og þarf í hana
vana, þrautseigja,
sterka og duglega einstaklinga.
Margir slíkir eru á framboðslista
fyrir prófkjör Samfylkingarinnar og
þurfum við að velja vel.
Ég hvet alla Reykvíkinga á kjör-
skrá til þess að flykkjast á kjörstaði í
dag og á morgun og kjósa í prófkjöri
Samfylkingarinnar og óháðra. Við
þurfum hjálp allra í þeirri erfiðu
baráttu sem er fyrir hendi. Tökum
höndum saman og stöðvum það stór-
slys að hleypa Sjálfstæðismönnum
að völdum í borginni.
Hvernig eigum við að halda
sjálfstæðismönnum frá borginni?
Guðfinnur Sveinsson fjallar um
prófkjör Samfylkingarinnar og
sterka stöðu sjálfstæðismanna
Guðfinnur Sveinsson
’Ég hvet alla Reykvík-inga á kjörskrá til þess að
flykkjast á kjörstaði í dag
og á morgun og kjósa í
prófkjöri Samfylking-
arinnar og óháðra. Við
þurfum hjálp allra í þeirri
erfiðu baráttu sem er fyr-
ir hendi. ‘
Höfundur er nemi við
Kvennaskólann í Reykjavík.
Fréttir á SMS