Morgunblaðið - 11.02.2006, Síða 54
54 LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN
ÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11, gítarleikari
Pétur Þór Benediktsson, organisti Kári
Þormar, prestur sr. Þórhildur Ólafs. Guðs-
þjónusta kl. 14. Félagar úr kór Áskirkju
syngja, organisti Kári Þormar, Margrét
Svavarsdóttir djákni les ritningarorð,
prestur sr. Þórhildur Ólafs. Kaffi eftir
guðsþjónustuna í efri sal í boði sóknar-
nefndar.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Söngur, fræðsla, gleði. Foreldrar, afar
og ömmur hvött til þátttöku með börn-
unum. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Hans
Markús Hafsteinsson, héraðsprestur,
messar. Kór Bústaðakirkju syngur. Org-
anisti Guðmundur Sigurðsson. Molasopi
eftir messu.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Hjálmar
Jónsson prédikar. Dómkórinn syngur.
Marteinn H. Friðriksson leikur á orgel.
Barnastarf á kirkjuloftinu meðan á messu
stendur. Að lokinni messu er fundur í
safnaðarfélaginu. Fundurinn fer að venju
fram í safnaðarheimilinu og eru allir hjart-
anlega velkomnir. Kvöldmessa kl. 20. Sr.
Hjálmar Jónsson prédikar. Jóhann Friðgeir
syngur einsöng við undirleik Marteins H.
Friðrikssonar.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11 í
umsjá Jóhönnu Sesselju Erludóttur (Lellu)
og unglinga úr kirkjustarfinu. Guðsþjón-
usta kl. 11. Kirkjukór Grensáskirkju syng-
ur. Organisti Árni Arinbjarnarson. Sam-
skot í Líknarsjóð Grensássafnaðar.
Molasopi að lokinni guðsþjónustu. Ólafur
Jóhannsson.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili:
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Kjartan
Ólafsson. Sr. Sveinbjörn Bjarnason.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslumorgunn
kl.10. Samskipti foreldra og barna: Anna
Margrét Sigurðardóttir verkefnisstjóri hjá
Heimili og skóla. Messa og barnastarf kl.
11. Sr. Sigurður Pálsson prédikar og þjón-
ar fyrir altari. Umsjá barnastarfs Magnea
Sverrisdóttir djákni. Fermingarbörn taka
þátt í messunni og lesa ritningarlestra og
bænir. Fimm ára börn boðin til að þiggja
bókina Kata og Óli fara í kirkju. Drengjakór
Reykjavíkur í Hallgrímskirkju syngur undir
stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti
Björn Steinar Sólbergsson. Kaffisopi eftir
messu. Klassísk messa kl. 20 í umsjá
Lux Aeterna áhugahóps um klassíska
messu og iðkun gregorssöngs. Prestur sr.
Kristján Valur Ingólfsson. Kynning og æf-
ing á messunni verður hálfri klukkustund
fyrir messuna sjálfa eða kl. 19.30 í Hall-
grímskirkju.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa og barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Douglas A.
Brotchie. Umsjón með barnaguðsþjón-
ustu: Erla Guðrún Arnmundardóttir, Þóra
Marteinsdóttir og Annika Neumann. Létt-
ar veitingar eftir messu. Sr. Helga Soffía
Konráðsdóttir.
LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS:
Guðsþjónusta kl. 14.00 Landspítala
Landakoti. Sr. Sigfinnur Þorleifsson, org-
anisti Birgir Ás Guðmundsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa og barnastarf kl. 11.
Hjörtur Pálsson, skáld og guðfræðingur,
predikar. Prestur sr. Jón Helgi Þórarins-
son. Organisti Jón Stefánsson. Einsöng-
ur: Hrafnhildur Ólafsdóttir. Félagar úr Kór
Langholtskirkju leiða söng. Barnastarfið
verður í safnaðarheimilinu undir stjórn
Rutar, Steinunnar og Arnórs. Kaffisopi eft-
ir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Kór Laugarneskirkju
syngur undir stjórn Friðriks Vignis Stef-
ánssonar organista. Þorgeir Arason guð-
fræðinemi prédikar. Bjarni Karlsson sókn-
arprestur þjónar ásamt Sigurbirni
Þorkelssyni meðhjálpara. Fulltrúar lesara-
hóps flytja texta dagsins. Sunnudagaskól-
ann annast Hildur Eir Bolladóttir, Þorvald-
ur Þorvaldsson og Heimir Haraldsson.
Messukaffi. „Virk hlustun í sambúð“ kl.
13–16. Sr. Vigfús Bjarni Albertsson
sjúkrahúsprestur og Valdís Ösp Ívarsdóttir
fíkni- og fjölskylduráðgjafi kynna sambúð-
arfólki og hjónum þaulreynt og áhugavert
kerfi sem notað er í parahópum sem
koma saman í heimahúsum. Kjörið tæki-
færi til að gera góð sambönd betri og
kynnast nýju fólki. Kvöldmessa kl. 20.30.
Djasskvartett Gunnars Gunnarssonar leik-
ur. María Björnsdóttir syngur einsöng. Kór
Laugarneskirkju leiðir safnaðarsönginn.
Bjarni Karlsson sóknarprestur þjónar
ásamt Sigurbirni Þorkelssyni meðhjálpara
og hópi safnaðarfólks sem flytur eigin
bænir og ritningarorð. Að messu lokinni er
boðið til fyrirbæna við altarið og messu-
kaffi framreitt í safnaðarheimilinu. Athug-
ið að djasskvartettinn hefur leik kl.
20.00, svo gott er að koma snemma í
góð sæti og njóta alls frá byrjun.
NESKIRKJA: Messa og barnastarf kl. 11.
Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðar-
söng. Organisti Steingrímur Þórhallsson.
Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og
þjónar fyrir altari. Börnin byrja í messunni
en fara síðan í safnaðarheimilið.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11.
Kammerkór Seltjarnarneskirkju. Organisti
Pavel Manasek. Sr. Sigurður Grétar
Helgason. Sunnudagaskóli á sama tíma.
Minnum á æskulýðsfélagið kl. 20.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðsþjónusta kl.
14. Barnastarf á sama tíma. Maul eftir
messu.
ÁRBÆJARKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Það er annar sunnudagur
febrúarmánaðar og við sameinum guðs-
þjónustuna og sunnudagaskólann í kirkju-
skipinu. Við eigum saman uppbyggilega
og góða stund með áherslu á söng og
sögur. Kaffi, djús og kirkjukex eins og allt-
af að stundinni lokinni.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir. Org-
anisti Keith Reed. Barnastarf á sama
tíma í safnaðarheimili.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl 11. Prestur
sr. Gunnar Sigurjónsson. Organisti Kjart-
an Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju B-
hópur. Sunnudagaskóli á sama tíma í
kapellu á neðri hæð. Súpa í safnaðarsal
eftir messu. Kvöldmessa með Þorvaldi
Halldórssyni kl. 20 (www.digranes-
kirkja.is).
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
og altarisganga kl 11. Sr. Svavar Stef-
ánsson predikar og þjónar fyrir altari
ásamt Ragnhildi Ásgeirsdóttur djákna.
Organisti Lenka Mateova. Sunnudaga-
skóli á sama tíma í umsjá Sigríðar R.
Tryggvadóttur. Börn sem verða 5 ára á
árinu eru sérstaklega boðin velkomin og
þeim verður gefin bókin „Kata og Óli fara í
kirkju“.
GRAFARHOLTSSÓKN: Sunnudagaskóli kl.
11 í Ingunnarskóla í umsjá séra Sigríðar,
Björns Tómasar og Astridar. Messa kl. 14
í Þórðarsveig 3. Prestur séra Sigríður Guð-
marsdóttir, tónlist: Þorvaldur Halldórsson.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11 í Grafarvogskirkju. Séra Vigfús Þór
Árnason prédikar og þjónar fyrir altari. Kór
Grafarvogskirkju syngur. Organisti: Hörður
Bragason. Barnaguðsþjónusta kl. 11 í
Grafarvogskirkju. Prestur séra Bjarni Þór
Bjarnason. Umsjón: Hjörtur og Rúna. Und-
irleikari: Stefán Birkisson. Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11 í Borgarholtsskóla. Prest-
ur séra Lena Rós Matthíasdóttir. Umsjón:
Ingólfur, Gummi og Tinna. Undirleikari:
Guðlaugur Viktorsson.
HJALLAKIRKJA: Tónlistarmessa kl. 11.
Íslensk tónskáld í fyrirrúmi. Sr. Íris Krist-
jánsdóttir þjónar. Kór Hjallakirkju syngur
og leiðir safnaðarsöng. Organisti Jón Ólaf-
ur Sigurðsson. Barnaguðsþjónusta kl. 13.
Við minnum á bæna- og kyrrðarstund á
þriðjudag kl. 18 og opið hús á fimmtudag
kl. 12 (sjá einnig á www.hjallakirkja.is).
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Kór Kópavogskirkju syngur og leiðir safn-
aðarsöng. Organisti Sigrún Steingríms-
dóttir. Boðið verður upp á hressingu að
lokinni messu. Barnastarf í kirkjunni kl.
12.30 í umsjón Önnu Kristínar, Péturs
Þórs og Sigríðar. Bæna- og kyrrðarstund
þriðjudag kl. 12.10.
LINDASÓKN í Kópavogi: Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli í Lindaskóla kl. 11. Sér-
stakur gestur er Kór Snælandsskóla.
Stjórnandi Heiðrún Hákonardóttir. Undir-
leikari með kórnum er Lóa Björk Jóels-
dóttir. Félagar úr kór safnaðarins leiða
safnaðarsöng, organisti Hannes Baldurs-
son. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson
þjónar.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Söngur, sögur, myndir, líf og fjör! Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Bolli Pétur Bollason
prédikar. Kór Seljakirkju leiðir söng. Org-
anisti Jón Bjarnason. Nánari upplýsingar
á www.seljakirkja.is.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morgunguð-
sþjónusta kl. 11. Sigríður Schram kennir
um efnið: Verk Heilags anda í kirkjunni.
Barnagæsla fyrir 1–2 ára, sunnudaga-
skóli fyrir 3–6 ára og Krakkakirkja í Lof-
gjörðarlandi fyrir 7–13 ára. Samkoma kl.
20 með mikilli lofgjörð, vitnisburði og fyr-
irbænum. Friðrik Schram talar um 7
grundvallaratriði til að vaxa í trúnni. Þáttur
kirkjunnar „Um trúna og tilveruna“ sýndur
á Ómega kl. 14.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmára 9, Kóp.:
Samkomur alla laugardaga kl. 11.00.
Bænastund alla miðvikudaga kl. 20.00.
Biblíufræðsla allan sólarhringinn á Útvarp
Boðun FM 105,5. Allir alltaf velkomnir.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ: Sam-
koma sunnudag kl. 20.30. Kór frá Glyvr-
um í Færeyum syngur og talar. Kaffi á eft-
ir. Allir velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagur:
Bænastund kl. 19.30. Samkoma kl. 20.
Umsjón Harold Reinholdtsen. Samuel
Ingimarsson talar. Mánudagur: Heimila-
samband kl. 15. Allar konur velkomnar.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Fagraþingi 2a: Sam-
koma kl. 14. Helga R. Ármannsdóttir talar
Orð Guðs. Lofgjörð og fyrirbænir. Barna-
starf á samkomutíma og kaffisala á eftir.
Allir velkomnir.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma í
húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28. Kl.
16 fræðsla: „Að vera kristinn í nútíman-
um“. Bjarni Gíslason sér um fræðsluna.
Kl. 16.40 kaffi og samfélag. Kl. 17 ræðu-
maður Halldór Lárusson. Mikil lofgjörð,
fyrirbæn og gott samfélag. Fræðsla í ald-
ursskiptum hópum fyrir börnin meðan á
samkomunni stendur. Allir velkomnir.
FÍLADELFÍA: Almenn samkoma kl.
16.30. Ræðum. Mike Fitzgerald, Gosp-
elkór Fíladelfía leiðir lofgjörð. Fyrirbænir í
Guðspjall dagsins:
Verkamenn í víngarði.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
(Matt. 20.)
UMRÆÐAN
Í DAG stendur íbúum á Álftanesi
til boða að velja frambjóðendur á lista
Sjálfstæðisfélagsins sem lagður verð-
ur fram til kosninga í vor. Í framboði
er góður og fjölbreyttur hópur, en
mikilvægt er að listinn
verði saman settur
þannig að góð breidd
verði og að ólík sjón-
armið komi fram.
Mikil uppbygging
hefur átt sér stað á
Álftanesi á und-
anförnum árum, fjöl-
breyttara húsnæðis-
framboð er orðið að
veruleika, þannig að
þeir sem eru að kaupa
sína fyrstu íbúð þurfa
ekki lengur að leita út
fyrir Álftanes. Nýr
leikskóli verður tekinn
í notkun í vor og Álfta-
nesskóli hefur verið
stækkaður, þannig að
frá næsta hausti erum
við með heildstæðan
grunnskóla, frá 1.–10.
bekk, og þurfum ekki
lengur að senda börnin
okkar af nesinu til að
klára skyldunámið.
Aðstaða til íþróttaiðkunar mun
stórbatna þegar stækkun íþrótta-
miðstöðvar og sundlaugar er lokið, en
stækkun á Íþróttamiðstöðinni er þeg-
ar hafin. Uppbygging á göngu- og
reiðstígum er í stöðugri þróun, eins
er með aðra aðstöðu til útivistar, sem
er á áætlun næstu árin, s.s. golfvöllur
og smábátahöfn.
Á Álftanesi hefur hlutfall barna og
ungmenna verið mjög hátt, eins og
einkennandi er fyrir sveitarfélög í
vexti, þ.a.l. hefur áhersla á uppbygg-
ingu snúist mikið að þeim aldurshópi.
Við munum að sjálfsögðu halda því
áfram og einnig huga vel að skóla-
málum og aðbúnaði fyrir barna-
fjölskyldur, enda er mikilvægt að
veita góða þjónustu svo að Álftanesið
sé aðlaðandi og fjölskylduvænt sam-
félag.
Hlutfall eldri borgara hefur aukist
mjög á undanförnum árum og mun
sú þróun halda áfram næstu árin, því
er nú nauðsynlegt að huga að hús-
næðismálum fyrir 60 ára og eldri.
Gengið hefur verið frá rammasamn-
ingi við Eir um uppbyggingu á íbúð-
um og þjónustumiðstöð
fyrir þá sem eldri eru.
Það er mér mikið kapps-
mál að þessi uppbygg-
ing verði að veruleika
sem fyrst, þannig að
Álftanes geti boðið upp
á fyrirmyndaraðstöðu
fyrir eldri borgara.
Mín meginmarkmið
eru:
Að Álftanes sé fjöl-
skylduvænt í víðasta
skilningi þessa orðs.
Að áfram sé hlúð að
daggæslu og skóla-
málum af metnaði og
krafti.
Að aðstaða fjölskyld-
unnar til íþrótta, útivist-
ar og samveru sé til fyr-
irmyndar.
Að uppbygging á
íbúðum og þjónustu-
miðstöð fyrir þá sem
eldri eru hefjist sem
fyrst.
Ágætu Álftnesingar, á þessum 4
árum, sem ég hef setið í bæjarstjórn,
hef ég öðlast dýrmæta reynslu og tel
mig nú enn betur í stakk búna til að
þjóna íbúum Álftaness. Ég skorast
ekki undan ábyrgð og legg mig fram
við að vinna af metnaði og heið-
arleika. Það er því ósk mín að þið
veitið mér stuðning, til að ég geti
haldið áfram að vinna fyrir ykkur að
þeim framfaramálum sem nauðsyn-
leg eru hverju samfélagi.
Ég óska eftir stuðningi í 2. sæti
listans.
Fjölskylduvænt
Álftanes – Prófkjör
11. febrúar 2006
Eftir Sigríði Rósu
Magnúsdóttur
Sigríður Rúsa
Magnúsdóttir
’Ég skorast ekkiundan ábyrgð og
legg mig fram
við að vinna af
metnaði og heið-
arleika. ‘
Höfundur er formaður bæjarráðs
Álftaness og óskar eftir 2. sæti
listans.
Prófkjör Álftanes
ÞAÐ er mikið í húfi
fyrir Reykvíkinga og
Samfylkinguna. Í dag
og á morgun velja
Reykvíkingar fram-
boðslista Samfylking-
arinnar fyrir borg-
arstjórnarkosning-
arnar í vor. Samfylk-
ingin á alla möguleika
á að leika lykilhlutverk
við stjórn borgarinnar
eftir kosningarnar.
Þess vegna skiptir
miklu að Samfylkingin
komi sterk út úr próf-
kjöri helgarinnar og
hafi góðu mannvali á að
skipa í kosningabarátt-
unni sem framundan
er.
Ný verkefni –
nýjar áskoranir
Reykjavíkurlistinn hefur leitt
breytingar sem hafa gjörbreytt lífs-
gæðum fjölskyldna í borginni.
Óþarfi er að telja allt upp, það næg-
ir að nefna uppbyggingu leikskóla,
einsetningu grunnskóla og skóla-
máltíðir. Samfylkingin hefur verið
leiðandi afl Reykjavíkurlistans og
sýnt það og sannað að hún setur
málefni fjölskyldna efst á blað.
Nú blasa hins vegar við ný verk-
efni. Á sama tíma og lífsgæði hafa
aukist og batnað í borginni á und-
anförnum 12 árum, þá
viljum við halda áfram
og gera enn betur. Við
í Samfylkingunni vilj-
um jöfn tækifæri fyrir
alla. Þess vegna viljum
við:
gjaldfrjálsan leik-
skóla
fríar skólamáltíðir
samfelldan skóla
gjaldfrítt íþrótta-
og tómstundastarf
Þetta eru þær fjár-
festingar sem við mun-
um fara í á næsta kjör-
tímabili. Hornsteinn
efnahags- og fjár-
málastefnu okkar verð-
ur fjárfesting í mennt-
un og mannauði.
Þannig munum við
tryggja áfram lífsgæði
í borginni, jöfn tæki-
færi fyrir alla og sterk-
ari inniviði í borgarsamfélaginu.
Opið prófkjör
Prófkjörið sem fram fer í dag og
á morgun er opið öllum Reykvík-
ingum. Ég skora á alla Reykvíkinga
að taka þátt.
Veljum sterkan lista
– og sigrum í vor
Eftir Kjartan Valgarðsson
’Hér er gulliðtækifæri fyrir
alla til að velja
sterkan fram-
boðslista. ‘
Kjartan Valgarðsson
Höfundur er markaðsstjóri og
sækist eftir 3. sæti í prófkjöri
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Prófkjör Reykjavík