Morgunblaðið - 11.02.2006, Blaðsíða 68
68 LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Árg. '02, ek. 128 þ. km. Chevrol-
et S-10 pickup 4x2 til sölu, árg.
'02. Verð 1.150 þ. Uppl. í síma 565
4133 og 863 8384.
Lækkað verð! v. flutnings. Nú
er tækifæri til að eignast hvítan
MB Pajero Sport jeppa á 1.350
þús. í stað 1.550 áður, árg. '00,
ssk., 3.0 l V6 vél. Dökkar rúður,
álf., geislasp., fjarst. samlæs. o.fl.
o.fl. Flottur og töff bíll. Einnig fæst
vínrauður Subaru Legacy station
'97 á 550 þús. í stað 670. Ssk.,
geislasp., 4wd, huggulegur og
þrælduglegur fjölskyldubíll. Uppl.
893 3791.
Isuzu Trooper 3.0 TDI árg. 01/00,
ekinn 110 þús. km. Sjálfsk., 32",
7 manna, ABS, dráttarkrókur.
Verð 1.690 þús. Upplýsingar í
síma 899 4453/557 4453.
Grand Cherokee V8, ek. 40 þús.
Einn eigandi. Leður, diskamaga-
sín, skyggðar rúður, rafmagn í
öllu. Í góðu ástandi, nýskoðaður.
Einnig selst Kawasaki Kx250
ódýrt, 110 þús. Uppl. 895 8898.
Ford F-350 Lariat '05 Diesel
Túrbó Comandrail 6.0 l. 8 cyl.,
325 hp., sjálfsk., 4ra dyra, 7"
skúffa, ek. 10 þús., mikill auka-
búnaður, sportpakki o.fl.
(innfl. nýr frá USA) V. 3.750 þús.
stgr. m. vsk.
S. 421 3656 og 690 3656.
Ford Explorer XLT árg. 2004,
7 m., ekinn 40.000 km. : Dráttar-
beisli, hraðastillir, stigbretti, CD-6
magasín, 6 hátalarar o.fl. Stað-
greitt 2.790.000. Upplýsingar í
síma 821 7100.
VW Bjalla árg. 2003, bensín, 2.0
l, 4. cyl., sjálfsk., cruise control,
3 dyra, ek. 27 þús., rafd. rúður +
þjófav. + fjars. saml. Í toppstandi,
lítur út sem nýr (innfl. notaður frá
USA), ekki tjónabifreið. Verðh.
1.550 þús. stgr. Sími 421 3656 og
690 3656.
Toyota Celica árg. '99, ek. 118
þús. km. 17" (215/45/17) 3
mánaða. + Ný vetrardekk. Cold
air Intake. Sími 867 0043.
Toyota Avensis Wagon 2.0 árg.
'00, ek. 10, 2.0 l ssk., með öllu,
krókur, vetrar- og sumardekk á
felgum, ný tímareim, filmur í
rúðum. Verð 1.100 þús., ca 650
áhvílandi, 28 þús. á mánuði. Eng-
in skipti. Upplýs. í síma 893 4869.
Toyota Avensis NEW til sölu.
Lítið ekinn og mjög vel með far-
inn. Upplýsingar í síma 899 1231.
Subaru árg. '01, ek. 103 þús. km.
Impreza '01, 2.0, 4x4, sumard. á
nýjum álfelgum, ný vetrardekk,
spoiler. Áhv. 650 þ. 17 þ. á mán.
Ásett verð 1.050 þ. Mjög sprækur
og vel með farinn bíll. Upplýsing-
ar í síma 699 8334. Sala - skipti. Til sölu sjálfsk.
station bíll, Reno Laguna, ek. 115
þús. km, í topplagi. Ný tímareim,
pústkerfi, krókur, sumardekk á
álfelgum. Afburða góður ferða-
og fjölskyldubíll. Ath. með skipti
á eldra 16 feta hjólhýsi eða
góðum tjaldvagni. Sími 893 0878
og 437 1148.
Ford Bronco II, 1987. Fallegur
bíll í góðu lagi. Ek. 214.000 km.
Verð kr. 265.000. Heilsársdekk.
Smurbók og þjónustunótur.
S. 892 7997 og 551 7997.
Oldsmobile árg. '87, ek. 235 þús.
km. Toronado Oldsmobile 1987,
3.8 lítra með skoðun, í góðu
standi, framhjóladrif, cd spilari,
fjarstart, raflæsing. S. 551 7538.
Nissan Partol Elegance 11.00,
sjálfsk., dísel, 35 tommu. Ekinn
106 þús. Til sölu glæsilegt eintak.
Verð 2.690 þús. Uppl. í síma 893
9732.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
VW Golf STW 1800 árg. '96, ek.
143.000 km. Skoðaður '06. Sumar/
vetrardekk. Toppeintak. Verð 250
þús. Sími 840 6045, Óli.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
FUNDUR í Kennarafélagi
Menntaskólans við Hamrahlíð
haldinn 7. febrúar sl. lýsir furðu
sinni á samkomulagi forystu
Kennarasambands Íslands og
menntamálaráðherra sem und-
irritað var 2. febrúar sl.
„Ekki var leitað álits fram-
haldsskólakennara né þeir að
neinu leyti hafðir með í ráðum.
Það er í andstöðu við þær vinnu-
reglur sem tíðkast hafa innan
kennarafélaganna og sem ber að
virða. Við teljum það mikilsvert
að koma í veg fyrir að áform
menntamálaráðherra um að
draga úr almennri menntun ís-
lenskra ungmenna nái fram að
ganga.“
Lýsa furðu sinni
á samkomulagi
DAGSFERÐIR og fjölmargar
lengri og skemmri sumarleyf-
isferðir um landið er að finna í
ferðaáætlun Ferðafélags Íslands
2006, sem kemur út nú um helgina.
Farið verður víða í ár, bæði um
kunnuglegar slóðir en einnig um
svæði sem ekki hafa áður verið á
dagskrá. Ferðaáætlun deilda FÍ er
einnig að finna í áætluninni.
Svæði sem hafa
verið í umræðunni
Dagsferðir eru jafnan stór þáttur
í starfi FÍ. Þar má nefna Esjudag-
inn í samstarfi við Spron, Reykja-
víkurgöngu undir leiðsögn Guðjóns
Friðrikssonar og fugla- og blóma-
skoðunarferðir. Í maí verða morg-
ungöngur á dagskrá vikulangt. Þá
verður við fyrsta hanagal arkað á
fjöll í nágrenni borgarinnar og
komið til baka um það leyti sem
vinnudagur hefst.
Í júní stendur FÍ fyrir í dagsferð
að Langasjó og að öðrum leiðangri
síðla sumars í Þjórsárver, en bæði
þessi svæði hafa nokkuð verið í um-
ræðunni síðustu misserin. Þá stend-
ur félagið fyrir göngu á Hvanna-
dalshnúk, hæsta fjall landsins um
hvítasunnuna, með Haraldi Erni
Ólafssyni pólfara. Fræðsluferðir um
Þjóðgarðinn á Þingvöllum verða á
dagskrá á sunnudögum. Auk dags-
ferða sem fram koma í áætluninni
stendur félagið fyrir fjölmörgum
öðrum dags- og kvöldferðum sem
kynntar eru með styttri fyrirvara á
heimasíðu þess, www.fi.is.
Á slóðum sauðaþjófa
Af lengri sumarleyfisferðum má
nefna Hornstrandaferðirnar sem
njóta alltaf mikilla vinsælda. Á slóð-
um útilegumanna og sauðaþjófa á
Kili nefnist ferð í júlí og um svipað
leyti er á dagskrá sex daga göngu-
ferð úr efstu byggðum Borg-
arfjarðar, um Arnarvatnsheiði og
niður í Miðfjörð. Forseti félagsins,
Ólafur Örn Haraldsson verður far-
arstjóri í göngu um mitt sumar um
Jarlhettur, Hagavatn, Hlöðuvelli,
Klukkuskarð og víðar. Göngur um
Laugaveginn úr Landmannalaugum
og suður í Þórsmörk njóta vinsælda
og hafa þúsundir Íslendinga arkað
þá slóð undir leiðsögn FÍ sem býð-
ur upp á skipulagðar Laugavegs-
göngur yfir sumarið. Leiðin er alla
jafnan gengin á fjórum dögum en
verður farin á sex dögum í einni
ferð sumarsins og verður staldrað
við ýmis ægifögur náttúruvætti.
Sá hópur sem ferðast um landið á
eigin vegum fer sífellt stækkandi.
Margir í þeim hópi nýta sér þjón-
ustu FÍ og aðilarfélaga þess. FÍ að-
stoðar við skipulagningu ferða, út-
vegar fararstjóra og fleira auk þess
að veita þjónustu í fjölda skála á
hálendinu og í óbyggðum. Þá stend-
ur félagið sömuleiðis að öflugu út-
gáfustarfi og ber árbók þess þar
hæst. Bækurnar hafa komið út
samfellt frá 1928. Árbók þessa árs
er væntanleg á vordögum og þar
fjallar Jón Gauti Jónsson um Mý-
vatnssveit.
Ferðafélag Íslands hefur gefið út ferðaáætlun fyrir sumarið 2006
Morgunblaðið/RAX
Á fjöll við
fyrsta hanagal
HEFÐBUNDIÐ skólastarf verður
brotið upp í Menntaskólanum við
Sund vikuna 12.–16. febrúar og
nemendur vinna þemaverkefni. Í
ár er þemað íslensk menning.
Hver bekkur hefur valið sér við-
fangsefni í samráði við umsjón-
arkennara sinn og vinna bekkir á
fjölbreytilegan hátt að viðfangs-
efnum sínum. Nemendur munu
m.a. fjalla um ásatrú, drauga, mat-
argerð, rímur, sælgæti, sauð-
kindina, tónlist, fangelsi, bygg-
ingastíl, hestamenningu, kúna,
veitingastaði, hjátrú, einelti, ljóð,
Íslandsvini, rúnir, furðufugla,
sakamál, fyndni og unglingamenn-
ingu.
Á fimmtudaginn heldur Nem-
endafélag MS árshátíðarmorgun-
verð með skemmtidagskrá í Há-
logalandi, íþróttasal skólans. Þá
verður einnig sýning á fimmtudeg-
inum á afrakstri verkefnavinnu
nemenda á ýmsum stöðum í skól-
anum.
Í tengslum við þemavikuna ætl-
ar Skólafélag MS að halda upp-
lestrarmaraþon og safna áheitum
til styrktar Barnaheillum frá kl. 12
á morgun, sunnudaginn 12. febr-
úar til kl. 12 þriðjudaginn 14. febr-
úar 2006. Allir nemendur skólans
taka þátt í maraþoninu sem á að
standa óslitið í tvo sólarhringa.
Lesið verður úr völdum Íslend-
ingasögum. Allur ágóði maraþons-
ins rennur óskiptur til verkefnis
Barnaheilla um uppbyggingu skóla
í Kambódíu. Maraþonið mun fara
fram í aðstöðu Skólafélagsins í
Skálholti.
Upplestrarmara-
þon í tvo daga í MS
BÍLAUMBOÐIÐ Askja, umboðsaðili
Mercedes-Benz á Íslandi, frumsýnir
um helgina nýjan Mercedes-Benz R-
Class.
R-Class fæst með öflugum bensín-
og dísilvélum og er meðal annars bú-
inn loftknúnum fjöðrunarbúnaði, sí-
drifi, sjálfstæðum sætum og öflugu
loftræstikerfi. Þessi bíll sameinar
hönnun og gott rými og þægindi fyr-
ir sex manns, segir í fréttatilkynn-
ingu. Sýningin stendur yfir í dag,
laugardag, og á morgun, sunnudag,
og er opið kl. 12–16 báða daga.
Sýna nýjan
Mercedes-Benz