Morgunblaðið - 11.02.2006, Blaðsíða 70
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
JÓN KLAUFI, STATTU
UPP ÚR GÓLFINU
ÞÚ HRINTIR MÉR
GRETTIR!
AF HVERJU EINBLÍNIRÐU
ALLTAF Á FORTÍÐINA?
SEX...
ELLEFU,
NÍU...
...ÞRJÁTÍU...ÞRÍR
ÞÚ
HITTIR
EKKI
NÓGU
VEL Á
MIG
AF HVERJU ERTU ENN Í
RÚMINU, KALVIN?
ÉG ER
SLAPPUR
JÁ ÞÚ ERT FREKAR
HEITUR, ÉG ÆTLA AÐ
MÆLA ÞIG
ÉG VIL EKKI
VERA VEIKUR
NÚNA, ÞAÐ ER
SUMAR. ENGINN
SKÓLI TIL AÐ
FORÐAST
SÁ SEM BER ÁBYRGÐ Á
ÞESSU MUN FÁ
FYRIR FERÐINA
ÉG SKIL VEL AÐ SUMIR
VILJI VERA STAÐSETTIR EINS
NÁLÆGT VINNUNNI SINNI
OG HÆGT ER
EN HRÓLFUR VILL BARA VERA EINS
NÁLÆGT MATNUM SÍNUM OG HANN
MÖGULEGA GETUR
STAÐSETNING SKIPTIR
MIKLU MÁLI
ÞAÐ ER OF
FLÓKIÐ AÐ
ÚTSKÝRA
ÞETTA.
HORFÐU BARA
Á FRÉTTIRNAR
Í KVÖLD
ÉG VAR SVO ÁNÆGÐUR
ÞEGAR ÉG KEYPTI
ÞETTA KVIKINDI
EN ÉG Á ERFITT MEÐ
AÐ HUGSA UM ANNAÐ EN
ÞAÐ HVAÐ ABBY ÞOLIR
HANN EKKI
ÞAÐ ER EKKERT GAMAN
AÐ EIGA HANN ÞEGAR ÉG
VEIT AÐ HANN FER Í
TAUGARNAR Á HENNI
LÍFIÐ VÆRI SVO MIKLU
AUÐVELDARA EF ÉG VÆRI
SAMVISKULAUSARI
EITRIÐ MITT SVÆFIR
ANDSTÆÐINGA MÍNA
EN ÞÚ ERT GREINILEGA
STERKUR, ÞÚ VAKIR ENN
EN ÉG Á ERFITT MEÐ AÐ
HALDA MÉR VAKANDI.
STYRKUR MINN DVÍN
Dagbók
Í dag er laugardagur 11. febrúar, 42. dagur ársins 2006
Það var í fréttumfyrr í vikunni að
Íslendingur var hand-
tekinn og sektaður
fyrir ósiðlegt athæfi
frammi fyrir kon-
unglegum lífvörðum
drottningar í Kaup-
mannahöfn. Víkverji
las stutta frétt um
þetta á Mbl.is og þótti
spaugilegt, enda hið
kjánalegasta mál allt
saman. Næsta dag var
fréttin komin á forsíðu
DV þar sem hún var
aðalfrétt dagsins og
maðurinn nafn-
greindur, birt af honum mynd og
sagt hvað hann hefur að starfi.
Víkverji sér að DV er enn við
sama heygarðshornið og fremur enn
tilgangs- og tilefnislaus mannorðs-
morð á síðum sínum.
Það er að mati Víkverja algjör
óþarfi, og raunar aðeins kvikind-
isskapur, að nafngreina manninn,
hvað þá birta af honum mynd. Frétt-
in eins og Víkverji las hana fyrst, þar
sem aðeins var lýst málsatvikum,
var alveg nóg: skondin saga af
drykkjuvitleysu Íslendings í útland-
inu. Að slengja þessari sögu á for-
síðu, með nafni og mynd, er allt ann-
að mál: grimmileg
slúðurblaðamennska
þar sem venjulegur
maður sem steig
óheppilegt feilspor er
kvalinn enn frekar á
sinni verstu stundu.
DV sparkar í liggjandi
mann, eins og svo oft
áður.
Af hverju þarf að
reka á Íslandi blöð
sem byggjast á því að
teygja á og bjaga
sannleikann, smjatta á
slúðursögum og bera á
torg fyrir alþjóð einka-
vandamál venjulegs
fólks?
Slíkir fjölmiðlar gegna engu hlut-
verki fréttamiðils. Þeir bæta engu
gagnlegu við umræðuna og fegra
ekki samfélagið eða göfga andann.
Það eina sem þeir gera er að seðja
einhvern frumstæðan kvalalosta
þeirra smásála sem lesa slíka vit-
leysu á annað borð.
Höfum við efni á þessu? Erum við
ekki öll jafnmennsk og ófullkomin?
Getur það ekki hent okkur öll að
misstíga okkur eða lenda í vandræð-
um, sem þjóðinni koma ekkert við?
Þeir sem skrifa greinar eins og
birtast í DV – og líka fólkið sem les
þær – eru kannski þeir sem hafa efni
á að kasta fyrsta steininum?
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Tónlist | Jónas Guðmundsson er ungur tenór nýverið lauk námi frá óp-
erudeildinni í Royal Academy of Music í London, en hann dvaldi áður við
framhaldsnám í Berlín. Á tónleikum í Salnum í Kópavogi í dag kemur hann
fram ásamt Jónasi Ingimundarsyni, og hefjast þeir kl. 16.
Munu þeir nafnarnir flytja fjölbreytta dagskrá eftir ýmsa höfunda; þar á
meðal íslensk og erlend sönglög eftir Markús Kristjánsson, Emil Thorodd-
sen, Rachmaninoff, Strauss, Tosti og Respighi, sem og aríur eftir Tchai-
kovsky, Mozart, Verdi og Rossini.
Morgunblaðið/Ásdís
Jónasar í Salnum
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100.
Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: En sá sem uppfræðist í orðinu, veiti þeim, sem uppfræðir,
hlutdeild með sér í öllum gæðum. (Gal. 6, 6.)