Morgunblaðið - 11.02.2006, Qupperneq 73
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 73
DAGBÓK
og miðla þekkingu á menningararfi Íslend-
inga frá landnámi til nútíma. Opið alla daga
nema mánudaga kl. 11–17.
Skemmtanir
Cafe Catalina | Hörður G. Ólafsson spilar
og syngur í kvöld.
Kringlukráin | Rokksveit Rúnars Júl-
íusonar með stórdansleik kl. 23 í kvöld.
Súgfirðingafélagið í Reykjavík | Þorrablót
í Akoges-salnum við Sóltún, húsið opnað
kl. 19, borðhald hefst kl. 20. Veislustjóri er
sr. Sigríður Guðmarsdóttir, flutt verða
minni karla og kvenna, botnaðir verða
fyrripartar Snorra Sturlusonar. Happ-
drætti til ágóða fyrir íbúðina á Suðureyri.
Grái fiðringurinn spilar fyrir dansi. Hitt-
umst hress.
Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveitin Sér-
sveitin leikur fyrir dansi í kvöld, húsið opn-
að kl. 22, frítt inn til miðnættis.
Mannfagnaður
Breiðfirðingafélagið | Félagsvist í Breið-
firðingabúð, Faxafeni 14, 12. febrúar kl. 14.
Annar dagur í fjögurra daga keppni.
Fyrirlestrar og fundir
ReykjavíkurAkademían | Reykjavík-
urAkademían ræðir um málefni innflytj-
enda á Íslandi, í fyrirlestraröðinni, Vara-
vinnuafl eða vannýtt auðlind. Næsta erindi
heitir: Menntunarmöguleikar í nýju landi og
fer fram 11. feb. kl. 12. Ahn-Dao Tran
menntunarráðgjafi veltir því m.a. fyrir sér
af hverju nemendur af erlendum uppruna
á Íslandi hætta í framhaldsskóla.
Styrkur | Styrkur er með opið hús 14. febr.
kl. 20 í Skógarhlíð 8, 4. hæð. Dagskrá:
Magnea S. Ingimundardóttir, þekking-
arstjóri hjá Nýherja, talar um líf og viðhorf
þeirra sem greinast með krabbamein.
Hólmfríður Friðriksdóttir sýnir myndir úr
starfi Styrks. Kaffi og allir velkomnir.
Fréttir og tilkynningar
Skuld á Rósenberg | Dyslexíufélagið Skuld
heldur stofnfund um verðandi háskóla-
félag. Fundurinn verður 16. feb. kl. 20, á
Kaffi Rósenberg og hefst með kvöldverði
þar sem gefst tækifæri á að ræða sýn fé-
lagsins og almenn stofnfundarstörf.
Frístundir og námskeið
Púlsinn ævintýrahús | Námskeið í orku-
dansi verður á föstudagskvöldum kl. 19.30.
Nýtt námskeið hefst 3. mars. Skráning á
heimasíðunni www.pulsinn.is og í síma
848 5366.
Félagsstarf
Ásgarður | Félagsvist og dans verð-
ur í Ásgarði, Stangarhyl 4, laug-
ardaginn 11. febrúar. Félagsvistin
hefst kl. 20 og dans að henni lok-
inni um kl. 22.30. Stefán G. leikur
fyrir dansi, dans við allra hæfi. Fé-
lagsstarf SÁÁ.
Dalbraut 18–20 | Félagsstarfið er
öllum opið. Munið brids alla mánu-
daga kl. 13. Tungubrjóta kl. 13.30 á
mánudögum. Félagsvistin er á
þriðjudögum kl. 14. Leikfimi tvisvar í
viku kl. 10 árdegis. Frjálsi handa-
vinnuhópuinn hittist í fyrsta sinn
miðvikudag 15. feb. kl. 13. Allir vel-
komnir. Upplýsingar í síma
588 9533.
FEBÁ, Álftanesi | Æfum boccia
undir leiðsögn Denna, í íþróttahús-
inu alla laugardaga kl. 12–13. Allir
eldri borgarar velkomnir, engin
kunnátta nauðsynleg. Boccia-kúlur á
staðnum.
Félag eldri borgara Kópavogi,
ferðanefnd | Skráning fer nú fram
vegna sæludaga á Hótel Örk vikuna
26.–31. mars nk. Listar eru á upplýs-
ingatöflum félagsmiðstöðvanna Gjá-
bakka og Gullsmára. Hægt er að
skrá sig á skrifstofu FEBK í Gull-
smára 9 á skrifstofutíma. Takmark-
aður fjöldi gistinga í boði. Fyrstur
kemur – fyrstur fær. Ferðanefndin.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Leikfélagið Snúður og Snælda frum-
sýnir leikritið Glæpir og Góðverk í
Iðnó sun. 12. febr. kl. 14. Leikgerð
Sigrún Valbergs. Leikstjóri Bjarni
Ingvarsson. Miðapantanir í Iðnó í
síma 562 9700. Sýningar á mið-
vikudögum og sunnudögum. Dans-
leikur sunnudagskvöld kl. 20. Hljóm-
sveitin Klassík leikur fyrir dansi.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Myndskreytt ljóðasýning stendur yf-
ir í Garðabergi á ljóðum Magnúsar
Hagalínssonar og Sólveigar Öldu
Pétursdóttur. Sýning stendur til og
með 16. febrúar. Opið er alla virka
daga nema þriðjudaga kl. 12.30–
16.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 13–16
„Ort í ull“, opin listsýning Sigrúnar
Björgvins, listakonan er á staðnum.
Hvern virkan dag kl. 9–16.30 er fjöl-
breytt dagskrá, m.a. á þriðjud. og
föstud. Létt ganga um nágrennið,
lagt af stað kl. 10.30 frá Gerðubergi.
Allir velkomnir.
Hæðargarður 31 | Allir velkomnir í
félagsstarfið. Listasmiðjan er opin
alla daga milli 9–16. Félagsvistin er
alla mánudaga kl. 13.30 eins og ver-
ið hefur undanfarna áratugi. Sama
er að segja um leikfimina á þriðju-
dögum og miðvikudögum kl. 10–11.
Kíktu við og kynntu þér dagskrána
eða fáðu hana senda heim.
Vesturgata 7 | Spilað verður bingó
miðvikudaginn 15. febrúar kl. 12.45,
marengsjómaterta í kaffitímanum.
Allir eru velkomnir.
Kirkjustarf
Grensáskirkja | Fundur Kvenfélags
Grensássóknar verður haldinn í
safnaðarheimilinu mánudaginn 13.
febrúar kl. 20. Stjórnin.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Kvenfélag Bústaðasóknar | Aðal-
fundur Kvenfélags Bústaðasóknar
verður haldinn 13. febrúar kl. 20, í
Bústaðakirkju.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
FRANZ Graf opnar sýningu í Ný-
listasafninu í dag og ber hún heitið
„Flagg – Love My Dreams“. Að
sögn Franz Graf er „Love my
dreams“ ekki boð, heldur skipun –
án þess þó að heimssýn Franz Grafs
sé sneydd allri kímnigáfu. „Hún er
bara ekki ókeypis,“ segir í tilkynn-
ingu frá safninu. „Hún kemur beint
og gerir ráð fyrir að kennsla og
vinna séu til óháð hvor annarri.
Franz Graf er það íhaldssamur að
hann byggir ákveðinn létteika inn í
verk sín.“
Franz Graf býr og starfar í Aust-
urríki og er í hópi þekktustu mynd-
listarmanna þarlendis. Hann kennir
við Universität für bildende Kunst í
Vín og hefur haldið fjölda sýninga
víða um heim, og sýndi hér síðast á
Íslandi fyrir átta árum síðan. Þessi
nýjasta sýning hans vakti mikla at-
hygli þegar hún var sýnd í Vín, þar
sem gagnrýnandi Art Forum kall-
aði hana „gífurlega áhrifaríka
einkasýningu“.
Sýningin í Nýlistasafninu stend-
ur til 5. mars og er safnið opið frá
miðvikudegi til sunnudags kl. 13-
17, og til kl. 10 á fimmtudögum.
Safnið er á Laugavegi 26 en inn-
gangur er frá Grettisgötu. Aðgang-
ur að sýningunni er ókeypis.
Franz Graf opnar sýningu í
Nýlistasafninu í dag.
Elskaðu
drauma
mína!
STILLANSAR er heiti samsýn-
ingar þeirra Önnu Guðjónsdóttur,
Önnu Hallin og Önnu Líndal, sem
opnuð verður í Nýlistasafinu í dag
kl. 16.
Anna Líndal segir að heiti sýn-
ingarinnar vísi til þeirrar stans-
lausu framkvæmdagleði sem sé við
völd hjá þeim Önnum. Anna Guð-
jóns segir að stillansarnir séu líka
aðferð þeirra til að hnýta sýninguna
saman; þeir séu beinagrindin sem
tengi þær þrjár. Anna Hallin nefnir
að stillansarnir séu líka þeirra leið
við að skipuleggja rýmið og leiða
áhorfendur um það. „Þeir virkja
rýmið,“ segir hún, „og þeir skapa
jákvæðar og neikvæðar hliðar, –
skugga og birtu, bakhlið og fram-
hlið. Þetta er beinagrindin sem við
setjum kjötið okkar á.“
En þótt stillansarnir skapi sýn-
ingunni form og línur, og séu brú á
milli myndheima hverrar fyrir sig,
þá byggja Önnurnar hugmyndir
sínar að listsköpun ekki á þeim. Þar
eru önnur element að verki. Það má
segja að allar stundi þær ákveðnar
rannsóknir í verkunum sem þær
sýna, Anna Hallin hefur orðið:
„Ég skoða veggsnið, og hef
áhuga á því sem er á milli veggja
þegar maður borar gat í gegnum
þá. Hvar byrjar veggurinn og hvar
endar hann, hvað er bakhlið og
hvað er framhlið, karlkyns og kven-
kyns? Mér finnst gaman að skoða
tvíræðnina í hlutlausu svæði veggj-
arins. Áferð hans og litir heilla mig,
og það er líka gaman að kroppa
smávegis í veggfóðrið, til að gá
hvað er undir. Ég hef gaman af því
að rannsaka hvað er undir yfirborð-
inu. Maður gæti fundið herbergi
sjálfs sín bak við vegginn, eða allt
litróf tilfinninganna; – stundum
finnur maður eitthvað djúpt, stund-
um ekki.“
Anna Guðjónsdóttir hefur búið í
Hamborg um árabil. Hennar rann-
sóknarefni er náttúran – eða öllu
heldur landslagið. „Ég rannsaka
myndir og ímyndir náttúru og
landslags. Menning og pólitík
skipta máli við þær rannsóknir. Ég
skoða hugmyndir okkar um náttúr-
una og hvernig hún er seld okkur.
Ef maður skoðar listasöguna sér
maður ótal ímyndir landslags og
náttúru. Ég hef notað málverkið
sem minn miðil en ljósmyndir líka.
Hér sýni ég tvö málverk sem koma
inn á þessar hugmyndir mínar um
ímynd landslagsins.“ Anna tekur
dæmi af því hvaða áhrif menningin
hefur á upplifun okkar af landslagi:
„Ef ég teikna stein, – þá kemur
hann auðveldlega. En í fyrsta skipti
sem ég átti að teikna tré varð ég að
ná mér í bækur og taka myndir af
trjám. Þau urðu samt eins og ljósa-
staurar þar til ég var búin að læra á
þau og vera innan um þau.“
Saumað í land
Anna Líndal rannsakar rann-
sóknir; – rannsóknir á nýja gígnum
sem kom í síðasta gosi í Gríms-
vötnum í nóvember 2004. „Hæfileiki
náttúrunnar til að vernda sjálfa sig
og eyða sjálfri sér er heillandi. Það
er magnað að sjá þau öfl að störfum
sem valda þeirri eilífu breytingu
sem á sér stað á þessu svæði. Það
er líka merkilegt að sjá hvernig
manneskjan er strax komin til þess
að skoða og skilgreina, mæla og
skrá.“ Anna hefur í fyrri verkum
gjarnan fengist við arfinn; – það
sem er þjóðlegt og á sér langa
sögu. „En landið er alveg nýtt
þarna og á sér enga sögu. Það er
mikill galdur í því. Þetta er efnivið-
urinn sem ég nota í verkunum mín-
um hér.“ Anna sýnir myndband af
vísindamanni sem kortleggur nýja
gíginn með GPS-staðsetningartæki.
Þetta gerir hann einfaldlega með
því að ganga um svæðið þvers og
kruss með tækið á bakinu. Hitt
verkið er damaskdúkur sem hún
hefur bróderað í alla gönguferð vís-
indamannsins, en líka kortið sem
varð til eftir mælingar hans. And-
stæðurnar eru víða; heimilislegur
saumaskapur, formfastur og huggu-
legur og tekur langan tíma og
natni, andspænis eldsumbrotunum
sem eru kaótísk og gerast á svip-
stundu. Sporin eru það sem sam-
einar vísindamanninn á skrásetn-
ingargöngu sinni um svæðið og
saumakonuna með þráðinn. Lík-
indin eru að sama skapi augljós,
þar sem hann saumar sig skref fyr-
ir skref í ónumið land, eins og hún
tekur spor eftir spor í ónumið land
dúksins. Þrá manneskjunnar til að
höndla náttúruna er stöðug.
Aðspurðar hvort það hafi eitt-
hvað að segja um sýninguna að þær
heita allar Anna segja listakon-
urnar það fyrst og fremst felast í
því hvað það sé gaman að vera
myndlistarmaður á Íslandi, þar sem
valið sé svo mikið. „Nýlistasafnið er
frábært, og hefur í raun bjargað ís-
lenskri myndlist,“ segir Anna Lín-
dal. „Þar er hægt að leggja fram
hugmynd um að bjóða tveimur
Önnum að sýna með sér. Það gekk
upp, og er búið að vera mjög gam-
an.“
Myndlist | Stillansar hnýta sýninguna saman
Rannsóknir á landi og veggjum
Anna Líndal, Anna Guðjónsdóttir og Anna Hallin við stillansa.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
Ýmir, kl. 13
QUESTIO – tónverk eftir ítalska
tónskáldið Maurizio Pisati verður
frumflutt á Myrkum músíkdögum í
Ými – tónlistarhúsi í dag. Um er að
ræða heimsfrumflutning á verki
þessa tónskálds, sem er í fram-
varðasveit ítalskra nútímatónskálda.
Tónleikarnir hefjast kl. 13 og
verkið er það eina á dagskránni og
tekur rúma hálfa klukkustund í
flutningi. Flytjendur á tónleikunum
eru Pisati sjálfur með undirbúna og
lifandi hljóðblöndun, Steef van Oos-
terhoud á slagverk, Eiríkur Örn
Pálsson á trompet og Thor Vil-
hjálmsson rithöfundur, sem fer með
texta Dantes á ítölsku, íslensku og
latínu.
Hlusti eins og börn
QUESTIO er byggt á erindinu
Questio de aqua et terra eða Spurn
um vatn og jörð eftir Dante Aligheri
og var samið í Verona á Ítalíu árið
1320. Verkið samdi Pisati með rödd
Thors Vilhjálmssonar í huga. „Thor
er aðalatriðið í verkinu,“ segir hann í
samtali við Morgunblaðið. „Það er
byggt upp að miklu leyti upp af
þögnum, í samræmi við rödd Thors –
við leikum sem sagt ekki meðan
hann talar.“
Pisati segist leggja til við áheyr-
endur á tónleikunum að þeir safnist
fyrir framan Thor og hlusti á hann
eins og börn. „Líkt og verið sé að
hlusta á sögu fyrir svefninn,“ segir
hann, en Thor mun lesa á ítölsku og
lítið eitt á íslensku.
Fullkomin rödd fyrir Dante
Thor og Pasati kynntust gegnum
sameiginlegan vin, ítalskt ljóðskáld
sem lést fyrir þremur árum. „Ég
hitti Thor síðan, skömmu eftir að
ljóðskáldið lést úti á Ítalíu, og með
okkur tókst mikil vinátta. Hann er
einstakur maður, hann Thor,“ segir
Pisati.
Nýverið hittust þeir síðan aftur og
þá á skrifstofu útgefanda Thors á
Ítalíu. Uppúr þeirri heimsókn varð
QUESTIO til. „Við unnum þá saman
upptöku með upplestri Thors.
Seinna gerðum við síðan upptöku af
Thor að lesa úr erindi Dante á lat-
ínu, sem síðan er hljóðblönduð og
notuð í verkinu,“ segir Pisati um til-
urð verksins.
Og hvernig þykir honum rödd
Thors Vilhjálmssonar passa sjálfum
Dante?
„Hún er fullkomin fyrir Dante,
enda bað ég bað hann að setja sig
sérstaklega í hans spor í upplestr-
inum,“ segir Pisati að síðustu.
Maurizio Pisati, sem fæddist í Míl-
anó 1959, flytur eigin tónsmíðar,
jafnan með tónlistarhópi sínum,
ZONE. Tónlist hans hefur verið
flutt víða um heim, gefin út og hlotið
verðlaun, og verið valin í nokkrar al-
þjóðlegar keppnir.
Norræna húsið, kl. 15
Gítartónleikar.
Sergio Puccini leikur, og flytur
meðal annars nýtt verk eftir Karól-
ínu Eiríksdóttur.
Langholtskirkja, kl. 17
Hymnodia – Kammerkór Akureyr-
arkirkju flytur ný verk úr norðrinu.
Eyþór Ingi Jónsson stjórnar.
Ýmir, kl. 20
Söngur rökkurs og ryks.
Caput leikur ný verk. Einsöngvari
er Ásgerður Júníusdóttir, en stjórn-
andi er Daníel Bjarnason.
Myrkir músíkdagar | Heimsfrumflutningur á Questio
Dante með rödd Thors
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Flytjendur á tónleikunum í Ými í
dag kl. 13: Eiríkur Örn Pálsson,
Thor Vilhjálmsson, Maurizio Pisati,
sem er höfundur verksins, og Steef
van Oosterhoud.